Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Síða 20
STJÓRNMÁL
20 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.1. 2018
Winfrey í góðum gír ásamt leikkonunni Juliu
Roberts í spjallþætti sínum árið 2004.
É
g vil að allar stúlkur sem eru að
horfa hér og nú viti að það er nýr
dagur við sjóndeildarhringinn. Og
þegar sá dagur loksins rís verður
það vegna þess að margar stór-
fenglegar konur, sem sumar hverjar eru hér í
salnum í kvöld, og einhverjir magnaðir menn,
eru að berjast af elju fyrir því að verða leiðtog-
arnir sem færa okkur inn í tíma þar sem eng-
inn þarf að segja „Ég líka“ aftur.“
Óhætt er að segja að ræða sjónvarps- og
leikkonunnar Opruh Winfrey, þegar hún tók
við Cecil B. DeMille-viðurkenningunni á Gold-
en Globe-verðlaunahátíðinni í Bandaríkjunum
um liðna helgi, hafi vakið heimsathygli. Við-
staddir héldu vart vatni og um fátt hefur verið
meira rætt undanfarna daga. En var Winfrey
þarna að staðfesta að hún hafi augastað á for-
setaembættinu vestra og er kosningabaráttan
jafnvel hér með hafin?
Margir eru augljóslega á því. Myllumerkin
#Oprahforpresident og #Oprah2020 fóru þeg-
ar á flug. „Í níu mínútna langri ræðu var
@Oprah forsetalegri en núverandi húsbóndi í
Hvíta húsinu hefur verið í heilt ár,“ sagði
Khary Penebaker, sem á sæti í landsnefnd
Demókrataflokksins. „Hún skaut upp eldflaug
í kvöld,“ sagði leikkonan Meryl Streep, sem
var á staðnum. „Ég vil að hún bjóði sig fram til
forseta. Ég held að hún hafi ekki ætlað að lýsa
yfir [framboði] en núna verður ekki aftur snú-
ið.“
Að fara eða ekki fara fram
Fjölmargt fólk tengt Hollywood og skemmt-
anaiðnaðinum hefur tekið í sama streng en
hafa ber í huga að þar er ekki dyggustu aðdá-
endur núverandi forseta, Donalds Trumps, að
finna. Ugglaust yrði Winfrey með obbann af
þessu fólki á bak við sig en hvernig myndi hún
höfða til annars fólks, svo sem venjulegs
launafólks í mið- og suðurríkjum landsins?
Myndi fólk sem kaus Trump síðast til dæmis
heillast af sýn hennar og málflutningi?
Sjálf hefur Winfrey ekki lýst yfir áhuga sín-
um á embættinu í svo mörgum orðum og sagði
þvert á móti við fréttamenn eftir ræðuna að
hún hefði engin áform um að bjóða sig fram.
Það eru raunar ekki ný tíðindi. Daginn eftir
kvaðst sjónvarpsstöðin CNN á hinn bóginn
hafa traustar heimildir fyrir því að Winfrey
væri í fullri alvöru að velta málinu fyrir sér og
The Los Angeles Times vitnaði í sambýlis-
mann hennar, Stedman Graham, máli sínu til
stuðnings. „Það er undir almenningi komið,“ á
hann að hafa sagt.
Besta vinkona Winfrey til áratuga, Gayle
King, sagði við sjónvarpsstöðina CBS í vikunni
að hún héldi ekki að vinkona sín væri að íhuga
framboð en öllum væri frjálst að skipta um
skoðun, líkt og margoft hafi verið prédikað
í sjónvarpsþættinum The Oprah Win-
frey Show.
Annar vinur hennar, Rich-
ard Sher, sagði í vikunni, eftir
að hafa talað við Winfrey, að
öll þessi hlýja og stuðningur hefði hitt
Winfrey í hjartastað en á þessum tímapunkti
væru aðrir, en ekki hún, að tala um framboð.
Hann bætti þó við: „Byði hún sig fram myndi
hún vinna!“
Bent hefur verið á, að Winfrey hafi byggt
ræðu sína á Golden Globe upp eins og stjórn-
málamaður og slagorð kosningabaráttunnar sé
þegar komið: Nýr dagur við sjóndeildar-
hringinn.
Trump er sigurviss
Einsýnt þykir að hin frjálslynda Winfrey
myndi bjóða sig fram fyrir Demókrataflokkinn
en hún studdi bæði Barack Obama og Hillary
Clinton opinberlega í kosningabaráttu þeirra.
Hún yrði því að komast gegnum prófkjör
demókrata áður en hún mætti sitjandi forseta,
Donald Trump. Að því gefnu að hann bjóði
sig fram að nýju 2020 en sem kunnugt
er má forseti Bandaríkjanna mest
sitja í tvö kjörtímabil.
Sjálfur lýsti Trump því yfir í
vikunni að hann kynni vel
við Winfrey en taldi um
leið ólíklegt að hún ætl-
aði að bjóða sig fram til
forseta. En gerði hún það
myndi hann örugglega
fara með sigur af hólmi.
Gaman er í þessu samhengi
að rifja upp að þegar Trump var
að byrja að máta sig við forsetaemb-
ættið, seint á síðustu öld, þá var hann
einu sinni spurður hvort hann gæti hugsað
sér konu sem varaforsetaefni. Það gat hann
svo sannarlega: Opruh!
Ekki þarf að taka fram að Winfrey yrði
fyrsta konan til að gegna embætti forseta
Bandaríkjanna.
Reynsluleysið hefur eðli málsins sam-
kvæmt verið mikið til umræðu í vikunni en
Winfrey hefur aldrei haft beina aðkomu að
stjórnmálum. Í því sambandi hefur verið bent
á, að hún sé afar nákomin Obama-hjónunum
og fyrir vikið gæti hún hæglega haft eitthvað
af starfsliði Baracks Obama með sér í Hvíta
húsið sem myndi umlykja hana meiri
reynslu en Trump hefur kosið.
Og hvað með að bjóða upp á Michelle
Obama sem varaforsetaefni?
Yrði tekin alvarlega
En hvað segja pólitískir ráðgjafar og
stjórnmálaskýrendur um málið?
„Ég hef haft efasemdir um fólk sem
ekki býr að pólitískri reynslu, þar sem
nýlegt dæmi sýnir okkur að við þurf-
um reynda manneskju, en ég held
að hún komist upp með það. Fólki
líkar vel við hana, treystir henni
Snjallt eða
Oprahktískt?
Eftir eldræðuna sem hún hélt á Golden Globe-hátíðinni
um liðna helgi velta menn nú fyrir sér hvort sjónvarps-
konan, leikkonan og viðskiptamógúllinn Oprah Winfrey
ætli að bjóða sig fram til forseta Bandaríkjanna árið 2020.
Ætti hún raunhæfa möguleika á sigri og hefði hún burði
til að gegna embættinu? Og hvað segir þessi pæling um
stöðu stjórnmálanna í Bandaríkjunum?
Orri Páll Ormarsson orri@mbl.is
Spjallþáttadrottningin Ophrah Winfrey bregður á
leik með spjallþáttakónginum David Letterman.
Reuters
Reuters
’Fólk mun taka hana alvar-lega, ekki vegna þess að húner fræg, heldur vegna þess hverhún er – vegna þess að henni
hefur raunverulega gengið vel í
lífinu og hefur lagt sig í líma til
að hjálpa öðru fólki.
AFP
Oprah Winfrey með
viðurkenningu sína á
Golden Globe-hátíðinni.