Morgunblaðið - 22.01.2018, Blaðsíða 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2018
Ljósmyndir
Rutar og Silju
Skipholti 31 • 105 Reykjavík • Sími 568 0150
Opið virka daga 10-17 • www.rut.is • Ljósmyndir Rutar og Silju
Fyrir passann, ökuskírteinið,
ferilskrána o.fl.
Skjót og hröð
þjónusta
Engar tímapantanir
Góð passamynd
skiptir máli
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Birgir Ingibergsson og Marcos, meðlimir í vík-
ingafélaginu Víðförull, æfðu bardagalistir að
hætti víkinga á Klambratúni um helgina. Þeir
koma reglulega saman til æfinga og nýta hvert
tækifæri sem gefst til að sveifla sverðum úti und-
ir berum himni. Félagið var stofnað árið 2016 í
Reykjavík. Tilgangur þess er að halda á lofti
þeim menningararfi sem Ísland á frá víkingaöld,
frá landnámi til ársins 1000.
Víkingafélagið Víðförull grípur reglulega til vopna í æfingaskyni
Morgunblaðið/Eggert
Æfðu bardagalistir
á Klambratúni
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Í skoðun er að reisa umhverfisvæna
steinullarverksmiðju vestan við Eyr-
arbakka þar sem allt að 50 ný tækni-
störf gætu skapast.
Bæjarstjórn Árborgar hefur sam-
þykkt að veita vilyrði fyrir lóð vestan
við Eyrarbakka til sex mánaða. Á
lóðinni er fyrirhugað að byggja sjálf-
bæra steinullarverksmiðju.
Óskar Örn Vilbergsson og Þór
Reynir Jóhannsson eru forsvars-
menn að byggingu verksmiðjunnar.
Óskar Örn segir að hún sé enn á hug-
myndastigi en unnið sé hratt og vel í
málinu.
Óskar, sem er ættaður frá Eyr-
arbakka og búsettur þar, segir að
það megi flokka undir ævintýra-
mennsku að fara út í slíkt verkefni að
reisa steinullarverksmiðju. Það hafi
hins vegar verið kannað áður með
byggingu slíkrar verksmiðju en nið-
urstaðan þá hafi verið að byggja
hana á Sauðárkróki.
Útflutningshöfnin skiptir máli
Óskar segir að svarti sandurinn
við Eyrarbakka og útflutningshöfnin
í Þorlákshöfn hafi skipt máli þegar
farið var að skoða staðsetningu á
verksmiðjunni.
„Ef af verður gengur viðskipta-
módelið okkar út á það að framleiða
steinull til útflutnings. Það skiptir
því miklu máli að hafa vikulegar sigl-
ingar frá Þorlákshöfn til meginlands
Evrópu með flutningaskipinu Myki-
nes,“ segir Óskar.
Hann segir að fleiri komi að fjár-
mögnun verkefnisins, en ekki sé
tímabært að upplýsa nú hverjir það
séu.
Óskar segir að við hönnun á verk-
smiðjunni verði gengið út frá því að
hún verði umhverfisvæn og öll tækni
sem notuð verði hafi það að mark-
miði að gera framleiðsluna umhverf-
isvæna. Verksmiðjan yrði þá sú eina
í heiminum sem myndi nota þessa
tækni.
„Maður vill ekki vera að pissa í
skóinn sinn. Ég bý hérna og ætla
ekki að eyðileggja nærumhverfi
mitt,“ segir Óskar.
Kæmist í gagnið árið 2020
Miðað við spár þeirra bjartsýn-
ustu má búast við að framkvæmdir
við bygginguna gætu hafist næsta
haust og verksmiðjan kæmist í gagn-
ið einu og hálfu ári síðar, að sögn
Óskars, sem ítrekar að verksmiðjan
sé enn á hugmyndastigi. Enn sé eftir
að skoða og kanna margt og því
langt í land að hægt verði að taka
ákvarðanir um framhaldið.
Óskar Örn er húsasmíðameistari
og viðskiptafræðingur MAcc og Þór
Reynir er viðskiptafræðingur MAcc.
Óskar segir að það sé um að gera að
blanda saman og nýta þá þekkingu
sem þeir félagarnir hafa.
Fólksfjölgun á Eyrarbakka
Ásta Stefánsdóttir, framkvæmda-
stjóri Sveitarfélagsins Árborgar,
segir að aðkoma Árborgar verði ein-
göngu í gegnum lóðaúthlutun.
„Það er mikil fólksfjölgun á Eyr-
arbakka og Stokkseyri og töluvert
verið að byggja af einbýlishúsum á
svæðinu,“ segir Ásta.
Hún tekur undir með Óskari að
það skipti miklu að hafa útflutnings-
höfn í Þorkákshöfn. Hún segir einnig
að ef af verði muni um það að fá allt
að 50 ný störf í sveitarfélagið.
Stórhugur í Eyrbekkingum
Umhverfisvæn steinullarverksmiðja Yrði eina verksmiðja sinnar tegundar í heiminum Allt að
50 tæknistörf Útflutningshöfnin í Þorlákshöfn skiptir máli Framleiðsla gæti hafist árið 2020
Útflutningur Mykinesið siglir frá
Þorlákshöfn til meginlands Evrópu.
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Vonir standa til að svokallaður blind-
flugsbúnaður (ILS) verði til taks á
Akureyrarflugvelli í byrjun október,
en búnaðurinn er liður í því að skipa
flugvellinum stærri sess í millilanda-
flugi á Íslandi. Þetta segir Jón Karl
Ólafsson, framkvæmdastjóri flug-
vallasviðs hjá Isavia, en áætlaður
kostnaður við verkið er talinn vera í
kringum 100 milljónir króna.
Jón Karl segir að enn sé eftir að
taka ákvörðun um hvort gamall bún-
aður á Keflavíkurflugvelli verði nýtt-
ur í verkefnið eða nýr búnaður
keyptur. „Við erum að vinna verk-
efnið í samræmi við þá upphæð sem
sett hefur verið í fjárlög. Ef það fjár-
magn stenst og engu bætt við, getum
við orðað það þannig að þetta rétt
svo dugi fyrir eldri búnaðinum,“ seg-
ir Jón Karl og bætir við að til lengri
tíma litið væri skynsamlegra að
kaupa nýjan búnað.
Dugar í 10 ár í stað 15-20 ára
„Það er hætt að framleiða þennan
búnað sem til er á Keflavíkurflug-
velli þannig að það gæti orðið vesen
að fá varahluti, en þetta virkar nú al-
veg. Það er hægt að láta þetta duga í
10 ár á meðan hinn myndi duga í 15-
20 ár,“ segir Jón Karl.
Íslenskir flugmenn, sem þjálfaðir
eru til að lenda fyrir norðan, geta
lent með svokölluðum radarbúnaði
sem þar er, en það getur reynst
óvönum flugmönnum vandasamt.
ILS-búnaður er því afar mikilvægur
fyrir framgang millilandaflugs á Ak-
ureyri, að sögn Jóns Karls.
aronthordur@mbl.is
Akureyrarflugvöllur búinn
blindflugsbúnaði í október
Áætlaður kostn-
aður í kringum 100
milljónir króna
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyrarflugvöllur Millilandaflug
er hafið á flugvöllinn á Akureyri.
Banaslys varð á Arnarnesvegi í
fyrrinótt þegar bíll hafnaði á stein-
vegg á hringtorgi á brúnni yfir
Reykjanesbraut. Ökumaður, rúm-
lega tvítugur karlmaður, var einn í
bílnum og lést. Það sem af er ári
hafa þrír látist í banaslysum í um-
ferðinni, en það eru jafnmargir og
samanlagður fjöldi banaslysa í jan-
úar síðustu fimm ár. Í öllum til-
vikum á þessu ári hafa ökumenn-
irnir verið ungir karlmenn.
Þórhildur Elín Elínardóttir, sam-
skiptastjóri Samgöngustofu, segir
erfitt að draga ályktanir þar sem
tildrög slysanna séu enn óljós. Ung-
ir karlmenn hafi þó lengi verið
áhættuhópur.
„Ungir karlmenn eru sá hópur
sem hefur þurft hvað mesta um-
hyggju. Ungt fólk er þó almennt að
bæta sína aksturshegðun, enda
sjáum við fækkun á slysum þar sem
ungt fólk kemur við sögu,“ segir
Þórhildur Elín. aronthordur@mbl.is
Óvenjumörg bana-
slys í upphafi árs
Tveir ferðamenn voru fluttir á
slysadeild á Akureyri í gær eftir að
bíll þeirra valt út í Norðurá í
Skagafirði. Að sögn lögreglunnar á
Sauðárkróki eru þeir ekki alvar-
lega slasaðir. Ferðamennirnir
fengu að bíða í bíl annarra vegfar-
enda eftir lögreglu, en voru þó
kaldir og hraktir eftir óhappið.
Kaldir og hraktir eftir
bílveltu við Norðurá