Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Qupperneq 44
Stórar hljómsveitir hafa yfirleittátt auðveldara með að trekkjaáhorfendur að en einstaka
listamenn. Þá eru margar tónlistar-
hátíðir þar sem fjöldi listamanna
treður upp vel sóttar eins og Wood-
stock þar sem 400.000 manns létu
sjá sig. En hvaða einstöku listamenn
eru það sem fá flesta til að koma og
sjá sig og bara sig gegn greiðslu?
● Þegar Tina Turner kom fram 16.
janúar árið 1988 í Rio de Janeiro
hafði enginn einstakur listamaður
sungið fyrir svo stóran áheyrenda-
hóp í einu en þá stóð Turner frammi
fyrir 182.000 manns. Þetta met hef-
ur rétt rúmlega verið slegið en ótrú-
legt en satt þá er metið í dag alls
ekki langt umfram þessa tölu og að-
eins tveir listamenn hafa spilað fyrir
fleiri áhorfendur en hún á heilum 30
árum.
Tónleikarnir voru hluti af
„Brjóttu allar reglur“-tónleikatúr
Tinu sem var styrktur af Pepsi-Cola.
Hún sló aðsóknarmet í 13 löndum
þar sem fjórar milljónir manna allt í
allt sáu hana. Turner sagði að þetta
yrði sitt síðasta tónleikaferðalag og
skrifa sumir aðsóknina á það, þar
sem fólk hélt að það fengi kannski
ekki fleiri tækifæri til að sjá hana á
sviði. En annað átti eftir að koma á
daginn.
● Paul McCartney sló met Turner
tveimur árum síðar, naumlega, náði
184.000 áhorfendum á sama tón-
leikastað í Rio de Janeiro og Tina
Turner hafði spilað á. Eftirspurnin
eftir honum var mikil en þetta var
fyrsta tónleikaferðalagið sem var
einungis undir hans nafni. McCart-
ney hafði vissulega haldið marga
tónleika en hann hafði ekki spilað
Bítlalög á þeim um langan tíma en á
tónleikaferðalaginu flutti hann þó
nokkur Bítlalög fyrir aðdáendur
sína.
● Núverandi heimsmethafann þekk-
ir varla nokkur Íslendingur en það
var ekki fyrr en í fyrra, í júlí 2017,
sem ítalskur tónlistarmaður sló
þessi fyrri met. Vasco Rossy kom
fram á tónleikum í heimalandi sínu,
borginni Modena, til að fagna 40 ára
tónlistarferli. Þar, á Enzo Ferrari
Spilað fyrir mergð manna
30 ár eru liðin frá því að Tina Turner komst í sögubækurnar með því að spila fyrir stærsta
áheyrendahóp sem nokkur einstakur tónlistarmaður hafði þá spilað fyrir, 182.000 manns. Það er
forvitnilegt að skoða hvaða tónlistarmenn það eru sem trekkja stærstu tónleikahópana að.
Júlía Margrét Alexandersdóttir julia@mbl.is
Á fjölsóttum tónleikum er
fólksmergðin stundum á
við hálfa íslensku þjóðina.
44 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 14.1. 2018
LESBÓK
KVIKMYNDIR „Allir sýndu mér mikinn stuðning og
fremst af öllum 12 ára dóttir mín,“ segir leikkonan
Michelle Williams í viðtali við Vulture. Williams var að
klára tökur á myndinni All The Money In The World þar
sem Kevin Spacey átti einnig að leika stórt hlutverk.
Eftir að upp komst um kynferðisbrot Spaceys var ákveð-
ið að kippa leikaranum út úr myndinni og taka þurfti 22
atriði upp á nýtt með Christopher Plummer í hans stað.
Williams þurfi því að fórna þakkargjörðarhátíðinni og
ýmsum plönum með fjölskyldu sinni til að allt gengi upp
og hafði mikið samviskubit. Dóttir hennar Matilda dreif
hana hins vegar áfram og sagði: „Þú hefur lagt svo hart
að þér fyrir þetta verkefni. Ekki láta einn vondan mann
eyðileggja það fyrir þér.“
Dóttirin styðjandi
Williams hefur verið önnum kafin.
TÓNLIST Ef smellurinn All About That Bass
væri að koma út í dag myndi fjölskylda tón-
listarkonunnar líklega syngja bakraddir en
Meghan Trainor greindi frá því í vikunni að á
nýrri plötu væri ekki aðeins unnusti hennar,
Daryl Sabara, að vinna með henni heldur
syngi fjölskylda hennar með henni í öllum
lögunum og pabbi hennar spilaði á píanó.
Í viðtali við Entertainment Tonight sagði
Trainor að fyrst eftir að tónlist hennar fór að
slá í gegn hefðu margir kallað hana „bassa-
stelpuna“ og hún jafnvel kynnt sig þannig:
„Hæ, ég syng All About That Bass,“ en fólk
vissi oft ekki nafn hennar. Það hefur breyst.
Öll fjölskyldan syngur með
Meghan Trainor á góða að.
Ed Sheeran neitar ásökununum.
Saka um stuld
TÓNLIST Eitt vinsælasta lag síð-
asta árs, The Rest of our Life, í
flutningi Tims McGraws og Faith
Hill, er að sögn áströlsku tónlistar-
mannanna Seans Careys og Beaus
Goldens stolið. Þeir segja það aug-
ljósan stuld á lagi þeirra When I
Found You sem Jasmine Rae söng
árið 2014, stundum alveg nótu fyrir
nótu. Lögsókn er í bígerð vegna
þessa en aðalhöfundur The Rest of
Our Life er Ed Sheeran. Hollywood
Reporter greindi frá.
Sendu blóm
George og Amal Clooney.
LEIKHÚS Leikarar í Myllunni í
Soning, Berkshire í Suður-Englandi
voru í skýjunum eftir leiksýningu í
vikunni á My Fair Lady. Ekki bara
gekk sýningin vel heldur fengu þeir
send blóm og bréf frá hjónunum
George og Amal Clooney, sem
horfðu á og vildu þakka fyrir kvöld-
ið, þau hefðu verið svo óskaplega
hrifin. Aðstandandi sýningarinnar
deildi þessum tíðindum á Twitter.
Hjónin eru þekkt fyrir gjafmildi en
vinur George Clooney hefur sagt frá
því opinberlega að leikarinn hafi
gefið 14 vinum sínum eina milljón
dollara, hverjum og einum.
SJÓNVARP Svikahrappar herja nú
á notendur Netflix en fyrirtækið
hefur gefið út þá yfirlýsingu að
Netflix sendi aldrei póst til að biðja
um persónuupplýsingar eða korta-
númer. Þúsundir notenda hafa
fengið skilaboð undanfarna daga
þar sem beðið er um kreditkorta-
númer þar sem greiðsla mánaðar-
ins hafi ekki gengið í gegn. Svika-
pósturinn þykir mjög sannfærandi
og auðvelt að láta blekkjst.
Herja á Netflix