Morgunblaðið - 06.12.2017, Side 31

Morgunblaðið - 06.12.2017, Side 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 2017 „Mig hefur lengi langað í listaverk eftir Huldu Hákon eða Steingrím Eyfjörð en áttaði mig á því fyrir nokkrum árum – eða réttara sagt, sætti mig við þá staðreynd – að ég gæti ekki leyft mér slíka fjárfest- ingu, allavega ekki í nánustu fram- tíð,“ segir María E. Panduro, stofn- andi og listrænn stjórnandi Reykjavík Print, sem fyrst var kynnt á Hönnunarmars 2017 á hönnunarstofunni Karousel. „Ég hef unnið sem grafískur hönnuður í prentgeiranum í nærri 20 ár og ákvað sl. sumar að láta reyna á þann möguleika að gefa út, í nánu samstarfi við listamennina, vönduð prent af völdum verkum þeirra. Þetta eru sem sagt ýmist fjögurra eða fimm lita prent valinna listaverka, í flestum tilfellum seldra verka og þar af leiðandi er nær ómögulegt að eignast þau nema í þessu formi. Hugmyndin er sú að fleiri geti notið þessara verka í formi verðmætra prenta – og án þess að skerða verðmæti orginalsins á nokk- urn hátt. Eiginlega þvert á móti.“ Reykjavík Print selur þrjú verk eftir Huldu annars vegar og Stein- grím hins vegar auk verka eftir Sindra Freysson, Dag Jóhannesson og Donal Boyd. „Hver mynd er í tak- mörkuðu upplagi, prentuð á þykkan umhverfisvænan pappír, árituð og númeruð,“ segir María, en eftir- prentin af myndum Huldu og Stein- gríms eru gefin út í 200 eintökum, enda ekki aðeins ætluð fyrir íslensk- an markað. „Í ljósi þess að Listasafn Íslands á verk eftir bæði Huldu og Steingrím fannst okkur safnbúð listasafnsins vera rétti staðurinn fyrir söluna á listprentunum, en safnbúð Lista- safns Íslands er eina verslunin sem selur verkin, en einnig fást þau á vefnum okkar,“ segir María og bendir á að sérstök kynning verði í Listasafni Íslands á morgun, fimmtudag, kl. 16 til að kynna nýja samstarfið. Þar kynna Hulda og Steingrímur verk sín og Sindri les ljóð. Nánari upplýsingar eru á: reykjavikprint.com. „Fleiri geti notið“ Svanir Tvö þeirra verka eftir Huldu Hákon sem rata á prent.  Listprent af verkum Huldu og Steingríms Íraun er harla fátt að frétta afsinfóníutónleikum, nema ef tilvill einhver nái að fremjameinleg axarsköft. Þetta er borgaraleg uppákoma, vel smurður ritúall með föstum leikatriðum, þaul- æfðum. Fréttirnar liggja í deilunum, smáatriðunum, t.a.m. í verkefnavali, afköstum hljómsveitarstjóra og sól- ista líkt og á fimmtudaginn var. En það telst vart fréttnæmt lengur að Víkingur Heiðar trekki að gestina enda líklega einn sá dáðasti hérlendis innan þess sígilda. Uppselt var í Eld- borg. En nú bar svo við að selt var í efri svalir ofan sviðs, í sæti sem telj- ast vart bjóða upp á fulla upplifun enda hlutverk þeirra fyrst og síðast að brjóta upp hljóðbylgjur og end- urkasta líkt og hringsvalirnar í Norð- urljósum. Verkefni kvöldsins eru stórvirki, hvort á sinn eigin hátt; innhverfur og íhugandi píanókonsert Mozarts – sem var reyndar frumraun Richards sjálfs á tónleikasviðinu þegar hann var 21 árs gamall – og svo úthverf en á sama tíma sjálfhverf hetjuhljóm- kviða með Strauss sjálfan sem fyrir- mynd. Fíngerðar en skýrt mótaðar fraseringar svifu úr höndum hljóm- sveitarstjórans sem leiddi hljómsveit- ina óaðfinnanlega út tónleikana. Húmblá heimsmynd c-moll-tónteg- undarinnar gefur c-moll-píanókon- serti Mozarts einstakan karakter sem bæði hljómsveit og einleikari miðluðu af smekkvísi. Meðhöndlun Víkings minnti á fumlaust langflug gráhegra undir c-moll-radar; hljóm- urinn í senn kröftugur, yfirvegaður og tignarlegur en umfram allt áreynslulaus, sér í lagi í kadensunum. Snerpa og fingrafimi sem fyrr aðdá- unarverð. Richard Strauss var skrautlegur fýr. Hann sagðist geta greint gaffal frá hnífi út frá hreinu músíkölsku tónrænu sjónarmiði! Og þekkt er ævarandi ást hans á franska horninu. Hetjulífs-tónsmíðin var samin í kjöl- far sjö tónaljóða, en nú var hans eigið fjölskylduportrett undir í þessari annars knöppu tónhugmynd – hann sjálfur var hetjan í upphafskaflanum. Andhetjur, keppinautar og öfund- armenn hans tóku við í öðrum kafla og loks eiginkonan, söngkonan; þver- úðugt, daðurgjarnt og eksentrískt ólíkindatól. Konsertmeistari hljóm- sveitarinnar túlkar þetta epíska kvendi á fiðlu. Sigrún Eðvaldsdóttir fór mikinn með háspennu/lífshættu- sólóleik eins og hennar er eðli, en fór á stundum yfir strikið, því miður. Maður hefur áður spurt sig á hvaða riðstraumi fiðlarinn gangi sem brýst um á hæl og hnakka líkt og í raf- magnsstól. Leikurinn var vissulega safaríkur, villtur og ögrandi en stund- um á kostnað nákvæmni; í raun helst til grófur á köflum. Hljómsveitin marseraði því næst á sannfærandi hátt gegnum vígvöll hetjanna. Hetju- líf er á köflum myrk tónsmíð en þó ákaflega stemningsfull, í senn seið- andi og nútímaleg í knöppu formi, sem naut sín loks til fulls hér innan- lands í Eldborgarsalnum. Morgunblaðið/Hari Dáður „En það telst vart fréttnæmt lengur að Víkingur Heiðar trekki að gestina enda líklega einn sá dáðasti hér- lendis innan þess sígilda,“ segir í rýni. Píanistinn Víkingur Heiðar ásamt Dima Slobodeniouk hljómsveitarstjóra. Hvunndagshetjulíf Eldborg í Hörpu Sinfóníutónleikar bbbbn Píanókonsert nr. 24 í c-moll, K. 491 (1786) eftir W.A. Mozart. Hetjulíf (Ein Heldenleben), op. 40 (1896) eftir Rich- ard Strauss. Einleikari: Víkingur Heiðar Ólafsson. Stjórnandi: Dima Slobo- deniouk. Fimmtudaginn 30. nóvember 2017 kl. 19.30. INGVAR BATES TÓNLIST GUÐ BLESSI ÍSLAND ★★★★★ Fréttablaðið Elly (Stóra sviðið) Mið 6/12 kl. 20:00 35. s Mið 27/12 kl. 20:00 42. s Fös 19/1 kl. 20:00 57. s Fös 8/12 kl. 20:00 auk. Fim 28/12 kl. 20:00 43. s Lau 20/1 kl. 20:00 58. s Lau 9/12 kl. 20:00 36. s Fös 29/12 kl. 20:00 44. s Þri 23/1 kl. 20:00 aukas. Sun 10/12 kl. 20:00 37. s Lau 30/12 kl. 20:00 aukas. Fim 25/1 kl. 20:00 59. s Fim 14/12 kl. 20:00 38. s Fös 5/1 kl. 20:00 53. s Fös 26/1 kl. 20:00 60. s Fös 15/12 kl. 20:00 39. s Lau 6/1 kl. 20:00 54. s Lau 27/1 kl. 20:00 61. s Lau 16/12 kl. 20:00 40. s Sun 7/1 kl. 20:00 55. s Lau 3/2 kl. 20:00 64. s Þri 26/12 kl. 20:00 41. s Fös 12/1 kl. 20:00 56. s Sun 4/2 kl. 20:00 65. s Stjarna er fædd! Guð blessi Ísland (Stóra sviðið) Fim 7/12 kl. 20:00 11. s Sun 17/12 kl. 20:00 Lokas. Þetta er 11. september Íslendinga, gjörsamlega. Medea (Nýja sviðið) Fös 29/12 kl. 20:00 Frums. Fim 4/1 kl. 20:00 3. s Lau 6/1 kl. 20:00 5. s Mið 3/1 kl. 20:00 2. s Fös 5/1 kl. 20:00 4. s Fim 11/1 kl. 20:00 6. s Ástir, svik og hefndarþorsti. Brot úr hjónabandi (Litla sviðið) Fös 8/12 kl. 20:00 15. s Fös 15/12 kl. 20:00 18. s Fös 29/12 kl. 20:00 22. s Sun 10/12 kl. 20:00 16. s Lau 16/12 kl. 20:00 19. s Fös 5/1 kl. 20:00 aukas. Fim 14/12 kl. 20:00 17. s Mið 27/12 kl. 20:00 20. s Lau 6/1 kl. 20:00 aukas. Draumur um eilífa ást Blái hnötturinn (Stóra sviðið) Sun 10/12 kl. 13:00 54. s Þri 26/12 kl. 13:00 56. s Sun 14/1 kl. 13:00 aukas. Sun 17/12 kl. 13:00 55. s Sun 7/1 kl. 13:00 aukas. Sun 21/1 kl. 13:00 aukas. Sigurvegari Grímuverðlaunanna síðastliðið vor. Jólaflækja (Litla sviðið) Lau 9/12 kl. 13:00 aukas. Lau 16/12 kl. 13:00 aukas. Þri 26/12 kl. 13:00 aukas. Lau 9/12 kl. 16:00 aukas. Sun 17/12 kl. 13:00 aukas. Sun 10/12 kl. 13:00 aukas. Sun 17/12 kl. 16:00 aukas. Tilnefnd sem Barnasýning ársins á Grímunni. Eingöngu sýnd á aðventunni. Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið) Fim 11/1 kl. 20:00 Frums. Þri 16/1 kl. 20:00 4. s Sun 21/1 kl. 20:00 7. s Lau 13/1 kl. 20:00 2. s Mið 17/1 kl. 20:00 5. s Mið 24/1 kl. 20:00 8. s Sun 14/1 kl. 20:00 3. s Fim 18/1 kl. 20:00 6. s Sun 28/1 kl. 20:00 9. s Saga íslensku þjóðarsálarinnar. Natan (Litla sviðið) Fim 7/12 kl. 20:00 Lokas. Allra síðasta sýning. Skúmaskot (Litla sviðið) Lau 6/1 kl. 13:00 Frums. Sun 7/1 kl. 13:00 2. s Lau 13/1 kl. 13:00 3. s Búðu þig undir dularfullt ferðalag! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 Fjarskaland (Stóra sviðið) Lau 30/12 kl. 13:00 Sun 21/1 kl. 13:00 Sun 7/1 kl. 13:00 Sun 28/1 kl. 13:00 Fjölskyldusöngleikur eftir Góa! Faðirinn (Kassinn) Mið 6/12 kl. 19:30 Auka Fös 15/12 kl. 19:30 Auka Mið 31/1 kl. 19:30 21.sýn Fim 7/12 kl. 19:30 Auka Lau 30/12 kl. 19:30 18.sýn Sun 11/2 kl. 19:30 22.sýn Fös 8/12 kl. 19:30 16.sýn Lau 20/1 kl. 19:30 19.sýn Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn Lau 9/12 kl. 19:30 17.sýn Sun 28/1 kl. 19:30 20.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Hafið (Stóra sviðið) Þri 26/12 kl. 19:30 Frum Fös 5/1 kl. 19:30 4.sýn Fös 19/1 kl. 19:30 7.sýn Mið 27/12 kl. 19:30 2.sýn Lau 13/1 kl. 19:30 5.sýn Sun 21/1 kl. 19:30 8.sýn Fim 4/1 kl. 19:30 3.sýn Sun 14/1 kl. 19:30 6.sýn Risaeðlurnar (Stóra sviðið) Lau 9/12 kl. 19:30 13.sýn Lau 6/1 kl. 19:30 15.sýn Lau 20/1 kl. 19:30 17.sýn Fös 29/12 kl. 19:30 14.sýn Fös 12/1 kl. 19:30 16.sýn Lau 27/1 kl. 19:30 18.sýn Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi . Leitin að jólunum (Leikhúsloft) Lau 9/12 kl. 11:00 301.s Sun 10/12 kl. 13:00 305.s Lau 16/12 kl. 14:30 309.s Lau 9/12 kl. 13:00 302.s Sun 10/12 kl. 14:30 306.s Sun 17/12 kl. 11:00 310.s Lau 9/12 kl. 14:30 303.s Lau 16/12 kl. 11:00 307.s Sun 17/12 kl. 13:00 311.s Sun 10/12 kl. 11:00 304.s Lau 16/12 kl. 13:00 308.s Sun 17/12 kl. 14:30 312.s Grímuverðlaunasýningin Leitin að jólunum. Smán (Kúlan) Sun 10/12 kl. 19:30 19.sýn Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 6/12 kl. 20:00 Mið 13/12 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! Efi (Kassinn) Lau 13/1 kl. 19:30 Frum Lau 27/1 kl. 19:30 7.sýn Fim 15/2 kl. 19:30 Auka Sun 14/1 kl. 19:30 2.sýn Fim 1/2 kl. 19:30 Auka Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn Mið 17/1 kl. 19:30 Auka Fös 2/2 kl. 19:30 8.sýn Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn Fim 18/1 kl. 19:30 3.sýn Lau 3/2 kl. 19:30 9.sýn Fös 23/2 kl. 19:30 13.sýn Sun 21/1 kl. 19:30 4.sýn Fim 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 24/2 kl. 19:30 14.sýn Fim 25/1 kl. 19:30 5.sýn Fös 9/2 kl. 19:30 Auka Mið 28/2 kl. 19:30 Auka Fös 26/1 kl. 19:30 6.sýn Lau 10/2 kl. 19:30 10.sýn Margverðlaunað og spennandi verk !

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.