Morgunblaðið - 02.02.2018, Side 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2018
Laugavegi 178 | 105 Reykjavík | sími 551 3366 | www.misty.is
Að vera í brjóstahaldara
í réttri stærð skiptir miklu
máli, gefðu þér tíma,
við erum á Laugavegi 178
Misty
Mundu mig,
ég man þig.
Haldari 6.990 kr.
Buxur 2.990 kr.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Jóhannes Svavar Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri Strætó, segir það
„auðvitað vonbrigði“ að hlutfall
strætisvagna í ferðum á höfuð-
borgarsvæðinu
skuli ekki aukast.
Fjallað var um
nýja ferðavenju-
könnun Gallups í
Morgunblaðinu í
gær. Hún bendir
til að hlutfall
strætó af ferðum
á höfuðborgar-
svæðinu hafi ver-
ið um 4% í fjórum
könnunum 2002,
11, 14 og 17. Nýja könnunin var
unnin fyrir Samtök sveitarfélaga á
höfuðborgarsvæðinu og Vegagerð-
ina. Á hinn bóginn bendir könnunin
til að farþegum strætó hafi fjölgað
um 30% frá 2011.
Stytta þarf ferðatímann
„Auðvitað eru það vonbrigði að
hlutur umhverfisvænna ferðamáta
sé ekki aukast, nema hjólreiða. Þar
er aukning. Við höfum velt fyrir okk-
ur hvað þurfi að gera. Það er vitað að
tíðni og ferðatími skipta máli í þessu
samhengi. Það hefur ekki tekist að
stytta ferðatímann. Það hefur orðið
aukning í ferðum með einkabíl. Það
hefur þau áhrif að allir sitja fastir í
umferðinni,“ segir Jóhannes Svavar.
Hann bendir á að sérakreinum
fyrir strætisvagna hafi ekki fjölgað
mikið frá 2014. „Sérakreinum hefur
ekki fjölgað að ráði. Það kom smá
bútur á Miklubrautinni í fyrra [við
Rauðagerði]. Auðvitað skiptir máli
að koma á einhvers konar forgangi
fyrir vagninn umfram aðra ferða-
máta til þess að valkosturinn sé væn-
legri. Það er þá verkefni næstu ára.“
Forgangurinn skiptir máli
Spurður hvort slíkur forgangur
geti styrkt samkeppnisstöðuna seg-
ist hann ekki líta svo á að strætó sé í
samkeppni við einn eða neinn.
„Ferðatíminn er enn of langur í
vagninum. Fólk sér þá kannski ekki
ávinninginn. Við erum að jafnaði
rúmlega 1,5 sinnum lengur á leiðinni
en einkabíllinn. Það hefur áhrif.
Tíðnin skiptir líka máli. Við höfum
aukið tíðnina á tveimur leiðum, 1 og
6, í 10 mínútur. Það fellur vel í kram-
ið hjá farþegum. Þetta er einn
þáttur. Það er eitthvað sem við þurf-
um að halda áfram að skoða.“
Bætt þjónusta laði að farþega
Hann segir nýjungar á borð við
næturstrætó geta laðað að fleiri far-
þega. „Við erum alltaf að reyna að
auka valmöguleikana þannig að fólk
sjái kosti þess að velja strætó. Það er
ákveðið skref að velja strætó um-
fram aðra ferðamáta. Ein leiðin til að
gera þetta að vænlegri valkosti er að
taka upp næturstrætó, aka lengur
fram á kvöldin og svo skipta líka máli
atriðin sem ég nefndi; ferðatími, tíðni
og sérakreinar. Forgangsljós
gagnast líka í þessu samhengi.
Við vorum einmitt að koma slíkum
búnaði fyrir í vögnunum í lok janúar.
Vonandi hjálpar það okkur að stytta
ferðatímann. Búnaðurinn virkar
þannig að græna bylgjan lengist
þegar vagninn nálgast umferðarljós.
Þannig fáum við aðeins lengri tíma.“
Jóhannes Svavar segir að leiða-
kerfið verði líka yfirfarið. Þá muni
fundarmenn á stjórnarfundi Strætó
bs. í dag ræða leiðir til að einfalda
greiðslukerfið frekar fyrir farþega.
Aukin tíðni strætó
stuðli að meiri notkun
Framkvæmdastjóri Strætó segir nýja könnun vonbrigði
Morgunblaðið/Hanna
Markaðsátak Einn vagna strætó var merktur KÞBAVD í kynningarskyni. Hugmyndin kom frá femínistum.
Jóhannes Svavar
Rúnarsson
Margir nota einkabíl
» Meðal annarra niðurstaðna í
ferðavenjukönnun Gallups var
að 61% aðspurðra ferðaðist
sem bílstjóri og 15% sem far-
þegi í einkabíl, eða samtals
76% aðspurðra.
» Til samanburðar voru þessi
hlutföll samtals 75% árið
2002, 76% árið 2011 og 75%
árið 2014. Bendir þetta til að
hlutföllin hafi lítið breyst.
„Þetta er fimm kílómetra skemmti-
hlaup. Það verður hlaupið eftir
myrkur, allir fá blikkandi gleraugu
og ljósahólka, þannig að úr verði
hlaupandi ljósadýrð,“ segir Eva
Ruza Miljevic skemmtikraftur, sem
sér um að hita mannskapinn upp og
skemmta þátttakendum í Norður-
ljósahlaupinu sem haldið verður
annað kvöld í Reykjavík.
Eva segir öllum velkomið að taka
þátt í að lýsa upp skammdegið, til-
gangurinn sé að skapa minningu
saman.
Hlaupið var haldið í fyrsta sinn í
fyrra en þá tóku um þúsund manns
þátt. Í ár eru 1.100 miðar í boði og
viðburðurinn er í boði WOW air,
Cintamani, Símans, Reykjavík
Excursions og Powerade.
„Það verður hlaupið frá Hörpu
upp að Hallgrímskirkju, sem verð-
ur lýst upp í mörgum litum. Þar
hægist á hlaupinu við kirkjuna. Alls
staðar á leiðinni verður eitthvað um
að vera. Ég hvet fólk til að stoppa
og taka myndir. Svo er hlaupið aft-
ur niður að Tjörninni og endað í
Hafnarhúsinu, þar sem verður tek-
ið á móti fólkinu með confetti og
tónleikum með Frikka Dór og döns-
urum.“ ernayr@mbl.is
Ljósmynd/WOW air
Norðurljósahlaupið 2017 Hressir krakkar taka myndir til minningar.
Norðurljósahlaup
haldið öðru sinni
Skammdegið lýst upp í Reykjavík
Helgi Bjarnason
Þorsteinn Friðrik Halldórsson
Alþjóðlegur hópur fjárfesta hefur
lýst áhuga á að kaupa tæki kísilvers
United Silicon í Helguvík og nota til
að koma upp verksmiðju erlendis.
Fleiri aðilar hafa lýst áhuga á að
kaupa eignirnar og langflestir þeirra
hafa hug á að starfrækja verksmiðj-
una áfram þar sem hún er. Það eru
einnig áform Arion banka sem á veð
í helstu eignum félagsins
United Silicon er í gjaldþrotameð-
ferð. Mbl.is hefur heimildir fyrir því
að alþjóðlegur fjárfestahópur hafi
áhuga á að greiða fyrir nothæfan
búnað í verksmiðjunni og ráða hluta
starfsfólksins til þess að flytja bún-
aðinn og koma honum fyrir þar sem
verksmiðjan á að rísa. Grunnverðið
mun endurspegla ástand búnaðarins
og samkvæmt heimildum mun
hópurinn leitast við að semja um ár-
angurstengdar greiðslur til þrota-
bús United Silicon. Þær greiðslur
muni ráðast af því hvernig gengur
að setja verksmiðjuna upp og fram-
leiða á nýja staðnum.
Málið í höndum skiptastjóra
Fram hefur komið að 7-8 aðilar
sýndu verksmiðjunni áhuga á meðan
hún var í söluferli á greiðslustöðv-
unartímanum. Þegar óskað var
gjaldþrotaskipta lýsti Arion banki
því yfir að hann óskaði eftir að
ganga að veðum sínum en hann á
veð í helstu eignum verksmiðjunnar.
Það þýðir að bankinn mun væntan-
lega eignast verksmiðjuna. Málið er
í höndum skiptastjóra.
Haraldur Guðni Eiðsson, for-
stöðumaður samskiptasviðs Arion
banka, segir að ekki sé hægt að
greina frá því hvaða aðilar hafa
áhuga á verksmiðjunni. Hann stað-
festir að langflestir þeirra hafi í
huga að starfrækja verksmiðjuna
áfram þar sem hún er. Hann segir
að það sé markmið Arion banka að
finna eigendur að verksmiðjunni
sem hyggjast starfrækja kísilverið
áfram.
Öllum starfsmönnum United Sili-
con, nema níu, var sagt upp störfum
nú um mánaðamótin en þeir voru á
sjötta tug. Á greiðslustöðvunartím-
anum var starfsfólkið þjálfað upp
auk þess sem það vann við endur-
bætur.
Starfsemin hefur verið umdeild,
meðal annars vegna mengunar, og
vilja margir íbúar vera lausir við
verksmiðjuna og iðnaðarsvæðið í
Helguvík.
Morgunblaðið/RAX
Lokað Ekki hefur verið framleitt í verksmiðju United Silicon í marga mánuði.
Fjárfestar vilja
flytja kísilverið út
Veðhafi stefnir að rekstri á sama stað