Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Síða 14
VETTVANGUR
14 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.1. 2018
Nú veit ég ekki hvort þið vitið að það hefurverið frekar rólegt í vinnu hjá mér aðundanförnu. Útaf dottlu. En eitt verk-
efni er þó á minni könnu sem er mér ljúft og
skylt. Annan virkan dag hvers mánaðar er ég
bankabílstjórinn.
Þetta er ekki mikið starf en bæði skemmtilegt
og nauðsynlegt. Það felst í því að skutla mömmu
og móðurbróður mínum í bankann til að borga
reikninga. Í raun er það þó miklu merkilegri at-
höfn.
Ég fer helst ekki í banka enda hef ég ekkert
þangað að sækja. Bankaviðskipti mín fara fram í
tölvu. Því fannst mér eðlilegt að nefna við þau í
nokkrum af fyrstu túrunum að allt þetta væri
hægt að afgreiða í svokölluðum heimabanka. Ég
hefði alveg eins getað verið að tala rússnesku.
Þeim finnst enn pínu óþægilegt að fá ekki stimpil
í bankabókina.
Smám saman sætti ég mig við að þessu yrði
ekki breytt og ákvað að njóta þess frekar að fá
að skutla þeim systkinum þennan spöl og spjalla
svolítið við þau í leiðinni.
Kerfið er alltaf eins. Ég sæki mömmu og sam-
an förum við til Sæma bróður. Mamma sest alltaf
aftur í því Sæmi er tveimur árum eldri. Á þessum
aldri, og í samhengi hlutanna, er það samt nánast
eins og hann hafi verið fyrri tvíburinn. Hann bíð-
ur venjulega á tröppunum, með reikningana í
litlum bláum poka frá Pennanum.
Samræðurnar eru oft svipaðar frá mánuði til
mánaðar. Sæmi þarf að fara yfir með mér hvern-
ig stjórnmálamenn, sama í hvaða flokki þeir eru,
hafi nú farið með allt til helvítis hér á árum áður.
Gengisfellingar og óðaverðbólga var daglegt
brauð hjá þessari kynslóð. Vöruskortur og höft
voru eðlilegt ástand. Á leiðinni upp í Landsbank-
ann í Grafarholti þurfum við líka alltaf að ræða
breytingarnar á borginni, hvernig borgin breytt-
ist, heilbrigðisþjónustuna, ellilífeyri og fleiri hluti
sem ég myndi annars ekki leiða hugann svo oft
að.
Svo taka þau númer í bankanum. Ég brosi í
laumi að starfsmanninum sem reynir alltaf annað
slagið að leiða þau að hraðbanka til að borga
reikningana. Nei kallinn minn, láttu þig dreyma.
Þau vilja gjaldkera og taka númer. Mamma fær
alltaf fyrra númerið, af því Sæmi kann sig, þau
setjast og ég færi þeim kaffi.
Á leiðinni út segir mamma mér alltaf sigri
hrósandi frá því að hún hafi nú átt fyrir þessu
öllu og Sæmi ýtir á græna takkann til að lýsa yfir
ánægju með þjónustuna.
Mér finnst þetta skemmtilegur bíltúr. Ég er til
dæmis yfirleitt langyngsti maðurinn í bankanum
og líður stundum eins og Baby Driver (sem er
mynd um barnungan bílstjóra sem ekur flóttabíl
bankaræningja). Þetta væri þó sennilega lang-
dregnasta bankarán sögunnar og það fyrsta með
ræningjum á mannbroddum.
En fyrir mér er þetta fyrst og fremst gaman
því systkinin eru skemmtilegt fólk. Það er gaman
að vera með þeim og heyra þau tala um gamla
tíma. Þau ólust upp á Tjarnargötunni og hafa séð
miklu meiri breytingar en fólk á mínum aldri
gerir sér líklega grein fyrir. Að hlusta á þau er
þörf áminning um það hve mín kynslóð hefur það
yfirleitt fáránlega gott. Svo er líka gaman að fá
að hlusta á áttatíu ára uppsafnaða góðlega stríðni
þeirra systkina.
Ég geri mér grein fyrir því að allt fram
streymir og allt það og eflaust verða ekki til nein
bankaútibú þegar ég kemst á þeirra aldur. En
mér þætti vænt um ef eitthvað af þessum ótelj-
andi börnum mínum myndi þá kannski nenna að
skutlast eitthvað með mér svona einu sinni í mán-
uði. Ég skal reyna að vera skemmtilegur.
Bankabílstjórinn
Logi Bergmann
logi@mbl.is
Á meðan ég man
’ Ég brosi í laumi að starfsmanninum sem reynir alltaf annað slagiðað leiða þau að hraðbanka til að borga reikningana. Nei kallinnminn, láttu þig dreyma. Þau vilja gjaldkera og taka númer.
Með blóð á lærunum
„Ég er reið við sjálfa mig fyrir það
að það blæðir því ég reyndi eins og
ég gat að slaka á og berjast ekkert á
móti þegar hann var að þessu. Ég
reyndi bara að bíða eftir því að þetta
tæki enda. Ég æli í klósettið og skelf
öll. Mér er rosalega kalt. Ég þarf að
skipta yfir í keppnisbúninginn en
allt liðið mitt er inni í klefa og ég er
með blóð á lærunum og stuttbux-
unum.“
Ein af metoo-frásögnum íþrótta-
kvenna sem birtar voru í vikunni.
Hann fór bara
í döðlur!
„Sem betur fer héldum við
ekki í hann. Það er ekki spurn-
ing að við hefðum farið niður
með honum ef við hefðum
haldið í hann eða verið eitt-
hvað kræktir í hann. … Hann
fór bara í döðlur!“
Magnús Hákonarson, Hjálpar-
sveit skáta Kópavogi, um
heitan pott sem fauk niður af
13. hæð í óveðri á þriðjudag.
Ég skammast mín
„Ég hefði átt að leggja myndavélarnar frá mér og
hætta upptöku þegar ég sá hvað við vorum að upp-
lifa.“ „Ég skammast mín fyrir sjálfan mig.“
YouTube-stjarnan Logan Paul tók myndir af látnum
manni og birti á netinu og í kjölfarið var rás hans á
YouTube lokað og fyrirtæki slitu við hann samningum.
Ekki sambærilegt
„Ég veit ekki hvort vaxtastig hér verði nokkurn
tímann sambærilegt við nágrannalönd á meðan við
rekum hér sjálfstæða peningastefnu.“
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
í samtali við Viðskiptamoggann.
4 milljónir lambarétta á ári
„Ef ég fengi öllu að ráða myndi ég læsa Steinþór Skúlason frá SS, Ágúst
Torfa Hauksson frá Norðlenska, Þórólf Gíslason frá KS og
Eggert Kristófersson frá N1 saman inni í litlu herbergi
og ekki hleypa þeim út fyrr en þeir væru komnir
með raunhæf plön um að selja 4 milljónir
skammta af lambaréttum hið minnsta á ári.“
Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri
IKEA, á fundi með bændum á Hellu um
markaðsmál lambakjöts.
VIKAN SEM LEIÐ
UMMÆLI VIKUNNAR
’Hvers vegna erum við aðhleypa hingað öllu þessufólki frá svona skítalöndum? Donald Trump á fundi í Hvíta húsinu um fólk
frá Haíti, El Salvador og Afríkuríkjum.
Hefur skorað
mest allra
Guðjón Valur sló
heimsmet í vikunni,
hefur skorað fleiri
mörk með landsliði
en nokkur annar
handboltamaður í
veraldarsögunni.
Leiddist ekki
Þótt óveður vik-
unnar hafi angrað
marga fullorðna voru
börnin hæstánægð
með rokið.
Morgunblaðið/RAX
AFP
Morgunblaðið/Eggert
Active Liver stuðlar að eðlilegum efnaskiptum
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
Heilbrigð melting
Innihald:
• Kólín sem stuðlar að:
- eðlilegum fituefnaskiptum
- viðhaldi eðlilegrar
starfsemi lifrarinnar
• Mjólkurþistil ogætiþistil
sem talin eru stuðla að
eðlilegri starfsemi lifrar og galls
• Túrmerik og svartan pipar