Morgunblaðið - 30.01.2018, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2018
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
lagsins, sem undirstrikar mikilvægi
björgunarsveitanna í dag, svo sem með til-
liti til fjölgunar ferðamanna. Sveitirnar
séu misjafnar að styrk og þær mikilvæg-
ustu oft fáliðaðar enda í afskekktum
byggðum vetrarríkis.
Afmælisins verður minnst með ýmsu
móti allt þetta ár en í gærkvöldi var opið
hús hjá deildum félagsins, m.a. hjá Björg-
unarsveitinni Ársæli á Grandagarði þar
sem þessar myndir voru teknar. sbs@mbl.is
Hvítum svifblysum var skotið á loft frá
öllum bækistöðvum Slysavarnafélagsins
Landsbjargar hringinn um landið í gær-
kvöld til að fagna því að í gær voru liðin
90 ár frá stofnun Slysavarnafélags
Íslands, sem er fyrirrennari núverandi
samtaka. Markaði það upphaf skipulagðs
björgunar- og slysavarnastarfs á Íslandi.
„Félagið var stofnað vegna mikillar þarf-
ar í kjölfar tíðra sjóslysa,“ segir Jón Svan-
berg Hjartarson, framkvæmdastjóri fé-
Hátíðahöld víða og svifblysum skotið á loft á tímamótum í sögu slysavarnastarfs á Íslandi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Héldu upp á að 90 ár eru liðin frá
stofnun Slysavarnafélags Íslands
Arnar Þór Ingólfsson
athi@mbl.is
„Þetta er mjög óvanalegt að það sé
utanaðkomandi pólitískt afl sem
kallar eftir því beinlínis að það sé
boðið fram í stéttarfélagi,“ segir Sig-
urður Bessason, formaður Eflingar,
í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir mótframboð til höfuðs
lista uppstillingarnefndar Eflingar
ekki hafa komið sér á óvart, en hins-
vegar sé margt óvenjulegt við að-
draganda framboðsins. Sigurður
hefur verið formaður félagsins síð-
astliðin 18 ár.
Ingvar Vigur Halldórsson og Sól-
veig Anna Jónsdóttir eru formanns-
efni þeirra tveggja lista sem bjóða
fram til hluta stjórnar félagsins, en
framboðsfrestur rann út klukkan
16:00 í gær. Aðalfundur félagsins fer
fram í lok apríl og kjósa verður að
minnsta kosti mánuði áður en hann
fer fram. Ekki liggur fyrir nákvæm-
lega hvenær verður kosið, en aldrei
hefur verið kosið um formann Efl-
ingar áður, í tuttugu ára sögu þessa
næst stærsta stéttarfélags landsins.
Undrast framgöngu Ragnars
Sigurður segir óvanalegt að for-
maður annars félags taki afstöðu í
formannskjöri Eflingar.
„Við höfum aldrei séð þetta áður
að formaður í stéttarfélagi blandi sér
með beinum hætti inn í stéttabaráttu
í öðrum stéttarfélögum. Ég held að
það sé eitthvað sem félagsmenn ættu
að hugsa, hvort þeir kæri sig um að
vera leiddir áfram af formanni úr
öðru stéttarfélagi,“ segir Sigurður
og vísar þar til Ragnars Þórs Ing-
ólfssonar, formanns VR, sem lýst
hefur yfir stuðningi við framboðslist-
ann sem Sólveig leiðir.
Sólveig Anna er virk í starfi
Sósíalistaflokks Íslands, sem er und-
ir forystu Gunnars Smára Egilsson-
ar. Sigurður segir ljóst að með fram-
boði hennar sé Sósíalistaflokkurinn
kominn fram með sinn frambjóðanda
til forystu stéttarfélagsins og hefur
efasemdir um blöndu verkalýðsbar-
áttu og flokkspólitíkur.
Allir rúmist innan stéttarfélaga
„Það er mjög óvanalegt að það
gerist, og hefur ekki gerst í að verða
áratug, að framboð sé nánast bein-
línis boðið fram í gegnum pólitískt
umhverfi eins og í gegnum Sósíal-
istaflokkinn,“ segir Sigurður.
Hann telur alla eiga að geta rúm-
ast innan stéttarfélaga, sama hvar
þeir standi í stjórnmálum.
„Það eru ekki bara þeir sem eru
róttækir, eða á miðjunni eða þeir
sem eru lengst til hægri, það eru allir
innan stéttarfélaga vegna starfa
sinna,“ segir Sigurður.
Flokkspólitísk barátta í Eflingu
Formaður Eflingar segir Sósíalistaflokk Gunnars Smára vera kominn með sinn frambjóðanda
Efins um blöndu flokkspólitíkur og stéttabaráttu Óvanalegt að formaður VR blandi sér í málin
Morgunblaðið/Hari
Framboð Listinn sem Sólveig Anna (t.h.) leiðir skilaði inn yfir 600 undir-
skriftum meðmælenda til kjörstjórnar Eflingar eftir hádegið í gærdag.
„Línur varðandi framboð okkar til
sveitarstjórna ættu að vera orðnar
ljósar innan skamms tíma,“ segir Sig-
mundur Davíð Gunnlaugsson, alþing-
ismaður og formaður Miðflokksins.
Um helgina var stofnaður tíu manna
hópur sem undirbýr þátttöku flokks-
ins í sveitarstjórnarkosningum í vor.
Í hópnum verður stjórn flokksins
auk efstu manna á framboðslistum til
síðustu alþingiskosninga, það er
þeirra sem ekki náðu inn á þing þá.
Auk þess verða í hópnum sérstakir
ráðgjafar sem kallaðir verða til.
Formaður undirbúningshópsins er
Gunnar Þór Sigbjörnsson á Egils-
stöðum, reyndur maður á vettvangi
sveitarstjórnarmála meðal annars
sem bæjarfulltrúi Framsóknar-
flokksins á Fljótsdalshéraði fyrr á ár-
um. „Þetta er skammt á veg komið.
Miðflokkurinn er ný stjórnmála-
hreyfing og núna er verið að stofna
flokksfélög hans víða út um land, en
framboð til sveitarstjórna helst svo-
lítið í hendur við það,“ sagði Gunnar
Þór.
„Við gefum okkur nokkrar vikur í
þetta undirbúningsstarf,“ segir Sig-
mundur Davíð. Ætlunin sé að bjóða
fram sjálfstæða lista Miðflokksins
sem víðast, þó svo samstarf við aðrar
stjórnmálahreyfingar komi líka til
greina. Þá hafi nokkrir áhugasamir
um framboð gefið sig fram.
sbs@mbl.is
Stefnan tekin á sveitarstjórnir
Miðflokkurinn undirbýr kosningarnar í vor með starfshópi Efstu menn á listum,
ráðgjafar og fleiri eru innanborðs Útiloka ekki samstarf við aðra um framboð
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Reykjavík Miðflokkurinn stefnir á framboð til sveitarstjórna um allt land.
Sunna Elvira Þorkelsdóttir, sem
lamaðist eftir fall í Malaga á Spáni í
síðustu viku, hefur ekki enn fengið
að ferðast heim til Íslands.
Jón Kristinn Snæhólm, talsmaður
fjölskyldu Sunnu, sagði við mbl.is í
gær að það væri vegna þess að
vegabréf hennar væri enn í vörslu
lögreglunnar í Malaga og því ekki
enn komin heimild til að flytja
hana.
„Það skilur þetta enginn,“ sagði
Jón Kristinn. „Það verður þó að
koma fram að íslensk yfirvöld eru
að standa sig mjög vel.“
Að sögn Jóns ríður á að Sunna
komist sem fyrst heim, svo hægt sé
að meta meiðsli hennar betur. Ut-
anríkisráðuneytið vinnur að mál-
inu, en að sögn Jóns virðist lítil
þekking á meiðslum sem þessum
vera til staðar á sjúkrahúsinu ytra.
Nauðsynlegt að
Sunna komist
heim sem fyrst