Morgunblaðið - 29.12.2017, Qupperneq 67

Morgunblaðið - 29.12.2017, Qupperneq 67
Innsetningu gegn stríði í hjarta austur-þýsku borgarinnar Dresden var ætlað að endurskapa ein- hverja áleitnustu myndina frá borgarastyrjöldinni í Sýrlandi. Undir handleiðslu listamannsins Manaf Halbouni voru þrír strætisvagnar, sem eru um 12 metra langir og vega um 12 tonn hver, reistir upp á endann fyrir framan hina glæsilegu Frúarkirkju, sem var endurreist úr rústum á tíunda áratug 20. aldar á Neumarkt-torginu. Verkið var afhjúpað í febrúar. Verk Halbounis var byggt á ljósmynd frá 2015 af þremur illa útleiknum strætisvögnum, sem voru látnir standa upp á endann á götu í Aleppo og áttu að mynda götuvígi til bráðabirgða til að vernda almenna borgara á meðan átök geisuðu milli hermanna sýrlensku stjórnarinnar og upp- reisnarsveita. Halbouni er 33 ára. Móðir hans er frá Dresden og hann ólst upp í Damaskus. Sagði hann að hann gæti ekki þurrkað þessa mynd úr huga sér. Strætisvagnarnir kveiktu umræðu hlaðna tilfinningum í Dresden, sem var nánast jöfnuð við jörðu skammt frá lokum síðari heimsstyrjaldar þegar slíkt eldhaf kviknaði í loftárásum banda- manna að tugir þúsunda manna létu lífið. Nú er borgin pólitískt vígi íhaldsafla á meðan Þýskaland glímir við spurninguna hvernig eigi að hýsa þúsundir flóttamanna, sem daglega koma til landsins. Greinargerð listamannsins: Manaf Halbouni Í Sýrlandi var ég alltaf Þjóðverjinn vegna þýskrar mömmu minnar. Þegar ég flutti til Þýskalands varð ég Sýrlendingurinn. Ég lít ekki á mig sem aðlagaðan. Ég er þó frá staðnum. Ég þarf ekki að aðlagast. Í þessu strætisvagnaverki vann ég á mörgum ólíkum stigum. Dresden var jöfnuð við jörðu í sprengjuárásunum ’45 og margir hafa gleymt hvernig borgin leit út eftir stríðið. Strætisvagnarnir minna líka fólk, sem nú lifir á stríðstímum á að það muni einnig fá tækifæri til að endurreisa sínar borgir. Ekkert stríð heldur áfram til eilífðar. Það tók langan tíma í Dresden að endurreisa marga hluta borgarinnar, 72 ár, og þeir eru enn ekki búnir. En hægri jaðarinn reyndi að skilgreina verkið sem arabískt eða íslamskt. Á meðan innsetningin stóð fóru þeir á hverjum mánudegi að vögnunum og fóru að hrópa á þá. Það var fyndið að fylgjast með því. Strætisvagnarnir högguðust ekki. Þeir voru miklu sterkari en fólkið, sem öskraði. Stundum var sem þetta væri þerapía fyrir þetta fólk, því að það er ekki hamingjusamt og á sín vandamál og hér hafði það þetta fyrirbæri, sem það gat öskrað á. Og gat síðan farið aftur heim. © Manaf Halbouni. Á vegum The New York Times Syndicate. Manaf Halbouni fékk innblástur af strætisvögnum, sem stillt var upp til að verja íbúa Aleppo. Verkið er í Dresden, sem var sprengd í loft upp 1945. Hræsni stendur á borðum mótmælenda. Sebastian Kahnert/Agence France-Presse Getty Images „Minnisvarði“ eftir Manaf Halbouni í Dresden í Þýskalandi Eyðileggingin í Dresden eftir loftárásir bandamanna í febrúar 1945 var gríðarleg. Listamaðurinn ber sögu Dresden saman við eyðilegginguna í Aleppo í borgarastyrjöldinni í Sýrlandi. Walter Hahn/Agence France-Presse Getty Images Makoto Azuma fylgdist með blómaverki úr smiðju sinni svífa til himins í yfir 100 feta hæð upp í heiðhvolfið. Í öðrum tilraunum sínum hefur japanski garðlistamaðurinn fryst blóm í ísjökum, kveikt í þeim og látið þau reka út á reginhaf. Verk hans hafa sterka tengingu við hverfulleika blóma og ófullburða tilfinningar, sem við tengj- um oft við náttúruna – hina hverfulu fegurð og depurð sem fólgin er í lífi og dauða, í hinu sterka og hinu fíngerða. Azuma beindi sjónum sínum í sínu nýjasta verki, „Lífsins blóm: kafað ofan í hið óþekkta“, niður á við, að hafsbotninum. Í ágúst létu hann og teymi hans vandaða blómvendi og bonsaítré síga of- an í Suruga-flóa í Japan, skammt frá rótum Fuji-fjalls. Listaverkið er nýjasta innsetningin í seríu, „Í blóma“, þar sem blómum er stillt upp í ónáttúrulegu umhverfi og aðstæðum og hefur verið skrá- sett með ljósmyndum og myndskeiðum. Greinargerð listamannsins: Makoto Azuma Við hugsum sjaldan um hið djúpa haf, en þar hófst lífið. Í þessu verkefni vildi ég tefla saman andstæðum, lífverum, blómum, og hinu dimma, óþekkta dýpi. Það leiddi af sjálfu sér að velja heimaland mitt Japan, eyju sem er framarlega í tækni tengdri hafinu. Við völdum Suruga-flóa vegna þess að þar er dýpstu gjána í Japan að finna. Í þrjú ár skipulögðum við, teymi mitt og ég, hvernig ætti að láta blómaskreytingarnar og myndavélarnar síga niður í þetta háþrýsti- umhverfi. Við fórum í samstarf við Sjávar-, jarðvísinda- og tæknistofn- un Japans og gerðum tilraunir í laugum. Ég valdi ýmis sterk og litrík blóm, sem myndu hreyfast tignarlega í hafstraumunum. Þegar við vorum loks tilbúin að hefja tökur fórum við á fimm staði í flóanum þar sem dýpið var allt frá 300 til 1.000 metrar. Þegar við höfðum látið blómin detta vakti mesta furðu mína hvað þau voru lífseig. Við lentum í miklu roki fyrsta daginn, en blómin brotnuðu hvorki né krömdust. Þess í stað voru þau sveigjanleg og breyttu um lögun og liðu niður á hafsbotninn. Litirnir urðu jafnvel sterkari neðansjávar. © Makoto Azuma. Á vegum The New York Times Syndicate. „Lífsins tré: kafað ofan í hið óþekkta“ eftir Makoto Azuma í Suruga-flóa í Japan Í nýjasta verki sínu setti Azuma flókna og vandlega gerða vendi og bonsai-tré á botn Suruga- flóa í Japan. Sagði listamaðurinn að mesta furðu sína hefði vakið hvað blómin voru lífseig. AMKK Í verkum sínum setur Makoto Azuma blóm og plöntur í fjandsamlegt umhverfi og kallar fram ólíka blöndu tilfinninga með því að tefla saman andstæðum. Þrjú ár fóru í skipulag verksins. AMKK MORGUNBLAÐIÐ TÍMAMÓT 29. 12. 2017 67
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.