Morgunblaðið - 30.01.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2018
Bragð af
vináttu
• Hágæða gæludýrafóður
framleitt í Þýskalandi
• Bragðgott og auðmeltanlegt
• Án viðbættra litar-, bragð- og rotvarnarefna
Útsölustaðir: Byko, Dýraland, Gæludýr.is, 4 loppur, Multitask, Launafl, Vélaval, Landstólpi.
Það er ekki nema hollt þegar al-mennar kosningar verða í
stéttarfélögum, sem hafa svo mikil
áhrif, sem raun ber vitni um. Hitt er
lakara að kosningaþátttaka er oft
lítil, t.d. í stóru fé-
lagi eins og VR, að
eitthvað virðist
vanta upp á fé-
lagslegan áhuga og
ábyrgð.
Í gær voru tveiraðalframbjóð-
endur í Eflingu, sem er öflugt félag,
mættir í útvarpsfréttir.
Fulltrúi „byltingarframboðsins“,studdur af verklýðshetjum úr
öðrum félögum, lét eins og aldrei
hefðu náðst fram neinar kjarabæt-
ur fyrir þá lægst launuðu.
Síðustu ár hefur kaupmáttar-aukning þess hóps orðið meiri
á skömmum tíma en nokkru sinni
áður. Það stóra stökk hefur ekki
enn leitt til verðbólgusprengju. En
síðustu verðmælingar vekja þó
óróa.
Sigurður Bessason, sem nú er aðkveðja, og hans lið í Eflingu,
getur því vel við unað, þótt sjálfsagt
telji þeir baráttuna aldrei komna á
endastöð.
Það er þýðingarmikið að fram-bjóðendur í verkalýðsfélögum
viðurkenni staðreyndir. Það ætti að
vera óumdeilt að kaupmáttur launa
almennt, en einkum lægstu launa,
hefur hækkað meir en áður síðustu
misserin. Svo stór stökk hafa ekki
verið tekin í nálægum löndum. Þar
eru þau sögð ósjálfbær.
Önnur staðreynd er sú, að þaðverður þung þraut að verja
þann aukna kaupmátt. Um það
stendur stríðið nú.
Sigurður
Bessason
Sæta staðreyndir
einelti?
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 29.1., kl. 18.00
Reykjavík -1 alskýjað
Bolungarvík 1 alskýjað
Akureyri -2 heiðskírt
Nuuk -10 skýjað
Þórshöfn 4 léttskýjað
Ósló -1 snjókoma
Kaupmannahöfn 5 skýjað
Stokkhólmur 0 snjókoma
Helsinki -1 skýjað
Lúxemborg 8 skýjað
Brussel 10 súld
Dublin 7 léttskýjað
Glasgow 6 léttskýjað
London 10 skúrir
París 10 alskýjað
Amsterdam 8 súld
Hamborg 7 rigning
Berlín 9 súld
Vín 12 heiðskírt
Moskva -5 snjókoma
Algarve 18 heiðskírt
Madríd 13 heiðskírt
Barcelona 15 heiðskírt
Mallorca 15 léttskýjað
Róm 14 heiðskírt
Aþena 12 heiðskírt
Winnipeg -19 léttskýjað
Montreal -10 skýjað
New York 4 heiðskírt
Chicago -3 snjókoma
Orlando 21 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
30. janúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 10:14 17:09
ÍSAFJÖRÐUR 10:36 16:56
SIGLUFJÖRÐUR 10:20 16:39
DJÚPIVOGUR 9:48 16:34
Héraðsdómur
Austurlands
dæmdi í gær fyrr-
verandi formann
starfsmannafélags
í sex mánaða skil-
orðsbundið fang-
elsi fyrir fjárdrátt.
Auk þess er fyrr-
verandi formann-
inum gert að
greiða starfsmannafélagi VHE á
Austurlandi skaðabætur að fjárhæð
6.620.023 krónur, ásamt vöxtum.
Kæra vegna fjárdráttar barst á
borð lögreglunnar á Austurlandi í
febrúar 2016. Lögreglustjórinn á
Austurlandi ákærði fyrrverandi for-
manninn, konu á fimmtugsaldri, en
samtals voru meint auðgunarbrot talin
vera að fjárhæð 7.974.479 kr. Í dómi
kemur fram að konan hafi á tímabilinu
28. desember 2012 til 17. desember
2015, heimildarlaust og í auðgunar-
skyni, fært samtals kr. 4.727.456 af
bankareikningi starfsmannafélags
VHE á Austurlandi yfir á bankareikn-
ing sinn, með 83 millifærslum og með
því dregið sér féð í eigin þágu.
Ákærða játaði sakargiftir við aðal-
meðferð fyrir dómi.
Dæmd
vegna
fjárdráttar
Sex mánaða skil-
orðsbundið fangelsi
Héraðsdómur
Austurlands.
Nemendur á sviðslistabraut við
Listaháskóla Íslands krefjast þess að
skólagjöld þeirra verði felld niður á
vorönn vegna óviðunandi aðstæðna í
núverandi húsnæði skólans við Sölv-
hólsgötu 13.
Allir nemendur deildarinnar skrif-
uðu undir bréf þess efnis sem afhent
var rektor Listaháskólans og deildar-
stjóra sviðslistadeildar í gær, segir í
frétt á mbl.is. Undir sviðslistabraut
heyrir BA og meistaranám á dans-,
leiklistar- og sviðshöfundabrautum.
Telja nemendur sig hafa verið svikna
um aðstöðu og þjónustu við skólann en
í bréfinu er margt talið til, svo sem
mygla í skólastofum, ekkert aðgengi
fyrir fatlaða, engin les- og vinnuaðstaða
nemenda, mötuneyti eða bókasafn. Þá
segja nemendur manneklu vera við
skólann og kennurum hafi fækkað á
einhverjum sviðum, t.a.m. erlendum
kennurum við dansbraut skólans.
Skólastjórnendum er gefinn frestur til
að svara bréfinu til mánudags.
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir,
fulltrúi nemenda við sviðslistadeild í
nemendaráði skólans, segir í samtali
við mbl.is að stjórnendur skólans hafi
veitt bréfinu móttöku og ætli að taka
málið upp á fundi með stjórn skólans á
fimmtudaginn. Hún segir að húsnæðið
hafi alltaf átt að vera bráðabirgða-
húsnæði en ekkert gerist síðan á með-
an nemendur haldi áfram að greiða há
skólagjöld önn eftir önn.
Nemendur telja sig hafa verið svikna
Nemendur á sviðslistabraut við Listaháskóla Íslands vilja betri aðstöðu
Morgunblaðið/Sverrir
Sölvhólsgata Listaháskóli Íslands.