Morgunblaðið - 06.12.2017, Síða 17

Morgunblaðið - 06.12.2017, Síða 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2017 Leitar þú að traustu Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is ALHLIÐA BÍLAVIÐGERÐIR < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA Lífslíkur bílsins margfaldast ef hugað er reglulega að smurningu.ENGAR tímapantanir MÓTORSTILLING fylgir fyrirmælum bílaframleiðanda um skipti á olíum og síum. Mest seldu ofnar á Norðurlöndum áreiðanlegur hitagjafi 10 ára ábyrgð Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Nýr kafli er hafinn í blóðsúthelling- unum í Jemen eftir að fyrrverandi forseti landsins, Ali Abdullah Saleh, beið bana í árás uppreisnarmanna úr röðum Húta í fyrradag. Talið er lík- legt að dauði hans verði til þess að enn meiri harka færist í stríðið sem er þáttur í baráttu stjórnvalda í grannríkjunum Sádi-Arabíu og Íran um áhrif í Mið-Austurlöndum. Saleh hafði verið við völd í þrjá áratugi þegar hann neyddist til að segja af sér árið 2012 vegna upp- reisnar sem hófst þegar arabíska vorið svonefnda var í hámarki. Vara- forseti landsins, Abedrabbo Manso- ur Hadi, tók þá við völdunum. Hútar eru vopnuð hreyfing svo- nefndra zaída, sem eru allt að 40% íbúa Jemen og tilheyra sjíum innan íslams. Meirihluti íbúanna er hins vegar úr röðum súnnímúslíma. Hút- ar börðust gegn stjórn Saleh og hundruð manna biðu bana í átökum þeirra og stjórnarhersins á árunum 2004 til 2010. Ótraust bandalag fallið Eftir valdatöku Hadis myndaði Saleh bandalag með Hútum, líklega í von um að hann eða sonur hans kæmust til valda í landinu. Þetta bandalag var þó alltaf ótraust vegna spennu milli Saleh, sem hafði lengi verið í tengslum við stjórnvöld í Sádi-Arabíu, og Húta sem hafa notið stuðnings klerkastjórnarinnar í Ír- an. Það kom því fáum á óvart þegar Saleh tilkynnti á laugardaginn var að hann hefði slitið samstarfinu við Húta og vildi hefja viðræður við stjórnvöld í Sádi-Arabíu sem hófu umfangsmikinn hernað gegn Hútum árið 2015 ásamt fleiri arabalöndum þar sem súnnímúslímar eru við völd. Markmiðið með hernaðinum gegn Hútum er ekki aðeins að koma Hadi til valda í öllu landinu, heldur einnig að senda klerkastjórn sjíamúslíma í Íran skilaboð, að sögn fréttaskýr- enda tímaritsins The Economist. Stríðið í Jemen er liður í baráttu Sáda og Írana um áhrif í Mið-- Austurlöndum og hún hefur einnig dregið dilk á eftir sér í Sýrlandi, Írak og Líbanon. Klerkastjórnin í Íran hefur séð Hútum fyrir vopnum, m.a. flug- skeytum, jarðsprengjum og bátum sem uppreisnarmennirnir hafa notað til sprengjuárása á herskip Sáda og samstarfsríkja þeirra. Sádar hafa notið stuðnings Bandaríkjanna og Bretlands. Donald Trump Banda- ríkjaforseti hrósaði Sádum nýlega fyrir hernaðinn og lofaði að selja þeim „falleg vopn“ að andvirði 110 milljarða dollara. Bretar hafa einnig aukið sölu sína á flugskeytum og sprengjum til Sádi-Arabíu. Árásir á óbreytta borgara Að minnsta kosti 8.700 manns hafa beðið bana í átökunum en The Econ- omist segir að miklu fleiri hafi látið lífið af völdum skorts á matvælum og lyfjum vegna stríðsins. Herflugvélar Sáda og samstarfs- ríkja þeirra hafa gert árásir á verk- smiðjur og vöruhús þar sem matvæli eru geymd og hernaðurinn hefur torveldað flutninga á hjálpargögnum á yfirráðasvæði uppreisnarmanna. Mannréttindasamtökin Amnesty International saka bandalagið undir forystu Sáda um að hafa gert árásir af ásettu ráði á óbreytta borgara, sjúkrahús, skóla, útimarkaði og moskur. Hútar og hermenn, sem studdu Saleh, hafa einnig verið sak- aðir um árásir á óbreytta borgara í hafnarborginni Aden og fleiri byggð- um á yfirráðasvæði stjórnarhers Hadis. Þeir hafa ennfremur torveld- að flutninga á hjálpargögnum. Ekkert bendir til þess að blóðs- úthellingunum linni í bráð því að hvorug fylkinganna er nógu öflug til að geta náð öllu landinu á sitt vald. Útlit er því fyrir að neyðin aukist og talið er að hungursneyð vofi yfir nær sjö milljónum manna. Óttast að neyðin í Jemen aukist  Talið að dauði fyrrverandi forseta verði til þess að átökin magnist  Þúsundir manna hafa beðið bana í árásum en miklu fleiri dáið vegna skorts á lyfjum og mat  Hungursneyð vofir yfir milljónum manna Hútar og liðsmenn Saleh Áður en samstarfi Húta og Saleh var slitið Uppreisn hófst gegn Ali Abdullah Saleh forseta sem hafði verið við völd í þrjá áratugi Hersveitir Hadis Hreyfing íslamista Yfirráða- svæði 2011 Saleh neyddist til að láta af embætti og víkja fyrir varaforsetanum Abedrabbo Mansour Hadi 2012 Uppreisnarmenn úr röðum Húta hófu samstarf við Saleh, sem var áður andstæðingur þeirra, og náðu höfuðborginni Sanaa á sitt vald 2014 Hadi flúði til Aden, síðan Sádi-Arabíu. Bandalag ríkja súnnímúslíma undir forystu Sáda* hóf stríð gegn Hútum sem njóta stuðnings klerkastjórnar Írans 2015 Hreyfing íslamista sem tengist Al-Qaeda og Ríki íslams notfærði sér glundroðann til að ná landsvæðum á sitt vald 2016 Saleh sleit samstarfinu við Húta. Saleh féll í árás Húta 2017 Átökin frá árinu 2015 SÁDI-ARABÍA látnir særðir 8.750 58.600 Kólerufaraldur í ár látnir taldir hafa smitast *Sádi-Arabía, Barein, Egyptaland, Jórdanía, Kúveit, Marokkó, Súdan, Sameinuðu arabísku furstadæmin 2.200 914.000 27.4 millj. íbúa skortir mat 17millj. eiga á hættu að deyja úr hungri 6,8 millj. 100 km SANAA Átök í Jemen Adenflói Mukalla Aden Donald Trump Bandaríkjaforseti ræddi við Mahmud Abbas, forseta heimastjórnar Palestínumanna, í síma í gær og skýrði honum frá því að hann hygðist flytja bandaríska sendiráðið í Ísrael frá Tel Aviv til Jerúsalem. Áður höfðu leiðtogar margra ríkja varað Trump við því að slík ákvörðun gæti valdið mikilli ólgu í löndum múslíma. Abbas kvaðst hafa varað Trump við „hættulegum afleiðingum slíkrar ákvörðunar fyrir friðarumleitanir, öryggi og stöðugleika í Mið-Austur- löndum og öllum heiminum“. Áður hafði heimastjórn Palestínumanna sagt að ákvörðunin yrði til þess að tilraunir Bandaríkjastjórnar til að koma á friðarviðræðum milli Palest- ínumanna og Ísraela færu út um þúf- ur. Hamas-samtökin hafa hótað að hefja nýja uppreisn á Gaza-svæðinu verði sendiráðið flutt til Jerúsalem. Trump hét því áður en hann varð forseti að viðurkenna Jerúsalem sem höfuðborg Ísraels og flytja sendiráð- ið þangað. Gert var ráð fyrir því að forsetinn tilkynnti ákvörðun sína í málinu í fyrradag en hann frestaði því vegna þrýstings frá leiðtogum annarra ríkja sem hvöttu hann til að flytja ekki sendiráðið, m.a. sam- starfslanda Bandaríkjanna í Mið- Austurlöndum. Einn leiðtoganna, Recep Tayyip Erdogan, forseti Tyrklands, sagði að landið kynni að slíta stjórnmálasambandi við Ísrael og beita sér fyrir hörðum viðbrögð- um samstaka múslímalanda, OIC. Ekkert ríki er með sendiráð í Jerúsalem. Austurhluti borgarinnar tilheyrði Jórdaníu þegar Ísrael var stofnað árið 1948 en Ísraelar her- námu borgarhlutann í sex daga stríðinu 1967. Palestínumenn hafa krafist þess að Austur-Jerúsalem verði höfuðborg ríkis þeirra þegar fram líða stundir. Bandarísk stjórn- völd hafa lengi fylgt þeirri stefnu að leysa eigi deiluna um Jerúsalem í friðarviðræðum. Trump hyggst flytja sendiráðið til Jerúsalem  Varað við ólgu í múslímalöndum vegna flutningsins

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.