Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Side 42

Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Side 42
Í fyrstu gerð Vögguvísu haustið 1849 hét stúlkubarnið Guðrún, sem Jón svo breytti í Sigrúnu eins og sést í þessu handriti hans. Þessi mynd hefur aldrei birst áður og textinn birtist fyrst í útgáfu Más á Pilti og stúlku sem hér er fjallað um. Gjarnan er talað um Pilt ogstúlku eftir Jón Thoroddsensem fyrstu íslensku nútíma- skáldsöguna. Hún kom fyrst út 1850, aftur sautján árum síðar endur- skoðuð og aukin af hendi Jóns, og margoft hefur bókin verið gefið út síðan. Hefur þá jafnan verið stuðst við endurskoðuðu og auknu útgáfuna frá 1867 en í tilefni þess að 200 ár eru frá fæðingu og 150 ár frá andláti höf- undarins hefur upprunaleg útgáfa sögunnar nú verið endurprentuð. „Sagan er skrifað eins og nútíma- skáldsögur voru á þessum tíma í út- löndum; til dæmis í Danmörku, Þýskalandi og Frakklandi. Jón endurskoðar söguna 17 árum seinna og bætir við, að því er virðist að beiðni einhverra vina og lesenda. Kaflarnir tveir sem hann bætir þá við eru ærslalegri, meira „skrípó“ þó vissulega örli á slíku í fyrri útgáfunni, til dæmis í lýsingunni á Bárði, en við- bótin er miklu meira í þá átt,“ segir Már Jónsson, afkomandi Jóns, sem hefur veg og vanda af útgáfunni en Sæmundur gefur út. Svo því sé hald- ið nákvæmlega til haga er Már son- ardótturdóttursonur Jóns. Sú fræga persóna, Gróa á Leiti, er öll á sínum stað í upprunalegu útgáf- unni sem nú birtist, segir Már. „Hér er sagt lauslega frá brúðkaupi Indr- iða og Sigríðar, en í útgáfunni frá 1867 er heilmikil viðbót um Bárð á Búrfelli og Guðmund; í þeirri fyrstu er um það bil helmingur af því sem er um Bárð í seinni útgáfum en stór- fenglegu lýsingarnar á skemmunni og matnum eru allar í fyrstu útgáf- unni,“ segir Már. Viðeigandi að breyta til Útgáfan með viðbótunum hefur verið notuð alla tíð þar til nú sem fyrr seg- ir; Skúli sonur Jóns gaf hana til dæmis út á Ísafirði 30 árum eftir að hún kom fyrst út. „Það var ríkjandi stefna í útgáfu að fylgja ætti þeim texta sem höfundur gekk frá síðast. Sagan var gefin út reglulega og þess- ar bækur voru til á hverju heimili. Mér fannst hins vegar viðeigandi, í tilefni af því að Jón hefði orðið 200 ára í ár, og 150 eru síðan hann dó, að gera eitthvað nýtt og ferskara. Ekki halda áfram í sama farvegi enda greinilegt að margir af samtíð- armönnum Jóns, til dæmis Benedikt Gröndal, voru ekki hrifnir af viðbót- unum. Þýðingar sem komu út á dönsku, ensku og þýsku um 1880 eða ’90 fylgdu til dæmis allar fyrri útgáf- unni; mönnum fannst hitt of ýkju- kennt og Jón fara yfir strikið.“ Til er reikningur frá prentaranum og því vitað með vissu hvenær bókin kom fyrst út, en handrit Jóns er ekki til. „Hann hefur sjálfsagt hent því,“ segir Már. „Það er heppilegt að hann borgaði ekki allan kostnað; þess vegna sendi prentarinn reikning í dánarbúið þar sem sést að bókin kom út í 500 eintökum og var prentuð í apríl 1850. Eftir það dreif Jón sig heim til Íslands með einhvern hluta af upplaginu, sem hann hefur fengið frá prentaranum án þess að borga en sendi síðan peninga út fyrir því og fékk restina af bókunum, en borgaði aldrei meira.“ Már skrifar langan og ítarlegan inngang að bókinni. „Mig langaði að útskýra líf hans og bókmenntalega samhengið; hvaða rithöfundar voru í fremstu röð á þessum tíma og hvað var í gangi í Danmörku en þá kom út Piltur og stúlka, þau upprunalegu Piltur og stúlka Jóns Thoroddsen er jafnan talin fyrsta íslenska nútímaskáld- sagan. Upphafleg útgáfa hefur nú verið prentuð á ný, í fyrsta sinn síðan 1850. Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Már Jónsson, sem hafði umsjón með útgáfunni, er sonardótturdóttursonur rithöfundarins, Jóns Thoroddsen. Teikning af Jóni Thoroddsen eftir Helga Sigurðsson sem birt er í bók- inni. Þeir voru samtíða í Kaupmanna- höfn, þar sem Helgi lagði stund á læknisfræði, dráttlist og ljósmyndun, frá hausti 1841 til vors 1846. Eigandi myndarinnar er Listasafn Íslands. Ljósmynd/Handritadeild Landsbókasafns-Háskólabókasafns. 42 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.1. 2018 LESBÓK Ævisaga Stalíns eftir rússneska sagnfræðinginn og sjónvarpsmanninn Edvard Radzinskij þykir hin merkasta af öllum þeim fjölda ævisagna sem komið hafa út um hinn goðumlíka harðstjóra, segir í tilkynningu frá bókaútgáfunni Sæmundi. Þar kemur fram að bókin sé í senn afrakstur eig- in reynslu höfundar og áratuga rannsókna sem dregið hafi fram í dagsljósið ýmis áður óþekkt at- riði sögunnar, til dæmis samspil Stalíns og keis- arastjórnarinnar á árunum fyrir byltinguna. Stalín – ævi og aldurtili Heildstæðustu heimildir um norræna goða- fræði koma úr Snorra-Eddu sem Snorri Sturluson er talinn hafa ritað á fyrri hluta 13. aldar. Í bókinni Guðum og vættum úr Snorra-Eddu, sem er ríkulega mynd- skreytt, eru dregin fram mikilvægustu at- riði um heimsmynd heiðinna norrænna manna, að því er segir á bókarkápu. Ný- höfn getur út. Hilmar Örn Hilmarsson alls- herjargoði skrifar formála. Guðir og vættir úr Snorra-Eddu Njósnarinn er nýleg skáldsaga brasilíska rithöf- undarins Paolo Coelho. Þar segir af Mata Hari, sem kom til Parísar allslaus en var fljótlega lof- sungin sem helsta glæsikvendi borgarinnar, eins og segir í kynningu JPV. Hún var dansmær sem hneykslaði og heillaði áhorfendur, gjálífiskona sem átti trúnað valdamestu manna samtímans. Hér er saga hennar sögð; „ógleymanleg saga af konu sem þorði að brjóta siðalögmál samtíma síns og þurfti að gjalda fyrir það.“ Coelho og Mata Hari Í bókinni Etna og Enok fara í sveitina gefst börnum tækifæri til að kynnast ævintýrum ís- lensku sveitarinnar, segir á kápu. Systkinin keyra ásamt foreldrum sínum sjö fjallvegi á leið frá Reykjavík til Tálknafjarðar þar sem þau heimskæja afa og ömmu. Börnin fara á hestbak, tína aðalbláber, reka kindur og mjólka kýrnar svo dæmi séu nefnd. Höfundur texta er Sigríður Etna Marinósdóttir og Freydís Krist- jánsdóttir málar myndirnar, sem eru margar. Börn kynnast íslenskri sveit LEYNIVOPN ÞJÓÐARINNAR * Til að DHA skili jákvæðum áhrifum þarf að neyta 250 mg á dag. OMEGA-3 FYRIR SJÓN OG AUGU Omega-3 augu er ný vara frá Lýsi sem er einkumætlað að viðhalda eðlilegri sjón. Omega-3 augu inniheldur lútein, zeaxanþín og bláberjaþykkni. Ásamt omega-3 fitusýrunni DHA*, sinki og ríblóflavíni (B2 vítamín) sem stuðla að viðhaldi eðlilegrar sjónar. Fæst í öllum helstu apótekum landsins.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.