Morgunblaðið - 19.12.2017, Side 24

Morgunblaðið - 19.12.2017, Side 24
24 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 19. DESEMBER 2017 ✝ Vilborg Guð-jónsdóttir fæddist í Reykjavík 27. mars 1937. Hún lést á Landspítal- anum við Hring- braut 10. desember 2017. Foreldrar henn- ar voru Guðjón Jónsson húsameist- ari, f. 30. nóvember 1894 í Grímsnesi, d. 29. febrúar 1952, og Jónína Vil- borg Ólafsdóttir húsfreyja, f. 7. júní 1903 í Reykjavík, d. 8. mars 1970. Systkini Vilborgar eru Jón Vilberg, f. 1922, d. 2012, Sig- urjón, f. 1930, Brynhildur, f. 1934, d. 2016, Gyðja, f. 1937, Guðrún, f. 1938, og Sverrir, f. 1942, d. 2008. Vilborg giftist Rafni Kjartans- syni, f. 27. september 1935, d. 24. september 1994. Þau skildu. Börn Vilborgar og Rafns eru: 1) Óskar, f. 1954, giftur Sólveigu 1980. Börn þeirra eru: Birgir Alex, f. 2007, Emma Lísa, f. 2010, og Viktor Logi, f. 2014. b) Íris Ósk, f. 1980, gift Davíð Hlíð- kvist Ingasyni, f. 1982. Börn þeirra eru: Alexander Þór, f. 2013, og Tara Líf, f. 2015. c) Tara Sif, f. 1992, í sambúð með Elfari Elí Schweitz Jakobssyni, f. 1990. 3) Kjartan, f. 1965. Börn hans eru: a) Katarína Sif, f. 1994, Kristófer Herkus, f. 2005, og Friðrika Maya, f. 2007. 4) Guðjón Sverrir, f. 1967, maki Sigrún Garðarsdóttir, f. 1976. Barn þeirra er Óskar Daði, f. 2010. Fyrir átti Sverrir Rakel Þóru, f. 1993. Sigrún átti fyrir Jóhann Sölva, f. 1996, Róbert Orra, f. 1998, og Victor Snæ, f. 2000. Frá árinu 1984 var Vilborg í sambúð með Braga Garðarssyni, f. 16. október 1939, d. 3. febrúar 2011. Lengsta hluta ævinnar bjó Vilborg í Miðtúni 42 þar sem hún ólst upp og bjó með stuttum hléum þar til hún flutti á Drop- laugarstaði vorið 2017. Vilborg vann ýmis verslunarstörf í gegn- um tíðina ásamt því að starfa hjá Pósti og síma. Útför Vilborgar fer fram frá Laugarneskirkju í dag, 19. desember 2017, klukkan 13. Hafsteinsdóttur, f. 1955. Börn þeirra eru: a) Kjartan Haf- steinn, f. 1974, gift- ur Lilju Kristjáns- dóttur, f. 1980. Börn þeirra eru Klara Marín, f. 2003, Kristjana, f. 2006, og Styrmir Steinn, f. 2011. b) Hrönn Óskars- dóttir, f. 1977, gift Júlíusi Hafstein, f. 1976. Börn þeirra eru: Júlían, f. 2001, Lúk- as, f. 2005, og Patrik, f. 2014. c) Nanna Kolbrún, f. 1982, gift Guðmundi E. Stephensen, f. 1982. Börn þeirra eru: Viktoría Sólveig, f. 2006, Kamilla Sóley, f. 2015, Óskar Darri, f. 2015, og Stefanía Sirrý, f. 2017. d) Karen Ósk Óskarsdóttir, f. 1993. 2) Ásta Karen, f. 1956, gift Birgi Þór Gunnarssyni, f. 1956. Börn þeirra eru: a) Gunnar, f. 1975, giftur Önnu Ómarsdóttur, f. Það er ekki til siðs að börn skrifi minningargreinar um for- eldra sína, hef ég oft heyrt. Ekki dettur mér í hug að fara eftir þeirri reglu. Einnig að menn eigi að vera sterkir og jafnvel ekki gráta, en ekki dettur mér heldur í hug að fara eftir því. Að gráta þegar maður missir ástvin er eðlilegasti hlutur í heimi, ber vott um kærleika og væntumþykju við þann látna og veitir manni frið í hjarta. Dauðinn er sérstakt fyrirbæri. Sjaldan tölum við um dauðann og okkur dettur aldrei í hug að hann geti verið á næsta leiti, þó er hann nokkuð sem mun henda okkur öll fyrr eða síðar. Við leyf- um okkur meira að segja að van- rækja vini og fjölskyldu, rífast og skammast og láta minnstu hluti pirra okkur eins og ekkert sé sjálfsagðara en að við munum hittast aftur á morgun. En þann- ig er lífið bara ekki, því miður. Dauðinn er fjarlægur þar til hann bankar upp á og hrifsar til sín okkar nánustu vini og fjölskyldu og gerir oft engin boð á undan sér. Ef einhver hefði sagt mér fyrir nokkrum vikum að ég sæti hér í dag og skrifaði minningarorð um mömmu hefði ég sagt að það væri óhugsandi. Að fá þær fréttir 29. nóvember að mamma væri með krabbamein var mikið áfall en að hún sé farin aðeins tveimur vikum síðar er enn verra. Mamma var alltaf ein- staklega vel á sig komin líkam- lega, gekk allra sinna leiða, fór í sund og ef hún átti ekki erindi neitt fór hún í göngutúra. Þetta varð til þess að hún var alla tíð í toppformi. Að sjá hana visna upp og deyja á svona stuttum tíma var óraunverulegt. Ég hef alltaf borið ómælda virðingu fyrir mömmu og virð- ingin hefur aðeins aukist með ár- unum. Hún þurfti að hafa mikið fyrir lífinu. Þegar við systkinin vorum að alast upp var hún eina foreldrið. Öll uppvaxtarár mín var hún í tveimur störfum til að ná endum saman. Alltaf setti hún sig í annað sætið svo við systkinin gætum fengið það sem þurfti. Ef hana vantaði föt fyrir sig sjálfa voru þau keypt á útsölu. Oft í seinni tíð þegar ég var að reyna að fá hana til að gera eitthvað fyr- ir sjálfa sig kom það ekki til greina. Það var bara ekki í henn- ar karakter að eyða í sjálfa sig. Hún hafði alla tíð þurft að vera skynsöm og það breyttist aldrei. Mamma var ótrúlega barngóð og ljúf manneskja og öllum sem hana þekktu þótti vænt um hana. Hún elskaði fjölskylduna sína, var stolt af börnunum og elskaði barnabörnin, sem hún gaf sér mikinn tíma til að tala og leika við. Hún var börnunum mínum, Rakel og Óskari Daða, ómetanleg og var algjörlega í guða tölu hjá þeim. Mamma var mikilvæg og ein- stök manneskja í mínu lífi. Alla tíð var samband okkar eins og best verður á kosið. Við töluðum saman á hverjum degi. Það er skrýtið til þess að hugsa að mað- ur eigi aldrei aftur eftir að heyra röddina hennar, aldrei aftur fara í Miðtúnið og hitta hana, aldrei aftur fara í bíltúr og spjalla, já, þetta er ótrúlega skrýtið og hennar er sannarlega sárt sakn- að. Elsku mamma, ég vildi að ég hefði sagt þér oftar í lifandi lífi hvað mér þykir vænt um þig, og þú munt alla tíð eiga sérstakan stað í hjarta mínu. Þinn sonur Sverrir. Þig sem í fjarlægð fjöllin bak við dvelur, og fagrar vonir tengir líf mitt við. Minn hugur þráir, hjartað ákaft saknar, er horfnum stundum, ljúfum, dvel ég hjá. Heyrirðu ei, þig hjartað kallar á? Heyrirðu ei storm, er kveðju mína ber? Þú fagra minning eftir skildir eina, sem aldrei gleymist, meðan lífs ég er. (Valdimar Hólm Hallstað) Þín tengdadóttir, Sólveig Hafsteinsdóttir. Elsku amma. Það er ennþá svo óraunverulegt að þú sért farin frá okkur en ég trúi að þú sért komin á betri stað, þar sem þér líður vel með frið í hjartanu. Ég mun sakna þín svo mikið, en ég á margar góðar minningar um þig til að hlýja mér við. Eins og allar útlandaferðirnar þegar ég var lít- il, þar sem við sátum úti á svölum heilu kvöldin og þú vildir að ég syngi fyrir þig, annað lag og ann- að lag, aftur og aftur. Helst hefðir þú viljað að ég syngi fyrir þig all- an sólarhringinn, þótt það væri kannski alltaf sama lagið. Svo eigum við frænkurnar fjórar endalausar minningar úr Mið- túninu, þar sem við eyddum ófáum stundum saman. Þú leyfð- ir okkur alltaf að gera það sem við vildum þannig að þessi litla kjallaraíbúð og garðurinn í kring var eins og heill ævintýraheimur fyrir okkur. Okkur leiddist aldrei hjá þér og þér fannst allt sem okkur datt í hug að gera alveg jafn skemmtilegt og okkur. Þú hafðir endalausa þolinmæði fyrir öllu sem við tókum upp á; tísku- sýningunum, leikritunum, síma- ötunum, dyraötunum og fleira. Þegar ég varð aðeins eldri fattaði ég hversu athugul þú varst, þú sást ef maður léttist löngu áður en vigtin sýndi það. Þú pældir mikið í því sem var að gerast í kringum þig, enda fannst þér alltaf jafn áhugavert þegar ég sagði þér slúður frá vinkonum mínum, um þær sem voru óléttar eða að byrja með eldri strákum, þér fannst það jafn spennandi og ef þetta hefðu verið bestu vinkon- ur þínar. „Karen, hvað segirðu, ertu að meina þetta?“ var yfirleitt svarið. En þrátt fyrir að þú sért farin frá okkur mun ég aldrei hætta að segja þér slúður og syngja fyrir þig. Aldrei. Vertu ekki grátinn við gröfina mína góði, ég sef ekki þar. Ég er í leikandi ljúfum vindum, ég leiftra sem snjórinn á tindum. Ég er haustsins regn sem fellur á fold og fræið í hlýrri mold. Í morgunsins kyrrð er vakna þú vilt, ég er vængjatak fuglanna hljótt og stillt. Ég er árblik dags um óttubil og alstirndur himinn að nóttu til. Gráttu ekki við gröfina hér – gáðu – ég dó ei – ég lifi í þér. (Þýtt úr ensku) Hvíldu í friði, elsku amma. Þín Karen Ósk. Í dag kveð ég ömmu mín í síð- asta skipti. Ömmur eru mikil- vægar í lífi hvers barns. Þær eiga það flestar sameiginlegt að vera að springa úr stolti yfir barna- börnunum sínum og finnst ekkert merkilegra hafa fæðst. Villamma var engin undantekning þar á, hún var stolt af stóra hópnum sínum. Hún var með fyrstu manneskjum til þess að sjá mig þegar ég fæddist og ég hélt svo um hana þegar hún kvaddi þenn- an heim. Bæði augnablikin voru okkur dýrmæt. Amma var aldrei með bílpróf og labbaði allar sínar ferðir á ljós- hraða. Ég hef aldrei skilið hvern- ig svona lappastutt kona gat labbað á öðrum eins hraða. Amma kom nánast daglega til okkar á Bergþórugötuna þegar ég var að alast upp og oft fékk ég að labba með henni heim í Mið- túnið, hún labbaði á ljóshraða og ég hljóp á eftir henni. Svo fórum við oft á sama hraða úr Miðtúninu í Laugardagslaugina. Þetta labb hennar gerði það að verkum að hún var alltaf í ótrúlega góðu formi og það hvarflaði aldrei að mér að hún myndi deyja fyrr en í fyrsta lagi um 100 ára. Það var því ótrúlega skrítið og óraun- verulegt þegar hún veiktist skyndilega og dó 80 ára gömul, alveg 20 árum á undan minni áætlun. Amma lá aldrei á skoðunum sínum og það var ekki gott fyrir móðgunargjarna að vera í kring- um hana. Hún var ekki mikill femínisti og fannst konur vera komnar út í algjörar öfgar í jafn- réttisbaráttunni. Hún dauðvor- kenndi ungu karlmönnunum í fjölskyldunni og sagði mér oft hryllingssögur af því að þeir væru látnir þvo þvott og sjá um heimilisstörfin. Hún var ekki sátt við mig þeg- ar ég sagði henni að ég myndi aldrei strauja og að Júlli myndi strauja allar skyrturnar sínar sjálfur. „Segð́etta aftur, lætur þú Júlla strauja skyrturnar sínar? Nei Hrönn, þetta er ekki hægt, ég trúi þessu ekki,“ gall í henni og þegar ég sagði henni að Júlli myndi alltaf strauja þessar fáu flíkur mínar sem þarf að strauja varð hún enn hneykslaðri: „Nei Hrönn, þú gerir það ekki, segð́- etta aftur, lætur þú Júlla líka strauja þín föt, þú ert agaleg!“ Amma sagði mér oft hvað hún væri stolt af mér en þarna fannst henni ekki mikið til mín koma. Amma varð ung einstæð fjög- urra barna móðir á tímum sem ekkert kerfi greip ungar konur í hennar stöðu. Þar að auki missti hún foreldra sína ung, sem var henni mikið áfall. Hún baslaði því mikið við að koma börnum sínum á legg. Líf hennar var oft þyrnum stráð og lék ekki alltaf við hana. En amma átti miklu barnaláni að fagna. Eignaðist fjögur börn, 12 barnabörn og 15 barnabarnabörn og svo átti hún tvíburasystur sem hún var mjög náin. Amma var svo ánægð með stóru fjölskylduna sína. Það var huggun í því að öll börn, barnabörn, tengdabörn og tvíburasystirin náðu að kveðja hana daginn sem hún dó. Takk fyrir samfylgdina í gegn- um lífið, amma mín. Ég ætla að trúa því að þú sért komin á góðan stað við hlið foreldra þinna sem þú saknaði mikið. Við munum hugsa til þín og drekka appelsín og borða piparmintusúkkulaði til minningar um þig. Ég veit að þú munt ávallt vaka yfir okkur fjöl- skyldunni þinni. Þangað til síðar. Þín Hrönn Óskarsdóttir. Við trúum varla að þú sért far- in, þetta gerðist allt svo hratt. En við vitum að þú ert komin á betri stað og líður betur. Fyrir einu ári hefðum við aldrei trúað því að þú yrðir ekki með okkur þessi jól og áramót en sem betur fer eigum við nóg af frábærum minningum um þig. Það var alltaf svo gott að koma til þín í Miðtúnið og þú áttir alltaf til súkkulaðikex og appelsín fyrir okkur. Þegar við vorum yngri gistum við svo oft hjá þér og æfðum okkur fyrir svefninn að lesa í stóru ævintýrabókinni. Við fórum óteljandi sinnum saman í Laugardalslaugina, fórum saman á rólóinn, byggðum hús úr sóf- anum, héldum tískusýningar með slæðunum þínum og gerðum spilaborg á teppinu inni í stofu. Alltaf þegar við komum í kvöld- mat til þín fengum við kjötbollur, sem við kölluðum handsprengjur, eða heilgrillaðan kjúkling og franskar. Þú varst alltaf svo hress og í góðu skapi og við gát- um fengið þig til þess að gera allt með okkur, þú varst alltaf svo hraust og við löbbuðum með þér allan bæinn. Þú varst svo sjálf- stæð og dugleg og kenndir okkur að vera það líka. En það besta sem þú kenndir okkur var að hafa gaman af lífinu, taka það ekki of alvarlega og gera alla þá hluti sem okkur langar að gera, sama hversu erfiðir þeir eru. Þú trúðir alltaf á okkur og við vitum að þú gerir það ennþá á öðrum stað, fylgist vel með okkur og gætir okkar alltaf. Við elskum þig og söknum þín svo óendan- lega mikið, elsku Villa amma okkar. Þínar ömmustelpur, Katarína Sif og Rakel Þóra. Elsku amma mín. Þegar ég rifja upp minningar um þig koma fyrst upp í hugann Spánarferð- irnar sem við fórum í. Þér fannst æðislegt að njóta lífsins í sól og hita, hafa það gott á ströndinni eða slappa af við sundlaugar- bakkann. Við eigum það alveg sameiginlegt. Ég man hvað þú varst að springa úr monti þegar tvíbur- arnir mínir fæddust, þú varst svo ánægð með að það væru komnir aðrir tvíburar. Þú varst alltaf viss um að eitthvert barnabarnið þitt myndi eignast tvíbura. Á jóladag hélstu alltaf jólaboð og frá því ég man eftir mér vor- um við alltaf á jóladag hjá þér, það var hluti af jólunum að koma til þín í hangikjöt. Þú varst alltaf með súkkulaðiköku í eftirrétt og ég er enn viss um að súkku- laðikakan þín sé sú besta í heimi. Elsku amma mín, hvíldu í friði, minningarnar um þig mun ég geyma að eilífu. Sofðu, hvíldu sætt og rótt, sumarblóm og vor þig dreymi! Gefi þér nú góða nótt Guð, sem meiri er öllum heimi. (G. Guðmundsson) Nanna. Þá hefur hún Villa yfirgefið þessa jarðvist, vist sem lék hana oft ansi grátt. Ég hugsa með hlý- hug til þeirra ára sem við áttum samleið og þakka þau. Ég bið Guð að blessa börnin hennar svo og alla hennar afkomendur og systkin. Far í friði, gamla vinkona. Gyða Ásbjarnardóttir. Vilborg Guðjónsdóttir Útfararþjónusta & lögfræðiþjónusta Veist þú hvert eignir þínar renna eftir þinn dag? Kynntu þér málið á heimasíðu okkar, www.útför.is. Þar getur þú m.a. sett inn þínar forsendur í reiknivél. Við aðstoðum þig við gerð erfðaskrár, kaupmála og við dánarbússkipti. Katla Þorsteinsdóttir, lögfræðingur Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Með kærleik og virðingu Útfararstofa Kirkjugarðanna Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is MAGNÚS SNÆDAL lést 3. desember. Útför hans fer fram frá Neskirkju föstudaginn 22. desember klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir. Kári Magnússon Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MAGNÚS GUÐBERG JÓNSSON sjómaður, búsettur á DAS í Reykjavík, lést aðfaranótt 17. desember í faðmi okkar á Landspítalanum við Hringbraut. Útför hans verður auglýst síðar. Jón H. Magnússon Elín Hrönn Gústafsdóttir Ingibjörg G. Magnúsdóttir Ólafur Jóhannesson J. Sigríður Magnúsdóttir Sigurður Pétursson Björn A. Magnússon Valgerður Lísa Gestsdóttir Magnús Þór Magnússon Anna Carlsdóttir Baldvin Már Magnússon afabörn og langafabörn Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.