Morgunblaðið - 30.01.2018, Page 29
DÆGRADVÖL 29
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2018
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú ert ánægður með sjálfan þig, en á
skemmtilegan og vinalegan hátt. Gerðu þér
far um að umgangast fólk því aðrir taka eftir
þér og vinir þínir vilja umgangast þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Það getur verið dýrkeypt að blanda sér í
annarra mál að ástæðulausu. Viljirðu ná mál-
um fram af einhverju viti þarftu að vera mjög
þolinmóður. Hentu dóti og einfaldaðu lífið.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Þér er nauðsyn að ná tökum á fjár-
málunum en að öllu óbreyttu stefnir þar í
óefni. Mundu bara að þú verður að vera sjálf-
um þér samkvæmur.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er svo margt að gerast, að þér
finnst þig skorta yfirsýn. Þolinmæði þrautir
vinnur allar segir máltækið.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Betri er krókur en kelda og þess vegna
skaltu taka þér allan þann tíma sem þú þarft
til þess að ganga frá hlutunum.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Ekki láta þér bregða þótt þér finnist þú
verða að leysa upp margt af því sem þú hefur
byggt upp síðustu árin. Ef þú ert ekki í jafn-
vægi getur þú lítið sem ekkert gert fyrir aðra.
23. sept. - 22. okt.
Vog Þú finnur á þér að eitthvað er í uppsigl-
ingu milli þín og ástvinar þíns. Láttu allar
áhyggjur lönd og leið og mundu það framvegis
að lofa ekki upp í ermina á þér.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Rannsóknarhæfileikar þínir njóta
sín svo sannarlega núna. Haltu þig fyrir utan
allar skærur á vinnustaðnum og þá fellur eng-
inn blettur á mannorð þitt. Aðgát skal höfð í
nærveru sálar.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það stefnir í átakalítinn dag hjá
þér en það þýðir ekki að þú getir slegið slöku
við. Mundu að hóf er best á hverjum hlut.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Það er óvenju margt á borðinu hjá
þér svo þú þarft að skipuleggja daginn mjög
vel. Að skrifa gæti ekki bara hjálpað til við að
vinna úr þessum tilfinningum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þetta er góður dagur fyrir verslun
og viðskipti, undirritun samninga og stuttar
ferðir. Mundu að deila ágóðanum með öðrum.
Það er lítilmannlegt að geta ekki glaðst yfir
velgengni annarra.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert friðsæll og í góðu jafnvægi og
hefur því góð áhrif á alla í kringum þig. Hver
þarf á samræðum að halda ef hægt er að tjá
sig með meira afgerandi hætti - gerðum sín-
um?
Áþessum degi 1874 fæddistBjörg C. Þorláksson, sú merka
kona, orðabókarhöfundur og skáld:
Látum öldur æða,
örlagahrannir flæða
- víkjum aldrei, aldrei fet.
Látum syrta, syrta,
um síðir mun þó birta
- um eilífð varir ekkert hret.
Í gær var á Leirnum skemmtileg
limra um hr. og fr. Olsen eftir Sig-
urlínu Hermannsdóttur:
Hjón þessi vissu fátt verra
en ef virðing og tign mundi þverra.
Voru smekk sínum trú;
hann var smurbrauðjómfrú
en konan var kúnstmálaráðherra.
Fía á Sandi lætur efni máls ráða
lengd síðustu hendingarinnar og
kemur ekki að sök ef limran er bor-
in fram með „sínum hætti“:
Ég ætla að yrkja um bjánann
sem elskaði vopnin og fánann
og til þess að hrella
henti sú della
að ákveða að skjóta atomsprengju á
mánann.
Páll Imsland heilsar leirliði „þó
ekki hlýni að ráði“, – og fitjar upp á
nýrri hrynjandi og nýjum brag-
arhætti:
Nú er sko lag á Læk.
Lárus er dauður og grafinn,
Magnús er kominn með kæk
og karlægur gamli er afinn;
kemst hvorki lönd né strönd.
Já, nú er sko lag á Læk.
Lóvísa’ af gigtveiki er þjáð,
Ástríður ólétt en spræk
og áreitt var Maja og smáð;
á ekki glaðan dag.
Auðvitað kallast þessar vísur á
við gamlan slagara og limru Krist-
jáns Karlssonar. Í slagaranum „Það
var kátt hérna um laugardags-
kvöldið á Gili“ er annað erindið
svona í þýðingu Magnúsar Ásgeirs-
sonar:
Þar var Dóra á Grund, hún er forkunnar
fögur
og fín, en af efnunum ganga ekki
sögur,
hún er glettin og spaugsöm og spræk.
Þar var einþykka duttlungastelpan, hún
Stína,
og hún stórlynda Sigga og Ása og Lína
og hún María litla frá Læk.
Og það er þessi María sem Krist-
ján yrkir um:
Sagði María litla frá Læk,
„ég er ljóðelsk og hefi þann kæk
að svipta mig fötum
og þar fram eftir götum.
En á fáguðum prósa er ég tæk.“
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Hjónin Olsen og
María litla frá Læk
„ÞAÐ ER EKKERT AÐ VÉLBÚNAÐINUM.
KANNSKI ER ÞETTA VANDAMÁL Í
HUGBÚNAÐINUM.“
„TIL HAMINGJU, FRÚ MARKAN.“
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sýna honum hvað
þú hefur lært í karate-
skólanum.
ÉG VAR AÐ KLÁRA MJÖG
LANGAN MORGUNVERÐ
HEY… ÉG MISSTI
AF HÁDEGIS-
MATNUM!
NEI… ÞAÐ ER HELGA!
VISSULEGA! ER
ÞAÐ ENGLAND?
ÍTALÍA? SPÁNN?
FRAKKLAND?
SEM LÖGFRÆÐINGUR TALDI ÉG
AÐ ÞÚ ÆTTIR AÐ GETA RISSAÐ
UPP VOPNAHLÉSSÁTTMÁLA FYR-
IR ÁTÖK SEM ERU Í GANGI!
GRETTIR GRETTIR GRETTIR
Litlu sigrarnir í lífinu eru oft stórir.Þessu fékk Víkverji að kynnast
um helgina þegar hann réðst til at-
lögu við draslfjallið í bílskúrnum og
fór nokkrar ferðir í Sorpu. Verk
þetta hafði frestast aftur og aftur.
Fótboltamót hér, jólahlaðborð þarna,
þessi veikur, vont veður og svo mætti
lengi telja. En nú varð ekki lengur
við unað. Draslið var skorað á hólm.
x x x
Veðrið var sem betur fer skaplegtþennan sunnudaginn. Það gerir
verk sem þessi allt önnur. Fyrst var
mokað út á stétt og sorterað. Svo var
raðað í bílinn eftir kúnstarinnar
reglum. Alls urðu þetta nokkrar
ferðir og eitthvað er sjálfsagt eftir.
En nú er alla vega rými til að athafna
sig í skúrnum. Öruggast er að hafa
hraðar hendur áður en drasl fer aft-
ur að safnast þar inn. Það gerist með
undraverðum hraða.
x x x
Einn blettur á þessum fallega degivar sá að þurfa að horfa á eftir
fallegu stólasetti fara beint í ruslið.
Þeir hjá Góða hirðinum vildu ekkert
með átta samstæða stóla hafa, töldu
að það myndi ekki nokkur maður líta
við þessu í búðinni. Væri þá ekki nær
að það væri gámur þarna sem fólk
mætti bara taka úr?
x x x
Sorpuferðir eru áhugaverðar fyrirþá sem hafa áhuga á fólki og
mannlegum samskiptum. Víkverji
virðist alltaf sjá áhugaverða karakt-
era í þessum heimsóknum sínum,
týpur sem hann rekst alla jafna ekki
á. Og svo eru það gamlir vinir og
kunningjar. Einn mann hittir Vík-
verji í hvert einasta sinn sem í Sorpu
er komið. Sá er alltaf í fram-
kvæmdagír, svo miklum að það ligg-
ur við að Víkverja fallist hendur. Því
á meðan Víkverji var sáttur með sína
tiltekt í skúrnum, löngu tímabæra og
nokkuð vel framkvæmda, þá var
þessi að hreinsa út af heilli hæð sem
hann keypti ekki alls fyrir löngu.
Sem hann ætlar eflaust að standsetja
sjálfur með vorinu. Og þá má bóka að
hann og Víkverji hittast reglulega á
sínum stað á rampi númer þrjú.
vikverji@mbl.is
Víkverji
Lofaður sé Drottinn er ber byrðar vor-
ar dag eftir dag, Guð er hjálpráð vort.
(Sálm: 68.20)