Morgunblaðið - 06.12.2017, Qupperneq 30

Morgunblaðið - 06.12.2017, Qupperneq 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2017 Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratuga reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið Vertu viðbúinn vetrinum LÉTTAR – STERKAR – TRAUSTAR SNJÓKEÐJUR Hafðu samband og kynntu þér vöruúrvalið og þjónustuna Glenda Jackson vann til verðlauna sem besta leikkonan fyrir túlkun sína á Lé konungi eftir William Shakespeare þegar London Evening Standard-leiklistarverðlaunin voru afhent í 63. sinn á sunnudag. Athygli vakti þegar Jackson, þá rúmlega áttræð, sneri aftur á svið síðla hausts 2016 í hlutverkinu sem Lér konungur í uppfærslu Old Vic á samnefndu verki, en þá hafði hún ekki leikið á sviði í 25 ár enda helgað líf sitt stjórnmálum. Áður en Jack- son var kosin á þing fyrir Verka- mannaflokkinn 1992 hafði hún verið ein vinsælasta og virtasta leikkona Bretlands. Óbeit hennar á stefnu Margrétar Thatcher var kveikjan að stjórnmálaþátttöku hennar. Breskir gagnrýnendur jusu Jack- son lofi fyrir túlkun hennar á Lé, sem upphaflega var skrifað fyrir karlkyns leikara. Sem dæmi skrifaði Susannah Clapp, rýnir Observer, að Jackson væri „einn áhrifaríkasti Lér“ sem hún hefði séð. Dómnefnd Evening Standard-leiklistarverð- launanna var greinilega sammála því hún veitti Jackson einnig sérstök heiðursverðlaun sem kennd eru við leikkonuna Natöshu Richardson. Alls voru veitt níu verðlaun. Þrenn féllu í skaut The Ferryman eftir Jez Butterworth, en verkið var valið besta leikritið, Sam Mendes var val- inn besti leikstjóri fyrir uppfærsluna og leikarinn Tom Glynn-Carney besti nýliðinn. Besti leikarinn var valinn Andrew Garfield fyrir túlkun sína á alnæmisveikum manni í Engl- um í Ameríku eftir Tony Kushner. Glenda Jackson verð- launuð fyrir Lé konung Töff Glenda Jackson hafði ekki leik- ið á sviði í 25 ár þegar hún sneri aft- ur sem Lér konungur, þá áttræð. Ljósmynd/Frá Old Vic Tilnefningar til Fjöruverðlaunanna, bókmenntaverðlauna kvenna, voru kynntar í Borgarbókasafninu í Tryggvagötu í gær. Alls eru níu bæk- ur tilnefndar til verðlaunanna, þrjár í hverjum flokki, en flokkarnir skiptast í barna- og unglingabókmenntir, fagurbókmenntir og fræðibækur og rit almenns eðlis. Verðlaunin verða afhent við hátíðlega athöfn í Höfða 15. janúar 2018. Aukið úrval lesefnis Í flokki barna- og unglingabók- mennta eru tilnefndar Lang-elstur í bekknum eftir Bergrúnu Írisi Sæv- arsdóttur; Gulbrandur Snati og nammisjúku njósnararnir eftir Bryn- hildi Þórarinsdóttur og Vertu ósýni- legur, flóttasaga Ishmaels eftir Krist- ínu Helgu Gunnarsdóttur. Dómnefnd skipuðu: Arnþrúður Einarsdóttir, Sigrún Birna Björnsdóttir og Þor- björg Karlsdóttir. Í umsögn segir að allar eigi til- nefndu bækurnar það sameiginlegt að „vera skrifaðar á blæbrigðaríku og fallegu máli en um leið fá þær les- endur til að efla málvitund og auka lesskilning sinn. Fjölbreytni þeirra gefur fögur fyrirheit um aukið úrval lesefnis fyrir aldurshópinn sem til- heyrir barna- og ungmennabókum.“ Um Langelstur í bekknum segir: „Sagan kennir okkur að samvinna og það að þora aðeins út fyrir þæg- indarammann skiptir oft máli til að auka lífsgæði okkar. Frásögnin af skólasystkinunum er einkar skemmtileg og fyndin og ekki skemma myndir höfundarins fyrir sem gæða söguna lífi. Bókin er létt- lestrarbók með þægilegu letri, stutt- um köflum og hentar byrjendum og öllum þeim sem þurfa að æfa sig í lestri.“ Um Gulbrandur Snati og nammi- sjúku njósnararnir segir: „Frásögnin er lipur, myndræn og vel byggð, per- sónusköpun er lifandi og eru börnin dregin skýrum dráttum þar sem sumarfríið reynist þeim þroskandi og er lesandi ekki frá því að tognað hafi ærlega úr þeim eftir ævintýrin. Börn- in tvö eru aðalpersónurnar og kast- ljósinu beint að þeirra hugðarefnum. Um Vertu ósýnilegur, flóttasaga Ishmaels segir: „Sagan er þroska- saga þar sem Ishmael upplifir æði- margt á skömmum tíma en hann lær- ir líka að þekkja tilfinningar sínar og treysta innsæinu. Persónur eru raun- sæjar þannig að auðvelt er fyrir les- anda að finna til samhygðar. Upp- bygging bókarinnar er einstök þar sem hver kafli er afmarkaður af ljós- mynd og klausu úr Mannréttinda- sáttmála Sameinuðu þjóðanna sem tengist umfjöllunarefninu og er óhætt að segja að það hafi talsverð áhrif á upplifun lesandans.“ Sterk stílbrögð Í flokki fagurbókmennta eru til- nefndar Flórída eftir Bergþóru Snæ- björnsdóttur; Slitförin eftir Fríðu Ís- berg og Elín, ýmislegt eftir Kristínu Eiríksdóttur. Dómnefnd skipuðu: Bergþóra Skarphéðinsdóttir, Guðrún Lára Pétursdóttir og Salka Guð- mundsdóttir. Í umsögn um Elín, ýmislegt segir að höfundir flétti „saman sögu tveggja kvenna sem eru dregnar sterkum og trúverðugum dráttum. […] Á einkar næman og áhrifaríkan hátt er hér fjallað um skynjun mann- eskjunnar á veruleikanum, um flótta- leiðir hugans, einsemd, hið gleymda og falda. Frásagnartæknin er í senn úthugsuð og áreynslulaus […] Í takt við leiðarstef bókarinnar skapar höf- undur myndir sem höfða til allra skynfæra og nýtir meðal annars sterk tákn sem þó eru aldrei augljós eða yfirborðskennd frekar en bókin sjálf.“ Um Flórída segir: „Rétt eins og hinar kenjóttu persónur bókarinnar er Flórída verk sem víkur sér undan einföldum skilgreiningum. Í knöpp- um prósa höfundar er engu ofaukið. […] Höfundur skapar gróteska og nánast yfirþyrmandi veröld þar sem öll lögmál smám saman skekkjast, sí- fellt þrengir að og hnignun aðal- persónunnar verður óhjákvæmileg. […] Hér koma saman vel valið form, magnað innihald og firnasterk stíl- brögð og útkoman er ákaflega gott skáldverk.“ Um Slitförin segir að um sé að ræða afar vandaða „ljóðabók þar sem í tæplega fjörutíu ljóðum eru dregnar upp fjölmargar litlar myndir af augnablikum úr tilverunni, mann- legum samskiptum, brestum og til- finningalegu ástandi. Skáldið segir þó um leið mun stærri sögu af sam- böndum og arfleifð kynslóðanna, víta- hringjunum sem verða til upp úr erf- iðu fjölskyldumynstri og hinni vandrötuðu leið sem unglingsstúlka þarf að feta til að öðlast sjálfstæða vitund ungrar konu.“ Skemmtilega skrifað Í flokki fræðibóka og rita almenns eðlis eru tilnefndar Íslenska lopa- peysan: Uppruni, saga og hönnun eft- ir Ásdísi Jóelsdóttur; Leitin að klaustrunum: Klausturhald á Íslandi í fimm aldir eftir Steinunni Kristjáns- dóttur og Undur Mývatns: Um fugla, flugur, fiska og fólk eftir Unni Jökuls- dóttur. Dómnefnd skipuðu: Helga Haraldsdóttir, Sigurrós Erlingsdóttir og Þórunn Blöndal. Í umsögn um Íslenska lopapeysan: Uppruni, saga og hönnun segir að bókin sé „falleg og hlý“ auk þess að geyma „feikimikinn fróðleik um prjón og lopapeysur. Í bókinni rannsakar Ásdís sögu og þróun íslensku lopa- peysunnar og rannsóknin leiðir í ljós athyglisverð tengsl samfélagsbreyt- inga og iðnþróunar. […] Í bókinni rekur Ásdís hvernig ullarvinnsla öðl- ast vinsældir á ný á 20. öld með lopa- peysunni og hvernig hönnuðir, og aðrir skapandi einstaklingar, nýta þennan efnivið.“ Um Leitin að klaustrunum. Klaust- urhald á Íslandi í fimm aldir segir að þetta sé: „voldugt rit og skemmtilega skrifað. Lesandinn fær ekki einungis góða innsýn í klausturhald á Íslandi í kaþólskum sið heldur einnig í vinnu- brögð fornleifafræðinga og annarra sérfræðinga. […] höfundur bregður upp áhugaverðum myndum úr vinnunni við uppgröftinn, bæði í orð- um og ljósmyndum sem sumar segja meira en mörg orð.“ Um Undur Mývatns: Um fugla, flugur, fiska og fólk segir að Unnur lýsi „samlífi ólíkra lífvera á einkar næmlegan hátt og fléttar saman fræðilegar staðreyndir, munn- mælasögur og örsögur úr eigin lífi í þessari stórbrotnu náttúru. […] Nið- urstaðan verður læsileg bók, skrifuð af ástríðu og hrifningu, þar sem rétt er farið með staðreyndir en þannig um þær búið að allir geta haft af þeim gagn og gaman.“ Níu bækur tilnefndar Morgunblaðið/Árni Sæberg Höfundar Eðlilega ríkir mikil ánægja meðal kvennanna sem tilnefndar eru til Fjöruverðlaunanna í ár.  Fjöruverðlaunin verða afhent 15. janúar á nýju ári  Bókmenntaverðlaun kvenna fyrst veitt hérlendis 2007

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.