Morgunblaðið - 06.12.2017, Síða 29

Morgunblaðið - 06.12.2017, Síða 29
DÆGRADVÖL 29 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2017 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Ferðaáætlanir og verkefni tengd út- gáfu, fjölmiðlun og menntun breytast hugs- anlega. Hafðu frumkvæði að þeim breyt- ingum sem þú veist að eru til hins betra. 20. apríl - 20. maí  Naut Líttu á jákvæðu hliðina á erfiðum sam- skiptum. Eitthvað gerist sem breytir sýn þinni á veröldina. Aukin menntun eða færni mun hjálpa þér á leið þinni að settu marki. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Það er nauðsynlegt að leyfa barninu í sjálfum sér að blómstra. Kannski eru væntingar þínar of miklar? 21. júní - 22. júlí  Krabbi Nú er heppilegur tími til að binda ný vinabönd ef áhugi er fyrir hendi. Finndu ein- hvern til að sjá um þín mál meðan þú ert í burtu svo þú getir verið rólegur á meðan. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Aðkallandi verkefni skaltu reyna að leysa sem fyrst en láta önnur veigaminni sitja á hakanum á meðan. Leitaðu ráða hjá þér reyndari mönnum, ef einhver efi leynist í brjósti þér. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Þú ert ótrúlega úrræðagóður. Inn- blásturinn færðu í þínu nánasta umhverfi. Skrifaðu þær niður þannig að þú getir íhug- að þær betur síðar. 23. sept. - 22. okt.  Vog Það er ekki alltaf svo að hlutirnir fari nákvæmlega eins og þeim er ætlað. Sköp- unargleðin er ríkjandi hjá þér þessa dagana og þú ert í aðgerðaham. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Peningum sem þú eyðir í dag til að fegra heimilið er vel varið. Taktu þér tíma til þess að hugsa um málið og helst leysa það sem fyrst. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þú ert forvitinn og hefur gaman af að spjalla við aðra og skiptast á skoð- unum. Byrjaðu á því að losa þig við þá til- finningu, að þú eigir ekki skilið góða með- ferð. 22. des. - 19. janúar Steingeit Einhverjir samstarfsmenn þínir kunna að valda þér erfiðleikum. Leystu því eigin vandamál áður en þú fæst við vanda annarra. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Maður þarf að sleppa takinu af því gamla, áður en eitthvað nýtt getur tekið við. Leggðu þig allan fram og þá mun fram- lag þitt verða mikils metið. 19. feb. - 20. mars Fiskar Oft er það svo að þér finnst þú vera eina manneskjan sem getur gert hlutina rétt. En þú ert líka sjálfstæður og vilt ekki biðja um hjálp. Fyrr má nú vera!“ skrifaði Ólaf-ur Stefánsson, sem vel að merkja átti þýðinguna á Mónu Lísu og Málaranum í horni gærdagsins, á Leir og bætti við: Þeir kölluðu konuna Systu, sem kát var og fjölmargir gistu. Hún negld var af Bóa Nonna og Jóa, uns neglt var lokið á kistu. Fía á Sandi hafði þetta til mál- anna að leggja: Sjaldan menn hrósuðu Hrefnu sem hafði enga siðferðisstefnu. Það er umtalað verst sem menn ágirnast mest. Það má ganga að slíku sem gefnu. Ég hitti karlinn á Laugaveginum og fór með þessar limrur fyrir hann. Karlinn velti vöngum, klóraði sér bak við eyrað og tautaði: „Það nær auðvitað alls engri átt“. Hristi síðan hausinn og sagði: Það nær auðvitað alls engri stefnu að eiga sér viðhalds nefnu að halla sér að þegar heima er það sem ég venst að ganga að sem gefnu. Á Boðnarmiði segist Hólmfríður Bjartmarsdóttir (Fía á Sandi) ekki muna, hvort hún hafi sent þessar limrur áður: Einar átti ekki eina einustu krónuna neina. Í happdrætti hann þessi hálfviti vann á miðann sem stal hann frá Steina. Elli var útigangsróni og yfirleitt hálfgerður dóni en vorkvöldin löng var hann ljúfur og söng lof sínu farsældar fróni. Elli var alltaf á róli eða hímdi í skjóli. Í febrúar fór hann að finna sér bjór og varð úti á Arnarhóli. Í gær birtust í þrjú glerhús úr ljóðadós Jóns Laxdals Halldórs- sonar. Hér eru tvö til viðbótar: Þótt móðir mín sofi hjá Hannesi P. lætur pabbi sem ekkert sé. Hann virðir alla þá höfunda sem vert er að öfunda. Fyrir milljónum ára lagði náttúran drög að Jakob Smára. Og allt fór að vonum, nema hans list- ræni smekkur var týndur hlekkur. Hér er gömul vísa í lokin: Dauðinn sótti sjávar drótt, sog var ljótt í dröngum, ekki er rótt að eiga nótt undir Gróttutöngum. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af siðferðisstefnu og ljóð úr dós „GERÐU ÞAÐ, SETTU SÍMANN NIÐUR. VIÐ HLJÓTUM AÐ GETA LEYST ÞETTA EINS OG FULLORÐIÐ FÓLK“ „HANN ER AÐ REYNA AÐ GEFA FÍLNUM Í SJÓNVARPINU HNETUR“ Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að vera enn í faðmlögum eftir að tónlistin þagnar. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann KOMDU NÆR! NÆR! ÞETTA ER FULL NÁLÆGT ÞEGAR ÉG ER EINN TALA ÉG VIÐ SJÁLFAN MIG OG UM HVAÐ SNÚAST UMRÆÐUR ÞÍNAR VIÐ SJÁLFAN ÞIG? UM HVAÐ VIÐ ERUM LÍKIR Á að fara til Rússlands eða á ekki aðfara til Rússlands? Þannig hljóm- ar tilvistarspurning dagsins. Víkverji hefur frekar hallast að því að fara til Rússlands og væru peningar auka- atriði (sem þeir eru því miður ekki) myndi hann einfaldlega þvælast þar um í mánuð frá upphafsleik til úrslita- leiks. Það er ekki inni í myndinni, en hins vegar freistar að taka alla leikina í riðlinum. Um leið væri hægt að skoða Rússland og smakka rauðbeðu- súpu og aðra þá vökva, sem boðið er upp á þar í landi. x x x Þegar hefur vaknað ótti um að ekkiverði nóg til af miðum fyrir alla þá Íslendinga sem hafa hug á að fara á völlinn í Rússlandi. Þá munu ferða- skrifstofur hafa tekið frá öll hótelher- bergi í Rússlandi. Herbergin eru sem sagt ekki farin, en þau eru í einhvers- konar frátektarlimbói þannig að ekk- ert er að hafa fyrir þá sem eins og Vík- verji eru að velta fyrir sér að fara á eigin vegum og vildu ekki bóka her- bergi fyrr en þeir voru komnir með miða. x x x Víkverji hefur mikið verið að veltafyrir sér styrkleikalista FIFA. Listinn á að endurspegla getu liða, en er um margt furðulegur. Til dæmis vill svo undarlega til að lið sem var fyrir neðan Ísland riðlinum í undan- keppninni hafnaði fyrir ofan Ísland í styrkleikaflokki þegar liðin sem kom- ust á HM voru dregin í dilka. Víkverji á hér við Króata. Þeir þurftu að fara í umspil og komust vissulega áfram. Ís- lendingar komust hins vegar á HM án umspils. Ætti Ísland þá ekki að vera ofar á styrkleikalistanum en Króatía? x x x Staða Íslands markast hins vegar afúrslitum æfingaleikja, sem iðu- lega eru ómarktækir með öllu. Í æf- ingaleikjum reyna þjálfarar sjaldnast að tefla fram sínu sterkasta liði. Þeir nota slíka leiki til að prófa leikaðferðir og leikmenn sem ekki hafa fengið að spreyta sig þegar eitthvað er í húfi, en eiga skilið að fá að sýna hvað í þeim býr. Og lenda fyrir vikið neðar á styrkleikalista FIFA en Króatía. vikverji@mbl.is Víkverji Því að Drottinn Guð er sól og skjöldur, náð og vegsemd veitir Drottinn og synjar þeim engra gæða sem ganga í grandvarleik. (Sálm 84:12) Bókaðu snemma til að tryggja þér pláss Við hvetjum alla sem hafa í hyggju að sigla með Norrænu á næsta ári að bóka snemma til að tryggja sér pláss Stangarhyl 1 | 110 Reykjavík | Sími: 570-8600 Smyril Line Seyðisfjörður 4702808 | info@smyril-line.is | www.smyrilline.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.