Morgunblaðið - 19.12.2017, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2017
LÍFRÆN
Góð beint úr dósinn
i
og í eftirrétti og sós
ur
Grísk jógúrt
Lífrænar mjólkurvörur
m
ag
gi
te
ik
na
ri.
is
Verkfall flugvirkja Icelandair
Fjórar þotur Icelandair, sem líkt og allar aðrar vélar í flota
félagsins bera nöfn íslenskra eldfjalla, stóðu í gær á hliðarlín-
unni á hlaðinu á Keflavíkurflugvelli og fara hvorki lönd né
stönd. Því ræður vekfall flugvirkja, sem þurfa að taka vél-
arnar reglulega út og aðgæta fyrir ferðir að allt sé í stakasta
lagi. Ef flugvirkjarnir eru ekki við störf stoppar allt. Hver
þota kostar milljarða króna og þegar tafir verða og engir eru
farþegarnir eða fraktin koma áhrifin af verkfallinu fram nán-
ast samstundis og gríðarmiklir fjármunir eru í húfi og geta
glatast. Samtök ferðaþjónustunnar hafa meðal annars bent á
hve skaðleg áhrif verkfallið hafi fyrir þá atvinnugrein, enda
hafi ferðir með Icelandir verið afbókaðar.
Ferðaþjónustan er stærsta útflutningsatvinnugrein lands-
ins. Á síðasta ári námu gjaldeyristekjur af ferðaþjónustu um
39% af gjaldeyristekjum þjóðarinnar, eða 463 milljörðum
króna. Því hafi stöðvun ferða þess flugfélags sem flýgur með
10 þúsund ferðamenn á dag, og hefur mesta markaðs-
hlutdeild, mikil neikvæð áhrif á hagkerfið í heild. Það eigi
ekki síst við nú, rétt fyrir jól, þegar margir eru á faraldsfæti;
Íslendingar sem ætli sér að vera í útlöndum eða fólk sem ætl-
ar að verja hátíðinni hér á landinu bláa. sbs@mbl.is
Ljósmynd/Víkurfréttir
Þotur Icelandair standa í langri röð á Keflavíkurflugvelli
Ingveldur Geirsdóttir
ingveldur@mbl.is
Fyrirtækjum í ferðaþjónustu hefur
borist fjöldinn allur af fyrirspurnum
og afpöntunum síðan verkfall flug-
virkja hjá Ice-
landair hófst.
Helga Árnadóttir,
framkvæmda-
stjóri Samtaka
ferðaþjónustunn-
ar, segir að afbók-
anir og fyrir-
spurnir
áhyggjufullra
ferðamanna fari
stigvaxandi. Ein-
staklingar og hóp-
ar hafa verið að afbóka hjá hótelum, á
gististöðum og hjá hópferðafyrir-
tækjum sem bjóða upp á dagsferðir.
„Afbókanir og fyrirspurnir hafa farið
stigvaxandi og í raun og veru telur
hver klukkustund,“ segir Helga.
Hún segir verkfallsaðgerðirnar
ekki bara slæmar fyrir ferðaþjón-
ustuna heldur líka fyrir þjóðarbúið.
„Það eru bæði gífurlegir fjárhagsleg-
ir og samfélagslegir hagsmunir í húfi.
Sem dæmi, áður en til verkfalls kom
var áætlað að gjaldeyristekjur ferða-
þjónustunnar á þessu ári myndu
nema 535 milljörðum sem eru ríflega
40% af heildarútflutningstekjum
þjóðarbúsins. Þannig að fjárhagslegu
áhrifin geta orðið mikil. Þá erum við
núna komin inn í aðventuna sem
fylgja miklar tilfinningar og ferða-
menn hafa ekki eins mikla þolinmæði
fyrir töfum.“
Helga segir söluaðila erlendis
fylgjast grannt með og að þeir séu
mjög meðvitaðir um það sem gengur
hér á enda búnir að fara í gegnum tíð-
ar verkfallsaðgerðir. „Þær stéttir sem
hafa áhrif á flug til og frá landinu hafa
að meðaltali boðað verkföll á sex mán-
aða fresti síðustu ár. Þetta er óásætt-
anlegt rekstrarumhverfi og sýnir að
það vinnumarkaðslíkan sem unnið er
eftir gengur ekki upp og er fullreynt.“
Áhrif á bókanir inn í nýtt ár
Hjá Samtökum ferðaþjónustunnar
er fylgst grannt með stöðunni og
reynt að bregðast við eins og hægt er.
Helga segir alla hjálpast að við að
upplýsa ætlaða viðskiptavini sem hafa
áhyggjur. „Það hafa öll fyrirtækin
gríðarlegar áhyggjur og vandinn stig-
magnast með hverri klukkustund.
Svona óstöðugleiki og óvissa hefur
áhrif fram í tímann og getur haft áhrif
á bókanir inn í nýtt ár. Slíkar verk-
fallsaðgerðir hafa fljótt áhrif en hins-
vegar vill maður trúa því og vona að
samningaðilar nái sáttum í deilunni
sem allra fyrst og eyði þannig þessari
óvissu bæði fyrir ferðaþjónustuna og
landsmenn alla.“
Helga bendir á að það sé búinn að
vera óstöðugleiki í kringum ferða-
þjónustuna síðustu misseri og þessi
nýja staða hvað varðar verkfall sé
ekki að hjálpa til. „Þó það sé búin að
vera mikil fjölgun ferðamanna er ekki
línulegt samband á milli fjölgunarinn-
ar og afkomu í greininni. Greinin er
búin að vera að fjárfesta mjög mikið,
eiga við mikla styrkingu íslensku
krónunnar auk þess sem launahækk-
anir á síðustu tveimur árum hafa ver-
ið um 50% í evrum. Þannig að rekstr-
arumhverfið hefur verið mjög þungt
og þyngst mjög mikið síðustu miss-
eri.“
Vandinn stigmagnast
með hverri klukkustund
Afbókanir og fjöldi fyrirspurna frá erlendum ferðamönnum
Helga
Árnadóttir
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Fundur í kjaradeilu flugvirkja og
Icelandair stóð enn yfir í húsakynn-
um Ríkissáttasemjara þegar Morg-
unblaðið fór í prentun seint í gær-
kvöldi. Fundurinn hófst klukkan 16
og var þess freistað að ná samn-
ingum, en mikill þrýstingur er í
samfélaginu á deilendur um að leiða
málið til lykta. Ekki náðist í fulltrúa
í samninganefndum flugvirkja sem
voru á fundum í gærkvöldi. Fyrri
fundir hafa staðið langt fram á nótt
en verið þá slitið af sáttasemjara.
Hefur raskað ferðalögum
þúsunda flugfarþega
Verkfallið hófst á sunnudags-
morgun og hefur þegar raskað
ferðalögum þúsunda manna. Margir
hafa þurft að bíða í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar á Keflavíkurflugvelli
eftir að mál þeirra skýrðust og hafa
starfsmenn Isavia reynt að liðsinna
því fólki eftir bestu getu.
Hjá Icelandair sáu menn í gær-
kvöldi að koma mætti átta flug-
vélum félagsins í loftið og á áætlun
nú í bítið. Samanlagður sætafjöldi
þeirra væri 1.600 til 1.700 og væri
þeim þá flogið til þeirra áfanga-
staða sem vinsælastir eru, til að
mynda Kaupmannahafnar, Lund-
úna, Parísar og Amsterdam. Mikið
álag hefur verið í þjónustudeildum
Icelandair vegna þessa ástands
enda vilja farþegar fá svör eða úr-
lausn sinna mála með breytingum á
ferðabókunum, far með öðrum fé-
lögum og svo framvegis. Hefur all-
ur tiltækur mannskapur verið sett-
ur á vaktina til að sinna þessum
erindum viðskiptavina. Helming
áætlunarferða þarf hins vegar að
fella niður og á það jafnt við um
Evrópuflugið á morgnana og flug til
Ameríku síðdegis.
20 prósentin eru úrelt
Ekki hefur legið fyrir nákvæm-
lega hvað ber á milli meðal deilu-
aðila. Krafa flugvirkja um 20%
launahækkun er úrelt, sagði Óskar
Einarsson, formaður Flugvirkja-
félags Íslands, við mbl.is í gær.
Fallið hafi verið frá kröfum um
samning til lengri tíma og það eitt
og sér minnki alltaf prósentuvægið
í málum sem þessum. Hann segir
flugvirkja hjá Icelandair hins vegar
telja sig eiga inni leiðréttingu á sín-
um launum og handa vilji þeir
sækja nú.
Helmingur ferða felldur niður
Samningafundur hjá Ríkissáttasemjara stóð enn seint í gærkvöldi Átta flugvélar Icelandair áttu að
vera til taks nú í bítið 1.700 sæti til taks Flogið til fjölsóttustu áfangastaðanna í Evrópu
Morgunblaðið/RAX
Keflavíkurflugvöllur Rólegt í brottfararsal Leifsstöðvar í gær.
Flugvirkjaverkfall
» Stíf fundahöld í kjaradeil-
unni voru hjá Ríkissáttasemj-
ara frá því síðdegis í gær.
» 20% launahækkun er ekki
lengur krafa flugvirkjanna.
» Reynt að leysa úr vanda far-
þega hjá Icelandair og allur til-
tækur mannskapur hefur verið
á vakt í þjónustuverinu.
» Margar ferðir félagsins til
áfangastaða ytra hefur þurft
að fella niður síðustu daga.
Ferðum WOW air verður ekki fjölg-
að vegna verkfalls flugvirkja hjá
Icelandair, en það hefur mjög rask-
að flugi og áætlunum margra sem
aftur getur skapað þrýsting á önn-
ur flugfélög. Svanhvít Friðriks-
dóttir, talsmaður WOW air, sagði í
samtali við Morgunblaðið í gær að
flugfloti félagsins væri fullnýttur í
augnablikinu og svigrúm því ekki
mikið. Bókað væri í um 90% sæta
enda jólin jafnan háannatími. Ekki
voru í gær heldur uppi nein áform
um að reyna að fjölga ferðum.
WOW air ætlar ekki að fjölga ferðum