Morgunblaðið - 19.12.2017, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 19.12.2017, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2017 Verð 12.995 Sjá úrvalið á www.skornirthinir.is SMÁRALIND www.skornirthinir.is Við erum á facebook Bæjarlind 6 | sími 554 7030 Túnikur Kr. 7.900 Str. 40-56 fleiri litir JÓLASÖFNUN Það hefur sýnt sig að íslenska þjóðin stendur saman, sýnir stuðning og samhug eftir bestu getu. Hægt er að leggja framlög inn á reikning nr. 0101-26-35021, kt. 470269-1119 Skrifstofusími 10 til 16. S. 551 4349, 897 0044, netfang: maedur@simnet.is Mæðrastyrksnefndar Reykjavíkur er hafin Íslensk hönnun og smíði síðan 1924 ERNA Skipholti 3 – Sími 552 0775 – erna.is GULL- OG SILFURSMIÐJA Fallega jólaskeiðin frá ERNU Smíðuð á Íslandi úr 925 sterling silfri Hönnuð af Ragnhildi Sif Reynisdóttur gullsmið og hönnuði Verð 21.500,- Sögur þessar samdi amma Ástríðar Ránar þegar Ástríður var lítil um tvo hunda sem lenda í ýmsum ævintýrum og gaf út á afmælisdegi hennar þegar hún hefði orðið 25 ára. Ástríður lést á Vogi árið 2014. Allur hagnaður af sölu bókarinnar fer til styrktar hjálparsamtökum sem styðja unga fíkla við að komast aftur á rétta braut, þá sem eru í sjálfsvígshættu og/eða foreldra sem misst hafa börn vegna fíknar. Nú erum við í ljótum málum Bækurnar eru til sölu í verslunum Hagkaupa í Skeifunni, Garðabæ og Smáralind, Mál og Menningu og Bókakaffi á Selfossi. Einnig er hægt að panta bókina á Facebook síðunni Týri og Bimbó og kostar bókin 3000 kr. Skemmtilegar barnasögur fyrir aldurinn 4-9 ára sem passa vel í jólapakkann. Reikna má með því að verð á bensínlítra hækki um 5,20 krónur um áramótin og lítri af dísilolíu um 5,40 krónur samkvæmt útreikning- um Félags íslenskra bifreiðaeig- enda. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir því að eldsneytisgjald á bensín og olíugjald hækki um 2% og er þá miðað við verðlagsforsend- ur. Vörugjald á bensíni er nú 26,80 krónur og sérstakt vörugjald 43,25 krónur. Þessi gjöld hækka í 27,35 krónur og 44,10 krónur, samkvæmt frumvarpi um breytingu á ýmsum lögum vegna fjárlaga fyrir árið 2018. Olíugjald, sem leggst á hvern lítra af dísilolíu, er nú 60,10 krónur en verður 61,30 krónur. Ofan á þessar fjárhæðir leggst virðisauka- skattur. Samkvæmt þessu má gera ráð fyrir því að lítri af bensíni á sjálfs- afgreiðslustöðvum muni hækka úr 203,90 krónum í 209,10 krónur og lítri af dísilolíu muni hækka úr 195,80 krónum í 201,30 krónur. Þá er miðað við verðið eins og það var í gær og ekki gert ráð fyrir afslátt- arkjörum sem bjóðast hjá öllum olíufélögunum. Morgunblaðið/Kristinn Dæla Eldsneytisverðið mun hækka. Eldsneytislítrinn mun hækka um rúmar 5 kr. Héraðssaksóknari hefur gefið út ákæru á hendur Khaled Cairo, 38 ára gömlum hælisleitanda með jem- enskt ríkisfang, fyrir morð á Sanitu Brauna á Hagamel í Reykjavík 21. september síðastliðinn. Í ákærunni kemur fram að mað- urinn hafi slegið Sanitu ítrekað í andlit og höfuð með tveimur til þremur glerflöskum og slökkvitæki sem var tæplega 10 kíló. Þá er hann sagður hafa hert kröftuglega að hálsi hennar, en allt þetta orsakaði það að Sanita „lést vegna röskunar á blóðstreymi til heila vegna margra högg- og skurðáverka á höfði sem ollu mörgum áverkum á hörundi, brotum á höfuðkúpu og kúpugrunni ásamt blæðingu innan höfuðkúpu auk þess sem hún hlaut punktblæðingar í táru og glæru augnloka og í innanvert munnhol og blæðingar í hálsvöðva,“ eins og segir í ákærinni. Er lágmarksrefs- ing, fyrir brot skv. ákæru, 5 ára fangelsi en getur orðið ævilangt. Ákæra fyrir morð á Hagamel gefin út Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.