Morgunblaðið - 22.01.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2018
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
Þróun umferðar í Reykjavík erengin tilviljun heldur tilbún-
ingur vinstri meirihlutans. Sú bið
sem borgarbúar þurfa að þola tvisv-
ar á dag er í boði borgarstjórnar-
meirihlutans.
Jón Gunnarsson,alþingismaður
og fyrrverandi sam-
gönguráðherra, seg-
ir frá því í grein í
Morgunblaðinu á
laugardag að um-
ferð hafi aukist um
25% á áratugnum
fram til 2016. Á
þeim tíma hafi
borgaryfirvöld ekki
byggt upp umferð-
armannvirki heldur
þrengt götur og
lagst gegn mis-
lægum gatnamótum.
Borgaryfirvöld hafa afsalað sérfé frá ríkinu sem ætlað var
stórframkvæmdum í umferðar-
málum en þess í stað þegið milljarð
á ári í almenningssamgöngur sem
engu hefur skilað. Lausnin er í huga
vinstri meirihlutans að ganga enn
lengra í sömu átt.
Jón bendir á að umferðarþyngstugatnamót landsins séu neðst í
Ártúnsbrekkunni, en þau séu jafn-
framt þau öruggustu, enda mislæg
og án umferðarljósa. Vinstri meiri-
hlutinn í borginni er hins vegar
áhugasamur um að hafa borgarbúa
á rauðu ljósi og heldur þess vegna í
stórhættuleg ljósastýrð gatnamót
og vinnur gegn aðgerðum á borð við
Sundabraut.
Núverandi borgaryfirvöld von-ast til að geta selt borgar-
búum þá hugmynd að sitja áfram
fastir á rauðu ljósi með því að bjóða
þeim upp á nægilega fjarstæðu-
kennda draumsýn um borgarlínu í
stað raunhæfra aðgerða. Getur ver-
ið að þau finni nægilega marga
kaupendur?
Jón Gunnarsson
Á rauðu ljósi
STAKSTEINAR
Dagur B.
Eggertsson
Veður víða um heim 21.1., kl. 18.00
Reykjavík 2 skýjað
Bolungarvík 0 skýjað
Akureyri -9 skýjað
Nuuk 3 skýjað
Þórshöfn 3 skúrir
Ósló -2 skýjað
Kaupmannahöfn 0 þoka
Stokkhólmur -9 þoka
Helsinki -9 snjókoma
Lúxemborg 1 skýjað
Brussel 4 rigning
Dublin 12 súld
Glasgow 1 súld
London 3 rigning
París 6 rigning
Amsterdam 4 léttskýjað
Hamborg 0 þoka
Berlín 1 alskýjað
Vín 1 skýjað
Moskva -3 snjóél
Algarve 16 heiðskírt
Madríd 17 heiðskírt
Barcelona 20 heiðskírt
Mallorca 19 heiðskírt
Róm 14 heiðskírt
Aþena 14 skýjað
Winnipeg -9 alskýjað
Montreal -2 alskýjað
New York 3 heiðskírt
Chicago 4 þoka
Orlando 18 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
22. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:37 16:43
ÍSAFJÖRÐUR 11:04 16:25
SIGLUFJÖRÐUR 10:48 16:08
DJÚPIVOGUR 10:12 16:07
„Við höfum verið að senda honum
innheimtubréf sem hann hefur ekki
svarað,“ segir Guðmundur B. Ólafs-
son, lögmaður VR, sem fer með mál
fyrrverandi starfsmanna verslunar-
innar Kosts gegn Jóni Geraldi
Sullenberger, eiganda Kosts. Starfs-
mennirnir, sem telja sig eiga inni
laun hjá fyrirtækinu, hafa farið fram
á að fá greiddan þriggja mánaða
uppsagnarfrest, en Jón Gerald hefur
lýst því yfir að engar frekari launa-
greiðslur muni berast frá fyrirtæk-
inu í kjölfar lokunar á versluninni.
Guðmundur segir að málið sé nú í
vinnslu og hann geti því ekki fullyrt
um hversu háa upphæð sé að ræða.
„Ég geri mér ekki alveg grein fyrir
heildartölunni, en starfsmennirnir
eiga inni laun í þriggja mánaða upp-
sagnarfresti. Annaðhvort verður
þetta leyst þannig að hann gefur
þetta upp til skipta eða þá að við
munum fara fram á fjárnám og í
framhaldinu gjaldþrotaskipti ef ekk-
ert reynist vera til,“ segir Guðmund-
ur. aronthordur@mbl.is
Vilja fá greiddan
uppsagnarfrest
Morgunblaðið/Golli
Jón Gerald Versluninni Kosti var
lokað í desember síðastliðnum.
Starfsmenn Kosts telja sig eiga inni laun
Gunnar Smári Egilsson, formaður
Sósíalistaflokks Íslands, segir að
ákvörðun um hvort Sósíalistaflokk-
urinn bjóði sig fram í komandi
sveitarstjórnarkosningum muni
liggja fyrir á næstu vikum. „Ég býst
við að ákvörðun muni liggja fyrir
innan þriggja til fjögurra vikna.
Við teljum okkur alveg hafa góðan
tíma til að ræða um sveitarstjórnar-
mál og erindi sósíalismans í sveitar-
stjórnir og hvernig væri best að
flokkurinn færi fram,“ segir Gunn-
ar. Hann segir flokksmenn hafa
áhuga á að beita sér í komandi
kosningum hjá verkalýðsfélög-
unum. Sósíalistaþing Sósíal-
istaflokksins fór fram á laugar-
daginn í Rúgbrauðsgerðinni, en
sósíalistaþingið er aðalfundur
flokksins. Þar var rætt um mögu-
legt framboð
flokksins. „Þetta
var rætt í svona
tvo tíma. Það
þarf að ræða
hvert er erindið,
með hvaða hætti
við förum fram,
hverjar eru
áherslurnar og í
hversu mörgum
sveitarfélögum á
að bjóða fram. Þessi umræða þarf
að ganga í nokkra hringi inni í
flokknum áður en ákvörðunin verð-
ur til.“
Á sósíalistaþinginu var kosið í
þrjár stjórnir flokksins; í málefna-,
félaga- og framkvæmdastjórn. Sitja
alls 39 manns í þeim stjórnum.
mhj@mbl.is
Gunnar Smári
Egilsson
Sósíalistaflokkurinn
íhugar framboð í vor
Ákvörðun tekin á næstu vikum