Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Síða 43
gífurlega mikið af þýðingum; Danir
fengu viðstöðulaust og jafnóðum þýð-
ingar á verkum allra stóru höfund-
anna. Ég veit ekki hvað Jón las en
ákveðin nöfn koma fyrir í bréfum
hans þannig að hægt er að velta því
fyrir sér en vonlaust að fullyrða hvort
hann hafi orðið fyrir áhrifum frá ein-
hverjum sérstökum höfundum.“
Kvæðin næst?
Már segist lengi hafa unnið að verk-
efnum tengdum Jóni forföður sínum
og gaf til dæmis út bréf hans fyrir
tveimur árum. „Það var heilmikil
vinna að gefa út bréfin; að ná saman
öllum tiltækum bréfum frá honum og
til hans. Þau komu út haustið 2016,
ég vildi ekki láta þau bíða til 2018 og
yrði að gera eitthvað annað á afmæl-
isárinu.“
Hann velti því fyrir sér á sínum
tíma að skrifa sögu þessa forföður
síns en ekki virtist áhugi á að gefa
hana út, eins og Már orðar það, svo
hann lagði ekki í það verk. „Mér
fannst þetta því það snjallasta sem
væri hægt að gera án of mikillar
vinnu. Næst væri gaman að gefa út
öll kvæðin hans; þau hafa ekki komið
út í 100 ár. Í bókinni eru þrjú af
þekktustu kvæðum Jóns en ekki væri
vanþörf á að gefa þau öll út.“
Inngangurinn ítarlegi byggist að
miklu leyti á vinnu Jóns í tengslum
við bréfasafnið, og grein sem hann
birti í Sögu, tímariti Sögufélagsins.
Piltur og stúlka, dálítil frásaga
(eins og Jón nefndi söguna) er uppi-
staðan í bókinni en í viðauka birtir
Már smásögu Jóns frá 1848 sem
nefnist Dálítil ferðasaga, upphaf
skáldsögu sem Jón byrjaði á 1854 en
lauk ekki við og loks eldri gerð
tveggja kvæða Jóns; Vísur: Búðar í
loptið hún Gunna upp gjekk ... og
Vögguljóð: Ljóshærð og litfríð ...
Már nefnir að Steingrímur J. Þor-
steinsson gaf út heildarverk Jóns
Thoroddsen 1942, útgáfuna með við-
bótunum, „og síðan stórfenglega
doktorsritgerð 1943; hann fann þetta
óprentaða sögubrot sem ég birti í
bókinni, en ég sný Steingrími á haus,
ef svo má segja. Hef þann texta eins
og Jón skrifaði hann upphaflega og
birti breytingar sem hann gerði;
þannig er að hægt að sjá hvernig
hann vann verkið, sem mér finnst
spennandi.“
Jón Thoroddsen, sýslu-
maður og rithöfundur
’
Kaflarnir tveir sem hann bætir
þá við eru ærslalegri, meira
„skrípó“ þó vissulega örli á slíku í
fyrri útgáfunni, til dæmis í lýsing-
unni á Bárði, en viðbótin er miklu
meira í þá átt.
14.1. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 43
Ég er alltaf með tvær bækur í gangi
í einu því aðra les ég í rúminu á
kvöldin en hina er ég með í ipod og
hlusta á þegar tími gefst. Nú er ég
nýbúin með tvær; annars vegar bók
Johns Furlongs um Ól-
ympíuleikana í Vancou-
ver 2010, Patriot Heart,
en John var fram-
kvæmdastjóri leikanna
og þar með yfirmaður
minn því ég vann þar í
tvö ár. Þetta var gífurlega áhuga-
verð lesning og ótrúlega margt sem
ég vissi ekkert um en það var líka
dásamlegt að rifja upp þennan frá-
bæra tíma. Ég var líka að klára nýju
Dan Brown-bókina,
Origin. Týpísk Dan
Brown, ekkert stórvirki
en mjög skemmtileg.
Fékk mig til að hugsa
um trú og vísindi og
hvað það er sem bíður
mannkynsins. Ég er svo tiltölulega
nýbyrjuð að lesa bók Jakobs Þórs
Kristjánssonar
Mamma, ég er á lífi en
hún fjallar um Vestur-
Íslendinga í fyrri
heimsstyrjöldinni.
Virkilega góð bók og
nauðsynleg öllum þeim
sem hafa áhuga á vesturferðunum
svo og þeim sem hafa áhuga á stríði.
Ég fell í fyrri hópinn, hef áhuga á
öllu vesturíslensku, og þarna kynn-
ist ég hlið sem ég þekkti ekki.
Kristín M.
Jóhannsdóttir
Höfundur er lektor við kennaradeild
Háskólans á Akureyri.
1
Kiddi klaufi Þín eigin
dagbók
Jeff Kinney
2 Dagbók Kidda klaufa 9Jeff Kinney
3 Leyndarmál Lindu 4Rachel Renee Russell
4 Gagn og gamanHelgi Elíasson/Ísak Jónsson
5
Handbók fyrir ofurhetjur
Fyrsta bók
Elias & Agnes Vahlund
6
Skrifum og þurrkum út
– Skrifum stafina
Jessica Greenwell
7
Mig langar svo í krakkakjöt
Sylviane Donnio og Dorot-
hée de Monfreid
8
Undir heillastjörnu
Stefanía Ólafsdóttir /
Íris Auður Jónsdóttir
myndskreytti
9 Tvíburar - Sturlun í stórborgGeoff Rodkey
10 Allir eru með rassAnna Fiske
Barnabækur
1
Ný tölfræði fyrir
framhaldsskóla
Björn Einar Árnason
2 Sigraðu sjálfan þigIngvar Jónsson
3
Almanak Háskóla
íslands 2018
Þorsteinn Sæmundss/Gunn-
laugur Björnss/Jón Árni
4 Skáld skrifa þérÝmsir höfundar
5
Þættir úr sögu vestrænnar
menningar frá 1848
Guðmundur J. Guðmunds-
son/ Ragnar Sigurðsson
6 Tungutak - MálsagaÁsdís Arnalds
7 Danskur málfræðilykillHrefna Arnalds
8 Félagsfræði 2Garðar Gíslason
9 Glimt-danskar smásögurÝmsir höfundar
10 Bætt melting betra lífMichael Mosley
Allar bækur
BÓKSALA 3.-9. JANÚAR
Listinn er tekinn saman af Eymundsson
ÉG ER
AÐ LESA
Danskur lakkrís
með súkkulaði
og lakkrískurli