Morgunblaðið - 22.01.2018, Qupperneq 15
FRÉTTIR 15Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2018
– fyrir dýrin þín
Eigum mikið
úrval af
hundabeislum
Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Tyrkneskir hermenn réðust inn í
Sýrland í gær til að binda enda á yf-
irráð kúrdískra skæruliða í norður-
hluta landsins. Frá þessu er greint á
fréttavef AFP.
Ætlunin er að reka burt samtökin
Verndarsveitir þjóðarinnar (Yek-
îneyên Parastina Gel eða YPG) frá
héraðinu Afrin í Norður-Sýrlandi, en
ríkisstjórn Tyrkja skilgreinir YPG
sem hryðjuverkasamtök. Tyrkir telja
YPG einnig vera sýrlenskan undir-
flokk kúrdíska verkamannaflokksins
(PKK) sem hefur staðið í uppreisn
gegn tyrkneskum yfirráðum í suð-
austurhluta Tyrklands í rúma þrjá
áratugi. Recep Tayyip Erdogan
Tyrklandsforseti segist vona að hern-
aðaraðgerðinni verði lokið á stuttum
tíma og leggur áherslu á að Tyrkland
muni uppræta „hryðjuverkahreiður“
YPG í Sýrlandi.
Bandalög í uppnámi
Þessi árás Tyrkja er annað inngrip
Tyrkjahers í sýrlensku borgarastyrj-
öldina sem hefur geisað frá árinu
2011. Hið fyrra var áhlaup sem stóð
frá ágúst 2016 til mars 2017 og beind-
ist bæði gegn YPG og gegn hryðju-
verkasamtökunum sem kenna sig við
íslamskt ríki. Árásin er líkleg til að
hleypa alþjóðabandalögum Tyrk-
lands í uppnám þar sem Bandaríkin
og önnur aðildarríki Atlantshafs-
bandalagsins, NATO, hafa stutt YPG
í baráttu þeirra gegn íslamska ríkinu.
Florence Parly, varnarmálaráð-
herra Frakklands, ávítaði Tyrki fyrir
innrásina og sagði hana munu spilla
fyrir samstarfi vesturveldanna við
YPG gegn hryðjuverkasamtökum.
Bashar al-Assad, forseti Sýrlands,
kallaði innrás Tyrkja „stuðning við
hryðjuverk.“ Rússar, sem einnig hafa
herlið á svæðinu, ráðlögðu Tyrkjum
að koma fram af hófsemi í aðgerð-
unum en virðast þó hafa gefið Tyrkj-
um „grænt ljós“ fyrir innrásinni. Yf-
irráðasvæði YPG í Afrin er aðskilið
öðru landsvæði sem YPG ræður yfir í
norðausturhluta Sýrlands. Með árás-
inni hyggjast Tyrkir reka YPG aust-
ur fyrir Efratfljót og skapa 30 km ör-
yggissvæði á landamærunum inn í
Sýrland.
Eldflaugum skotið á Tyrki
Talsmaður YPG greindi frá því að
eftir árás Tyrkja á Afrin hefðu 10
manns látist, þar af sjö almennir
borgarar. Tyrkjaher neitar því að um
almenna borgara hafi verið að ræða
og heldur því fram að allir hinir látnu
hafi verið meðlimir YPG eða PKK.
Hernaðarlega er árásin ekki áhættu-
laus fyrir Tyrki og nú þegar hefur
YPG skotið eldflaugum til gagn-
árásar bæinn Kilis við landamæri
Tyrklands og Sýrlands. Ein kona
særðist en enginn lést.
Tyrkir ráðast á „hryðju-
verkahreiður“ í Sýrlandi
AFP
Árás Tyrkneskir hermenn bíða í viðbragðsstöðu fyrir áætlaða innrás yfir sýrlensku landamærin í gærmorgun.
Bandamenn Tyrkja í NATO mótmæla árásinni „Stuðningur við hryðjuverk“
Vopnaðir víga-
menn talibana
gerðu árás á
lúxushótel í Kab-
úl á laugardag-
inn. Frá þessu er
greint á fréttavef
AFP. Árásin
leiddi til 12 klst.
bardaga milli
vígamannanna
og afganskra
hermanna. Í bardaganum létust all-
ir vígamennirnir en þar áður höfðu
þeir myrt a.m.k. 14 erlenda gesti á
hótelinu og fjóra Afgana. Hugsan-
legt er að fleiri hafi látið lífið þar
sem ekki er búið að rannsaka öll
herbergi hótelsins. Najib Danish,
talsmaður afganska innanríkis-
ráðuneytisins, sagði stjórnvöld
munu rannsaka hvernig vígamenn-
irnir komust fram hjá öryggisgæsl-
unni. Starfsmaður hótelsins sagði
öryggisverðina hafa verið óreynda
og hafa flúið þegar árásin hófst.
Minnst 18 manns
myrtir í hryðjuverka-
árás á hótel í Kabúl
Intercontinental
Hotel í Kabúl.
AFGANISTAN
Donald Trump
Bandaríkja-
forseti hefur
hvatt til þess að
reglum um sam-
þykkt ríkisfjár-
laga í neðri deild
bandaríska
þingsins verði
breytt svo að ein-
faldur meirihluti
nægi til að koma
þeim í gegn. Frá þessu er greint á
fréttasíðu AFP. Stofnunum banda-
ríska alríkisins var lokað um
helgina þar sem ekki tókst að fá
nægan meirihluta fyrir framleng-
ingu fjárlaganna. Þetta er í fyrsta
sinn í sögu Bandaríkjanna sem slíkt
hendir þótt allir armar ríkisvalds-
ins séu í höndum sama flokksins.
Tillaga Trumps er líkleg til að falla
í grýttan jarðveg þar sem hún
kæmi til með að gagnast demókröt-
um ef þeir ná þingmeirihluta á ný.
Trump hvetur til
reglubreytinga
Donald
Trump
BANDARÍKIN
Þorgrímur Kári Snævarr
thorgrimur@mbl.is
Mikilvægum áfanga var náð um
helgina í að leysa úr stjórnarkrepp-
unni sem nú ríkir í Þýskalandi: Með-
limir þýska Jafnaðarmannaflokksins
greiddu atkvæði á flokksþingi í Bonn
um að hefja formlegar stjórnar-
myndunarviðræður við Kristilega
demókrataflokkinn. Frá þessu er
greint á vefsíðu AFP. 372 atkvæði af
642 voru greidd með stjórnarmynd-
unarviðræðunum. Jafnaðarmanna-
flokkurinn hlaut sína verstu kosn-
ingu í marga áratugi í september
2017 og flokksformaðurinn Martin
Schulz hafði áður heitið því að flokk-
urinn myndi ekki halda áfram
stjórnarsamstarfi við Kristilega
demókrataflokkinn. Margir í grasrót
og ungliðahreyfingu flokksins eru
reiðir Schulz fyrir þessi sinnaskipti
og höfðu ýtt á eftir því að flokkurinn
sæti heldur í stjórnarandstöðu til að
safna kröftum á nýjan leik.
Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar
er mikill léttir fyrir Angelu Merkel,
Þýskalandskanslara og formann
Kristilegra demókrata. Framtíð
hennar sem kanslari Þýskalands
hefur þótt óljós frá því að fyrri
stjórnarmyndunarviðræður hennar
við smærri stjórnmálaflokka mistók-
ust í nóvember. Ekki er þó tryggt
enn að „hið mikla stjórnarsamstarf“
flokkanna (Große Koalition eða
GroKo á þýsku) verði endurnýjað
þar sem Schulz hefur lofað því að um
440.000 almennir meðlimir Jafnaðar-
mannaflokksins fái að kjósa um end-
anlegan stjórnarsáttmála þegar
hann liggur fyrir. Framtíð Merkel er
því enn í höndum jafnaðarmanna.
AFP
Kosning Fulltrúar þýskra jafn-
aðarmanna greiða atkvæði.
Þjóðverjar halda
til viðræðna á ný
Jafnaðarmenn
samþykktu að
hefja viðræður
Varnarmálaráðherra Bandaríkj-
anna, James Mattis, segir Tyrki
hafa látið Bandaríkjamenn vita áð-
ur en þeir hófu innrás sína í Afrin.
Frá þessu er greint á fréttasíðu
Reuters. „Tyrkir voru hreinskilnir,“
sagði Mattis. „Þeir vöruðu okkur
við áður en þeir sendu flugvélarnar
af stað og ráðfærðu sig við okkur.
Við erum núna að skipuleggja
hvernig við höldum áfram. Við
leysum úr þessu.“
Tyrkir hafa lengi haft horn í síðu
Bandaríkjanna vegna stuðnings
þeirra við YPG gegn hryðjuverka-
samtökum í Sýrlandi. Mattis viður-
kenndi að áhyggjur Tyrkja í örygg-
ismálum væru ekki úr lausu lofti
gripnar og benti á að Tyrkland
væri eina aðildarríki Atlantshafs-
bandalagsins sem þyrfti að kljást
við uppreisnarmenn innan landa-
mæra sinna. Hann lagði þó áherslu
á að Bandaríkjamenn hefðu ætíð
gætt þess að vopnum þeirra væri
ekki beitt gegn Tyrkjum.
„Tyrkir voru hreinskilnir“
TYRKIR LÉTU BANDARÍKJAMENN VITA