Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Page 41
14.1. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 41
Síðasta sýningarhelgi
sýningar Úlfs Karls-
sonar, Við girðinguna,
er í Listasafni Reykjanes-
bæjar í dag og á
morgun. Opið er
milli kl. 12 og 17.
Verk Úlfs eru lit-
ríkar og átaka-
miklar hugleið-
ingar um mannlífið
í abstrakt-
expressjónískum
anda.
Upptaka af rómaðri sviðsetningu
Breska þjóðleikhússins á Stephen
Sondheim-söngleiknum Follies í
leikstjórn Dominics Cookes verður
sýnd í Bíó Paradís í kvöld, laugar-
dagskvöld, og annað kvöld kl. 20.
Meðal 37 leikara er Imelda Staunton.
Saxófónleikarinn Tumi Árnason og
trommuleikarinn Magnús Trygvason
Eliassen hittast í Mengi í kvöld,
laugardagskvöld, kl. 21 og leika ýms-
ar missmíðaðar og jafnvel ósmíð-
aðar tónsmíðar. Húsið er opnað kl.
20:30 og miðaverð 2.000 krónur.
Huginn Þór Arason spjallar við
gesti um verk sín á sýningunni Raf-
magn í Kling & Bang á morgun,
sunnudag, kl. 15. Einnig geta gestir
gengið um sýningu Minu Tomic og
Kobi Suissa, 1SINQ2EXIST, á loka-
degi sýninganna. Aðgangur ókeypis.
Sýningin Myrkraverk verðuropnuð í Vestursal Kjarvalsa-staða í dag, laugardag,
klukkan 16. Á henni gefur að líta
verk sex íslenskra listamanna, lífs
og liðinna, þeirra Alfreðs Flóka
(1938-1987), Ástu Sigurðardóttur
(1930-1971), Jóhönnu Bogadóttur
(1944), Kristins Péturssonar (1896-
1981), Siggu Bjargar Sigurð-
ardóttur (1977) og Sigurðar
Ámundasonar (1986).
Sýningunni Myrkraverk er í til-
kynningu lýst sem samansafni
verka eftir listamenn sem eigi sam-
eiginlegt að hafa sótt sér innblástur
úr þjóðsögum og skáldskap eða
skapað sinn eigin huliðsheim tákna
og mynda.
Markús Þór Andrésson er sýn-
ingarstjóri Myrkraverka og er
spurður að því hvernig hugmyndin
að sýningunni hafi kviknað.
„Það má kannski segja að hún
eigi rætur að rekja til áhuga míns á
Kristni Péturssyni og verkunum
hans. Ég vann sýningu með honum
fyrir mörgum árum í Hveragerði
og þar voru ákveðin verk, þessi
grafíkverk hans frá fjórða áratugn-
um sem ég hafði áhuga á að gera
eitthvað með. Svo þegar ég sá þau
öll í einum bunka var þarna komin
hugmynd að sýningu þannig að við
ákváðum að skeyta við hann og
nokkrum fleiri pælingum sem
höfðu verið að gerjast með okkur,“
svarar Markús. Meðal þeirra pæl-
inga var að sýna verk eftir Ástu
Sigurðardóttur sem var og er mun
þekktari fyrir framlag sitt til bók-
mennta en myndlistar. Markús
nefnir líka Jóhönnu Bogadóttur.
„Þetta eru listamenn sem maður
hefur verið forvitinn um en ekki
fundið neinn sérstakan farveg en
svo bara einhvern veginn komu
þarna nokkrar hugmyndir heim og
saman í einni, verk sem sækja í ein-
hverja huliðsheima en eru í og með
að fjalla um lífið og tilveruna með
súrreal hætti.“
Öll verkin unnin á pappír
– Gekk vel að finna verk á sýn-
inguna?
„Já, já, það var lítið mál. Allar
kynslóðir eru sýknt og heilagt að
fjalla um tilveruna með þessum
hætti, í gegnum frásagnarheim og
jafnvel með einhvers konar heldur
myrkum hætti. Við hérna í Lista-
safni Reykjavíkur erum með rosa-
lega mikið safn verka eftir Alfreð
Flóka þannig að það lá við að vinna
með það. Verk Jóhönnu Boga eru
líka í safneigninni og hún er ein af
þessum listamönnum sem eiga fullt
af verkum sem hafa aldrei komist
fyrir almenningssjónir,“ segir
Markús.
– Sýningartitillinn vísar bæði til
efnis og innihalds, ekki satt?
„Já, einmitt. Þau eru öll unnin á
pappír þannig að þetta er að mörgu
leyti svartlist eða grafíklist eða
verk sem eru teiknuð. Það er orða-
leikur með það og svo er það árs-
tíminn, myrkrið og dulúðin sem er
allt í kringum okkur,“ segir Mark-
ús. Spurður að því hvort hann eigi
von á því að eitthvað komi gestum
á óvart á sýningunni nefnir Markús
að eflaust muni verk Ástu koma á
óvart þar sem margir þekki ekki
hennar myndlist. „Og ég held að
fólk muni líka reka upp stór augu
þegar það sér verk Kristins Péturs-
sonar, þau eru einsdæmi í íslenskri
listasögu.“
Markús Þór Andrésson sýningarstjóri á sýningunni Myrkraverk.
Morgunblaðið/Hanna
Fólk mun reka
upp stór augu
Myrkur, dulúð og huliðsheimar einkenna
samsýninguna Myrkraverk á Kjarvalsstöðum.
Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is
MÆLT MEÐ
Tjarnargötu 2 | 230 Reykjanesbæ | Sími 421 3377 | bustod@bustod.is | www.bustod.is
fyrir heimilið
Zijlstra gólflampi
Hægt að stilla lengd og hæð
Verð 67.400 kr.
Fallegar vörur
Síðasta sýningarhelgin á stór-
merkri sýningu Guðmundar
Ingólfssonar í Þjóðminjasafni
Íslands er um helgina. Hún veitir
yfirlit um hálfrar aldar ljósmynd-
araferil Guðmundar, sem einn
fremsti ljósmyndari landsins.