Morgunblaðið - 30.01.2018, Page 31
MENNING 31
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 30. JANÚAR 2018
Ísold Uggadóttir var valin besti
leikstjórinn af þeim sem eiga kvik-
mynd í alþjóðlegum flokki, þ.e.
flokki kvikmynda frá öðrum lönd-
um en Bandaríkjunum, á kvik-
myndahátíðinni Sundance í Park
City í Utah laugardaginn síðastlið-
inn. Verðlaunin voru veitt á lokahá-
tíð Sundance og þykja með þeim
merkustu á hátíðinni. Þau hlaut Ís-
old fyrir fyrstu kvikmynd sína í
fullri lengd, Andið eðlilega, og er
þessi árangur ekki síður merki-
legur í því ljósi. Kvikmyndin hefur
hlotið afar góðar viðtökur á hátíð-
inni þar sem hún var frumsýnd og
þá bæði meðal áhorfenda og gagn-
rýnenda, m.a. rýnis hins þekkta
kvikmyndatímarits Variety.
Með aðalhlutverk í Andið eðli-
lega fara Kristín Þóra Haralds-
dóttir, Babetida Sadjo og Patrik
Nökkvi Pétursson og í myndinni
eru sögur tveggja ólíkra kvenna
fléttaðar saman, annars vegar hæl-
isleitanda frá Gíneu-Bissá og hins
vegar ungrar, íslenskrar konu sem
starfar við vegabréfaeftirlit í Leifs-
stöð.
Andið eðlilega var í öðrum af
tveimur flokkum aðalkeppni Sund-
ance, sk. World Cinema Dramatic
Competition, eða flokki alþjóðlegra,
dramatískra kvikmynda en 12
myndir voru valdar í þann flokk úr
gríðarlegum fjölda umsókna.
Kvikmynd Ísoldar verður frum-
sýnd hér á landi í febrúar.
Ísold hlaut verðlaun á Sundance
Morgunblaðið/Hari
Verðlaunuð Ísold með leikkonunni Kristínu Þóru Haraldsdóttur.
Eiga Íslendingar mögulegaenn eitt heimsmetið ífjölda tónskálda á haus?Sú var tíðin að arkitekt-
ar fengu orð í heyra fyrir óraunsæi
og draumóra, svo maður eiginlega
hváir nú, en merkilega stór hluti ís-
lenskra tónskálda á hálf-ævintýra-
lega spretti, samanber merkisför
Páls og Hauks til Hamborgar og
Los Angeles í fyrra. Ný tónverk
þeirra, sérpöntuð af sinfóníuhljóm-
sveitum borganna, fengu loks að
hljóma hér heima á fimmtudags-
kvöldið var á sinfónískum Myrkum
músíkdögum. Kvöldið bauð einnig
upp á tvo fremstu íslensku tónlist-
armennina af yngri kynslóðinni;
Sæunn Þorsteinsdóttir einleikari á
selló er annar þeirra.
Nútíma hljómsveitarverk eru
oftar en sjaldnar þéttriðin í einum
kafla. Tónsmíð Páls Ragnars var af
þeim meiði; samþjappað en um leið
dökkleitt og dulúðugt. Quake þýðir
að titra eða nötra; þykkur niður,
jafnvel drunur (drone) bárust frá
bassafagotti, kontrabásúnu og
kontrabassa sem pældu við upphaf
jarðveginn fyrir innkomu Sæunnar
sem svaraði með hárfínum línum á
hinum enda tíðnisviðsins. Einleikur
hennar ásamt innlifun var frómt
sagt einstakur, við að framkalla
þessi mögnuðu en óræðu hljóð og
áferð með glansandi yfirtónum.
Quake fyrir selló og kammersveit
er í senn frumleg, einlæg og þrosk-
uð tónsmíð sem sneiðir hjá allri til-
gerð og vitsmunahroka; án efa eitt
það besta sem heyrst hefur frá Páli
Ragnari til þessa. Páll átti loks
annað áhrifamikið tónverk á loka-
tónleikum Myrkra kvöldið eftir svo
nú spyr maður sig hvort tónskáldið
sé komið inn fyrir í framvarðar-
sveit kollega sinna íslenskra.
Það efast enginn um hæfileika
og innsæi Hauks Tómassonar.
Handverkið er svo gott sem
óaðfinnanlegt, bæði haganlegt,
hárnákvæmt og skarpt. Annar pí-
anókonsert Hauks náði ítrekað að
laða fram gæsahúðartilfinningu
undir hraðri virtuósískri túlkun
Víkings Heiðars, undir fírugum
krossritmum og snörpum tóna-
skiptum milli einleikara og hljóm-
sveitar. Upphafshendingar píanó-
konsertsins með píanói, flautu og
óbói hófst þó innan öryggisgirðing-
arinnar, ef svo má að orði komast,
á efra tónsviðinu þar sem Hauki
líður jafnan best. Auðvitað hætti
tónskáldið sér neðar, en það er líkt
og einhver óútskýrð angist eða ótti
haldi aftur af Hauki; öll alúðin,
heimsmyndin í senn stór og sönn,
og örlát líkt og hans hárfínustu
náttúrustemmur bera vitni um
(Flétta), en fararskjótinn til þess
arna minnir á tveggja hestafla
saumavél sem fer í svo marga smáa
hringi með svo þéttriðnu saum-
spori og einhæfu að maður missir
sífellt fyrr áhugann eftir því sem
árin líða og tónverkin hlaðast upp.
Tónverk Finnans Sebastians
Fagerlund, Drifts, er í senn kröft-
ug tónsmíð, vandlega formuð og
grípandi fyrir áheyrandann sem
getur umbúðalaust hallað sér aftur
og treyst framvindunni. Stórar lýr-
ískar hendingar þutu áfram af
miklum styrk, oftar en ekki af
virtuósískum brag, þó með reglu-
legu uppbroti, t.a.m. dekkri málm-
blásara en við það breyttist stemm-
ingin í settlegan stríðsblæ; vel
útfærð samsuða slagverks og pí-
anós hélt strengjum við efnið í oft
risavöxnum hendingum. Hljóm-
sveitarstjórinn Daníel Bjarnason
leysti verkefnin enn og aftur
snurðulaust.
Endurfundir við ægifagurt Ada-
gio Magnúsar Blöndal frá 1980 fyr-
ir strengi, celestu og slagverk var
ákaflega tilfinningarík stund, verk-
ið sem rauf tæplega tíu ára þögn
Magnúsar. Sefjunin var einskír, í
ætt við Adagietto Mahlers, og hefði
betur fengið að hljóma sem loka-
verk á einkar ánægjulegum sinfón-
íutónleikum Myrkra árið 2018.
Morgunblaðið/Eggert
Einleikararnir Leikur Sæunnar Þorsteinsdóttur „var frómt sagt einstakur,“ skrifar rýnir, og píanókonsert Hauks
Tómassonar „náði ítrekað að laða fram gæsahúðartilfinningu undir hraðri virtuósískri túlkun Víkings Heiðars“.
Af stórfírugum anda
Eldborg í Hörpu
Sinfóníutónleikar bbbbn
Sebastian Fagerlund: Drifts (2017) 11’ –
frumflutningur á Íslandi; Haukur Tóm-
asson: Píanókonsert nr. 2 (2017) 16’ –
frumflutningur á Íslandi; Páll Ragnar
Pálsson: Quake fyrir selló og kamm-
ersveit – (2017) 15’ – frumflutningur á
Íslandi; Magnús Blöndal Jóhannsson:
Adagio; Haukur Tómasson: Í sjöunda
himni.
Hljómsveitarstjóri Daníel Bjarnason.
Einleikarar Sæunn Þorsteinsdóttir og
Víkingur Heiðar Ólafsson.
INGVAR
BATES
TÓNLIST
Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til
að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is
Elly (Stóra sviðið)
Þri 30/1 kl. 20:00 aukas. Lau 17/2 kl. 20:00 68. s Sun 4/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 3/2 kl. 20:00 64. s Sun 18/2 kl. 20:00 69. s Fös 9/3 kl. 20:00 aukas.
Sun 4/2 kl. 20:00 65. s Fös 23/2 kl. 20:00 aukas. Lau 10/3 kl. 20:00 aukas.
Þri 6/2 kl. 20:00 aukas. Lau 24/2 kl. 20:00 aukas. Sun 11/3 kl. 20:00 aukas.
Mið 7/2 kl. 20:00 aukas. Sun 25/2 kl. 20:00 aukas. Lau 17/3 kl. 20:00 aukas.
Fös 9/2 kl. 20:00 66. s Fös 2/3 kl. 20:00 aukas.
Lau 10/2 kl. 20:00 67. s Lau 3/3 kl. 20:00 aukas.
Sýningar haustið 2018 komnar í sölu.
Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið)
Mið 31/1 kl. 20:00 10. s Fim 8/2 kl. 20:00 13. s Fös 16/2 kl. 20:00 16. s
Fim 1/2 kl. 20:00 11. s Sun 11/2 kl. 20:00 14. s Fim 22/2 kl. 20:00 17. s
Fös 2/2 kl. 20:00 12. s Fim 15/2 kl. 20:00 15. s
Byggt á þríleik Jóns Kalmans Stefánssonar.
Brot úr hjónabandi (Litla sviðið)
Fös 2/2 kl. 20:00 49. s Fös 9/2 kl. 20:00 51. s Lau 17/2 kl. 20:00 53. s
Lau 3/2 kl. 20:00 50. s Sun 11/2 kl. 20:00 52. s Mið 21/2 kl. 20:00 54. s
Draumur um eilífa ást
Medea (Nýja sviðið)
Mið 31/1 kl. 20:00 8. s Fim 1/2 kl. 20:00 9. s Fös 2/2 kl. 20:00 Lokas.
Stuttur sýningatími. Allra síðustu sýningar!
Lóaboratoríum (Litla sviðið)
Mið 31/1 kl. 20:00 3. s Sun 4/2 kl. 20:00 5. s Lau 10/2 kl. 20:00 7. s
Fim 1/2 kl. 20:00 4. s Mið 7/2 kl. 20:00 6. s Fim 15/2 kl. 20:00 8. s
Í samvinnu við Sokkabandið.
Blái hnötturinn (Stóra sviðið)
Sun 4/2 kl. 13:00 aukas. Sun 11/2 kl. 13:00 aukas.
Allra síðustu sýningar.
Skúmaskot (Litla sviðið)
Sun 4/2 kl. 13:00 aukas. Lau 10/2 kl. 13:00 aukas. Sun 11/2 kl. 13:00 aukas.
Búðu þig undir dularfullt ferðalag!
Hafið (Stóra sviðið)
Sun 4/2 kl. 19:30 11.sýn Fös 9/2 kl. 19:30 12.sýn
Kraftmikið átakaverk, beint úr íslenskum veruleika
Risaeðlurnar (Stóra sviðið)
Lau 3/2 kl. 19:30 19.sýn Lau 10/2 kl. 19:30 20.sýn Lau 17/2 kl. 19:30 21.sýn
Grátbroslegt og ágengt nýtt verk um litla þjóð í stórum heimi .
Fjarskaland (Stóra sviðið)
Sun 4/2 kl. 13:00 Sun 11/2 kl. 13:00 Sun 18/2 kl. 13:00
Fjölskyldusöngleikur eftir Góa!
Slá í gegn (Stóra sviðið)
Fös 23/2 kl. 19:30 Fors Fös 2/3 kl. 19:30 4.sýn Lau 10/3 kl. 19:30 7.sýn
Lau 24/2 kl. 19:30 Frums Lau 3/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 8.sýn
Sun 25/2 kl. 19:30 2.sýn Fim 8/3 kl. 19:30 Auka Sun 18/3 kl. 19:30 9.sýn
Fim 1/3 kl. 19:30 3.sýn Fös 9/3 kl. 19:30 6.sýn Fös 23/3 kl. 19:30 10.sýn
Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Faðirinn (Kassinn)
Þri 30/1 kl. 19:30 Auka Sun 11/2 kl. 19:30 22.sýn Mið 7/3 kl. 19:30 25.sýn
Mið 31/1 kl. 19:30 21.sýn Mið 14/2 kl. 19:30 Auka Fim 15/3 kl. 19:30 26.sýn
Fös 2/2 kl. 19:30 Auka Sun 18/2 kl. 19:30 23.sýn
Lau 3/2 kl. 19:30 Auka Mið 28/2 kl. 19:30 24.sýn
Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk.
Efi (Kassinn)
Fim 1/2 kl. 19:30 Auka Lau 10/2 kl. 19:30 10.sýn Fös 23/2 kl. 19:30 13.sýn
Sun 4/2 kl. 19:30 8.sýn Fim 15/2 kl. 19:30 Auka Lau 3/3 kl. 19:30 14.sýn
Mið 7/2 kl. 19:30 9.sýn Fös 16/2 kl. 19:30 11.sýn Sun 4/3 kl. 19:30 15.sýn
Fim 8/2 kl. 19:30 Auka Lau 17/2 kl. 19:30 12.sýn Fös 9/3 kl. 19:30 16.sýn
Fös 9/2 kl. 19:30 Auka Fim 22/2 kl. 19:30 Auka
Margverðlaunað og spennandi verk !
Ég get (Kúlan)
Sun 4/2 kl. 13:00 7.sýn Sun 11/2 kl. 13:00 9.sýn
Sun 4/2 kl. 15:00 8.sýn Sun 11/2 kl. 15:00 10.sýn
Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar
Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið)
Lau 3/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 13:00 Lau 24/2 kl. 15:00
Lau 10/2 kl. 13:00 Lau 17/2 kl. 15:00 Lau 3/3 kl. 13:00
Lau 10/2 kl. 15:00 Lau 24/2 kl. 13:00 Lau 3/3 kl. 15:00
Brúðusýning
Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn)
Fim 1/2 kl. 20:00 Lau 10/2 kl. 20:00 Fös 23/2 kl. 22:30
Fös 2/2 kl. 20:00 Lau 10/2 kl. 22:30 Lau 24/2 kl. 20:00
Fös 2/2 kl. 22:30 Fim 15/2 kl. 20:00 Lau 24/2 kl. 22:30
Fös 2/2 kl. 22:30 Fös 16/2 kl. 20:00 Sun 25/2 kl. 20:00
Lau 3/2 kl. 20:00 Fös 16/2 kl. 22:30 Fim 1/3 kl. 20:00
Lau 3/2 kl. 22:30 Lau 17/2 kl. 20:00 Fös 2/3 kl. 20:00
Sun 4/2 kl. 20:00 Lau 17/2 kl. 22:30 Fös 2/3 kl. 22:30
Fim 8/2 kl. 20:00 Sun 18/2 kl. 21:00
Konudagur
Lau 3/3 kl. 20:00
Fös 9/2 kl. 20:00 Fim 22/2 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 22:30
Fös 9/2 kl. 22:30 Fös 23/2 kl. 20:00
Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika!
Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari)
Mið 7/2 kl. 20:00 Mið 7/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00
Mið 14/2 kl. 20:00 Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00
Mið 21/2 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 18/4 kl. 20:00
Mið 28/2 kl. 20:00 Mið 28/3 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00
Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins!
leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200