Morgunblaðið - 02.02.2018, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2018
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
Mat á stofnkostnaði fyrir Miklubraut í
stokk er 21 milljarður króna. Þetta
kom fram í máli Dags B. Eggertsson-
ar borgarstjóra á fjölmennum íbúa-
fundi um málefni Hlíða á Kjarvals-
stöðum í gær.
Á fundinum fór Dagur meðal ann-
ars yfir þjónustu borgarinnar, þróun
hverfisins, fyrirhugaðar framkvæmd-
ir og aðra uppbyggingu. Það sem bar
hæst í máli borgarstjóra var umfjöllun
hans um að setja Miklubraut í stokk.
Íbúafjöldi þeirra hverfa sem liggja
að Miklubraut á þessum stað er um
17.000. Meðfram Miklubraut raðast
fjölmörg uppbyggingarsvæði borgar-
innar og áætlun gerir ráð fyrir um
6.500 nýjum íbúum. Því má ætla að
umferð um Miklubraut aukist töluvert
á næstu árum.
Dagur greindi frá því að í rýnihópi
vegna hverfisskipulags hefðu íbúar
Hlíða verið sérstaklega spurðir út í
tvær mismunandi hugmyndir um
breytingar á Miklubraut. Möguleik-
arnir hefðu annars vegar verið ein-
hvers konar breiðstræti í borg með ró-
legri umferð þar sem allir
samgöngumátar myndu blandast
saman og hins vegar að taka umferð-
ina undir og í gegn með rólegri umferð
á yfirborði. Á móti kæmu byggingar á
yfirborði sem myndu standa undir
hluta framkvæmdarinnar.
„Ég bjóst fyrir fram við því að fólk
væri með svolítið skiptar skoðanir, en
miðað við þennan slembivalda hóp
íbúa voru eiginlega allir á stokka-
lausninni,“ sagði Dagur.
Næsta skref viðræður við ríkið
Þá kynnti borgarstjóri helstu for-
sendur stokksins, sem næði frá
Snorrabraut og austur fyrir Kringlu,
yrði 1.750 m langur með tveimur ak-
reinum í hvora átt, en borgargata á
yfirborði hefði eina akrein í hvora átt
fyrir bílaumferð, akrein í hvora átt
fyrir almenningssamgöngur, hjóla-
stíga og gangstéttir. Frummat á
stofnkostnaði vegstokks, yfirborðs-
götu og veitukerfa miðað við gefnar
forsendur er 21 milljarður króna.
„Það er aðeins búið að kynna þetta
fyrir Vegagerðinni, en næsta skref
væru viðræður við ríkið. Við förum
ekki í þær án þess að heyra tóninn
hér,“ sagði Dagur.
Ekki bar á öðru en að góður tónn
væri í íbúum Hlíða varðandi málið, en í
kjölfar kynningarmyndbands um
Miklubraut í stokk upphófst mikið
lófatak meðal viðstaddra.
Þegar Dagur hafði lokið máli sínu
tók Þorsteinn Rúnar Hermannsson,
samgöngustjóri Reykjavíkur, við og
sagði frá borgarlínu. Að lokum sagði
Sigþrúður Erla Arnardóttir, fram-
kvæmdastjóri Þjónustumiðstöðvar
Vesturbæjar, Miðborgar og Hlíða, frá
heilsueflandi verkefni í hverfinu, Vít-
amín í Valsheimilinu, sem snýr að
heilsueflingu eldri borgara.
21 milljarður í stofnkostnað
Dagur B. Eggertsson fjallaði um möguleikann á að setja Miklubraut í stokk
Fjölmenni á íbúafundi borgarstjóra um málefni Hlíða á Kjarvalsstöðum
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Íbúafundur Fjölmenni var á íbúafundi um málefni Hlíða á Kjarvalsstöðum í gærkvöldi. Þar fór borgarstjóri meðal annars yfir þróun hverfisins.
Þorgerður Anna Gunnarsdóttir
thorgerdur@mbl.is
„Þetta er alveg frábært, þetta er
æðisleg borg,“ sagði Jóhann Ágúst
Hansen þegar Morgunblaðið náði í
hann eftir að honum var tilkynnt að
hann hefði unnið ferð til Barcelona í
áskriftarleik Árvakurs og WOW air.
Jóhann segist einu sinni áður hafa
komið til Barcelona og verið hrifinn.
„Það var reyndar bara örstutt ferð, í
tvo daga, og ég hefði viljað vera mun
lengur.“
Hann stefnir á að vera lengur í
þetta skiptið og hlakkar mikið til að
skoða söfnin og ströndina.
„Síðan ég man eftir mér, held ég
bara, öll mín fullorðinsár,“ segir Jó-
hann þegar hann er spurður hve
lengi hann hafi verið í áskrift að
Morgunblaðinu.
„Það var nú
svolítið gaman
þegar auglýs-
ingin um leikinn
kom í blaðinu í
morgun, þá
sagði konan:
„Jæja, nú förum
við til Barce-
lona!“ Hún
kvaddi mig með
þeim orðum í morgun.“
Aðspurður segist hann líklega
ekki komast upp með annað en að
bjóða henni með. „Hún hefur fundið
þetta á sér.“
Þá leit Jóhann einnig á stjörnuspá
blaðsins, en hann er hrútur og þar
sagði: „Eftir þér verður tekið á al-
mennum vettvangi í dag.“
Svo virðist vera sem vinningur Jó-
hanns hafi verið skrifaður í skýin.
Jóhann var þó ekki einn um að
hreppa flug fyrir tvo til Barcelona,
en það gerðu einnig þau Arnfríður
Einarsdóttir, Ásta Jónsdóttir, Ey-
þór T. Heiðberg og Matthías Kjart-
ansson.
Á næstu vikum eiga áskrifendur
Morgunblaðsins möguleika á að
hreppa ferð til einhverrar af þeim
borgum sem eftir eru í áskrifenda-
leik Morgunblaðsins og WOW Air.
Fjallað verður um hverja borg fyrir
sig í Morgunblaðinu á hverjum
fimmtudegi meðan á leiknum stend-
ur. San Francisco var fyrsta borgin,
og nú er einnig búið að draga út
Stokkhólm, Cleveland og Barcelona
en eftir eru Tel Aviv, Detroit, Cin-
cinnati, St. Louis, Dublin og Dallas.
Konan fann þetta á sér
Jóhann Ágúst vann ferð með WOW air til Barcelona
Jóhann Ágúst
Hansen
Villa kom upp í
tvígang hjá
Reiknistofu
bankanna í gær
sem olli því að
ekki var hægt að
nota debetkorta-
kerfið, hrað-
banka eða af-
greiðslukerfi
banka. Fyrra at-
vikið varði í rúm-
ar 20 mínútur í kringum klukkan
eitt og það síðara átti sér stað
klukkan rétt rúmlega fimm og
varði í 55 mínútur, á háannatíma í
verslunum.
Friðrik Þór Snorrason, forstjóri
Reiknistofu bankanna, sagði í sam-
tali við mbl.is að kerfin hefðu verið
komin í samt lag í gærkvöldi en nú
tæki við greiningarvinna til þess að
kortleggja hvað hefði farið úr-
skeiðis.
Villa kom tvisvar upp
í greiðslukerfi á há-
annatíma í verslunum
Hraðbanki Kerfið
lá niðri um tíma.
Rúmlega hundrað bifreiðar sátu
fastar eða komust ekki leiðar sinnar
um Suðurlandsveg á Sandskeiði og
Hellisheiði í gærkvöldi vegna ófærð-
ar og öngþveitis. Hvasst var um
vesturhluta landsins og leysingar.
Björgunarsveitir á öllu höfuð-
borgarsvæðinu voru kallaðar út til
að aðstoða vegfarendur og lögregl-
una. Agla Þyri Kristjánsdóttir sem
sat í bifreið sinni í gærkvöldi sagði
við mbl.is að svo virtist sem bifreiðar
gætu ekið í hina áttina en Þorvaldur
Hallsson í svæðisstjórn Slysavarna-
félagsins Landsbjargar sagði að það
skýrðist af því að reynt væri að fá
ökumenn til þess að snúa við. Ekki
var vitað til þess að slys hefðu orðið.
Stormur var á heiðum og var
helstu leiðum lokað. Veðrið á að
ganga niður þegar líður á daginn í
dag en önnur lægð gengur yfir á
sunnudag með meiri látum og leys-
ingum.
Fjöldi bíla
fastur á Suð-
urlandsvegi
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hviður Vonskuveður var í Þing-
unum í Kópavogi í gærkvöldi.
Íbúðalánasjóður hyggst grípa til að-
gerða til að bæta stöðu leigjenda og
styðja við uppbyggingu nýs húsnæðis
á svæðum utan suðvesturhornsins.
Kemur það fram í tilkynningu sem
sjóðurinn sendi frá sér í gær, að af-
loknum stjórnarfundi á Sauðárkróki.
„Nauðsynlegt er að ráðast í um-
fangsmikla uppbyggingu húsnæðis
um allt land,“ segir meðal annars í
ályktun stjórnar sjóðsins. Nýfram-
kvæmdir á húsnæðismarkaði hafa
síðustu ár að mestu einskorðast við
suðvesturhornið en greining Íbúða-
lánasjóðs bendir til að mikil þörf sé á
uppbyggingu hentugs íbúðarhúsnæð-
is á ýmsum þéttbýlissvæðum allt í
kringum landið. Þörfin fyrir nýtt hús-
næði er meðal annars vegna fólks-
fjölgunar í kjölfar fjölgunar atvinnu-
tækifæra.
Fram kemur í tilkynningu Íbúða-
lánasjóðs að oft standi nýjum íbúum
aðeins til boða illa farið húsnæði eða
húsnæði sem uppfyllir ekki kröfur nú-
tímans. Hækkun fasteignaverðs sem
valdið hefur fyrstu kaupendum á höf-
uðborgarsvæðinu vandræðum er ekki
mikið vandamál á landsbyggðinni, að
mati sjóðsins, heldur sú staðreynd að
lítið sem ekkert hefur verið byggt.
Viðræður starfsmanna Íbúðalána-
sjóðs við stjórnendur sveitarfélaga
leiða í ljós að alvarlegasti vandinn er í
sveitarfélögum þar sem gróska er í
atvinnulífi og ástandið farið að hamla
uppbyggingu atvinnuvega.
Líta til Husbanken í Noregi
Íbúðalánasjóður skoðar nú þær
leiðir sem eru færar til að bregðast
við. Meðal annars eru til athugunar
úrræði til fjármögnunar sem notuð
eru í nágrannalöndunum til að styðja
við framkvæmdaaðila á strjálbýlum
svæðum. Nefnt er í tilkynningu að
Husbanken í Noregi hafi fjármagnað
og stutt við húsnæðisuppbyggingu
meðfram ströndum Noregs og í dreif-
býlinu þar um árabil, án þess að verða
fyrir alvarlegum útlánatöpum.
Lögð er áhersla á að þessi vinna
skili árangri sem fyrst og að raunhæf-
ar tillögur verði lagðar fyrir félags-
málaráðherra og ríkisstjórn.
helgi@mbl.is
Stuðla að húsbyggingum
Íbúðalánasjóður leggur áherslu á stuðning við uppbyggingu á landsbyggðinni