Ægir

Volume

Ægir - 01.01.2018, Page 38

Ægir - 01.01.2018, Page 38
38 K rossg á ta F réttir Árið 2017 var þokkalegt hjá fiskimjölsverksmiðjum Síldar- vinnslunnar hvað magn áhrærir en verð á afurðum þeirra var hins vegar lágt. Samtals tóku verksmiðjurnar þrjár sem fyrir- tækið rekur, þ.e. í Neskaupstað, á Seyðisfirði og í Helguvík, á móti 196.697 tonnum af hráefni á árinu. Til samanburðar má geta þess að á árinu 2016 tóku þær á móti 131.460 tonnum, 259.394 tonnum árið 2015, 161.168 tonnum árið 2014 og 206.074 tonnum árið 2013. Það eru ekki síst loðnuvertíðirnar sem ráða því hve hráefni verk- smiðjanna er mikið á ári hverju. Sem dæmi má nefna að loðnu- vertíðir áranna 2016 og 2014 voru lélegar og þá kom lítið í hlut verksmiðjanna. Eins og sjá má á meðfylgj- andi töflu var langmestu landað í verksmiðjuna í Neskaupstað, eða 118.500 tonnum. Til saman- burðar þá tók sú verksmiðja á móti rösklega 91 þúsund tonn- um árið 2016, verksmiðjan á Seyðisfirði vann þá úr 28.500 tonnum og verksmiðjan í Helguvík úr tæplega 12 þúsund tonnum11.916 tonnum. Þokkalegt ár hjá fiski- mjölsverksmiðjum SVN Staður Móttekið Framleitt Framleitt magn hráefnis mjöl lýsi Neskaupstaður 118523 24.684 7.944 Seyðisfjörður 59.420 12.235 1.607 Helguvík 18.754 3.325 1.457 Fiskimjölsverksmiðja SVN í Helguvík tók við tæplega 19 þúsund tonn- um af hráefni í fyrra.

x

Ægir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ægir
https://timarit.is/publication/584

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.