Morgunblaðið - 22.01.2018, Síða 23
með henni árið 1957 með lögunum
Draumur fangans og Ekki er allt sem
sýnist, eftir 12. september, Það rökkv-
ar í Róm og Blómabrekkan og Hár-
lokkurinn, rokklagið Vagg og velta og
dönsku lögin De unge år og Jeg send-
er mine tanker, fyrir Skandinavíu-
markað. Útvarpsráði þótti texti rokk-
lagsins, eftir Loft Guðmundsson vega
að þjóðskáldunum Jónasi Hallgríms-
syni og Kristjáni fjallaskáldi og bann-
aði því flutning þess í ríkisútvarpinu.
En bannið varð til þess að platan seld-
ist upp á augabragði. Þetta sumar hélt
Erla rokktónleika hér á landi með
Hauki Morthens, ásamt Hljómsveit
Kristins Vilhelmssonar, fyrst í Austur-
bæjarbíói, síðan víðs vegar um landið
fyrir fullum húsum og loks á dans-
leikjum í Iðnó með Hljómsveit Gunn-
ars Ormslev.
Þetta var í síðasta sinn sem Erla
kom fram á Íslandi. Þau hjónin fluttu
til Kaupmannahafnar, ásamt tveimur
börnum sínum og þar tók Erla upp
lögin Vaki vaki vinur minn, Síðan er
söngur í blænum, Við þú og ég, og
polkann, Stungið af, eftir Jóhannes G.
Jóhannesson. Erla og Haukur Mort-
hens sungu svo lagið Þrek og tár, tekið
upp í Kaupmannahöfn haustið 1958,
auk þess sem þá voru tekin upp lögin
Okkar eina nótt, Litli stúfur, Ítalskur
Calypsó, Litli tónlistarmaðurinn eftir
12. september, Á góðri stund og
Kveðja eftir Jóhannes G. Jóhannesson
og Hvers vegna? eftir Sigfús Hall-
dórsson.
Síðustu lögin sem Erla sendi frá sér
á hljómplötum voru Hreðavatnsvals,
Kata rokkar, Í Egilsstaðaskógi og
Vala, kæra Vala.
Þegar hér var komið sögu setti Erla
punktinn fyrir aftan söngferil sinn og
sagðist vilja helga sig börnum sínum
og fjölskyldu. Þau hjónin stofnuðu sitt
eigið rafeindafyrirtæki 1964 og fjórða
barnið fæddist tveimur árum síðar.
Hefur Erla búið í Danmörku alla tíð
síðan.
Allar hljómplötur Erlu voru teknar
upp í Danmörku. Undirleik annaðist
Hljómsveit Jörn Grauengårds sem þá
var einn virtasti hljómsveitarstjóri
Danmerkur, en hann sá einnig um út-
setningar og stjórnun á upptökum.
Þó að söngferill Erlu spannaði að-
eins fimm ár á hún margar af eftir-
minnilegustu dægurlagaperlum sjötta
áratugarins. Tvöföld safnplata, Stúlkan
með lævirkjaröddina, kom út árið 2000
en þar er að finna flest af lögum Erlu.
Lög hennar hafa ennfremur ratað inn
á ýmsar safnplötur í seinni tíð, s.s.
Stelpurnar okkar, Óskastundin 4,
Óskalögin 2, Aftur til fortíðar, Svona
var …seríurnar og Bestu lög 6. áratug-
arins.
En sá hún aldrei eftir því að hætta
svona snemma?
„Nei. Þetta var orðið gott og ég hafði
í nógu að snúast með fjölskyldu og
fjögur börn.“
Fjölskylda
Eiginmaður Erlu var Paul Edward
Danchell, f. 1931, d. 1998, rafvirki og
framkvæmdastjóri eigin raftækjafyrir-
tækis.
Börn Erlu og Pauls eru Poul Danc-
hell, f. 1955, háskólakennari í Óðins-
véum; Eva Laufey, f. 1957, hjúkr-
unarfræðingur í Hollandi; Stefan
Danchell, f. 1960, framkvæmdastjóri í
Slagelse á Fjóni, og David Danchell, f.
1964, framkvæmdastjóri í Slagelse á
Fjóni.
Systkini Erlu: Rósa Þorsteinsdóttir,
f. 22.5. 1926, d. 30.12. 2001, húsfreyja á
Sauðárkróki; Haukur Þorsteinsson, f.
14.1. 1932, d. 21.9. 1993, vélstjóri, vél-
virkjameistari og kennari á Sauðár-
króki; Gréta Þorsteinsdóttir, f. 29.7.
1934, d. 14.11. 2015, húsfreyja í Vest-
mannaeyjum og í Borgarnesi, og
Rögnvaldur Þorsteinsson, f. 12.3. 1936,
d. 18.10. 2009, sjómaður á Akranesi.
Foreldrar Rósu voru Þorsteinn Sig-
urðsson, f. 14.5. 1895, sjómaður og síð-
ar rafveitustjóri á Sauðárkróki, og k.h.,
Ingibjörg Konráðsdóttir, f. 4.6. 1905, d.
1.3. 1999, húsfreyja á Sauðárkróki.
Anna Þorsteinsdóttir
húsfr. í Sauðaneskoti
í Svarfaðardal
Rósa
Friðfinnsdóttir
húsfr. í Ólafsfirði
Baldvin
Tryggvason fyrrv.
sparisjóðsstjóri
Sveinbjörn I.
Baldvinsson
rithöfundur
Stefán Sigurðsson
sjóm. á Sauðárkróki
María Bjarnadóttir
húsfr. í Selhaga
Eyþór Stefánsson tónskáld
og skólastjóri á Sauðárkróki
Sigurður Bjarnason b.
á Stóra-Vatnsskarði
Jakob Benediktsson
orðabókaritstjóri
Sigurlaug Sigurðardóttir
húsfr. á Fjalli í Sæmundarhlíð
Stefán Bjarnason b. á Halldórsstöðum
á Langholti í Skagafirði
Guðrún Stefánsdóttir
húskona í Krossanesi
Stefán Íslandi
óperusöngvari
Úr frændgarði Erlu Þorsteins
Erla Þorsteins
Sigurrós Sigurðardóttir
húsfr. í Leyningi í Eyjafirði
Magnús Jónasson
b. í Leyningi í Eyjafirði
Rósa Magnúsdóttir
húsfr.í Borgey og á Sauðárkróki
Ingibjörg Konráðsdóttir
húsfr. á Sauðárkróki
Konráð Bjarnason
b. í Litlu-Húsey, Borgey og Brekkukoti í Skagafirði, síðar á Sauðárkróki
Karólína Jóhannesdóttir
húsfr. á Brenniborg og víðar í Skagafirði
Bjarni Björnsson
(Borgar-Bjarni) b. í
Elivogum á Langholti
Kristín Jónsdóttir
húsfr. á Skáldalæk
Þorsteinn Sigurðsson
b. á Skáldalæk í Svarfaðardal
Guðlaug Rósa Þorsteinsdóttir
húsfr. á Gautastöðum í Stíflu
Sigurður Jónsson
b. á Gautastöðum í Stíflu
Gunnhildur Hallgrímsdóttir
húsfr. á Karlsá og Upsum
Jón Jónsson
b. á Karlsá og Upsum
á Upsaströnd
Þorsteinn Sigurðsson
sjóm. og síðar rafveitustj.
á Sauðárkróki
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 22. JANÚAR 2018
Lykilverslun við Laugaveg – Áratuga þekking og reynsla
INNRÉTTINGA- OG SKÁPAHÖLDUR
Opið virka daga 9-18 laugardaga 10-16
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is
UM 400 gerðir að velja úr
Ný
vefverslun
brynja.is
90 ára
Baldvin Ársælsson
Þráinn Haraldsson
85 ára
Bjarnveig Karlsdóttir
Ingibjörg Karlsdóttir
80 ára
Jón Kristinn
Valdimarsson
Þórarinn Sigþórsson
Þórunn Sigurðardóttir
75 ára
Bára Pétursdóttir
Helga Sigþórsdóttir
Jón Dan Jóhannsson
Steinunn Kristjana
Jónsdóttir
70 ára
Eðvarð Hallgrímsson
Guðmundur Björn
Hólmgeirsson
Guðrún Hupfeldt
Jóhann Frímann Helgason
Jón Sigurjónsson
Kristín Guðbjörg
Eyjólfsdóttir
Ólöf Þórey Ellertsdóttir
Steingerður Ágústsdóttir
Þórunn Björg Pétursdóttir
60 ára
Grzegorz Michal Glabinski
Ingólfur T. Garðarsson
Ísleifur Sveinsson
Jón Emil Gylfason
Kristín Einarsdóttir
Sigfús Kjaran
Sigurður Jörgen
Óskarsson
Stefán Arnaldsson
Trausti Guðmundur
Halldórsson
50 ára
Ásta Kristín Bárðardóttir
Dagur Bjarnason
Gunnar Engilbert Carlsen
Hallgerður Hauksdóttir
Helga Bertelsen
Högni Elfar Gylfason
Linda Björk Haukdal Há-
konardóttir
Margrét Kristín Blöndal
Ólafur Pétursson
Raja Sree R. Subramaniam
Sigríður Kristinsdóttir
Sigurbjörn Sigfússon
Valgerður Vigfúsardóttir
40 ára
Ásta Svanhvít
Sindradóttir
Benedikt Orri Einarsson
Bergþóra Kristjánsdóttir
Daníel Örn Árnason
Einar Daði Reynisson
Einar Þorsteinsson
Estrid Þorvaldsdóttir
Helga Sigurlína
Halldórsdóttir
Hrafnhildur Guðrún
Sigurðardóttir
Jónína Eyvindsdóttir
María Rúnarsdóttir
Sigurður Ingi Jóelsson
30 ára
Alenka Zak
Eggert Hólm Pálsson
Ewelina Galaszek
Eyrún Edvardsdóttir
Guðmundur Kristján
Guðmundsson
Julia Gristsenko
Kristinn Bjarnason
Malgorzata Sylwia Huk
Svavar Stefánsson
Víðir Ísfeld Ingþórsson
Þóra Ásgeirsdóttir
Til hamingju með daginn
40 ára Benedikt er úr
Breiðholtinu en býr í
Garðabæ. Hann er fjár-
málastjóri hjá Meniga, en
er verkfr. að mennt.
Maki: Hulda Hallgríms-
dóttir, f. 1981, gæðastjóri
hjá Össuri.
Börn: Benedikt, f. 2008,
Bríet, f. 2008, og Hall-
grímur, f. 2017.
Foreldrar: Einar Hafliða-
son, f. 1943, og Sigrún
Margrét Magnúsdóttir, f.
1943, bús. í Reykjavík.
Benedikt Orri
Einarsson
40 ára Einar er Reykvík-
ingur en býr í Garðabæ.
Hann er grunnskólakenn-
ari við Álftanesskóla.
Systkini: Jóhanna
Reynisdóttir, f. 1966,
grunnskólakennari, og
Guðrún Björk Reynis-
dóttir, f. 1973, læknir.
Foreldrar: Reynir Hlíðar
Jóhannsson, f. 1946,
prentari, og Þóra Péturs-
dóttir, f. 1949, vann hjá
Vinnumálastofnun. Þau
eru búsett í Garðabæ.
Einar Daði
Reynisson
40 ára Hrafnhildur er
Akureyringur en býr í
Reykjavík. Hún er lífeinda-
fræðingur að mennt en
vinnur á leikskólanum
Stakkaborg.
Maki: Stefán Þórarins-
son, f. 1976, flugvirki.
Börn: Jenný Dagbjört, f.
2013, Enok Olli, f. 2016.
Foreldrar: Sigurður
Ólafsson, f. 1955, rafvirki,
og Guðlaug Kristinsdóttir,
f. 1958, viðskiptafræð-
ingur, bús. á Akureyri.
Hrafnhildur G.
Sigurðardóttir
Gunnvör S. Karlsdóttir hefur varið
doktorsritgerð sína í íslenskum bók-
menntum við íslensku- og menning-
ardeild Háskóla Íslands. Ritgerðin
nefnist Guðmundar sögur biskups.
Þróun og ritunarsamhengi.
Andmælendur voru Hjalti Huga-
son, prófessor í kirkjusögu við guð-
fræði- og trúarbragðafræðideild, og
Marianne Kalinke, prófessor emeríta
við Illinois-háskóla í Bandaríkjunum.
Doktorsritgerðin var unnin undir
leiðsögn Ásdísar Egilsdóttur, pró-
fessors emeríta. Aðrir í doktors-
nefnd voru Svanhildur Óskarsdóttir
og Einar Sigurbjörnsson.
Til rannsóknar eru fjórar mismun-
andi sögur Guðmundar Arasonar
góða Hólabiskps (1161-1237) sem
allar voru ritaðar á fyrri hluta 14.
aldar. Frásagn-
arhlutar, bygg-
ing, framsetning
og stíll hverrar
sögu er kann-
aður með það
fyrir augum að
bera saman
breytingar frá
einni gerð til
annarrar og rekja þróun. Að því
loknu er ritunarsamhengi sagnanna
skoðað með hliðsjón af bókmennta-
sögu ritunartímans og kirkjusögu-
legum forsendum. Rannsóknin er
framlag til bókmenntasögu 14. aldar
og er hluti af rannsóknarverkefninu
Encounters with the Paranormal
sem stýrt hefur verið af Ármanni
Jakobssyni.
Gunnvör S. Karlsdóttir
Gunnvör S. Karlsdóttir lauk BA-prófi í íslensku 1998 og MA-prófi í íslenskum
bókmenntum frá íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands 2009. Á námstím-
anum hlaut hún styrk í tengslum við rannsóknarverkefnið Encounters with the
Paranormal, ásamt kennslustyrk skólaárið 2011-2012 við íslensku- og menning-
ardeild. Hún var enn fremur þátttakandi í verkefninu Translatio sem laut að þýð-
ingarhugtakinu í víðasta skilningi og var styrkt af Norræna rannsóknasjóðnum.
Doktor
Atvinna