Morgunblaðið - 06.12.2017, Side 21

Morgunblaðið - 06.12.2017, Side 21
UMRÆÐAN 21 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2017 Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi Sími 535 4300 · axis.is Vandaðar íslenskar innréttingar Nýlöguð humarsúpa Opið virka daga 10.00 - 18.15 | laugardaga 11.00 - 15.00 Gnoðarvogi 44 | 104 Reykjavík | sími: 588 8686 Glæný lúða Gómsætir og girnilegir réttir í fiskborði fyrir þig til að taka með heim Ný línuýsa Klaustur- bleikja Sameinuðu þjóðirnar hafa áorkað miklu í gerð samninga gegn út- breiðslu vopna. Mestu varða samningarnir um bann við útbreiðslu kjarnavopna, sýkla- og efnavopna en samningar SÞ ná t.d. einnig til smá- og léttvopna og klasa- sprengja. Á síðustu tím- um hefur internetið, sem við þekkjum í daglegri notkun, bæst í hópinn sem vettvangur ógnar. Villandi upplýsingum dreift á netið til að valda pólitískum óstöðugleika og óvissu er gefið nafnið „vopnavæðing upplýsinga“ (e. weaponized inform- ation). Upplýsingahernaður getur valdið niðurbroti stöðugleika þjóð- félags rétt eins og beiting vopna, þótt án sé eyðileggingar mannvirkja. Eng- ar reglur gilda gegn því að hefðbundin vopn séu notuð sem gagnráðstöfun við upplýsingaárás. Án ein- hvers regluverks er heldur ekki hægt að nota almennar þving- unarráðstafanir gegn aðila, sem grefur undan þjóðfélagslegum stöð- ugleika annarra með upplýsingaárásum. Nýr kafli í sögu áróð- urs utanaðkomandi að- ila varð í bandarísku forsetakosningunni 2016. Hakkarar brutust inn í tölvuver beggja flokkanna, demókrata og repúblikana, og náðu m.a. í trúnaðarlega tölvupósta varðandi fjáröflun og forsetaframboð Hillary Clinton. Þessi gögn tóku senn að birtast á vefsíðum eins og Wiki- Leaks. Demókratar bentu á að hakk- ararnir væru tengdir rússneska hern- um og leyniþjónustu þeirra, svo sem lá fyrir af hálfu bandaríska innanríkis- ráðuneytisins og alríkislögreglunnar FBI. Fram hefur komið að löngu fyrir þessar síðustu forsetakosningarnar voru Rússar að verki í Evrópu með áróður til að gera almenning eða þjóð- félagshópa háða villandi upplýsinga- streymi. Leikið var á bresti þjóðfélaga vegna flóttamannavandans í Evrópu, sem að sögn þýskra fjölmiðla var hið gullna tækifæri í augum Rússa. Sem dæmi væru þær upplýsingar frá rúss- neskum vefsíðum, að ofbeldi lítils flóttamannhóps í Köln á gamlaárs- kvöld 2016 hefði verið á vegum CIA og að þýsk stjórnvöld hefðu mútað Face- book og Twitter að ritskoða ummæli um Þýskaland. Lygasaga um nauðgun 13 ára rússneskrar stúlku í Berlín af flóttamönnum var borin til baka af þýskum stjórnvöldum. Frægt er það dæmi um víðtæka netárás í Eistlandi 2007 þegar fjarlægja skyldi minnis- merki um hetjudáðir sovéskra hers- ins, sem reist var í Tallinn 1947 þegar landið var enn undir oki Rússa. Yfir- hershöfðingi NATO, Philip Breedlove, sagði áróður Kreml vegna innrásar- innar á Krímskaga í kjölfar uppreisn- arinnar í Úkraínu 2013, vera mestu skyndárás – blitzkrieg – í sögu áróðursstríðs. Síðar ráku Rússar mik- ið áróðursstríð vegna átakanna í Don- etsk í austurhluta Úkraínu. Séu tölvuárásir taldar til hernaðar- aðgerða, vaknar spurning um varnir eða gagnráðstafanir. Bandaríkjamenn eru þjóða fremstir á þessu sviði há- tækni og má því ætla að viðbrögð þeirra við tölvuárásum stuðli að stefnumörkun hjá bandalagsríkjum þeirra í NATO, bæði að því er varðar áætlanir um varnir og gagnárásir. Þar varðar mestu samhæft átak um að koma streymi staðreynda á framfæri til þeirra sem ekki njóta frjáls að- gangs. Er ekki sannleikurinn er sá, að valdhafar í Moskvu sem trufla vest- ræna fjölmiðlun eru sjálfir uppvísir að fáránlegu áróðursbragði í bandarísku forsetakosningunum? Stolið efni, tekið upp af fjölmiðlum, var átak til að skapa óreiðu í umræðu hjá annarri þjóð, sem NY Times orðaði svo að rússneska tölvuveldið hefði gert inn- rás í Bandaríkin. Fullt tilefni er greinilega til að taka þennan friðarspilli gerðan að vopni til meðferðar á alþjóðavettvangi. En samkomulag um friðsamlega stjórn á notkun internetsins er allt annað en áhlaupaverk. Þar kemur vonandi til kasta Sameinuðu þjóðanna en á það skal lögð áhersla við lesendur, að ekk- ert ríki í því allsherjarsamfélagi þjóða, jafnvel hin smáu og fátæku, telur eftir sér setu í Öryggisráðinu, miðdepli þeirra samtaka. Má þar nefna sem dæmi Cabo Verde (Grænhöfðaeyjar) styrkþega okkar, sem tóku sæti í Ör- yggisráðinu 2003. Það er einmitt borg- araleg skylda á alþjóðavísu, sem utanríkisþjónustan er fullfær að mæta bæði í framkvæmd og að því er varðar mat á stöðu og virðingu íslensks þjóð- félags. Dapurlegt er að fv. ritstjóri Morgunblaðsins, Styrmir Gunnars- son, skuli slá vindhögg í þessu máli, eins og fram kemur í frásögn um bók- arskrif hans í þessu blaði 30. nóv- ember. Vopnavæðing upplýsinga Eftir Einar Benediktsson »Upplýsingahernaður getur valdið niður- broti stöðugleika þjóð- félags rétt eins og beit- ing vopna, þótt án sé eyðileggingar mann- virkja. Einar Benediktsson Höfundur er fyrrverandi sendiherra. Það er enginn al- gildur mælikvarði til sem gefur til kynna hvaða störf eru verð- mætari en önnur. Aft- ur á móti hafa verið þróuð ýmis verkfæri til að reyna að raða störfum eftir verð- mæti, s.s. starfsmats- kerfi og stofn- anasamningar. Á almennum markaði selja fé- lagsmenn vöru eða þjónustu og verðleggja vöruna þannig að ein- hver vilji kaupa hana. Sérfræðingar hjá hinu opinbera vinna oft þannig störf að það kemur ekki beint end- urgjald fyrir þá þjónustu, þeir starfa hjá samfélaginu okkar, þeir vinna oft ósýnileg en nauðsynleg störf. Í FÍN starfa um 800 manns hjá ríkinu, ríkið þarf á þessum sér- fræðingum að halda til að geta sinnt skyldu sinni í samfélagi okkar. Stofnanir ríkisins þurfa á háskóla- menntuðum starfsmönnum að halda til að geta sinnt sinni skyldu. En hver er sanngjörn launasetn- ing fyrir sérfræðing sem hefur lokið háskólanámi? Laun sérfræðinga á almennum markaði eru hærri en hjá hinu opinbera og munurinn hefur verið 25-30%. Þessari skekkju í launasetningu þarf að breyta og lof- orð eru nú þegar til staðar hjá rík- inu að leiðrétta mun milli markaða. Háskólamenn koma seinna inn á vinnumarkaðinn þar sem þeir taka 3-11 ár af sinni ævi til að mennta sig og því hafa þeir færri ár til að afla ævitekna. Verðmætustu stigin í hinu aldurstengda lífeyriskerfi eru verðmætust eftir því sem viðkom- andi er yngri. Ævitekjur háskóla- manna sem eru með lægri eða sömu tekjur og sá sem ekki hefur sótt sér háskólamenntun skilar lægri ævi- tekjum til háskólamanna og lægri ellilífeyri. FÍN krefst þess að fyrstu skrefin í leiðréttingum verði gerð í þessum kjarasamningum, í þessari samn- ingalotu. Skynsamlegasta leiðin er að breyta launatöflunni. Taka fyrstu skrefin í launaleiðréttingum með þeim hætti að hækka lágmarkslaun í launatöflu þannig að ekki sé hægt fyrir neina stofnun ríkisins að greiða lægri laun en 400.000 kr. fyrir þá sem hafa lokið fyrstu há- skólagráðu. FÍN krefst þess að launahækkanir sem fara heilt yfir markaðinn komi þar til viðbótar þessum hækk- unum á launatöflum, al- mennar launahækkanir sem allir fá munu ekki verða notaðar til að leiðrétta launakjör þeirra verst settu, það fjármagn þarf að koma til viðbótar, því við erum að leiðrétta laun ákveðinna hópa. Hvenær er hægt að fara í leiðrétt- ingar á launum? Efnahagsástandið er gott, verðbólga er lítil og því eru bestu aðstæður til staðar í samfélagi okkar til að leiðrétta laun hópa og stétta. Við krefjumst þess að mennt- un sé metin til launa og að fyrstu skrefin í leiðréttingum verði tekin í þessum kjaraviðræðum. Hvað er að frétta? Eftir Maríönnu Hugrúnu Helgadóttur Maríanna Hugrún Helgadóttir » Stofnanir ríkisins þurfa á háskóla- menntuðum starfs- mönnum að halda til að geta sinnt skyldu sinni. Höfundur er formaður Félags íslenskra náttúrufræðinga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.