Morgunblaðið - 19.12.2017, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2017
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/
Nikki Haley,sendiherraBandaríkj-
anna hjá Sameinuðu
þjóðunum, boðaði
fjölmiðla á sinn fund
fyrir helgi með það sem Banda-
ríkjastjórn sagði sannanir um
brot Írans. Á fundinum stóð Hal-
ey fyrir framan brot úr eldflaug,
sem Sádi-Arabar sögðu að hefði
verið skotið frá Jemen í átt að
höfuðborg Sádi-Arabíu, Riyadh,
en bæði Sádar og Bandaríkja-
menn segja eldflaugina vera
framleidda í Íran.
Þetta eru grafalvarlegar ásak-
anir. Samkvæmt kjarnorku-
vopnasamningnum alræmda,
sem Barack Obama beitti sér fyr-
ir á sínum tíma, er Írönum
óheimilt að þróa nokkrar flaugar
sem geta borið kjarnorkuvopn.
Engu að síður hafa þeir áfram
gert tilraunir með langdrægar
eldflaugar „í vísindaskyni“, sem
Bandaríkjamenn hafa sagt stríða
gegn „anda samkomulagsins“,
hafi þær ekki verið hreint og
klárt brot á því.
Íranar hafa fyrir sitt leyti
hafnað ásökunum Haley og jafn-
vel reynt að bera fréttamanna-
fund hennar saman við hina
frægu framsögu Colins Powells,
þá utanríkisráðherra Bandaríkj-
anna, í öryggisráði Sameinuðu
þjóðanna, þar sem hann lagði
fram „sönnunargögn“, sem síðar
reyndust byggð á röngum upp-
lýsingum, fyrir því að Saddam
Hussein hefði gerst brotlegur við
ályktanir ráðsins.
Ljóst er að þolinmæði stjórn-
valda í Washington gagnvart
Írönum er á þrotum. Trump
Bandaríkjaforseti hefur nú í
nokkurn tíma velt
þeim möguleika fyr-
ir sér að slíta kjarn-
orkusamningnum af
hálfu Bandaríkj-
anna, en Trump hef-
ur sagt samkomulagið eitt hið
versta sem Bandaríkin hafi sam-
þykkt. Þá sagði Haley á blaða-
mannafundinum að Bandaríkin
myndu leita sér bandamanna í
öryggisráðinu til þess að taka
mál Írana fyrir og ræða mögu-
legar refsiaðgerðir á hendur
þeim, þar sem „árásargirni Ír-
ana“ væri vandamál heimsbyggð-
arinnar, sem ekki mætti ýta
lengur á undan sér.
Ólíklegt er hins vegar, að ör-
yggisráðið muni beita sér gegn
Írönum að sinni, sér í lagi þar
sem þeir njóta verndar Rússa og
Kínverja. Báðar þjóðir hafa tals-
verða viðskiptahagsmuni í Íran
og munu því ekki taka vel í nein-
ar hugmyndir um að hefja aftur
alþjóðlegar viðskiptaþvinganir á
hendur Írönum. Þá hafa Rússar
einnig látið í veðri vaka, að Ír-
ansmál gætu haft neikvæðar af-
leiðingar á lausn kjarnorkudeil-
unnar við Norður-Kóreu.
Framferði Írana í Mið-Austur-
löndum eftir að viðskiptaþving-
unum var aflétt hefur verið að
mestu í samræmi við þær spár,
sem helstu úrtölumenn kjarn-
orkusamningsins héldu fram.
Þeir hafa beitt ítökum sínum til
hins ýtrasta í Írak, Sýrlandi og
Jemen og haldið áfram stuðningi
sínum við hryðjuverkasamtök í
Mið-Austurlöndum. Það þyrfti
því ekki að koma á óvart, ef ásak-
anir Bandaríkjanna reyndust
réttar. En verður tekið á því?
Það er alls óvíst.
Alvarlegar ásakanir
hafa komið fram
gegn Írönum}
Uggvænlegt framferði
Bresk hermála-yfirvöld hafa
tekið eftir aukinni
tilhneigingu rúss-
neskra skipa og kaf-
báta til þess að sigla
yfir þeim sæstrengjum sem
liggja á milli Evrópu og Banda-
ríkjanna. Varaði flugmarskálk-
urinn Stuart Peach, æðsti yfir-
maður breska hersins og yfir-
maður herráðs Atlantshafs-
bandalagsins, í ræðu hjá
varnarmálahugveitunni RUSI
við því að bandalagið og Bretar
þyrftu að fara að huga að þeirri
hættu sem fylgdi því, ef til dæmis
rússnesk skip næðu að eyði-
leggja strengina eða hindra
gagnaflutning um þá.
Þessi viðvörun Peach er ekki
að ófyrirsynju. Vitað er að þegar
rússneskar hersveitir héldu inn á
Krímskaga 2013 gerði Svarta-
hafsfloti þeirra tilraun til þess að
skera á þá sæstrengi sem tengdu
héraðið við önnur ríki. Ef eitt-
hvað þvíumlíkt gerðist á miðju
Atlantshafi yrðu afleiðingarnar
einfaldlega skelfilegar fyrir hinn
vestræna heim. Í nýlegri rann-
sókn kom í ljós að
um 97% af alþjóð-
legum samskiptum
fara um sæstrengi á
hverjum einasta
degi, auk þess sem
viðskipti og flutningar fjármagns
að andvirði um tíu trilljón banda-
ríkjadala fara einnig fram í gegn-
um slíka strengi.
Öryggi sæstrengjanna er því
forgangsmál og skiptir þá minna
máli hvort það eru Rússar eða
einhverjir aðrir sem taldir eru
geta orðið skaðvaldar. Sæstreng-
irnir eru einfaldlega orðnir að
órjúfanlegum hluta daglegs nú-
tímalífs, en svo virðist sem lítið
hafi verið hugað að því að hugs-
anlega væri þar veikleika að
finna.
Ef sú staða kemur einhvern
tímann upp, að samskipti um
strengina rofni eða truflist, gætu
afleiðingarnar af því verið algjör
ringulreið. Það er því ekki seinna
vænna að leiða hugann að því
hvernig hægt sé að koma í veg
fyrir slíkan atburð, eða í það
minnsta hvernig takmarka megi
skaðann.
Sæstrengir eru
orðnir órofa hluti
af nútímalífi}
Huga þarf að hættunni
O
ft finnst okkur lítið liggja eftir
stjórnmálamenn. Við spyrjum:
Hvort göngum við saman til góðs
eða færumst aftur á bak? Þegar
litið er um öxl er oft eins og ekk-
ert hafi gerst. Samt sjáum við auðvitað að
margt hefur breyst á löngum tíma, en sjaldan í
stökkum fram á við eða til baka.
Mér er minnisstætt þegar vinur minn einn,
sem hafði fylgst náið með störfum Alþingis í
heilan vetur, sagði að yfirleitt væri hæfasta
fólkið innan hvers hóps formenn stjórnmála-
flokkanna. Ég hafði aldrei hugsað út í það og
taldi þetta reyndar fyrst fráleitt þegar ég hugs-
aði til fólks í stjórnmálum sem ég var sjaldan
sammála. Við nánari umhugsun breytti ég um
skoðun. Þetta fólk sem pirraði mig var einfald-
lega best í því að koma á framfæri málstað síns
flokks, málstað sem ég var ósáttur við.
Einmitt þetta setur mikla ábyrgð á þá sem eru í forystu
flokkanna. Fyrir þjóðina er það mikilvægt að stjórn-
málamenn vinni fyrst og fremst það sem best er fyrir
heildina, jafnvel þó að það þjóni ekki pólitískum hags-
munum þeirra til skamms tíma. Hættan felst nefnilega
ekki í því að vont fólk geri slæma hluti. Við því er að búast.
En ef gott fólk hættir að gera góða hluti erum við í vanda.
Það er sjaldgæft að stjórnmálamenn séu í aðstöðu til
þess að ná stórkostlegum árangri fyrir þjóð sína. Á síðustu
öld hafa afrek Viðreisnarstjórnarinnar fyrri í frelsis-
málum og aukaaðild Íslands að Evrópusambandinu á síð-
asta áratug aldarinnar orðið Íslendingum til
mestra heilla. Höft og fjötrar undir stjórn
Framsóknar á þriðja og fjórða áratugnum
voru varanleg ógæfuspor sem langan tíma tók
að afmá. Full aðild að Evrópusambandinu væri
stökk af fyrri gerðinni; Brexit er sambærilegt
við skemmdarverk Hriflu-Jónasar.
Í Bandaríkjunum ætti sannarlega að vera af
mörgu afburðafólki að taka en fæstir foringjar
þar hafa unnið varanleg afrek. Tveir ólíkir
menn, sem báðir eru enn á lífi, urðu forsetar
fyrst og fremst vegna þess að þeir voru ekki
innvígðir. Hvorugur varð góður forseti. Hvorki
Jimmy Carter né Donald Trump voru hluti af
„klíkunni“ í Washington. Carter, sem var tal-
inn vandaður maður, þjáðist af þeim kvilla að
geta ekki tekið ákvarðanir.
Trump er allt öðruvísi. Hann lifir í eigin
veruleika, einhvers konar hliðstæðum heimi þar sem fjöl-
miðlar flytja falsfréttir, en hann sjálfur og verk hans eru
langbest í heimi. Á Íslandi eigum við einn Trump en
marga Cartera. Fáir hafa miklar hugsjónir sem sína póli-
tísku leiðarstjörnu og ólíklegt að þjóðin taki stökk fram á
við undir þeirra leiðsögn. Í stjórnarmyndunarviðræðum
nú í haust var flest falt og grimmt slegið af. Að lokum var
samið um það „sem allir eru sammála um“, svo vitnað sé til
formanns Framsóknar. Það er huggun harmi gegn, að
minni skaði er að Carterum en Trumpum.
Benedikt
Jóhannesson
Pistill
Besta fólkið
Höfundur er stærðfræðingur og stofnandi Viðreisnar.
STOFNAÐ 1913
Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík.
Ritstjóri:
Davíð Oddsson
Aðstoðarritstjóri:
Karl Blöndal
Ritstjóri og framkvæmdastjóri:
Haraldur Johannessen
Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfa-
dóttir, ferðamála, iðnaðar- og nýsköp-
unarráðherra, hefur heildarendur-
skoðun laga um skipan ferðamála efst
á blaði. Þá hyggst hún láta endur-
skoða ákvæði um stjórnarmenn í lög-
um um einkahlutafélög í því skyni að
setja skorður við kennitöluflakki.
Hægt verður að setja einstaklinga,
sem teljast vanhæfir vegna svik-
samlegra viðskiptahátta, í atvinnu-
rekstrarbann.
Lilja Dögg Alfreðsdóttir, mennta-
og menningarmálaráðherra, ætlar
að endurflytja frumvarp til nýrra
heildarlaga um sviðslistir. Þá ætlar
hún að fella niður laun stórmeistara
í skák og færa styrki á því sviði til
sama fyrirkomulags og er um lista-
mannalaun. Kristján Þór Júlíusson,
sjávarútvegs- og landbúnaðarráð-
herra, leggur fram frumvarp til laga
um Matvælastofnun sem felur í sér
nýja heildarlöggjöf á því sviði. Guð-
mundur Ingi Guðbrandsson, um-
hverfis- og auðlindaráðherra, boðar
lög um nýja Þjóðgarðastofnun sem
taka á við verkefnum Vatnajök-
ulsþjóðgarðs, þjóðgarðsins á Þing-
völlum og tilteknum verkefnum á
sviði náttúruverndar. Samkvæmt
frumvarpinu á þó að viðhalda
tengslum Alþingis við Þjóðgarðinn á
Þingvöllum en yfirstjórn hans er í
höndum Þingvallanefndar sem Al-
þingi kýs.
Sérdómstóll í stað
endurupptökunefndar
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Stefnumál Um leið og Katrín Jakobsdóttir flutti stefnuræðu sína á Alþingi
lagði ríkisstjórnin fram þingmálaskrá sína.
SVIÐSLJÓS
Guðmundur Magnússon
gudmundur@mbl.is
Stofnun sérdómstóls sem leysaá endurupptökunefnd afhólmi er eitt af fjölmörgummálum sem boðuð eru í
þingmálaskrá nýrrar ríkisstjórnar
Katrínar Jakobsdóttur. Við upphaf
þings í vikunni kynnti ríkisstjórnin
venju samkvæmt skrá um þau mál
sem hún hyggst leggja fram á Alþingi
ásamt áætlun um hvenær þeim verð-
ur útbýtt. Í upphafi skrárinnar er
tekið fram að flutt kunni að verða
fleiri mál en getið er og atvik geti
hindrað flutning einstakra mála. Þá
muni ríkisstjórnin jafnframt við upp-
haf vetrarþings, að loknu jólahléi, af-
henda forseta Alþingis endurskoðaða
áætlun um framlagningu stjórn-
arfrumvarpa á vetrar- og vorþingi
ásamt áætluðum útbýtingardegi. Má
búast við að ýmislegt sem boðað var í
stjórnarsáttmálanum líti þá dagsins
ljós. Hér verður litið á fáein þeirra
mála sem eru á skránni.
Sigríður Andersen dóms-
málaráðherra hyggst m.a. leggja til
að endurupptökunefnd verði lögð nið-
ur og settur á fót sérdómstóll sem
skera á úr um hvort heimila skuli
endurupptöku mála sem dæmd hafa
verið í héraði, Landsrétti eða Hæsta-
rétti. Í frumvarpinu er lagt til að
dómendur í þeim dómstól verði fimm;
einn frá hverju dómstigi og auk þess
einn lögmaður og einn háskólakenn-
ari með sérþekkingu á réttarfari.
Jafnframt er lagt til að heimilt verði
að endurupptaka mál oftar en einu
sinni og skilyrði fyrir endurupptöku
einkamála verði rýmkuð. Þá flytur
ráðherrann frumvarp til laga um per-
sónuvernd. Með frumvarpinu er inn-
leidd í íslenskan rétt ný reglugerð um
persónuvernd á grundvelli tilskip-
unar frá EES um vernd einstaklinga í
tengslum við vinnslu persónuupplýs-
inga og um frjálsa miðlun slíkra upp-
lýsinga. Með hinni nýju reglugerð eru
grundvallarréttindi einstaklinga í
stafrænum heimi styrkt og jafnframt
greitt fyrir þróun á hinum innri staf-
ræna markaði með því að einfalda
reglur fyrir fyrirtæki. Reglugerðin
felur í sér mjög umfangsmiklar
breytingar á sviði persónuverndar.
M.a. er um að ræða breytt og aukið
hlutverk innlendra eftirlitsyfirvalda,
aukin réttindi einstaklinga, nýjar ör-
yggisvottanir og sektarheimildir.
Bjarni Benediktsson, fjármála-
ráðherra, ætlar að leggja til að
ákvæði um heimildir Fjármála-
eftirlitsins (FME) úr neyðarlög-
unum frá 2008, verði fram-
lengd. Ákvæðið veitir FME
heimildir til inngripa í rekstur
fjármálafyrirtækja í þeim til-
gangi að takmarka tjón eða
hættu á tjóni á fjármálamarkaði
þegar fjármálafyrirtæki stendur
frammi fyrir sérstökum fjár-
hagserfiðlleikum og/eða rekstr-
arerfiðleikum. Að óbreyttu
hefðu ákvæðin fallið úr gildi um
næstu áramót. Ný heildarlög
um þetta svið eru í bígerð.
Framlengja
heimildir FME
FJÁRMÁLAMARKAÐURINN
Morgunblaðið/Ómar