Morgunblaðið - 02.02.2018, Síða 23

Morgunblaðið - 02.02.2018, Síða 23
23 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2018 Bláfjöll Í vetrarríkinu bíða mannvirki til skíðaiðkunar þess þögul að koma mannfólksins gæði Bláfjöllin iðandi lífi. Nægur er snjórinn þótt grýtt sé á köflum. RAX Það er hlutskipti stjórnmálamanna að ganga fyrir hvers manns dyr, kynna sig og ræða um landsins gagn og nauðsynjar við þá er þeir mæta. Þá er það alvanalegt að frambjóðandi telji upp og tíundi afrek sín til réttlætingar þess að sá er hann mætir kjósi sig næst þá er kosið verður. Viðmælandinn segir gjarna þegar fyrstu ræðu er lokið: „Þú hefur ekk- ert gert fyrir mig nýlega“. Þá verður fátt um svör hjá fram- bjóðanda, en eftir stundar umhugs- un telur hann upp alla þá vega- spotta, brýr, skólabyggingar, íþróttamannvirki að ekki sé talað um flugvöllinn sem var ritaður á minnismiðann fyrir síðustu kosn- ingar. Flugvöllurinn er kominn til að vera, enda þótt skorti allan áhuga á að fljúga á flugvöllinn. Vegur með bundnu slitlagi austur með Suður- landi kallaðist Austurvegur en varð að Vesturvegi því fólk vildi fremur kaupa þjónustu í Vestri en Austri. Hví er spurt? Það er svo er frambjóðendur hitta kjósendur að kjósendur spyrja spurninga. Algengustu spurningar eru;  Hvað ætlar þú að gera fyrir gamla fólkið? eða  Hvað ætlar þú að gera fyrir unga fólkið? Enginn stjórnmála- maður gerir nokkuð að gagni fyrir framlög úr eigin vasa. Stjórn- málamenn eru fyrst og fremst í því að færa fé á milli vasa kjósenda. Sá sem svarar þessum spurningum á aðeins eitt rétt svar; það er að sækja fé til hins hóps- ins. Sá er lofar að gera allt fagurt fyrir gamalt fólk þarf að sækja fé til annarra aldurshópa. Sá stjórnmálaflokkur, sem lofar nýjum framlögum sem nema hundruðum milljarða, en ætl- ar ekki almenningi að greiða, lýgur blákalt framan í kjósendur sína. Há- tekjuskattar geta aldrei skilað um- talsverðum tekjum, nema hátekjur byrji þar sem framhaldsskólakenn- arar fá greitt fyrir yfirvinnu. Úrlausnarefni Úrlausnarefnum í íslensku sam- félagi mun seint ljúka. Að frátalinni innviðauppbyggingu í samgöngu- kerfum, þá eru úrlausnir í grunn- þörfum mannsins stöðugt viðfangs- efni. Málefni almannatrygginga eru eilífðarmál. Stundum virðist mér að engum sé ætlað að bera ábyrgð á eigin lífi. Öllum vandamálum er varpað á þá sem taka að sér að starfa að málum í almannaþágu. Þeim er þetta ritar hafa verið mál- efni almannatrygginga hugleikin. Hann hefur leyft sér að hafna þeirri fullyrðingu að öll fátækt sé verk og afleiðing verka stjórnmálamanna. Má ekki ætla að einhverjir séu sinn- ar gæfu smiðir? Fátækt er auðvitað úrlausnarefni í samfélagi þar sem landsframleiðsla er mikil og at- vinnuleysi hverfandi. Almannatryggingar og velferð Við fæðingu eru verulegar líkur á því, að nýr borgari verði gamall. Einnig er vitað hverjar verða þarfir hins nýfædda á hverju aldursskeiði. Því á að gefa hverjum nýjum borg- ara sparisjóðsbók við fæðingu til þess að stuðla að ævilöngum sparn- aði og fyrirhyggju. Þegar hinn nýi borgari nálgast fullorðinsaldur er eðlilegt að huga að lífeyrissparnaði og húsnæðissparnaði. Hvorugt er á ábyrgð stjórnmálamanna. Það er skylda stjórnmálamanna að sjá til þess með löggjöf og hvötum að til séu leiðir sem gagnast borgurum landsins á árangursríkan og skil- virkan veg. Með því er átt við að líf- eyrissparnaður og húsnæðissparn- aður haldi raunverðgildi sínu í óstöðugu verðlagi. Það er ábyrgð stjórnmálamanna. Lífeyrissjóðir hafa eina skyldu og hún er að tryggja sjóðfélögum líf- eyri þegar lífeyrisaldri er náð. Það er ekki „siðferðisleg“ skylda lífeyr- issjóða að standa undir hagvexti á komandi árum. Það er ekki skylda lífeyrissjóða að taka þátt í nýsköpun í atvinnulífi eða að tryggja fulla at- vinnu. Veikgeðja stjórnmálamenn vilja nota eigur lífeyrissjóða til að þjóna duttlungum sínum og lýð- skrumi í þessum tilgangi til að tryggja sér kjörfylgi með þess kon- ar heimabökuðum „sannleik“. Lífeyrisferli Lífeyrisferli má hluta niður í nokkra þætti. Sá er þetta ritar hefur leyft sér að gera slíkt á svofelldan veg:  Almannatryggingar  Lífeyrissjóðir  Séreignalífeyrissjóður  Frjáls sparnaður  Félagsþjónusta sveitarfélaga  Ellistoð vegna dvalar- og hjúkrunarheimila  Húsnæðismál Það sem ekki hefur verið nefnt hér að framan er málefni almanna- trygginga, félagsþjónusta sveitarfé- laga og ellistoð vegna dvalar- og hjúkrunarheimila aldraðra. Í samfélaginu þarf að fást viður- kenning á því að frjáls sparnaður sé hluti af neti lífeyrisferlis. Nú um stundir er litið á frjálsan sparnað sem skattstofn eða frjáls gæði, svip- að og rennandi vatn í almenningi. Það skilur á milli þegar eftir- launaaldri er náð hvort lífeyrisþegi býr í eigin húsnæði eða leigu- húsnæði. Það er svo að sumir borgarar eiga ekki möguleika á að afla sér tekna, eða hafa ekki átt slíka möguleika. Margir öryrkjar eiga ekki mögu- leika á að afla sér tekna á vinnu- markaði. Svo hefur einnig verið á liðnum árum að konur hafa ekki far- ið á vinnumarkað eða seint á lífsleið- inni. Það kann að eiga sér ýmsar or- sakir. Almannatryggingar eiga að hlaupa undir bagga með þessum hópum. Sá hópur vinnandi fólks er til, sem hefur verið á vinnumarkaði án þess að greiða í lífeyrissjóð. Sá hóp- ur hefur oftar en ekki komist hjá að greiða opinber gjöld. Á þessi hópur sama rétt og öryrkjar eða þeir sem ekki hafa af einhverjum orsökum komist út á vinnumarkað? Hefur sá sem hefur komið sér undan greiðslum í lífeyrissjóð sýnt af sér ábyrga hegðun? Ber samfélagið ábyrgð á þessum hópi? Eða löggjaf- inn og stjórnmálamenn? Önnur spurning er hví velmegandi vilja tryggja sér far með þeim, sem illa eru settir og þarf að gera vel við í al- mannatryggingum. Hinir betur megandi vilja einnig fá tekjutrygg- ingu hinna lakar settu. Til þess voru refirnir ekki skornir. Hetjur að umbera asna Samfélag er uppfullt af hetjum ef það getur umborið asna. Það sam- félag, sem dáir og umber lýðskrum- ara, er ekki fullt af hetjum. Sam- félag, sem umber asna, á alls ekki að gera asna og lýðskrumara að leið- togum sínum. Lýðskrumarar í hlutverkum leið- toga sem lofa öllum öllu fögru, lofa engum neinu nema verðbólgu. Sam- félag, sem bregst sínum smæstu meðbræðrum, er ekki siðmenntað samfélag. Samfélag, sem bregst vegna þess að hinir velmegandi vilja einnig fá aukabita í sinn skerf, er á jaðri sið- menningar. Í samfélagi siðmenningar er reynt að skilgreina ábyrgð hvers þegns en þegnar eiga ekki og mega ekki varpa allri ábyrgð af sér. Ein- staklingurinn ber nokkra ábyrgð á sjálfum sér. Eftir Vilhjálm Bjarnason » Samfélag, sem umber asna, á alls ekki að gera asna og lýðskrumara að leið- togum sínum. Vilhjálmur Bjarnason Höfundur var alþingismaður. Ábyrgð stjórnmálamannsins og borgarans

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.