Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Qupperneq 10
10 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.1. 2018
Í PRÓFÍL
BESTUR Það var Arsene Wenger, nú þjálfari enska
stórliðsins Arsenal, sem fékk George Weah til Evr-
ópu á sínum tíma. Wenger þjálfaði þá Mónakó, tók
drenginn undir sinn verndarvæng og hefur Weah
sagst standa í ævarandi þakkarskuld við sinn gamla
þjálfara. Hápunktinum náði þessi stóri, stæðilegi
framherji 1995 þegar hann varð hlutskarpastur í ár-
legu kjöri á vegum France Football og hlaut Gullbolt-
ann, Ballon d’Or, og þar með titilinn Besti knatt-
spyrnumaður heims það ár, auk þess sem FIFA,
alþjóðaknattspyrnusamandið, valdi hann leikmann
ársins. Fyrri hluta árs lék hann með Paris SG en var
keyptur um sumarið af AC Milan á Ítalíu.
„Ég man þegar Weah kom til Mónakó. Hann virk-
aði umkomulaus enda þekkti hann engan og enginn
mat hann sem leikmann,“ sagði Wenger á dögunum.
„Nú verður hann forseti – það er ótrúleg saga og efni
í góða kvikmynd, en ástæðan er sú sama og á árum
áður: Hann er mjög sterkur andlega og hefur óbil-
andi trú á því að hann eigi erindi.“
Með Gullboltann í janúar 1996; besti knattspyrnumaður
heims í árlegu kjöri blaðamanna á vegum France Football.
AFP
Lífshlaupið er efni
í góða kvikmynd
GEORGE WEAH Nýkjörinn forseti Afríkuríkisins Líberíu, George Weah,
ólst upp í Clara Town, fátækrahverfi í höfuðborginni Monrovíu, en nýtti hæfi-
leikana til fulls og varð einn dáðasti knattspyrnumaður veraldar. George Taw-
lon Manneh Oppong Ousman Weah, eins og hann heitir fullu nafni, er eini Afr-
íkumaðurinn sem hefur hampað Gullboltanum; þegar hann var kjörinn besti
knattspyrnumaður heims, og er að vonum dáður í heimalandinu og raunar álf-
unni allri. Baráttumaðurinn Nelson Mandela, þá forseti Suður-Afríku, kallaði
Weah „stolt Afríku“ þegar hann hlaut Gullboltann. Fljótlega eftir að glæsi-
legum fótboltaferli lauk sneri Weah sér að stjórnmálum og bauð sig fram til
forseta í heimalandinu strax 2005. Laut þá í lægra haldi fyrir hagfræðingnum
Ellen Johnson-Sirleaf, fyrsta lýðræðislega kjörna kvenforseta Afríku.
Því hefur verið haldið fram að skortur á menntun hafi fyrst og fremst verið
Weah fjötur um fót í forsetakosningunum 2005, einkum og sér í lagi hafi stjórn-
málaelíta landsins verið honum andsnúin. Þegar þarna var
komið sögu dreif hann sig í nám; lauk því sem líkja má við
stúdentspróf fertugur að aldri og nam síðan viðskiptafræði og
stjórnun við DeVry-háskólann í Flórída. Weah er nú 51 árs.
Sirleaf lætur af embætti síðar í mánuðinum, eftir tvö kjör-
tímabil í embætti, þegar Weah tekur formlega við. Mótfram-
bjóðandi hans að þessu sinni var Joseph Boakai, núverandi
varaforseti, en Weah sigraði örugglega – fékk 61,5% atkvæða
og meirihluta í 14 sýslum af 15.
Sumir efast um hæfni Weahs á forsetastóli í þessu tæplega
5 milljóna manna ríki á vesturströnd álfunnar. Fjöldinn virðist
þó búast við miklu, en einn flokksmanna hetjunnar minnti
Weah á að fara ekki fram úr sér. „Herra forseti. Gleymdu ekki
eigin rótum. Við styðjum þig ekki vegna þess að þú ert mynd-
arlegur eða frægur … Sum okkar, að minnsta kosti, flykkja
sér á bak við þig vegna þess að við gerum okkur grein fyrir því
að þú ert sprottinn úr sama jarðvegi og við sjálf.“
Fyrir kosningarnar nú var Weah einkum gagnrýndur fyrir
að velja Jewel Howard Taylor sem varaforsetaefni, en hún er
fyrrverandi eiginkona stríðsherrans og forseta landsins Char-
les Taylors. Hann afplánar nú 50 ára fangelsisdóm í Englandi,
fyrir stríðsglæpi. skapti@mbl.is
Forsetinn
fótafimi
AFP
George Weah og Clar, eiginkona
hans, umkringd öryggisvörðum í
kosningabaráttunni rétt fyrir jól.
AFP
’ Við styðjum þig ekki vegna þessað þú ert myndarlegur eða fræg-ur … Við flykkjum okkur á bak viðþig vegna þess að þú ert sprottinn
úr sama jarðvegi og við sjálf
George Weah með atkvæðaseðil sinn
í forsetakosningunum í desember.
HETJA Ungt fólk var sagt dyggustu
stuðningsmenn Weahs í nýaf-
stöðnum kosningum. „Það lítur á
hann sem Messías okkar tíma,“ var
haft eftir Christopher Wreh,
frænda Weahs, í aðdraganda kosn-
inganna. Aðrir efast þó um hæfni
hans, ekki síst vegna reynsluleysis
en verkefnin eru ærin þótt ástandið
hafi breyst verulega til batnaðar.
Fátækt er enn gríðarleg, í landinu
geisuðu tvær borgarastyrjaldir nær
samfellt frá 1989 til 2003 og er
áætlað að 250.000 manns hafi fallið
í valinn. Fólk þráir breytingar og
vonast til að Weah verði jafn far-
sæll forseti og fótboltamaður.
Unga fólkið
hrífst með
Stytta af Weah í höfuðborginni Monróvíu. Hún var reist árið 1997 en rifin
2007 að skipan Johnson-Sirleaf, sem vann Weah í forsetakosningunum 2005!
AFP
TIL EVRÓPU George Weah kom
til Evrópu sumarið 1988, þegar
þjálfarinn Arsene Wenger fékk
hann til liðs við Mónakó, sem varð
franskur meistari um vorið. Vals-
menn mættu liðinu í 1. umferð
Evrópukeppni Meistaraliða um
haustið, unnu fyrri leikinn í Laug-
ardal 1:0 en töpuðu 2:0 í Mónakó,
þar sem Weah skoraði. Hann tók
ekki þátt í fyrri leiknum. Weah
„fékk boltann á miðjum vellinum
og tók strax á rás að Valsmarkinu.
En í stað þess að brjótast alla leið í
gegn lét hann skot ríða af, af 30 m
færi og hafnaði boltinn í bláhorn-
inu uppi. Ótrúlegt mark,“ skrifaði
Bernharð Valsson, fréttaritari
Morgunblaðsins, á leiknum.
AFP
Glæsimark
gegn Val
Weah í leik með Mónakó í apríl 1992.
Ármúli 7, Reykjavík | Sími 568 0708 | www.fako.is
KLAPPSTÓLL
Koma í 3. litum
4.900 kr.
BEKKUR
120x35, H: 46cm
39.500 kr.
TILBOÐS DAGAR
húsgögn og smávara
30-50%
afsláttur
af vörum sem eru
að hætta í sölu