Morgunblaðið - 06.12.2017, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2017
Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is
Frábært
verð á glerjum
Einfókus gler
Verð frá kr. 16.900,-
Margskipt gler
Verð frá kr. 41.900,-
Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af
gæðagleraugum fyrir krakka á góðu verði
– og þú færð frábæra þjónustu.
Verið velkomin!
Rock Star umgjarðir
kr. 11.900,-
Mestu mátar Ormarr og Nökkvi Fjalar horfa yfir Emirates Stadium, leik-
vang Arsenal, sem er uppáhalds erlenda fótboltalið beggja.
Valgerður Þ. Jónsdóttir
vjon@mbl.is
Ein skærasta stjarnan ásamfélagsmiðlunum þessidægrin stóð ekki við stóruorðin fyrir tveimur árum
þegar hann lýsti því yfir í vitna við-
urvist í London að hann færi aldrei
aftur til útlanda. Þó er Ormarr Snæ-
björnsson grandvar maður og þekkt-
ur fyrir að fara ekki með staðlausa
stafi. En lái honum hver sem vill. Það
er ekki á hverjum degi sem rúmlega
sjötugum kennara á eftirlaunum er
boðið að ferðast oft á ári til stórborga
heims eða landa sem hann óskar sér.
Hann er afinn og sá sem allt
hverfist um í þáttunum Bucketlistinn
hans afa á snapchat, instagram og
öðrum samfélagsmiðlum Áttunnar.
Og svo því sé haldið til haga er „buck-
etlisti“ óskalisti yfir það sem mann
langar til að gera eða fara. Á einu ári
hefur Ormarr farið til níu borga:
London, Berlínar, Búdapest, Barce-
lona, Amsterdam, Brussel, Helsinki,
Rómar og Betlehem í boði Áttunnar,
sem Nökkvi Fjalar, sonarsonur hans,
stofnaði ásamt Agli Ploder Ottóssyni
og Róberti Úlfarssyni þegar þeir
voru nýskriðnir úr Verslunarskól-
anum fyrir fjórum árum.
„Við Nökkvi vorum sem oftar að
spjalla saman og hann sagðist ekkert
skilja í því að afi og amma svo margra
væru aldrei með í einu né neinu.
Hann langaði til að breyta þessu og
stakk upp á að búa til svona snapc-
hatþætti og auglýsa afa sinn,“ segir
Ormarr um upphaf ævintýrisins,
þessa „samfellda gleðidans“ eins og
hann kallar það. „Ég var svolítið rag-
ur til að byrja með, skildi ekki al-
mennilega hvernig þeir ætluðu að
standa að þessu, en sló til eftir hálfs-
mánaðar umhugsunarfrest, sem þeir
gáfu mér. Svo hefur þetta þróast
þannig að ég afhendi þeim bucketlist-
ann og þeir reyna að uppfylla allar
mínar óskir. Við tökum aldrei ákvarð-
arnir um meira en tvær til þrjár ferð-
ir fram í tímann, því þeir vilja ekki
pína mig. Þótt ég sé við hestaheilsu er
ég svolítið slæmur í fótunum og þoli
ekki að ganga mikið, hvorki í
flugstöðvarbyggingunum né á
áfangastöðum. Svo finnst mér líka
voðalega þreytandi að bíða eftir
flugi,“ heldur hann áfram.
Í ljósi þess að hann ætlaði aldrei
aftur til útlanda kom hann sjálfum
sér kannski mest á óvart með að sam-
þykkja ferðalögin með strákunum.
„Sonur minn og fjölskylda höfðu gef-
ið mér ferð á fótboltaleik í London í
sjötugsafmælisgjöf. Leiknum var síð-
an seinkað um einn dag og því þurft-
um við bókstaflega að taka á sprett
yfir borgina til að ná fluginu heim. Ég
var bara alveg að springa og þótti nóg
komið,“ segir hann um afmælisferð-
ina forðum.
Tvíburabróðirinn þykist
stundum vera afinn
Uppátæki Nökkva og félaga,
þeirra Egils, Orra Einarssonar og
Arons Inga Davíðssonar, á Áttunni
féllu strax vel í kramið, sérstaklega
hjá unga fólkinu – og ekki síst þegar
þeir hófu að flengjast með afann út
um allar jarðir og sýna í beinni. Orm-
arr er orðinn svo ofboðslega frægur
að tvíburabróðir hans, sem er næst-
um eins og hann, getur ekki um
frjálst höfuð strokið í Kringlunni og
víðar. „Unga fólkið heilsar mér á
förnum vegi, kallar mig afa og fer að
spjalla. Sama viðmót mætir tvíbura-
bróður mínum, en hann lætur sér vel
líka og læst bara vera afinn. Okkur
finnst þetta allt saman mjög jákvætt
og skemmtilegt.“
Ormarr þekkir tvö dæmi um að
Afi á ferð og
flugi í beinni
Á einu ári hefur Ormarr Snæbjörnsson, rúmlega sjö-
tugur kennari á eftirlaunum, farið til níu borga með
fríðu föruneyti sem leggur sig í líma við að stjana við
hann og gera honum til hæfis. Nökkvi Fjalar, sonar-
sonur Ormars og einn forsprakka Áttunnar, fékk afa
sinn til að vera aðalnúmerið í ferðaþáttunum Buck-
etlistinn hans afa, sem eiga sér fjölda fylgjenda. List-
inn hans Ormars er hvergi nærri tæmdur.
Níu borgir á einu ári F.v. Ormarr ásamt Orra Einarssyni, t.v., Agli Ploder og Nökkva Fjalari í Leifsstöð. Ormarr og Nökkvi glaðbeittir í Colosseum-hringleikahúsinu í Róm. Nökkvi Fjalar
hjólar með afa sinn við Brandenborgarhliðið í Berlín, ekki er allt sem sýnist á myndinni því stuttu eftir að hún var tekin gafst Nökkvi upp og þurfti að fá fagmann til að taka við stjórninni.
Ormarr er orðinn
svo ofboðslega
frægur að tvíbura-
bróðir hans, sem
er næstum eins og
hann, getur ekki
um frjálst höfuð
strokið í Kringl-
unni.
Verkstæðakvöld Listaháskóla Íslands
verður haldið í fyrsta sinn kl. 20-22 í
kvöld, miðvikudaginn 6. desember, í
húsnæði skólans, Laugarnesvegi 91.
Þar eru ljósmyndaver, prentverk-
stæði, trésmíðaverkstæði, málm-
smíðaverkstæði, mótunarverkstæði
og vídeóver. Verkstæðin verða opin
þetta eina kvöld og því verður ein-
stakt tækifæri til að sjá verk nem-
enda og starfandi listamanna í því
samhengi sem þau spretta úr og
kynnast þeim aðferðum sem notaðar
eru við framleiðslu þeirra.
Til að mynda sýna nemendur bók-
verk sem unnin eru með nýrri prent-
tækni sem skólinn býður upp á. Riso-
graph er japönsk prenttækni og eitt
hraðasta, ódýrasta og umhverfis-
vænasta prent sem um getur. Silki-
þrykkt veggspjöld David Horvitz unn-
in fyrir Sequences-listahátíðina
verða sýnd.
Jóhann Ingi Skúlason sýnir inn-
rauða skyggnusýningu sem aðeins er
hægt að sjá í gegnum sérstakan filter
með hjálp snjallsíma. Í vídeóveri skól-
ans verða myndbandsverk fyrrver-
andi og núverandi nemenda til sýnis.
Elísabet Birta Sveinsdóttir flytur
gjörninginn Skríðandi á málmsmíða-
verkstæðinu. Nemendafélag Mynd-
listardeildar býður upp á jólaglögg og
piparkökur.
Verkstæðakvöld Listaháskóla Íslands
Skyggnst á bak við tjöldin
Samhengið Á verkstæðunum má sjá listaverkin í því samhengi sem þau
spretta úr og kynnast þeim aðferðum sem notaðar eru við framleiðslu þeirra.