Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Page 29
14.1. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 29
Í þessari súpu sameinast svo margt
sem fjölskyldunni hennar Drafnar
Vilhjálmsdóttur, sem segir sögur
úr eldhúsinu á eldhussogur.com,
þykir gott. Svona súpa yljar og er
við hæfi um vetur en á sama tíma
gefur hún bragð af sumri með inni-
haldsefnum sem eru fáanleg allan
ársins hring.
SÚPAN
1 meðalstór laukur, saxaður smátt
2-3 hvítlauksrif, söxuð smátt
180 g grilluð paprika í olíu, söxuð
smátt
2 msk ólífuolía til steikingar
1 msk balsamedik
2 dósir niðursoðnir tómatar, bragð-
bættir með basilíku, hvítlauk og óreg-
anói (ca 400 g dósin)
1 l kjúklingasoð (1 l sjóðandi vatn + 2
msk kjúklingakraftur eða 2 teningar)
2 dl rjómi eða matreiðslurjómi
1 tsk óreganó
1 tsk basilíka
chilikrydd eða -flögur
salt og pipar
250 g tortellini
120 g ferskur mozzarella, skorinn í
litla bita
Ólífuolía hituð í stórum potti.
Laukur, hvítlaukur og grilluð papr-
ika steikt við meðalhita í 3-4 mín-
útur þar til mjúkt. Þá er balsam-
ediki, niðursoðnum tómötum,
kjúklingasoði og rjóma bætt út í
ásamt kryddi. Þegar súpan nær
suðu er tortellini bætt út í og látið
malla þar til það er passlega soðið.
Undir lokin er nokkrum smátt söx-
uðum basilíkulaufum bætt út í og
súpan smökkuð til með kryddi eft-
ir þörfum. Súpan er borin fram
með ferskum mozzarella og basil-
olíu.
BASILOLÍA
30 g fersk basilíka
½ dl ólífuolía
salt og pipar
Afgangurinn af fersku basilíkunni
er maukaður saman við ólífuolíu í
matvinnsluvél eða með töfra-
sprota, smakkað til með salti og
pipar.
Tómatsúpa með tortellini
og mozzarella
Mynd/Eldhússögur
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
Eldhússystirin Kristín Snorradótt-
ir gefur þessa uppskrift að ódýr-
um, góðum og barnvænum græn-
metisrétti en hún er með
matarbloggið eldhussystur.com
ásamt systur sinni eins og nafnið
gefur til kynna.
TAKÓPÆ
BÖKUBOTN
3 dl hveiti
125 g kalt smjör, í bitum
2-3 msk kalt vatn
FYLLING
1,5 dl rauðar linsur (puylinsur eða
belugalinsur ganga einnig)
1,5 poki takókrydd (eða 1 poki og
grænmetisteningur)
1 gulur laukur
1 lítil dós maís
1 dl tómatar í dós
1 dl sýrður rjómi
1 dl mjólk
3 egg
svartur pipar
3 dl rifinn ostur, t.d. cheddar.
Setjið hveiti og smjör í mat-
vinnsluvél. Vinnið þar til orðið að
mylsnu. Bætið vatni út í þar til
mulningurinn er orðinn að deigi.
Setjið í bökuform og þrýstið deig-
inu út í formið. Kælið í ca 30 mín.
Setjið ofninn á 200°C.
Sjóðið baunirnar í vatni í 20
mínútur (eða skv. leiðbeiningum á
pakkningum).
Skerið laukinn smátt. Hitið olíu
á pönnu. Brúnið laukinn. Stráið
takókryddinu yfir og jafnvel örlít-
illi olíu í viðbót til að leyfa krydd-
inu að malla aðeins á pönnunni.
Bætið baunum, maís og tómötum
út í og hrærið.
Þeytið sama sýrðum rjóma,
mjólk, eggjum og svörtum pipar í
skál. Setjið linsuhræruna út í og
hrærið vel.
Bakið bökudeigið í 10 mínútur.
Setjið fyllinguna út í skelina að því
loknu og stráið rifnum osti yfir.
Bakið í ca 30 mín eða þar til fyll-
ingin er orðin föst.
Hún bar bökuna fram með sal-
ati, sósu (gerð úr takósósu og
sýrðum rjóma) og flögum.
Barnvænn grænmetisréttur
Mynd/Eldhússystur
natið á að þiðna alveg í pottinum
og losna í sundur.
Afhýðið sætu kartöflurnar og
skerið í þunnar sneiðar.
Setjið í eldfast form með la-
sagne-plötum og sætu kartöflun-
um á milli. Dreifið kókosmjöli og
rifnum osti yfir og bakið í um 40
mín. á 150°C
Lasagna sem er auðvelt
að gera vegan
Albert Eiríksson sem rekur alber-
teldar.com segir að fyrsti mat-
urinn sem hafi verið eldaður á
heimilinu eftir að stórhátíðarofát-
inu lauk hafi verið þetta spínat-
lasagna. Hann segir að auðvelt sé
að breyta réttinum í vegan-rétt
með því að sleppa ostinum ofan á
og hafa einungis kókosmjöl.
Hann er uppfullur af góðum
ráðum og segir að með þessu spí-
nat-lasagna sé upplagt að bera
fram gott salat. Einnig sé gott að
setja hvítlauks- eða chili-olíu yfir
áður en formið er sett á borðið.
SPÍNATLASAGNA
1 bolli góð matarolía
1 stór laukur
4-5 hvítlauksgeirar
500 g kartöflur
3-400 g sætar kartöflur
600 g frosið spínat
1½ msk. cummin
1 tsk. múskat
1 tsk. kóríander
salt og pipar
smá chili
lasagna-plötur
kókosmjöl
rifinn ostur
Sjóðið kartöflurnar en kælið þær
ekki. Saxið laukinn og steikið í ol-
íunni ásamt hvítlauk. Setjið frosið
spínat saman við. Grófmerjið
kartöflurnar og látið út í. Kryddið
með múskati, cummin, salti, pip-
ar, chili og blandið vel saman. Spí-
Mynd/Albert eldar