Morgunblaðið - 06.12.2017, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.12.2017, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2017 Magnús Heimir Jónasson mhj@mbl.is Rúmur fjórðungur starfsmanna hjá tölvuleikjaframleiðandanum CCP veiktist af veirusýkingu og rann- sakar sóttvarnalæknir hver möguleg upptök sýkingarinnar gætu verið. „Þetta er nú bara eitt af okkar ábyrgðarhlutverkum; að aðstoða þegar upp koma svona hópsýkingar. Við notum þá stöðluð vinnubrögð við að reyna komast að því hver orsaka- valdurinn er og hvort við getum ræktað einhverjar bakteríur og fundið veirur,“ segir Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir hjá emb- ætti landlæknis. Hann staðfestir að 25-30% starfsmanna fyrirtækisins hafi veikst með uppköstum, niður- gangi og hita. Tóku sýni úr starfsmönnum „Við gerðum svokallaða hóp- rannsókn til að finna út hvað fólk hefði borðað, hvort það væri hægt að greina hvaðan þetta kæmi og úr hvaða matvælum. Við tókum sýni en það hefur ekki verið staðfest hver orsakavaldurinn er,“ segir Þórólfur en sex starfsmenn gáfu sýni til sótt- varnalæknis og eru þau síðustu í vinnslu. Spurður hvort þetta gæti verið nóróveira segir Þórólfur að engin ummerki um slíkt hafi fundist í sýn- um starfsmanna. Að hans sögn hefur fyrirtækið ráðist í hreinlætis- aðgerðir að ráðleggingum embættis- ins og ef ekkert finnst í síðustu sýn- unum verði ekki ráðist í frekari aðgerðir af hálfu sóttvarnalæknis. Fjórðungur starfsmanna CCP fékk veirusýkingu Morgunblaðið/Kristinn Magnússon EVE Sýndarveruleikatölvuleik- urinn EVE Valkyrie er frá CCP.  Sóttvarnalæknir rannsakar orsök Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Brotist var inn í tvo bíla í sömu inn- keyrslunni í Norðlingaholti aðfara- nótt mánudags án sjáanlegra um- merkja. Þetta var fyrir utan heimili Tómasar Inga Tómassonar. Hann á annan bílinn en hinn var í geymslu þar á meðan eigandinn var í útlöndum. Tómas segist vita um einn bíl til við- bótar í götunni sem var farið inn í. „Við erum 100% viss um að við læstum bílnum okkar og hinn bíllinn var læstur þegar eigandinn fór og ég var meira að segja búinn að athuga það fyrir hann. Bílarnir voru báðir opnaðir og rótað í öllu í þeim, það sést samt ekkert á þeim,“ segir Tómas. Bílarnir eru báðir með þráðlausa lykla og hægt er að opna þá þegar þeir skynja að lyklarnir eru í ákveð- inni nálægð. „Í kjölfarið á þessu var mér bent á að ef bíllyklarnir lægju nálægt útidyrahurð og bílnum væri lagt þar ekki langt frá væri hægt að spegla lykilinn með einhverri tækni og komast þannig inn í bílinn,“ segir Tómas. Mikið um innbrot í bíla Um er að ræða nýja tækni til inn- brota í bíla sem fjallað hefur verið nokkuð um í erlendum miðlum und- anfarið og Félag Íslenskra bifreiða- eigenda (FÍB) gerir að umfjöllunar- efni á heimasíðu sinni nýverið. Þar segir að grunur sé um að farið sé að nýta ákveðna tækni við innbrot hér á landi sem felst í því að merki frá lyklum bifreiða með lyklalaust að- gengi er notað til að opna þá. Svo virðist sem þessir tæknivæddu þjóf- ar noti merki, þó veik séu, frá bíl- lyklum sem eru inni í húsum til að komast inn í bíla, segir í umfjöllun FÍB. Samkvæmt erlendum fréttum má kaupa búnað til slíkra innbrota á um ellefu þúsund krónur á netinu. Valgarður Valgarðsson aðalvarð- stjóri á lögreglustöð 4 hjá lögregl- unni á höfuðborgarsvæðinu segir að mikið hafi verið farið inn í bíla á hans svæði, sem er Árbær, Grafarholt, Grafarvogur, Norðlingaholt, Mos- fellsbær, Kjósahreppur og Kjalar- nes, að undanförnu og í raun á höf- uðborgarsvæðinu öllu. „Við höfum ekkert í hendi í þeim málum, sem við erum að skoða, um að þessi tækni sé notuð,“ segir Valgarður. „Í sumum tilfellum eru ekki sjáanleg ummerki á bílunum, hvort sem fólk gleymir að læsa, ýtir óvart á takkann eða það er einhver svona tækni notuð.“ Lögreglan beinir því til fólks að skilja ekki verðmæti eftir í bílum. Í umfjöllun FÍB segir að litlar líkur séu á að bíleigendur fái tjón af slíku innbroti í bíla bætt því ummerki séu lítil sem engin. Tryggingafélögin líta svo á að ummerki um innbrot þurfi að vera til staðar svo eigendur bílanna fái tjón sín bætt. Tómas segir að þau hafi verið með lítil verðmæti í bílnum en sárast hafi verið fyrir son hans að tapa síman- um sínum sem hann gleymdi úti í bíl í þetta fyrsta og eina skipti. „Við er- um búin að fá okkar þennan forláta Royal lyftidufts-stálkassa til að setja bíllyklana í. Það er helvíti hart að þurfa að læra svona en maður gerir ekki sömu mistökin tvisvar,“ segir Tómas. Bestu leiðirnar til að forðast að lenda í að þessi nýja tækni sé not- uð til að komast inn í bíla er að geyma bíllyklana fjarri forstofunni, inni í álpappir eða ofan í áldós svo ekki sé hægt að nema geislana frá þeim. Ummerkjalaus innbrot í bíla með nýrri tækni  Merki frá lyklum bifreiða með lykla- laust aðgengi er notað til að opna þá Morgunblaðið/Steinn Vignir Innbrot Sérstakur skynjari nemur geisla frá lyklunum gegnum hurð. Í gærmorgun hófust starfsmenn Vegagerðarinnar og Kurls-Vegsög- unar ehf. handa við að taka niður ör- yggisgirðingar milli vegriða á aust- anverðri Miklubraut og í Ártúns- brekku í Reykjavík. Girðingarnar hafa aðskilið akstursstefnur en ákveðið var að taka þær niður eftir að maður lést þegar hann kastaðist á girðinguna í bílslysi 25. nóvember sl. Það var við brúna yfir Miklu- braut sem tengir saman Skeiðarvog og Réttarholtsveg. Girðingin, sem er nokkuð á annan metra á hæð og á eyju milli vegriða frá Grensásvegi og upp að Vesturlandsvegi, verður fjarlægð og ætla menn að ljúka því verki á morgun, fimmtudag. Girð- ingar við sambærilegar aðstæður og á Miklubrautinni verða teknar niður á næstunni, segir G. Pétur Matt- híasson, upplýsingafulltúi Vega- gerðarinnar. Slíkar eru til dæmis á Hringbraut, á tveimur stöðum við Sæbraut, Breiðholtsbraut og á Reykjanesbraut við Fífuna í Kópa- vogi svo nokkrir staðir á höfuðborg- arsvæðinu séu nefndir. Alvarlegar afleiðingar „Þessar girðingar eru hættulegar, ég hef oft séð hve afleiðingarnar eru alvarlegar þegar árekstrar og slys verða og bílarnir lenda á þeim,“ seg- ir Birgir Ingvason hjá Kurli-Veg- sögun við Morgunblaðið. sbs@mbl.is Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Girðingar fjarlægðar Byrjað var að taka niður girðingar í Ártúnsbrekku í gær og svo verður haldið áfram víðar. Fjarlægja girðingar við fjölfarnar götur  Allt fyrir öryggið  Tekið niður víða á höfuðborgarsvæði Tómas Ingi Tómasson Aldrei hefur meira verið notað af vatni úr hitaveitu Veitna á höfuð- borgarsvæðinu í nóvembermánuði en nú í ár. Mánuðurinn var enda frekar kaldur og stormasamur undir lokin. Um 90% af heita vatninu fer til húshitunar og í nóvember runnu tæpir níu milljarðar lítra af heitu vatni inn í hús frá Hafnarfirði í suðri til Mosfellsbæjar í norðri. Það er 15% meira magn en sama mánuð í fyrra. Þetta kemur fram í frétt frá Veitum. Bent er á að meðalhiti í Reykjavík mældist 0,2 stig, -0,9 stig- um neðan meðallags áranna 1961 til 1990 og -2,6 stigum neðan meðallags síðustu tíu ára. Augljóst samhengi sé því á milli tíðarfarsins og heita- vatnsnotkunarinnar. Í frétt Veitna segir ennfremur að verð á húshitun sé lágt í Reykjavík og langt undir meðaltali höfuðborga grannríkjanna á Norðurlöndunum. Fimmfalt dýrara sé fyrir íbúa í Hels- inki að hita húsið sitt en íbúa í Reykjavík. Borgarbúar hiti heimili sín vel en verji hlutfallslega minnstu af ráðstöfunartekjum sínum í það. Árlegur kostnaður við að hita heimili íbúa á höfuðborgarsvæðinu sé 88 þúsund krónur á ári. Íbúi í Helsinki þurfi að borga 440 þúsund krónur, í Stokkhólmi tæplega 300 þúsund krónur, í Kaupmannahöfn 272 þús- und krónur og í Osló tæplega 247 þúsund krónur á ári. Met í heitavatnsnotkun  Aldrei meira notað af heitu vatni í nóvembermánuði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.