Morgunblaðið - 06.12.2017, Síða 2

Morgunblaðið - 06.12.2017, Síða 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2017 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf. Tugir milljóna í biðlaun  Fráfarandi aðstoðarmenn ráðherra fá biðlaun í 3 mánuði  Með 1,2 m.kr. á mán. Vilhjálmur A. Kjartansson vilhjalmur@mbl.is Fimm ráðherrar hurfu úr ríkisstjórn í kjölfar stjórnarskipta og með þeim hverfa úr starfi níu aðstoðarmenn. Benedikt Jóhannesson, fyrrver- andi fjármála- og efnahagsráðherra, var með einn aðstoðarmann, Gylfa Ólafsson. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, fyrrverandi sjávarút- vegs- og landbúnaðarráðherra, var með tvo að- stoðarmenn, þá Guðmund Kristjón Jónsson og Pál Rafnar Þorsteinsson. Þorsteinn Víglunds- son, fyrrverandi félags- og jafnréttismálaráð- herra, var einnig með tvo aðstoðarmenn, þau Karl Pétur Jónsson og Þorgbjörgu Sigríði Gunnlaugsdóttur. Björt Ólafsdóttir, fyrrverandi umhverfis- og auðlindaráðherra, var með tvo aðstoðarmenn, þau Steinar Kaldal og Þórunni Pétursdóttur. Síðast en ekki síst var Óttarr Proppé, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, með tvo aðstoðarmenn, þau Sigrúnu Gunnarsdóttur og Unnstein Jóhannsson. Biðlaun upp á 32,4 m.kr. Aðstoðarmaður ráðherra á rétt á biðlaunum í þrjá mánuði eftir að hann lætur af starfi, sam- kvæmt lögum um Stjórnarráð Íslands. Hafi að- stoðarmaður áður verið ríkisstarfsmaður á hann rétt á að hverfa aftur til fyrra starfs síns eða annars starfs en þó ekki á lakari kjörum. Þiggi fyrrverandi aðstoðarmaður ráðherra laun vegna annarra starfa á því tímabili sem hann á rétt á biðlaunum vegna fyrri starfa sinna sem aðstoðarmaður skerðast biðlaunin sem nemur þeim launum er þeir víkja úr starfi. Fráfarandi aðstoðarmenn eiga því rétt á biðlaunum út febrúar á næsta ári ef miðað er við að ný rík- isstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks tók við völdum þann 30. nóv- ember. Laun aðstoðarmanna ráðherra eru ákvörðuð samkvæmt ákvörðun kjararáðs um kjör skrif- stofustjóra í ráðuneyti. Miðað við síðustu hækkun kjararáðs á þeim launum fá aðstoð- armenn ráðherra tæpar 1,2 milljónir króna í mánaðarlaun. Launakostnaður ríkisins vegna biðlauna nemur því rúmum 32 milljónum króna auk almenns launakostnaðar. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Fleiri fyrirtæki veita upplýsingar um símanúmer en 1818 og 1819. Fyr- irtækið Miðlun rekur einnig upplýs- ingaveitu í símanúmerinu 1800. Andri Árnason, framkvæmda- stjóri Miðlunar, segir að fyrirtækið bjóði viðskiptavinum eitt fast verð óháð lengd símtala og því hvaða símafyrirtæki viðskiptavinurinn er í viðskiptum hjá. „Við seljum okkar þjónustu á 320 krónur óháð lengd símtalsins, inni í þessari upphæð eru þóknanir sem símafyrirtækin taka. Í samningi okk- ar við símafyrirtækin tryggjum við að neytendur borgi einungis 320 krónur sem þeir sjá í verðskránni hjá okkur,“ segir Andri. Hann bætir við að 1800 nái að bjóða upp á þetta verð með því að vera einungis með upplýsingaþjónustu í síma. Ekki sé boðið upp á smáforrit né á leit á net- inu og afgreiðslutíminn sé frá 8 til 20 alla daga. „Við reynum að haga okkar mód- eli þannig að kostnaður neytenda sé sýnilegur og í lágmarki. Þannig náum við lægsta verðinu á markaðn- um.“ Dýr leið fyrir eldri borgara Andri segir að þeim fækki sem nýti sér að hringja í upplýsingaveit- ur. Það sé frekar eldra en yngra fólk sem noti þjónustuna og hann telur að verðvitund fólks sé almennt ekki mikil varðandi upplýsingaveitur. Ellert Schram, formaður félags eldri borgara í Reykjavík og ná- grenni, segir að full ástæða sé til þess að skoða betur aðgang eldra fólks að upplýsingum. „Ég hef það á tilfinningunni að eldra fólk sé ekki eins tæknilegt og það yngra. Það þurfi því margir eldri borgarar að nýta sér dýrar leiðir til þess að finna símanúmer eftir að hætt var að prenta símaskrána.“ Samkvæmt verðkönnun Morgun- blaðsins er ódýrast að nýta sér þjón- ustu 1800 og greiða 320 krónur í fast gjald fyrir hvert símtal, óháð lengd símtalsins og því hjá hvaða símafyr- irtæki viðkomandi er. Þjónusta 1800 ódýrust  Eina leið þeirra sem ekki hafa aðgang að tölvu til að finna símanúmer er að hringja í upplýsingaþjónustur Flugfreyjufélag Íslands skrifaði undir samning við flugfélagið WOW air í gær. Samningar höfðu þá verið lausir í 14 mán- uði. Orri Þrastar- son, varafor- maður Flug- freyjufélags Íslands, sagðist virkilega ánægður með að hafa náð samningum við WOW air. Orri vildi ekki gefa upp hvað samningurinn felur í sér fyrr en búið væri að kynna hann félagsmönnum. Hann segir samninginn til tveggja ára og hann verði kynntur félags- mönnum þegar form atkvæða- greiðslu liggur fyrir. Starfsmenn WOW air boðuðu til stofnunar nýs stéttarfélags, Sam- bands íslenskra flugliða, í nóvember en frestuðu fljótlega stofnun félags- ins þegar Flugfreyjufélag Íslands hóf vinnu við að deildaskipta félag- inu að ósk flugliða WOW air. Erla Pálsdóttir, forsvarsmaður starfsmanna WOW air, segir hags- munaárekstra ástæðu þess að fyr- irhugað var að stofna nýtt stétt- arfélag. „Við gefum Flugfreyjufélaginu svigrúm til þess að vinna að því að deildaskipta félaginu. Ef það gengur ekki eftir þá tökum við upp þráðinn að nýju og vinnum að stofnun nýs stéttarfélags.“ ge@mbl.is Flugfreyj- ur semja við WOW Flugfreyjur Samn- ingar undirritaðir  Samið til 2 ára Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir vitnum að alvarlegu um- ferðarslysi sem átti sér stað á Bitru- hálsi á móts við Bæjarháls mánu- daginn 4. desember. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni en tilkynnt var um slysið klukkan 10:09. Karlmaður um þrítugt varð þar fyrir bifreið sem ek- ið var austur Bæjarháls og síðan beygt norður Bitruháls með þessum afleiðingum. Lögreglan biður þá sem kunna að hafa orðið vitni að slysinu að hafa samband í síma 444-1000, en einnig má senda upplýsingar í tölvupósti á netfangið sverrir.pall@lrh.is eða í einkaskilaboðum á Facebook-síðu lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Lögregla ósk- ar eftir vitnum Rústirnar einar eru eftir af Íslandsbankahúsinu við Lækjargötu en lóðin á sér merka sögu. Fyrir utan fornminjar sem fundist hafa á lóðinni stóð lengi á henni timburhús þar sem Jón Hermannsson lögreglustjóri átti heima. Á bílastæði lóðarinnar, þ.e. horni Vonarstrætis og Lækjargötu, stóðu lengi fræg timburhús er brunnu árið 1967. Í öðru húsinu bjó sr. Bjarni Jónsson, vígslubiskup og dómkirkjuprestur í Reykjavík, en hitt húsið átti Flosi Sig- urðsson en hann átti hina svokölluðu Flosaskúra við Sölvhólsgötu þar sem hann rak Rúllu- og hleragerðina. Afabarn hans var Flosi Ólafsson leikari. Þá var Ragnar Bjarnason söngvari fæddur í húsinu. Nú stendur til að byggja nýtt og glæsilegt hús á þessari sögufrægu lóð í miðbænum. Sögufrægur reitur fær nýtt hlutverk Morgunblaðið/Árni Sæberg Mannanafnanefnd hefur kveðið upp úrskurð sinn um að leyfa for- eldrum að nefna börn sín eftirfar- andi nöfnum. Eiginnafnið Ævi (kvk.) er samþykkt, eiginnafnið Hrafnynja (kvk.) er samþykkt, eiginnafnið Dóróþea (kvk.) er samþykkt og eiginnafnið Kamilus (kk.) er samþykkt og skulu öll þessi nöfn færð í mannanafnaskrá. Á grundvelli 3. mgr. 6. gr. laga nr. 45/1996 um mannanöfn var fallist á beiðni aðila við sérstakar að- stæður um að taka upp millinafnið Gasta. Millinafnið fer ekki á mannanafnaskrá. Beiðni um eigin- nafnið Indra (kk.) og eiginnafnið Theadór (kk.) var hafnað en til að hægt sé að sam- þykkja nýtt eig- innafn á manna- nafnaskrá þarf að uppfylla þrjú skilyrði. Þau eru: (1) Eig- innafn skal geta tekið íslenska eignarfallsend- ingu eða hafa unnið sér hefð í íslensku máli. (2) Nafnið má ekki brjóta í bága við íslenskt málkerfi. (3) Nafnið skal ritað í samræmi við almennar ritreglur íslensks máls nema hefð sé fyrir öðrum rit- hætti þess. Dóróþea og Ævi nú íslensk nöfn  Mannanafnanefnd úrskurðar Nöfn Leyfðum nöfnum fjölgar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.