Morgunblaðið - 22.01.2018, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 2. J A N Ú A R 2 0 1 8
Stofnað 1913 18. tölublað 106. árgangur
FÁRÁNLEIKI
ÍSLENSKRAR
TILVERU SINDRI HLAUT LJÓÐSTAF
FC SÆKÓ
Á LEIÐ TIL
NOREGS
„KÍNVERSK STÚLKA LES UPPI Á JÖKLI“ 27 BOLTI FYRIR BATANN 12LEIKRIT LÓU HLÍNAR 26
Áform eru uppi um að reisa steinull-
arveksmiðju vestan við Eyrarbakka,
sem gæti skapað allt að 50 ný tækni-
störf. Sveitarfélagið Árborg hefur
veitt vilyrði fyrir lóð undir verk-
smiðjuna.
Óskar Örn Vilbergsson og Þór
Reynir Jóhannsson standa að verk-
efninu. Verksmiðjan er enn á hug-
myndastigi, að sögn Óskars. Mikið
kapp er lagt á að verksmiðjan verði
umhverfisvæn og sjálfbær.
Að sögn Óskars gera spár þeirra
bjartsýnustu ráð fyrir því að fram-
kvæmdir geti hafist í fyrsta lagi í
haust. Eftir það taki að minnsta
kosti eitt og hálft ár að koma verk-
smiðjunni í gang, miðað við að allar
framkvæmdir gangi samkvæmt
áætlun.
Íbúum hefur fjölgað bæði á Eyrar-
bakka og Stokkseyri og þegar eru í
byggingu þar nokkur einbýlishús.
Óskar Örn og Ásta Stefánsdóttir,
framkvæmdastjóri Árborgar, eru
sammála um að útflutningshöfnin í
Þorlákshöfn skipti miklu máli þegar
kemur að atvinnuuppbyggingu. »2
Vilja reisa verksmiðju
Árborg veitir vilyrði fyrir lóð undir steinullarverksmiðju
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Steinull Verksmiðja hefur starfað á
Sauðárkróki frá árinu 1985.
Magnús Heimir Jónasson
mhj@mbl.is
Alþingi kemur saman í dag í fyrsta skipti á
nýju ári. Stjórnmálaflokkarnir sammæltust
um helgina um að hefja þingstörf á almenn-
um leiðtogaumræðum um stöðu stjórnmál-
anna. Fær hver flokkur 10 mínútna ræðu-
tíma og eru
efnistök frjáls.
„Það var sam-
komulag um að
hleypa smá póli-
tískri umræðu að.
Flokkarnir ráða
því sjálfir hvað
verður tekið fyrir.
Ekkert sérstakt er
gefið upp annað en
bara staða stjórn-
málanna í byrjun
árs og verkefni
vorþingsins,“ segir
Steingrímur J. Sig-
fússon, forseti Al-
þingis.
Fjármálastefna
næstu fimm ára verður á dagskrá á morgun
og síðan verða þingmannamál tekin fyrir á
miðvikudag og fimmtudag. „Það er þá
skipulagt að hver flokkur kemur einu for-
gangsmáli að í slíkri umferð. Það kemur
bara í ljós hvaða mál það verða þegar við
förum að raða inn á dagskrána,“ segir
Steingrímur. Fyrsta þingmannamál Vinstri
grænna verður að sögn Bjarkeyjar Olsen
Gunnarsdóttur, þingflokksformanns VG,
frumvarp til lækkunar á kosningaaldri sem
var mælt fyrir á síðasta ári. Samfylkingin
mun gera frumvarp um lengingu fæðingar-
orlofs að sínu forgangsmáli. Þá mun þing-
flokkur Framsóknar koma saman í dag og
ákveða hvaða mál verður sett í forgang í
vikunni að sögn Þórunnar Egilsdóttur,
þingflokksformanns Framsóknar.
Þingið
kemur
saman
Leiðtogaumræður
verða á Alþingi í dag
Þingmanna-
mál
» Lækkun kosn-
ingaaldurs í 16
ár í sveitar-
stjórnarkosn-
ingum.
» Endurgreiðsla
vegna gler-
augnakaupa fyrir
börn.
» Lenging fæð-
ingarorlofs.
M Alþingi hefur störf »4 og 16
Fyrir vöxt og framgang ferðþjón-
ustunnar á Íslandi er há tíðni flug-
ferða lykilatriði. Í því efni er mik-
ilvægt að efla Keflavíkurflugvöll
og Leifsstöð enn frekar sem
skiptistöð í flugi yfir Atlantshafið.
Þetta segir Skarphéðinn Berg
Steinarsson, nýr ferðamálastjóri.
„Möguleikarnir felast í því að
tengja landsbyggðina við Keflavík-
urflugvöll með góðum sam-
göngum. Með styttri dvalartíma
fólks hér á landi segir það sig
sjálft að fólk fer ekki út á land
nema samgöngur séu góðar,“ segir
Skarphéðinn
sem telur að til
að bæta sam-
göngur og fjár-
magna innviði
sem fjölgun
ferðamanna kall-
ar á séu komu-
gjöld besta
lausnin. „Það
eru ýmsar leiðir
færar en sjálfur
tel ég komugjöld besta kostinn í
stöðunni,“ segir Skarphéðinn.
sbs@mbl.is »6
Telur komugjöld
vera besta kostinn
Skarphéðinn Berg
Steinarsson
Alþjóðlegi snjódagurinn var hald-
inn á skíðasvæðum landsins og úti
um allan heim í gær.
„Tilgangur dagsins er að hvetja
fólk til að auka vægi þess að fara út
í snjóinn og leika sér. Í tilefni dags-
ins buðum við upp á kakó eins og öll
hin árin sem við höfum tekið þátt í
alþjóða snjódeginum,“ segir Guð-
mundur Jónsson, forstöðumaður í
Hlíðarfjalli á Akureyri, við Morgun-
blaðið.
Alþjóðaskíðasambandið stendur
að deginum og hvetur aðildarlöndin
til þess að halda daginn hátíðlegan.
Á Dalvík var boðið upp á kakó og
kringlur, þrautabraut og tónlist og
fjör í brekkunum, svo eitthvað sé
nefnt. Á Siglufirði var börnunum
einnig boðið upp á heitt kakó og
súkkulaðistykki, auk þess sem af-
sláttur var af lyftugjaldi á hinum
ýmsu skíðasvæðum.
Guðmundur Karl Jónsson í Hlíðar-
fjalli segir að með hækkandi sól fari
í hönd góðir skíðadagar og nú sé
tími sólgleraugna og sólarvarna að
bresta á. ge@mbl.is
Skíðasvæði landsins héldu upp á alþjóðlega snjódaginn í gær
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Alþjóðlegi snjódagurinn Hrafnhildur Sigurbjörnsdóttir, Tryggvi Sigurbjörns-
son og Hinrik Örn Brynjarsson nutu lífsins í blíðunni í Hlíðarfjalli á Akureyri.
Heitt kakó og snjór og
börnin brostu breitt
Gleði Á skíðum skemmti ég mér, söng Helena Eyjólfs um árið.
Það var líf og fjör í skíðabrekkum Hlíðarfjallsins í gær.