Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Qupperneq 6
6 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.1. 2018
Theresu May forsætisráð-
herra og hennar fólki var ekki
skemmt eftir yfirlýsingar
Khan, borgarstjóra í London,
um Trump forseta. Boris
Johnson utanríkisráðherra
tísti að Corbyn, leiðtoga
Verkamannaflokksins, og
Khan væri greinilega
mikið í mun að takast
að skemma samband
þjóðanna. „Við mun-
um ekki láta ein-
hvern útblásinn,
sjálfumglaðan
montrass í ráð-
húsinu stofna
sambandi Bret-
lands og Banda-
ríkjanna í hættu,“
tísti Johnson.
Donald Trump Bandaríkja-forseti tilkynnti í gær aðhann væri hættur við að
vera viðstaddur formlega opnun nýs
sendiráðs landsins í London í næsta
mánuði.
Sendiráð Bandaríkjanna hefur
verið við Grosvenor Square í West-
minster í 58 ár, allar götur síðan
1960, en flutningar úr gamla mið-
bænum hafa staðið yfir síðustu mán-
uði og nýja sendiráðið var opnað al-
menningi fyrir skömmu. Það er um
það bil fjóra kílómetra frá því gamla,
hinum megin við ána Thames, á suð-
urbakka árinnar, í hverfinu Nine
Elms þar sem nú á sér stað mikil
uppbygging á gömlu iðnaðarsvæði.
Úr alfaraleið
Bandaríski fáninn var dreginn niður
í síðasta skipti við gamla sendiráðið
síðastliðinn þriðjudag
„Ástæða þess að ég hætti við ferð
til London er að ég er ekki mikill
aðdáandi ríkisstjórnar Obama sem
seldi best staðsetta og fínasta sendi-
ráðið í London fyrir smáaura til að
byggja nýtt úr alfaraleið fyrir 1,2
billjónir dala,“ tísti forseti Banda-
ríkjanna um miðnætti á fimmtudag
og bætti við: „Slæmur samningur.
Vildu að ég klippti á borða. NEI!“
Þegar betur er að gáð er ekki víst
að skýringin sé alveg svo einföld.
Annars vegar skal nefnt að það
var alls ekki demókratinn Obama
forseti sem tók þá ákvörðun að selja
gamla sendiráðið og byggja nýtt
heldur flokksbróðir Trumps, repú-
blikaninn George W. Bush árið 2008.
Ástæðan er sögð sú að vegna
sprengjuárása á sendiráð Banda-
ríkjanna í Tansaníu og Kenýa 1998,
og árásanna í Bandaríkjunum 11.
september 2001, hafi ofuráhersla
verið lögð á að auka öryggi í öllum
sendiráðum landsins til mikilla
muna og það hafi einfaldlega verið
ómögulegt á gamla staðnum.
Nefna má að upphæðin sem
Trump sagði að byggingin kostaði,
1,2 billjónir dala, jafngildir 124,5
milljörðum íslenskra króna. Til að
setja það í samhengi sem fólk skilur
hugsanlega má geta þess að fyrir þá
upphæð væri mögulegt að reka
Landspítala – Háskólasjúkrahús í
liðlega tvö ár, miðað við nýsamþykkt
fjárlög.
Hins vegar má benda á að nokk-
urar andúðar hefur gætt í garð
Trumps í London síðustu misseri, og
borgarstjórinn þar, Sadiq Khan, hélt
því blákalt fram í gær að ákvörðun
forseta Bandaríkjanna mætti rekja
til þess að hann vissi að hann væri
ekki velkominn til borgarinnar.
„Forsetinn skildi skilaboðin frá
fjölda Lundúnabúa, sem dást að og
þykir vænt um Bandaríkin og
Bandaríkjamenn en finnst stefna
forsetans og athafnir algjörlega á
skjön við gildi Lundúna,“ tísti Khan
borgarstjóri.
Khan sagði að Lundúnabúar
hefðu án efa tekið á móti Trump með
mjög fjölmennum, en friðsælum,
mótmælum, enda væri hann afar
óvinsæll í borginni og mörgum byði
við skoðunum hans. Khan lýsti þeirri
skoðun í gær, og ekki í fyrsta skipti,
að það hafi verið mistök þegar The-
resa May, forsætisráðherra, bauð
Trump í opinbera heimsókn til Bret-
lands þegar hún sótti hann heim í
Hvíta húsið í fyrra.
Jeremy Corbin, leiðtogi
Verkmannaflokksins í Bret-
land, hefur lagst gegn því
að Trump heimsækti Bret-
land, eins og samflokks-
maður hans, borgarstjóri Lund-
úna.
Khan og Trump elduðu
grátt silfur eftir að borg-
arstjórinn – fyrsti músliminn sem
gegnir embættinu – gagnrýndi
harkalega ákvörðun forsetans um
ferðabann frá ákveðnum löndum til
Bandaríkjanna. Forsetinn deildi að
sama skapi hart á borgarstjórann
vegna viðbragða hans við hryðju-
verkaárásum í borginni og vísaði
m.a. til þeirra í tengslum við ferða-
bannið. Khan borgarstjóri svaraði
því þá til að hann þyrfti ekki á ráð-
leggingum að halda frá forseta
Bandaríkjanna.
„Trump“ við sendiráðið
Eftir yfirlýsingu Trumps forseta
þess efnis að hann hefði hætt við
Lundúnaferðina brugðu starfsmenn
Tussauds-vaxmyndasafnsins kunna í
höfuðborginni á leik og komu fyrir
vaxmynd af forsetanum við nýja
sendiráðið á syðri bakka Thames.
Vakti þetta mikla athygli og
flykktust bæði iðnaðarmenn á svæð-
inu og aðrir starfsmenn í borg-
arhlutanum, svo og ferðamenn, að
vaxmyndinni til að láta taka af sér
mynd.
Skilur fyrr
en skellur
í tönnum
Bandaríkjaforseti ætlar ekki að vera viðstaddur
opnun nýs sendiráðs í London. Sadiq Khan borg-
arstjóri hefur aðrar skýringar en forsetinn sjálfur.
AFP
Vaxmynd af Donald Trump, Bandaríkjaforseta, fyrir utan hið nýja sendiráð landsins vakti mikla athygli ferðamanna í gær.
Montrass í
ráðhúsinu
Khan borg-
arstjóri.
’
Við munum ekki láta einhvern útblásinn,
sjálfumglaðan montrass í ráðhúsinu stofna
sambandi Bretlands og Bandaríkjanna í hættu
Boris Johnson, utanríkisráðherra Breta,
er ósáttur við borgarstjóra Lundúna
ERLENT
SKAPTI HALLGRÍMSSON
skapti@mbl.is
MEXÍKÓ
MEXIKÓBORG Á þrettándanum er árlega boðið upp á svokallaða
Konungsköku, Rosca de Reyes, á stóru torgi í miðborginni. Að þessu
sinni er talið að um 250.000 manns hafi komið á Zocalo-torg og
fengið sér bita. Rúmlega 2.000 bakarar komu að verkinu, kakan var
1,44 km löng og vó 9,3 tonn! Að því var gætt nú, í fyrsta skipti, að
hluti kökunnar var sykurlaus svo allir treystu sér til að smakka.
FRAKKLAND
PARÍS Dómstóll hefur úrskurðað að
Bollywood-leikkonan Mallika Sherawat og
franskur eiginmaður hennar verði borin út úr
íbúð sem þau hafa leigt í 16. hverfi . Er þeim
og gert að greiða andvirði 10 milljóna króna í
vangoldna leigu og kostnað. Þau fl uttu inn
1. janúar 2017 og áttu að greiða andvirði
rúmlega 800 þúsund króna á mánuði. Eig-
andinn fékk strax þriðjung af leigugjaldi fyrir
fyrsta mánuðinn en síðan ekki söguna meir.
MALASÍA
KÚALA LÚMPÚR Þráðurinn verður tekinn
upp að nýju við leit að malasísku fl ugvélinni sem
hvarf 8. mars árið 2014 á leið frá Kúala Lúmpúr
til Peking með 239 manns innanborðs. Malasísk
stjórnvöld hafa samið við bandarískt fyrirtæki,
Ocean Infi nity, um að
hefja leit. Fyrirtækið
gæti fengið allt að 70
milljónir dala fyrir
– andvirði liðlega 7
milljarða króna, en
fær þó ekkert greitt
nema vélin fi nnist.
RÚSSLAND
APATITY Drukkinn karlmaður
tók í vikunni traustataki bryn-
varðan bíl í ökuskóla hersins,
nokkurs konar skriðdreka, í
borginni Apatity, í Murmansk-
fylki nyrst í Rússlandi. Ók mað-
urinn af stað, skemmdi nokkra
bíla sem urðu á vegi hans og endaði á því að aka í gegnum rúðu á
framhlið stórmarkaðar – þaðan sem hann stal vínfl ösku. Eina skýr-
ingin á uppátækinu er sú, skv. fréttum, að manninum leiddist.