Morgunblaðið - 22.01.2018, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 22.01.2018, Qupperneq 21
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2018 Raðauglýsingar Félagsstarf eldri borgara Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9, Kraftur í KR kl. 10.30 (leikfimi allir velkomnir og frítt inn). Útskurður og myndlist kl. 13 og félagsvist er spiluð í matsalnum kl. 13. Árskógar Opin smíðastofa kl. 9-16. Ganga um nágrennið kl. 11. Handavinna með leiðbeinanda kl. 12.30-16. Félagsvist með vinning- um kl. 13. Myndlist með Elsu kl. 16-20. Opið fyrir innipútt. Hádegis- matur kl. 11.40-12.45. Kaffisala kl. 15-15.45. Heitt á könnunni. Allir vel- komnir. S. 535-2700. Boðinn Leikfimi kl. 10.30, félagsvist kl. 13, myndlist kl. 13, spjallhópur Boðans kl. 15. Bústaðakirkja Bóndadagsfjör miðvikudaginn 24. janúar. Kótilettur upp á gamla mátann, söngur, harmonikkuleikur, gleði og gaman. Maturinn byrjar kl. 12.30. Nánari upplýsingar um skráningu veitir Hólmfríður djákni 5538500. Hlökkum til að sjá ykkur Dalbraut 18-20 Handavinnusamvera kl. 9, brids kl. 13. Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Upplestur kl. 10.20. Opin handverks- stofa kl. 13. Botsía kl. 13.30. Kaffiveitingar kl. 14.30. Allir velkomnir! Félagsmiðstöðin Vitatorgi Leirmótun kl. 8.30, bókabíllinn á svæð- inu kl. 10, hjúkrunnarfræðingur kl. 10, Handbandið - vinnustofa með leiðbeinendum opin öllum kl. 10, frjáls spilamennska kl. 13, bókband kl. 13, söngstund í matsal kl. 13.30, kaffiveitingar kl. 14.30. Verið vel- komin á Vitatorg, síminn er 411-9450 Furugerði 1 Morgunverður frá kl. 8.10-9.10 í borðsal, fjöliðjan í kjall- ara opin frá kl. 10, heitt kaffi á könnunni hjá Möggu Dögg. Stólaleik- fimi með Olgu kl. 11 í innri borðsal. Hádegisverður kl. 11.30-12.30 í borðsal. Ganga kl. 13 ef veður leyfir. Helgistund í borðsal kl. 14, sr. María Ágústsdóttir flytur hugvekju. Síðdegiskaffi kl. 14.30-15.30 í borðsal. Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl. 9.30-16. Hægt er að panta hádegismat með dags fyrirvara í síma 617- 1503. Meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.40. Vatnsleik- fimi Sjálandi kl. 7.40/8.20/15.15. Kvennaleikfimi Sjálandi kl. 9.05. Stóla- leikfimi Sjálandi kl. 9.50. Kvennaleikfimi Ásgarði kl. 10.40. Brids í Jónshúsi kl. 14. Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl. 10.50 jóga, kl. 13.15 kanasta. Gullsmári Postulínshópur kl. 9. Jóga kl. 9.30. Ganga kl. 10. Handa- vinna kl. 13. Brids kl. 13. Jóga kl. 18. Félagsvist kl. 20. Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9. Opin handavinna kl. 9–14. Bænastund kl. 9.30–10. Jóga kl. 10.10–11.10. Hádegismatur kl. 11.30. Prjónaklúbbur kl. 14. Kaffi kl. 14.30. Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, kl. 9 léttar erobik- æfingar með Milan, morgunleikfimi kl. 9.45, jóga kl. 10 hjá Carynu, hádegismatur kl. 11.30. Tálgun kl. 13, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30, jóga kl. 16 hjá Ragnheiði. Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl. 8.50, línudansnámskeið kl. 10, myndlistarnámskeið hjá Margréti Zop- honíasdóttur kl. 12.30, handavinnuhornið kl. 13, félagsvist kl. 13.15, síðdegiskaffi kl. 14.30. Allir velkomnir óháð aldri, nánari upplýsingar í síma 411-2790. Korpúlfar Ganga kl. 10 frá Borgum, Grafarvogskirkju og í Egilshöll. Línudans með Eddu 11 í Borgum, félagsvist kl. 13 í Borgum og skart- gripagerð með Sesselju kl. 13 í Borgum. Kóræfing Korpusystkina undir stjórn Kristínar kl. 16 í Borgum. Norðurbrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, morgunleikfimi kl. 9.45, upplest- ur kl. 11, trésmiðja kl. 13-16, ganga með starfsmanni kl. 14, bíó á 2. hæð kl. 15.30. Uppl. í s. 4112760. Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-16 og upp úr kl. 10 er boðið upp á kaffi þar sem fólk kemur saman í spjall og kíkir í blöðin. Hádegisverður er kl. 11.30-12.30 og spiluð er félagsvist kl. 13. Kaffi og meðlæti er selt á vægu verði kl. 14.30-15.30. Allir eru hjartanlega vel- komnir í Selið. Nánari upplýsingar hjá Maríu Helenu í síma 568-2586. Seltjarnarnes Leir og listasmiðja Skólabraut kl. 9. Billjard Selinu kl. 10. Krossgátur og kaffi í króknum kl. 10.30. Jóga salnum Skólabraut kl. 11. Handavinna Skólabraut kl. 13. Vatnsleikfimi í sundlauginni kl. 18.30. Stangarhylur 4, Zumba Gold kl. 10.30 undir stjórn Tanyu. Leikhús- ferð, skoðun og matur miðvikudaginn 31. janúar kl. 18. Farið á Himna- ríki og helvíti Jóns Kalmans í leikgerð Bjarna Jónssonar. Umræða um verkið verður í Stangarhylnum fimmtudaginn 25. janúar kl. 14, þar mun höfundur leikgerðar mæta. Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús – Gestahús – Breytingar  Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum.  Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum.  Smíðum gestahús – margar útfærslur.  Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum.  Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla – endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892-3742 og 483-3693, www.tresmidjan.is Til sölu KRISTALS LJÓSAKRÓNUR Útsala er að byrja Glæsilegar kristalsljósakrónur fyrir- falleg heimili. Handskornar kristals- ljósakrónur, veggljós, matarstell, kristalsglös til sölu. BOHEMIA KRISTALL, Grensásvegi 8 Sími 7730273 Askalind 4, Kóp. Sími 564 1864 www.vetrarsol.is 48V Lithium-ion ralaða, hlaðin Dreing 1 – 6 metrar 51cm vinnslubreidd Með Led ljósabúnaði Í léari snjómokstur ST 4851 snjóblásari Þjónusta Faglærðir málarar Tökum að okkur öll almenn málningarstörf. Tilboð eða tímavinna. Sími 696 2749 - loggildurmalari@gmail.com Ýmislegt Teg. ARIZONA -brúnt birkoflor - stærðir 36-48 á kr. 8.950,- Teg. ARIZONA - beige rúskinn, stærðir 36-48 á kr. 10.900,- Laugavegi 178, sími 551 2070. Opið mán. - fös. kl. 10–18, Laugardaga kl. 10 - 14 Bátar      Flatahrauni 25 - Hafnarfirði Sími 564 0400 www.bilaraf.is Mikið úrval í bæði 12V og 24V. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Stofnað 1986 • Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-16. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Ökukennsla Vönduð, vel búin kennslubifreið Subaru XV 4WD . Akstursmat og endurtökupróf. Gylfi Guðjónsson, sími 696 0042, Húsviðhald ✝ Guðrún ÞóraBragadóttir fæddist í Reykjavík 22. febrúar 1951. Hún lést 5. janúar 2018 á Aase-líknar- deild í Sandnes í Noregi. Foreldrar Guð- rúnar eru þau Magnea Katrín Þórðardóttir, hús- móðir, f. 27. júní 1923, og Bragi Ásbjörnsson, mál- arameistari og múrari, f. 2. maí 1929. Bróðir Guðrúnar er Kol- beinn Þór Bragason, viðskipta- fræðingur, f. 1966. Guðrún var gift Gunnari Má Gunnarssyni, dýralækni, f. 9. júní 1951. Börn þeirra eru Bragi Freyr, f. 1975, og maki er Eygló Tómasdóttir, Hulda Mjöll, f. 1977, maki hennar er Sigbjörn Höydal, og Gunnar Birkir, f. 1980, maki hans er Hilde Aasheim. Guðrún eignaðist 10 barnabörn. Börn Braga Freys og Eyglóar eru María, f. 2006, Guðrún, f. 2010, Hildur, f. 2011, og Eyja, f. 2017. Börn Huldu Mjallar og Sigbjörns eru Saga Dís, f. 2006, Dilja Mey, f. 2009, og Sunna Ír, f. 2013. Börn Gunnars Birk- is eru Gunnar, f. 2006, Olav, f. 2008, og Brage, f. 2013. Guðrún ólst upp í Reykjavík og Kópa- vogi. Hún lauk stúd- entsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1972. Guðrún hóf nám við Sosial Högskolen Bygdöy í Osló árið 1973 og lauk þaðan námi í félags- ráðgjöf árið 1977. Guðrún giftist eiginmanni sínum, Gunnari Má Gunnarssyni, 23. júní 1973. Guð- rún starfaði sem skólastjóri við grunnskólann á Barðaströnd og var félagsráðgjafi við sjúkra- húsið á Húsavík til ársins 1991. Árið 1991 flutti Guðrún ásamt manni sínum og börnum til Nor- egs. Þar starfaði hún sem félags- ráðgjafi við barnavernd til fjölda ára. Útför Guðrúnar fór fram frá Sandnes Kapell 12. janúar 2018. Minningarathöfn um Guðrúnu fer fram í Fossvogskapellu í dag, 22. janúar 2018, klukkan 15. Ef ég reyni að lýsa mömmu með einu orði þá er kærleikur rétta orðið. Rúma tvo áratugi af lífi sínu helgaði hún vinnu innan barnaverndar bæði á Íslandi og í Noregi. Hún var upptekin af að verja þá sem minnst mega sín og vann við mörg mjög erfið mál. Hún tók alltaf málstað barnanna. Hún vann oft lengi og það kom líka fyrir að hún bauð fjölskyldum sem áttu erfitt inn á heimili sitt í mat eða jafnvel í jólaboð. Þetta kenndi okkur systkinunum að all- ir eiga rétt á virðingu og þó að fólk eigi erfitt getur það samt ver- ið ágætis manneskjur. Mamma var mjög barnvæn, sem kom vel fram í sambandi hennar við barnabörnin. Saga Dís, Dilja Mey og Sunna Ír minn- ast ömmu sem var alltaf svo þol- inmóð og góð við þær. Þær eldri fengu að koma til hennar eftir skóla og hún hjálpaði þeim með heimavinnuna. Þeim fannst best þegar þær voru búnar með stærð- fræðina því þá fengu þær að sitja í faðmi ömmu í sófanum og lesa upphátt fyrir hana. Hún hlustaði alltaf svo vel og þetta var svo notalegt. Sunna Ír og amma sátu oft saman yfir dótakassanum sem amma átti og skoðuðu allt dótið vandlega og röðuðu því upp sam- an. Stelpunum finnst sárt að amma er dáin. Mamma var bæði umhyggju- söm og ákveðin. Við fengum alltaf stuðning heima hjá henni og pabba ef við þurftum en samtímis höfðu þau mikla trú á að við döfn- uðum best við að axla ábyrgð og hugsa sjálfstætt. Mamma beið oftast í stofunni þegar við komum heim á unglingsárum, ef hún kom þá ekki sjálf og sótti okkur og heilan skara af unglingum á ball eða annað. Við töluðum alltaf um hvernig dagurinn okkar hafði verið og gátum fengið hjálp við að finna lausn á vandamálum og hún gladdist með okkur ef eitthvað fyndið eða skemmtilegt hafði gerst. Ég hef haldið áfram að leita til mömmu alla tíð. Hún var góður hlustandi og áhugasöm um allt sem ég var að velta fyrir mér, bæði í sambandi við börnin mín og vinnu. Ég sakna þess að geta fengið hennar sjónarhorn á hlut- ina, en ég mun halda áfram að tala við hana. Ég og stelpurnar mínar vonum nefnilega að m(amma) sé ennþá svolítið hjá okkur og að hún sé enn að hlusta. Hún mamma lifir með okkur áfram. Móðir mín er í höndunum á mér. Það er hún sem faðmar dóttur mína í gegnum mig. Og móðir mín strýkur bak dóttur minnar með mínum höndum. Og móðir mín kyssir hár dóttur minnar með mín- um vörum. Og móðir mín gagnrýnir hana með mínum munni. Svo fátæk er ég. Allt hef ég fengið til láns. (Gro Dahle, Hulda Mjöll Gunnarsdóttir þýddi) Þín dóttir, Hulda Mjöll Gunnarsdóttir Elsku besta amma Guðrún. Ég mun alltaf muna eftir þér. Þú hefur alltaf verið góð amma. Ég mun sakna þín sárt. En þá er gott að hugsa um að þér líður bet- ur núna. Þú munt samt alltaf vera amma Guðrún í Noregi. Þín María. Elsku Díttý mín, mikið svaka- lega var ég heppinn að eiga þig sem systur. Lánið lék við mig daginn sem þú fórst heim til mömmu og pabba og sagðir þeim frá því að þú værir búin að finna systkini handa þér. Þann daginn var ég örugglega heppnasta ófædda barn í heiminum. Fyrir ykkur sem ekki þekkið til upphafs sögunnar um mig og systur mína, þá er allt í þeirri sögu eins og klippt út úr fallegu ævintýri. Æv- intýri sem ekki gerast mjög oft. Af einhverjum óútskýrðum ástæðum þá kallaði ég systur mína alltaf Díttý þegar ég var lít- ill, en ég hef satt best að segja ekki hugmynd um hvaðan það kemur. Ég var reyndar sá eini sem mátti gera það, og ekki bara að ég mátti það heldur átti ég líka að gera það því að alla ævi þótti Guðrúnu vænt um þetta gælu- nafn og vildi að ég kallaði sig þessu. Díttý mín, ég á margar góðar minningar um okkur frá því ég var lítill. Þú varst alltaf í svo miklu uppáhaldi hjá mér og ég leit alltaf óendanlega mikið upp til þín. Man eftir því heima í Hjallabrekkunni þegar þú á námsárunum varst að koma í heimsókn frá Noregi. Man hvern- ig ég hékk utan í þér og í hvert sinn sem þú gerðir þig svo mikið sem líklega til að fara út úr húsi án mín þá gjörsamlega hékk ég utan í þér, hélt dauðahaldi í bux- urnar eða peysuna svo þú kæmist ekki fet án mín, gólandi eitthvað um að þú mættir ekki fara. Þér hefur eflaust þótt ég alveg óþol- andi litli bróðir á þeim tíma- punkti. Ég man eftir því þegar ég hélt í eldhússtólinn heima í Hjalla- brekku og horfði í gegnum gatið sem var á stólbakinu. Ég var að horfa á þig þar sem þú stóðst við vaskinn inni á baði að skipta um umbúðir á hendinni þinni eftir slysið. Þá var ég svo lítill að ég skildi ekki alveg þetta með slysið og hvað hafði komið fyrir hönd- ina. En ég man að ég var laf- hræddur við það sem þú þurftir að gera, en á sama tíma og ég var hræddur fann ég líka svo mikið til með þér að ég vildi fyrir alla muni vera hjá þér á meðan þú varst að þessu. Ég var líka sá eini sem þú leyfðir að vera nálægt þér á með- an. Man vel eftir heimsóknunum til þín þegar þú áttir heima í Ósló, líka til Patró, á Barðaströndina og á Húsavík. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar, mér leið alltaf vel hjá ykkur Gunna og enn betur eftir að öll frændsystkinin komu til sögunnar. Það var alltaf nóg af hjartahlýju þar sem þú varst. Það er óhætt að segja að þú hafir notið barnaláns, þú átt þrjú falleg börn og 10 barnabörn sem eru hvert öðru myndarlegra. Það var líka ótrúlega gott að þú náðir jólunum núna því annað eins jólabarn og þú varst er vand- fundið. Þú hafðir reyndar ekki langt að sækja jólaáhugann því hún Guðrún amma smitaði þig al- veg örugglega af honum. Það er eiginlega fyndið að hugsa til þess að ég held að þú hafir gefið mér jólaskraut í nánast hverjum ein- asta desembermánuði alla mína ævi, þér fannst ég bara aldrei eiga nóg af jólaskrauti. Ég á eftir að sakna þín, elsku systir. Sjáumst í næsta lífi. Þinn bróðir Kolbeinn (Kolli). Elsku Gunna, vinkona okkar! Vinátta vex ekki á trjám. Vökvaðu og nærðu hana eins vel og þú getur þá mun hún vaxa og dafna sem aldrei fyrr. (Ljóð og gullkorn Hjartalags) Það er svo sárt að horfa á eftir þér yfir móðuna miklu langt fyrir aldur fram. Við sem höfum þekkst svo lengi og þið Gunni svo stór hluti af lífi okkar. Vinskapur við ykkur Gunna hófst á námsár- um í MR og hélst síðan í Noregi á námsárum okkar þar og fylgdi okkar svo yfir hafið til Íslands. Þegar þið Gunni og fjölskylda fluttuð til Noregs aftur, vökvuð- um við vináttuna og nærðum áfram. Það er svo erfitt að hugsa til þess að þú sért farin, erfiðara en orð fá lýst. Þegar litið er til baka rifjast upp svo ótal margar skemmtilegar og ánægjulegar stundir sem við fjölskyldurnar höfum átt saman. Í Ósló á náms- árunum, á Patró, á Barðaströnd- inni, á Húsavík. Síðan aftur í Nor- egi. Hress framkoma, gestrisni, gleði og mikil hjartagæska ein- kenndi þig alla tíð. Nokkrar ógleymanlegar ferðir fór Vigdís í „húsmæðraorlof“ til ykkar Gunna til Stavanger og þá voru dregnar fram gamlar kvikmyndir sem vin- konurnar horfðu á. Í gegnum vin- áttu okkar á Íslandi og Noregi vorum við svo lánsöm að kynnast yndislegum börnum ykkar Gunna, Braga Frey, Huldu Mjöll og Gunnari Birki og síðar fjöl- skyldum þeirra. Þegar ljóst var að alvarleg veikindi höfðu lagst á þig sýndir þú mikið æðruleysi og styrk í bar- áttunni. En þrátt fyrir þessa erf- iðleika hélstu þínu góða skop- skyni og réttsýni. En minningin um þig og þær ótal mörgu og góðu stundir sem við áttum með þér og fjölskyld- unni þinni munum við ætíð geyma hjörtum okkar. Við vottum Gunnari Má og fjöl- skyldu okkar dýpstu samúð á erf- iðri stundu. Vinarkveðjur, Vigdís Magnúsdóttir Egill Már Guðmundsson. Guðrún Þóra Bragadóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.