Morgunblaðið - 22.01.2018, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 22.01.2018, Qupperneq 13
Morgunblaðið/Sigurður Bogi Þjálfarinn Ungt fólk í atvinnumennsku í knattspyrnu hefur kannski ekki náð að höndla álagið sem því fylgir svo andlegir sjúkdómar verða útkoman sem er mjög dapurlegt, segir Bergþór Grétar Böðvarsson hér í viðtalinu. kynnast úrræðinu „psykiatriallian- sen“ en það er sambærilegt úrræði og FC Sækó. Þar er Claus Lundek- vam, fyrrverandi leikmaður enska knattspyrnuliðsins Southampthon, þjálfari. „Lundekvam er maður sem á áhugaverða sögu að baki. Hann var fótboltamaður í fremstu röð með So- uthampthon, en hann lenti í meiðslum sem leiddi af sér óreglu sem aftur leiddi af sér andleg veik- indi. En í dag er hann lifandi dæmi um þann mikla árangur sem fólk get- ur náð í lífinu með hjálp og góðum tækifærum,“ tiltekur Bergþór. „Við skulum samt hafa í huga að fótbolt- inn, sem er auðvitað alveg frábær íþrótt, á sér þó ýmsar hliðar. Á síð- ustu árum hafa stundum komið frá- sagnir ungs fólk sem hefur farið í at- vinnumennsku í knattspyrnu en ekki kannski náð að höndla álagið sem því fylgir, svo andlegir sjúkdómar verða útkoman sem er mjög dapurlegt. Í FC Sækó tökum við þetta hins vegar á forsendum þátttakendanna sjálfra og höfum gaman af öllu.“ Heimildir um Noregsferð Jafnhliða því sem félagar í FC Sækó eru nú að afla fjár til Noregs- ferðar vinna þeir að heimildarmynd um verkefnið Þar verður fjórum til sex félagsmönnum fylgt eftir meðan á ferðinni og undirbúningi hennar stendur. „Með því vonumst við til að gefa góða innsýn í hvernig það er fyrir notendur að eiga við daglegt líf, ásamt því að takast á við ferðina og hvernig svona átak hefur áhrif á þeirra líðan. Svona ferðalag er nefni- lega talsvert meira en segja það fyrir suma af okkar félagsmönnum og þeirri sögu viljum við líka koma á framfæri,“ segir Bergþór að síðustu. Reynsla og rannsóknir staðfesta að hreyfing er góð fyrir heilsuna. Þetta getur hver maður raunar reynt á eigin skinni. Liggi fólk í leti þó að ekki sé nema í fáeina daga stirðnar skrokkurinn og þrekið verður minna. Afleiðing- arnar verða svo hugsanlega meiri og alvarlegri ef letilífið er lang- varandi. Svo vitum við líka að við ákveðnar kringumstæður, svo sem líkamlega hreyfingu og áreynslu, framleiðir líkaminn en- dorfín en það eru taugaboðefni sem heiladingullinn framleiðir og hefur meðal annars áhrif á önd- un, skapar vellíðunartilfinningu og slær á sársauka. – Þá þekkir fólk líka að göngutúrar eða að hlaupa góðan hring getur verið allra meina bót – því þegar komið er til baka er hugsunin skýr og vandamál dagsins yfirleitt auð- leysanleg. Hreyfing er allra meina bót LETILÍFIÐ ER AFLEITT FYRIR HEILSUFARIÐ DAGLEGT LÍF 13 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2018 Mottur setja punktinn yfir i-ið á heimilinu. Persía er sérdeild innan Parka með stök teppi og mottur. Við bjóðum upp á sérvalin handhnýtt austurlensk teppi og fjölbreytt úrval af vönduðum vélofnum gervi- og ullarteppum. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig. Parki ehf. • Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • www.parki.is • parki@parki.is • sími: 595 0570 VIÐARPARKET • UTANHÚSSKLÆÐNINGAR • VÍNYLPARKET • FLÍSAR • HURÐIR • TEPPI • KERFISLOFT • HARÐPARKET • INNRÉTTINGAR Hlutverk Hönnunarsafns Íslands er að safna og varðveita þann þátt íslenskrar menningar sem lýtur að hönnun, einkum frá aldamótunum 1900 til samtímans. Safnið á og geymir um 900 íslenska og erlenda muni, sem margir hafa mikla menningarsögulega þýðingu. Safnkost- urinn fer sístækkandi, enda æ fleiri hönnuðir sem hasla sér völl og koma fram með vandaða gripi sem standast alþjóðlegan samanburð og eru hvort tveggja nytjamunir og/eða skrautmunir. Í safnkostinum er sófasetthannað af Gunnari Magn-ússyni árið 1962 skráðmeð eftirfarandi hætti: Sófasett Gunnar Magnússon (1933) Inka-sófasett, 1962 Eik, ull Nývirki Gjöf: Helga og Ólafur Ögmundarbörn. Úr dánarbúi hjónanna Rögnu Ólafsdóttur og Ögmundar Helgasonar, 2011. • • • • Inka-sófasett með íslensku ullaráklæði, ekki upprunalegu, og grind úr eik. Inka-hús- gagnalínan var fyrst framleidd hjá danska fyrirtækinu Skalma en Gunnar hafði þá lokið námi í Danmörku og var farinn að vinna fyrir dönsk fyrirtæki. Línan var fyrst sýnd á Fredericia- húsgagnasýningunni vorið 1962. Nývirki framleiddi húsgögnin fyrir íslenskan markað, aðallega úr furu með íslensku ullar- áklæði. Húsgögnin voru fram- leidd með sjáanlegum kopar- skrúfum í grindinni (síðar svörtum innfelldum skrúfum) og voru á tímabili nefnd Prima. Inka-stóllinn hlaut viðurkenn- ingu Iceland Review árið 1968 þar sem hann var sýndur á sýn- ingu Félags íslenskra húsgagna- arkitekta. Inka-settið var einnig sýnt á Húsgagnavikunni í Laug- ardalshöll árið 1969. Íslensk hönnun Hönnunarsafn Íslands Ljósmynd/Andrew Murray 1962 Sófasett hannað af Gunnari Magnússyni gerð og hefur gert heimildamyndir um lífið í heimabyggð sinni. Myndin er sýnd í annað sinn í Mið- garði, sal Gerðaskóla, næstkomandi miðvikudag, 24 janúar, klukkan 19:30. Aðgangseyrir er 2.000 krónur. Myndin verður jafnvel sýnt víðar, sem tilkynnist þá á svgardur.is sem er síða Sveitarfélagsins Garðs. Það, Uppbyggingarsjóður Suðurnesja og Isavia hafa styrkt gerð myndarinnar og bakhjarlarnir eru margir fleiri. Morgunblaðið/Sigurður Bogi Söguhetjan Guðni í Garðskagavita.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.