Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Blaðsíða 26
MATUR Heilmikið rusl verður til af öllum ferðamálskaffibollunum sem seldir eru á kaffihúsum ogumbúðirnar rata ekki alltaf í endurvinnslu. Til að vinna á móti þessu er hægt að takameð eigið endurnýtanlegt kaffimál. Annar möguleiki sem gleymist stundum er að hrein-
lega setjast niður og drekka kaffið í ró og næði. Núvitund í bland við kaffidrykkju.
Drekktu kaffið á staðnum
26 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.1. 2018
GettyImages/iStockphoto
Hvað er
í matinn
í kvöld?
Það getur verið erfitt að koma sér í rútínu
eftir hátíðarnar, bæði þarf að aðlaga bragð-
laukana að venjulegum mat og lífsstílinn
upp á nýtt að vinnu og innkaupaferðum.
Sunnudagsblað Morgunblaðsins leitaði til
margra helstu matarbloggara landsins og
fékk hjá þeim margreyndar uppskriftir að
fljótlegum mat fyrir alla fjölskylduna sem
bragðast líka vel og er kjörið að hafa í
matinn á janúarkvöldi.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Einn uppáhaldshversdagsrétturinn heima
hjá Svövu Gunnarsdóttur sem er með
matarbloggið ljufmeti.com eru þessar
ofnbökuðu kjötbollur.
OFNBAKAÐAR KJÖTBOLLUR
450 g nautahakk
2 egg
½ bolli mjólk
½ bolli rifinn parmesanostur
1 bolli brauðmylsna
1 lítill laukur, hakkaður smátt eða mauk-
aður með töfrasprota
2 pressuð hvítlauksrif
½ tsk. oreganó
1 tsk. salt
nýmalaður pipar
1⁄4 bolli hökkuð fersk basilika eða ½ msk.
þurrkuð
Hrærið eggjum og mjólk saman og setjið
brauðmylsnuna út í. Setjið öll hráefnin
saman í skál og bætið eggjablöndunni
við. Blandið öllu vel saman með hönd-
unum eða með hnoðaranum á hrærivél.
Mótið bollur og raðið á smjörpapp-
írsklædda bökunarplötu. Bakið við 180° í
ca 30 mínútur eða þar til bollurnar eru
eldaðar í gegn og komnar með fallega
húð.
Kjötbollur bakaðar í ofni
Mynd/Ljúfmeti og lekkerheit
Þessi holli fiskréttur, sem er
stútfullur af grænmeti, er
oft á borðum hjá Helenu
Gunnarsdóttur sem er með
eldhusperlur.com. Það er
líka fljótlegt að elda fisk og
þægilegt að elda rétt sem
er allur í sama fatinu eins
og hér. Þennan er hægt að
grilla úti eða setja í ofn.
FISKRÉTTURINN
600 g ýsuflök, roðlaus og
beinlaus
2 laukar, skornir í sneiðar
1 sítróna
3-4 vænar lúkur ferskt spínat
1 askja kirsuberjatómatar
1 lítil krukka fetaostur með
kryddolíu
2-3 msk kapers
sítrónupipar
ólífuolía
½ dl vasn
Spírur til skrauts
Leggið ýsuflökin á olíu-
borinn stálbakka, álbakka
eða þykkan álpappír sem
þolir grillun ef þið ætlið að
grilla fiskinn, hitið annars
ofn í 220 gráður. Ef þið not-
ið álpappír, brjótið þá upp á
kantana og búið til eins
konar bakka. Kryddið flökin
vel með sítrónupipar báð-
um megin. Skerið sítrón-
una í sneiðar og leggið yfir
flökin.
Dreifið lauknum svo yfir,
því næst spínati ásamt tóm-
ötum og kapers og hellið
fetaostinum ásamt mest-
allri olíunni úr krukkunni yf-
ir.
Bakið eða grillið við háan
hita í 15 mínútur eða þar til
fiskurinn er eldaður í gegn.
Dreifið að lokum fersk-
um spírum yfir réttinn og
berið fram.
Uppáhaldsfiskur fjölskyldunnar
Mynd/Eldhúsperlur