Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Page 35
14.1. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35
Síðumúla 22 | Sími 517 0404 | serefni.is
Opið: 8-18 virka daga 10-14 á laugardögum
Svansvottuð
betra fyrir umhverfið, betra fyrir þig
Almött veggjamálning
Dýpri litir - dásamleg áferð
Pressed Petal
Heart Wood
ColourFutures2018
módernískan arkitektúr ætti að
kunna vel við sig þarna, svo ekki sé
talað um áhugafólk um leturgerðir.
Margt fyrir augað í Miami.
Eftir tvo góða daga var haldið í
rúmlega fjögurra tíma akstur upp til
St. Petersburg. Skilin þar á milli eru
ansi skörp. Á meðan Scarface var
staðsett í Miami var St. Petersburg
sögusvið Marley and Me! Treasure
Island Beach Resort var áfangastað-
urinn og ber víst nafnið vegna fjár-
sjóðs sem fannst á eyjunni skömmu
eftir að landið var numið af Evrópu-
búum. St. Petersburg er rólegur og
fjölskylduvænn staður með einstakri
strönd þar sem pelíkanar dýfðu sér í
sjóinn í seilingarfjarlægð og höfr-
ungatorfur léku sér skammt frá.
Dali-safnið stóð fyrir sínu og það var
mikil upplifun að vera í námunda við
listaverk sem maður hefur oft virt
fyrir sér í bókum. Bæði er það áferð-
in og smáatriðin sem skila sér ekki á
myndum en safnið stendur sig líka
vel í að miðla upplýsingum og sög-
unum í kringum verkin. Frábær
staður sem óhætt er að mæla með.
Miðstöð afþreyingarinnar
Orlando var næst á dagskrá. Borgin
byggðist upp í kringum afþreyingar-
iðnaðinn á svæðinu og er í raun lítið
fyrir augað en maður er svosem lítið
að velta því fyrir sér á sundlaug-
arbakkanum eða í skemmtigörð-
unum. Úr varð að fara í Legoland,
Universal og Disney World. Yngri
börnin nutu sín best í Legolandi þar
sem voru engar biðraðir og öll tækin
á þeirra færi að fara í. Universal-
garðurinn og City Walk-kjarninn
höfðaði mest til unglingsins og hefur
meira að bjóða fyrir þá eldri. Disney
hefur tekið við Star Wars-vörumerk-
inu sem setti svip sinn á Hollywood
Studios-garðinn og höfðar að sjálf-
sögðu til nánast allra sem eru fæddir
eftir 1970. Fyrirtækið er svo að þróa
sérstakan Star Wars-garð sem verð-
ur opnaður 2019 og er beðið með mik-
illi eftirvæntingu. Fólk ætti ekki að
vanmeta stærðina á þessum görðum,
Disney World sérstaklega, en þar er
hægt að skipuleggja sig fram í tímann
með því að panta forgang í biðrað-
irnar alræmdu sem enginn vill eyða
of miklum tíma í. Þá er hægt að vera
á hótelum við svæðið, sem er nokkuð
þægilegt. Við vorum á Lake Buena
Vista þaðan sem er örstutt í garðinn
en hótelherbergin í Bandaríkjunum
eru gjarnan rúmgóðar og vel búnar
íbúðir. Afþreyingarfyrirtækin eru
flest með eigin hótel sem eru misdýr
en sum eru mjög vel heppnuð og á
viðráðanlegu verði. Universal-hótelið
Cabana Bay er gert í anda mótela
sjöttu og sjöundu áratuganna þar
sem hugsað er fyrir öllum smá-
atriðum, mjög skemmtilegt.
Með skömmum fyrirvara þurftum
við að breyta áætlunum okkar og
pöntuðum fjögurra stjörnu hótel nafn-
laust og samdægurs í gegnum vefinn
hotwire.com þar sem er hægt að gera
glettilega góð kaup. Gamall draumur
rættist svo þegar við fórum á leik Or-
lando Magic og Miami Heat í Amway
Center. Ég er af þeirri kynslóð sem
lifði sig inn í NBA-æðið sem sem gekk
yfir þegar Michael Jordan var upp á
sitt besta. Seinna missti maður þráð-
inn og nennti ekki að vaka yfir útsend-
ingum með alltof mörgum auglýsinga-
hléum. Þess vegna kom það á óvart
hversu hratt tíminn á leið á leiknum og
maður tók lítið eftir leikhléunum enda
eru Bandaríkjamenn fremstir allra
þegar kemur að því að drepa tíma.
Leikirnir eru mikil fjölskylduskemmt-
un en þar er einnig hægt að kaupa
bjór og úrval af mat. Manni varð hugs-
að til þess hversu erfitt hefur reynst að
breyta regluverkinu og menningunni í
kringum íþróttaleiki á Íslandi.
Hringnum lokað
Eftir þétta dagskrá í Orlando var
haldið að nýju niður til Miami, þaðan
sem flogið var heim. Á leiðinni
stoppuðum við í Palm Beach, í
dýragarði borgarinnar sem hýsir
dýr sem hefur verið bjargað úr
haldi eða geta ekki bjargað sér í
náttúrunni, sem var upplifun fyrir
krakkana en ennþá var verið að
tjasla garðinum eftir útreiðina sem
hann fékk hjá fellibylnum Irmu.
Matarmenningin í Bandaríkjunum
er náttúrlega kafli út af fyrir sig en
með því að versla í búðum á borð
við Whole Foods og panta sjáv-
arrétti á veitingastöðum er hægt að
sneiða hjá því að borða yfir sig af
skyndibitafæði. Í Miami fórum við á
langbesta veitingastað ferðarinnar
sem var Jaya á Setai-lúxushótelinu.
Túnfiskurinn þar gleymist seint. Þá
stóðumst við ekki mátið og fórum á
annan NBA-leik en það var mun
ódýrara að fara á leik þar en í Or-
lando.
Eftir afar viðburðaríkar vikur
var svo haldið aftur til Íslands með
nóg af D-vítamíni í kroppnum til að
takast á við skammdegið sem beið
heima.
Þessi spaka önd var daglegur gestur í sundlaugagarðinum á Cabana-bay-
hótelinu þar sem útlit og hönnun eru í anda sjötta og sjöunda áratugarins.
NBA-leikirnir eru góð fjölskylduskemmtun og þar kynnist maður skemmtilegri
hlið á bandarískum kúltúr, engar bullur þar.
Frost-safnið í Miami er að mörgu
leyti vel heppnað og þar blandast
saman fræðsla um vísindi og náttúru.
’Matarmenningin íBandaríkjunum ernáttúrlega kafli út af fyrirsig en með því að versla í
búðum á borð við Whole
Foods og panta sjávar-
rétti á veitingastöðum er
hægt að sneiða hjá því að
borða yfir sig af skyndi-
bitafæði.
Séð yfir ströndina í St. Petersburg sem snýr
að lygnum Mexíkó-flóanum en hún þykir ein
besta baðströndin í Bandaríkjunum.