Morgunblaðið - 06.12.2017, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 06.12.2017, Qupperneq 36
MIÐVIKUDAGUR 6. DESEMBER 340. DAGUR ÁRSINS 2017 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 581 KR. ÁSKRIFT 6.307 KR. HELGARÁSKRIFT 3.938 KR. PDF Á MBL.IS 5.594 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.594 KR. 1. „Alltíeinu búið að stinga typpi …“ 2. Tryggð stig gegn Íslendingum 3. Tilkynnti færslu Gillz til lögreglu 4. „Ég skil við í fullkominni sátt“ »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Tónlistarmaðurinn Teitur Magn- ússon heldur menningarkvöld á Húrra við Tryggvagötu í kvöld kl. 20. Jón Gnarr, Kristín Eiríksdóttir, Dóri DNA, Oddný Eir og Fríða Ísberg munu lesa upp úr nýútkomnum bókum sín- um, Kristín Anna Valtýsdóttir verður með atriði, Haukur Valdimar Pálsson fremur gjörning og Mads Mouritz spilar og syngur dönsk gæðalög. Morgunblaðið/Stella Andrea Teitur heldur menn- ingarkvöld á Húrra  „Miðill – Efni – Merking: Leið- angur að list Önnu Líndal“ er heiti fyrirlestrar sem Ólöf K. Sig- urðardóttir, safn- stjóri Listasafns Reykjavíkur, flytur í Safnahúsinu við Hverfisgötu í dag kl. 12. Ólöf er sýn- ingarstjóri Leiðangurs, yfirlitssýn- ingar á verkum Önnu Líndal á Kjar- valsstöðum og mun fjalla um aðdrag- anda og markmið sýningarinnar og rekja hvernig Anna hefur notað ólíka miðla til að nálgast viðfangsefni sín. Leiðangur að list  Síðustu tónleikar haustdagskrár Jazzklúbbsins Múlans verða haldnir í kvöld kl. 21 á Björtuloftum, 5. hæð Hörpu. Á þeim kemur MIMRA fram ásamt hljómsveit og mun hún kynna tónlist af nýútkom- inni plötu sinni, Sinking Island. MIMRA er lista- mannsheiti tón- listarkonunnar Maríu Magn- úsdóttur. MIMRA í Múlanum Á fimmtudag Víða norðan 10-18 m/s en 18-23 m/s SA-til, dregur úr vindi með deginum, fyrst vestanlands. Él á NA- og A-landi, en bjartviðri S- og V-lands. Talsvert frost. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Úrkomulítið SV-lands eftir hádegi en élja- gangur í öðrum landshlutum og norðaustan 18-23 m/s suðaust- antil í kvöld. Frost yfirleitt 0 til 8 stig. VEÐUR Haukar þurftu að hafa fyrir hlutunum í 23:19-sigrinum á botnliði Gróttu í 9. umferð Ol- ísdeildar kvenna í handbolta í gærkvöldi. Með Lovísu Thompson sjóðheita innan sinna raða var Grótta yfir í hléi en Haukar náðu yfirhöndinni með því að taka hana úr umferð í síðari hálfleik og lönduðu fjögurra marka sigri. »4 Stórleikur Lovísu dugði ekki til „Ég er mjög ánægð með árangurinn. Þetta fór alveg fram úr væntingum,“ segir Þuríður Erla Helgadóttir, en hún náði besta árangri sem íslensk lyft- ingakona hefur náð á heimsmeist- aramóti þegar HM í ólympískum lyft- ingum fór fram í Kaliforníu í síðustu viku. Hún er í ítarlegu viðtali í íþróttablaðinu í dag. » 1 Náði besta árangri ís- lenskrar lyftingakonu Manchester United og Juventus tryggðu sér í gærkvöldi sæti í 16-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu karla í knattspyrnu. Bæði hafa þau sigrað í keppninni í gegnum tíðina. Spænska stórliðið Atletico Madrid er hins vegar úr leik og fer því í Evr- ópudeildina. Atletico spilaði úrslita- leikinn í keppninni fyrir einu og hálfu ári síðan. »4 United og Juventus áfram í 16-liða úrslit ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Landverðir sem starfa á friðlýstum svæðum og í þjóðgörðum landsins eru komnir í nýjan og samræmdan einkennisfatnað. Það eru þægilegar og lagskiptar flíkur sem duga eiga við allar aðstæður árið um kring. Gunnar Hilmarsson fatahönnuður sá um útfærsluna á þessum fatnaði, en haft var samráð við fjölda fólks og erlendar fyrirmyndir hafðar til hliðsjónar. Útgangspunkturinn var sá að ferðamenn sem á náttúru- verndarsvæði koma gætu af ein- kennandi klæðnaði þekkt landverð- ina og leitað til þeirra um upplýs- ingar og aðstoð. Útivistarfatnaðurinn nýi er úr vatnshrindandi efni og á brjóst jakka eru auðkenningar festar með frönskum rennilás, eins og slíkt er kallað. Eru landverðir þá annars vegar með skjaldarmerkið á vinstra brjósti á sinni flík og svo einkenn- ismerki þess staðar sem þeir starfa á og á ermi enska orðið ranger – það er vörður. Á lit eru fötin græn; og kannski ekki ósvipuð her- mannabúningum. Til viðbótar við regnheldu flíkurnar fær hver land- vörður flíspeysu með hverjum um- gangi, svo að fólk ætti að vera fært í flestan sjó, eins og máltækið segir. Sígildur og látlaus stíll „Við leituðum fyrirmynda meðal annars erlendis að einkennisfatnaði sem hönnuðurinn vann svo áfram með. Stíllinn er annars mjög sígild- ur og látlaus og fólk er ánægt með útkomuna,“ segir Ólafur A. Jónsson, sviðsstjóri náttúru hjá Umhverfis- stofnun, í samtali við Morgunblaðið. Þar vann fólk að þessu verkefni með starfsmönnum hjá Vatnajökuls- þjóðgarði og þjóðgarðinum á Þing- völlum. Hjá þessum stofnunum starfa landverðir sem sinna fjöl- þættu hlutverki, svo sem við gæslu, umhirðu, ýmsar framkvæmdir og síðast en ekki síst að leiðbeina fólki. Yfir sumarið eru um 100 manns starfandi við landvörslu á landinu öllu, en færri á veturna. Til hægðarauka „Við erum mjög ánægð með út- komuna. Þetta er snyrtilegur klæðnaður og dugar vel. Mér finnst hönnunin góð og það er til hægð- arauka að allir sem sinna land- vörslu, sama á hvaða stað þeir eru, séu í auðkennandi fötum,“ segir Guðjóna Björk Sigurðardóttir, rekstrarstjóri þjóðgarðsins á Þing- völlum. Þar starfa í vetur alls tíu landverðir, fimm á hverri vakt, og hafa nóg að gera því þó nú sé hávet- ur koma hundruð og stundum þús- undir ferðamanna á Þingvelli dag- lega. Landverðir í hermannalitum  Einkennisbúningar starfsfólks í þjóðgörðum og á friðlýstum svæðum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Landverðir Frá vinstri: Guðmundur Jón Kjartansson, Rúna Kristín Stefánsdóttir, Angela Margerita Jauch, Una Sóley Stefánsdóttir, Guðrún Tryggvadóttir og Pawel Adam Lopatka. Þau sinna landvörslustörfum í þjóðgarðinum á Þingvöllum og eru öll komin í nýju einkennisbúningana sem vekja eftirtekt. „Landverðir eru í lykilhlut- verki við vernd og við- hald náttúru. Sé ástand svæða gott ætti upplifun gesta af heim- sókn að verða góð,“ segir Jón Björnsson þjóðgarðsvörður á Snæfells- nesi. Hann segir starf land- varða hafa breyst mikið á síð- ari árum og fleiri verkefni séu nú á þeirra könnu. Á Snæfells- nesi sé eftirlit með ýmsum menningarminjum vaxandi þáttur í starfinu. GÓÐ UPPLIFUN GESTA Jón Björnsson Lykilhlutverk

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.