Morgunblaðið - Sunnudagur - 14.01.2018, Blaðsíða 45
Park-tónleikastaðnum, sló hann
metið frá 1990 þegar um 225.000
manns keyptu sér miða á tónleikana.
Vasco er einn vinsælasti tónlist-
armaður Ítala, syngur á ítölsku og
lög hans hafa ekki náð mikilli út-
breiðslu utan heimalandsins, þótt
hann hafi samið yfir 250 stykki.
● Það er alls ekki algengt að lista-
menn geti selt inn á tónleika sína og
fengið áhorfendur sem telja á annað
hundrað þúsund án samstarfs við
aðra listamenn. Efst á lista yfir þá
listamenn sem hafa selt yfir 100.000
miða á staka tónleika eru Luciano
Ligabue, Bruce Springsteen, U2,
Madonna, The Rolling Stones, Mich-
ael Jackson, Oasis, Robbie Williams
og Queen.
● En svo eru það tónleikaferðalögin
þar sem U2 gnæfir yfir alla aðra en
á árunum 2009-2011 sáu sjö milljónir
manna þá spila á tónleikaferðalagi.
Talsverðir eftirbátar eru þeir í öðru
sæti, Rolling Stones, en á jafn-
löngum tíma sáu um fjórar milljónir
manna þá koma fram á tónleika-
ferðalagi. Madonna er eini kven-
kyns listamaðurinn sem kemst á
topp-tíu-listann yfir best sóttu tón-
leikaferðalögin.
● Svo eru það ókeypis tónleikarnir,
sem ekki er sanngjarnt að bera sam-
an við tónleika í sölu. Sama ár og
Díana dó og kindin Dollý var klónuð
mættu þrjár og hálf milljón manns á
tónleika Frakkans Jean-Michels
Jarres sem haldnir voru fyrir utan
háskólann í Moskvu í tilefni af 850
ára afmæli borgarinnar. Rod Stew-
art hefur einnig fengið sama fjölda
til að dansa með sér á Copacabana-
ströndinni í Rio de Janeiro á gaml-
árskvöld.
14.1. 2018 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 45
SJÓNVARP Gillian Andersen hefur ákveðið að taka
ekki áfram þátt í sjónvarpsþáttunum X-Files. Leik-
konan hefur leikið í 11 seríum af þessum vinsælu þáttum
sem hófu göngu sína árið 1993 og farið með hlutverk
Dönu Scully. Á miðvikudaginn sagði hún frá því að hún
væri hætt og hafði Hollywood Reporter eftir henni að
það væri kominn tími til að leggja Scully á hilluna.
„Það er mjög margt sem mig langar að gera í lífi mínu
og ferli en þetta hefur samt verið einstakt tækifæri og
magnaður karakter að leika og ég er mjög þakklát fyrir
þennan tíma.“ Frægt varð þegar Gillian gagnrýndi
skort á kvenkynsleikstjórum í þáttunum og tísti um að
af 207 þáttum X-files hefðu konur aðeins leikstýrt
tveimur.
Hætt í X-files
Gillian Anderson
kveður Skully.
AFP
KVIKMYNDIR Leikstjórinn og leikkonan
Greta Gerwig ætlar aldrei aftur að vinna
með Woody Allen en dóttir Allen, Dylan Far-
row, hefur greint frá því að Allen hafi beitt
hana kynferðisofbeldi. Gerwig lék undir leik-
stjórn Allen í To Rome With Love. Nýjasta
mynd Gerwig, Lady Bird, var valin besta
myndin á Golden Globe en í viðtali við New
York Times á hátíðinni sagði Gerwig:
„Ef ég hefði vitað þá það sem ég veit nú
hefði ég aldrei leikið í myndinni. Ég hef ekki
unnið með honum aftur og mun aldrei gera
það.“ Dylan þakkaði Gerwig á Twitter fyrir
þessi orð, þau væru mikils metin.
Sér eftir að hafa unnið með Allen
Greta Gerwig var ákveðin í orðum sínum.
AFP
SJÓNVARP Á tímum þegar Íslendingar höfðu
minni efni og tækifæri til að ferðast var þó einn
staður á meginlandinu sem þeir þekktu orðið vel
á 9. áratugnum en það var Svartiskógur. Ástæðan
voru geysivinsælir þættir sem sýndir voru í Ríkis-
sjónvarpinu á þeim tíma, Sjúkrahúsið í Svarta-
skógi, Die Schwarzwaldklinik, en þeir voru í
gangi frá 1986-1988, á miðvikudags-
kvöldum.
Þættirnir voru framleiddir á árunum
1984-1988 og fjölluðu öðru fremur um
Brinkmann-fjölskylduna sem starfaði öll
sem læknar í fallegu umhverfi Svarta-
skógar en með aðalhlutverk fóru Klaus-
jürgen Wussow, Gaby Dohm, Sascha
Hehn og Barbara Wussow. Þætt-
irnir náðu útbreiðslu um allan
heim og eru enn þann dag í
dag endursýndir í þýska
sjónvarpinu og tvær
kvikmyndir hafa verið
gerðar eftir þátt-
unum en þær voru
frumsýndar árið
2005.
Þættirnir, sem
höfðu um 20 milljónir áhorfenda á 9. ára-
tugnum, höfðu mikil áhrif á ferðalög aðdá-
enda sinna, einnig Íslendinga, og fóru margir
þeirra með flugi beina leið til Þýskalands í
sumarfríinu og skoðuðu sig um í Svartaskógi.
Enda allir yfir sig ástfangnir af umhverfinu og
hjartaknúsara þáttanna, doktor Udo Brink-
mann sem Sascha Hehn lék. Hehn fékk tæki-
færi til að spreyta sig í bandaríska sjónvarps-
heiminum í kjölfarið á vinsældum þáttanna
en árið 1987 var hann ráðinn í hlutverk í
sjónvarpsþáttum, The Barbara Hutton
Story, sem fjölluðu um líf Barböru Hutton,
erfingja Woolworth-eignanna, en Farrah
Fawcett fór þar einnig með hlutverk.
Sjúkrahúsið í Svartaskógi var tekið upp í Svartaskógi
í Baden-Würtemberg og Glotterbad-spítalinn, sem
raunverulega er til, var notaður fyrir útitökur.
EINU SINNI VAR
Sjúkrahúsið í
Svartaskógi
Sascha Hehn lék
Udo Brinkmann.
www.gilbert.is
VELDU ÚR MEÐ SÁL