Morgunblaðið - 02.02.2018, Side 41
MENNING 41
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2018
» Það var hátíðleg stund íSmárabíói í gærkvöldi þeg-
ar íslenska teiknimyndin Lói –
þú flýgur aldrei einn var frum-
sýnd að viðstöddu fjölmenni.
Hún er þrívíddarteiknimynd í
fullri lengd og næstdýrasta
mynd íslenskrar kvikmynda-
sögu en sú dýrasta er Þór –
hetjur Valhallar. Hilmar Sig-
urðsson og Gunnar Karlsson
hjá fyrirtækinu GunHil standa
að gerð myndarinnar og komu
um 400 manns að henni, bæði
hér á landi og í Belgíu. Söguna
um ófleyga lóuungann Lóa,
sem myndin fjallar um, skrif-
aði Friðrik Erlingsson.
Teiknimyndin Lói – þú flýgur aldrei einn var frumsýnd í gær
Stund uppskerunnar Aðstandendur myndarinnar voru kátir að loknu góðu dagsverki.
Kynslóðir Hera Guðríður Friðrika Margrét, afi hennar
Friðrik Þór Friðriksson, Ari Kristinsson og Margrét
María Pálsdóttir spókuðu sig.
Faðir og börn Sindri Leon og Lena Mist nutu kvöldsins með pabba
sínum, leikstjóranum Baldvin Z.
Morgunblaðið/Eggert
Forseti Íslands Duncan, Donni, Sæþór og Edda um-
kringdu Guðna Th. Jóhannesson forseta, sem var þjóð-
lega klæddur sem endranær.
Heimspekingurinn Timothy Morton
er gestur myndlistardeildar Lista-
háskóla Íslands og Heimspeki-
stofnunar Háskóla Íslands og af því
tilefni verður í dag, 2. febrúar,
haldið málþing í Safnahúsinu við
Hverfisgötu, sem fram fer á ensku
og verður Morton einn þeirra sem
halda fyrirlestur. Málþingið hefst
kl. 13.30 með kynningu Sigrúnar
Hrólfsdóttur, deildarforseta mynd-
listardeildar Listaháskóla Íslands,
á Morton og að henni lokini flytur
Morton fyrirlesturinn „You’re Not
Making Ecological Art Yet“, eða
„Þú ert ekki enn farin/n að gera
vistfræðilega list“.
Morton er heimspekingur og
enskuprófessor við Rice-háskóla í
Bandaríkjunum. Hann er einn af
upphafsmönnum heimspekistefn-
unnar Object Oriented Ontology og
hefur gefið úr fjölda bóka um heim-
speki, umhverfismál, listir, mat og
fleira og hafa kenningar hans vakið
mikla athygli þvert á fræðasvið. Þá
hefur hann einnig unnið með Björk,
Ólafi Elíassyni og fleiri þekktum
listamönnum. Að loknu erindi verð-
ur gert hlé á málþinginu og kl.
14.50 hefjast pallborðsumræður
með Morton, Oddnýju Eiri Ævars-
dóttur rithöfundi, Birni Þorsteins-
syni og Sigríði Þorgeirsdóttur, sem
eru prófessorar í heimspeki við Há-
skóla Íslands, og Ole Sandberg,
doktorsnema í heimspeki við Há-
skóla Íslands. Að umræðum loknum
verður spurningum úr sal svarað.
Málþing til heiðurs Morton í Safnahúsi
Virtur Timothy Morton, heimspekingur og
enskuprófessor við Rice-háskóla.
Ný sýning verður opnuð í Listasafni
Íslands í kvöld kl. 18 á Safnanótt og
ber hún titilinn Korriró og dillidó
en á henni má sjá þjóðsagnamyndir
Ásgríms Jónssonar. Um sýninguna
segir í tilkynningu að sá mynd-
heimur íslenskra þjóðsagna og
ævintýra sem Ásgrímur Jónsson
hafi skapað með verkum sínum sé
sannkallaður töfraheimur.
„Álfar, tröll og draugar, sem lif-
að höfðu með óljósum hætti í hug-
skoti þjóðarinnar í rökkri baðstof-
unnar, tóku á sig skýra mynd í
verkum Ásgríms, en hann sýndi slík
verk í fyrsta sinn á Íslandi árið
1905,“ segir þar og að þjóðsagna-
myndir Ásgríms hafi fengið góðan
hljómgrunn og í blaðaskrifum um
sýninguna megi lesa að menn fögn-
uðu því að í fyrsta sinn hefði ís-
lenskur listmálari tekist á við að
túlka þjóðsögurnar.
Sýningin Korriró og dillidó er
sögð kærkomið tækifæri fyrir alla
fjölskylduna til að kynnast þeim
einstaka ævintýraheimi skraut-
búinna álfa og ógnvekjandi trölla
sem Ásgrímur Jónsson túlkaði af
einlægni og ástríðu. Áhersla sé lögð
á að virkja ímyndunarafl gesta og
gefa þeim kost á að njóta þessa
menningararfs sem um margt geti
varpað ljósi á ótta, drauma og þrár
genginna kynslóða og sambúð
þeirra við ógnvekjandi náttúru
landsins.
Á sýningunni má sjá fjölmörg
lykilverk úr safni þjóðsagnamynda
sem Ásgrímur lét eftir sig, bæði
olíu- og vatnslitamálverk auk fjöl-
margra teikninga.
Korriró og dillidó í Listasafni Íslands
Ógnvekjandi „Nátttröllið á glugganum“ eftir Ásgrím Jónsson, málað 1950–55.
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
Sýnd kl. 7.50, 10.30 Sýnd kl. 4, 6 Sýnd kl. 3.50, 6
Sýnd kl. 10.15Sýnd kl. 8Sýnd kl. 9 Sýnd kl. 5
ÓDÝRT Í BÍÓ
TILBOÐ Á FYRSTU SÝNINGAR DAGSINS UM HELGINA.
ATH! TILBOÐSSÝNINGAR ERU MERKTAR MEÐ RAUÐU.
Tíska &
förðun
Fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 16. febrúar
Í Tísku og förðun verður fjallað um
tískuna í förðun, snyrtingu og fatnaði,
fylgihlutum auk umhirðu húðarinnar,
dekur og fleira
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 16 föstudaginn 9. febrúar
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur