Morgunblaðið - 02.02.2018, Síða 18

Morgunblaðið - 02.02.2018, Síða 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2018 2. febrúar 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 100.37 100.85 100.61 Sterlingspund 141.88 142.56 142.22 Kanadadalur 81.64 82.12 81.88 Dönsk króna 16.775 16.873 16.824 Norsk króna 13.027 13.103 13.065 Sænsk króna 12.779 12.853 12.816 Svissn. franki 107.61 108.21 107.91 Japanskt jen 0.9218 0.9272 0.9245 SDR 146.09 146.97 146.53 Evra 124.85 125.55 125.2 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 150.9857 Hrávöruverð Gull 1341.1 ($/únsa) Ál 2224.0 ($/tonn) LME Hráolía 68.43 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Um 15 milljón manns munu fá að- gang að hugbúnaði íslenska hugbún- aðarfyrirtækisins Meniga, eftir að fyrirtækið skrifaði undir samning við BPCE, annan stærsta banka Frakklands. Samn- ingurinn snýst um innleiðingu net- bankalausna Meniga og viðskiptavinum bankans verður þar með boðin persónu- legri notendaupplifun, eins og segir í til- kynningu. „Nú þegar bankastarfsemi gengur inn í nýtt tímabil þar sem gögn eru aðgengi- legri en nokkru sinni fyrr, hlökkum við til að vinna náið með Meniga til að um- breyta stafrænu umhverfi bankans,“ segir François Pérol, bankastjóri BPCE. „Lausnir Meniga munu flýta fyrir og styðja vegferð BPCE í nýsköpun til að mæta sífellt vaxandi kröfum við- skiptavina okkar.“ tobj@mbl.is 15 milljónir fá aðgang að Meniga í Frakklandi François Pérol STUTT hugmyndir með tilkomu hússins.“ Að hennar sögn hefur veltan í ferðaþjónustu á undanförnum árum farið vaxandi en afkoman hefur í mörgum tilfellum ekki verið nógu góð. „Ég held að árið 2018 verði ár hagræðingar og sameiningar í ferða- þjónustu. Við viljum leiða það verk- efni, “ segir Ásta Kristín. Á meðal verkefna klasans er hvatningarverkefnið Ábyrg ferða- þjónusta, en 310 fyrirtæki hafa sett sér markmið um að sýna ábyrgð í rekstri. Til þess þarf að ganga vel um og virða náttúruna, tryggja öryggi gesta og koma fram við þá af háttvísi, virða réttindi starfsfólk og hafa jákvæði áhrif á nærsamfélagið. Kraftur myndast þeg- ar fólk kemur saman Morgunblaðið/Hari Klasar „Ferðaþjónusta og menning eiga vel saman,“ segir Ásdís en aðstaða er fyrir 50-60 starfsmenn í opnu rými í Húsi ferða-, menningar- og listaklasans. Hús ferðaklasans » Íslenski sjávarklasinn ann- ast rekstur Húss ferðaklasans. » Aðstaða er fyrir 50-60 starfsmenn á um 600 fermetr- um á Fiskislóð. » ISAVIA og Stjórnstöð ferða- mála eru á meðal leigjenda í húsinu. » Næstu tíu vikur verða þátt- takendur í viðskiptahraðlinum Startup Tourism með aðstöðu þar.  Hús ferðaklasans opnar dyrnar  Gæti orðið ár sameininga FRÉTTASKÝRING Helgi Vífill Júlíusson helgivifill@mbl.is Hús ferðaklasans og menningar- og listaklasans hóf starfsemi að Fiski- slóð 10 í Reykjavík í gær. „Ferða- þjónusta og menning eiga vel sam- an,“ segir Ásdís Kristín Sigurjóns- dóttir, framkvæmdastjóri Íslenska ferðaklasans, í samtali við Morgun- blaðið. „Við sjáum mikil tækifæri í því að tvinna þetta saman. Ferða- menn koma til Íslands til að upplifa náttúru en ekki síður menningu.“ Að húsinu standa þrír klasar. Þeir eru Íslenski sjávarklasinn sem ann- ast rekstur hússins, Íslenski ferða- klasinn og nýstofnaður Íslenskur menningar- og listaklasi sem unnið er að með franska menningar og við- skiptahraðlinum Créatis. „Við erum með aðstöðu fyrir 50-60 starfsmenn í opnu rými. Auk þess eru fundaherbergi og kofar sem eru hljóðeinangraðir,“ segir Ásta Krist- ín. Æskileg stærð af fyrirtækjum er frá einum starfsmanni í sex. „Það myndast mikill kraftur þegar fólk kemur saman .“ Stjórnstöð ferðamála mun flytja alla starfsemi sína í Hús ferðaklas- ans og ISAVIA er á meðal leigjenda. Næstu tíu vikur verða þátttakendur í viðskiptahraðlinum Startup Tour- ism með aðstöðu þar. „Annar leigj- andi er Jaðarmiðlun, sem vekur álfa til lífsins með sýndarveruleika ásamt tónlist eftir Sigur Rós,“ segir Ásta Kristín. Íslenski ferðaklasinn var stofnað- ur árið 2015. Aðildarfélagar eru yfir 50. „Verkefni okkar er að auka sam- keppnishæfni og auka verðmæta- sköpun í ferðaþjónustu,“ segir hún. „Okkur mun takast að fóstra betur Félag kvenna í atvinnulífinu (FKA) heiðraði í fyrradag þrjár konur sem hafa verið öðrum konum í at- vinnulífinu hvatning og fyrirmynd. FKA-viðurkenninguna 2018 hlaut Erna Gísladóttir, forstjóri bílaum- boðsins BL. Hildur Petersen, fram- kvæmdastjóri Vistvænnar fram- tíðar, fékk Þakkarviðurkenningu FKA og Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch, framkvæmdastjóri Platome líftækni, Hvatningarviðurkenningu FKA 2018. Þetta er í nítjánda sinn sem FKA heiðrar konur í atvinnulífinu og voru um fimm hundruð manns við- stödd hátíðina sem fram fór í Gamla bíói. Sigríður Andersen dómsmálaráðherra veitti viður- kenningarnar í fjarveru Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköp- unarráðherra. Stjórn FKA hvatti allar konur í íslensku atvinnulífi til að klæðast svörtu í tilefni dagsins, til stuðnings #metoo byltingunni. Morgunblaðið/Eggert Viðurkenningar Sigríður Andersen, Sandra Mjöll Jónsdóttir Buch, Hildur Petersen, Erna Gísladóttir og Rakel Sveinsdóttir, formaður FKA. FKA heiðrar fyrir- myndir í atvinnulífinu Heildarmarkaðsvirði skráðra félaga hækkaði um 48 milljarða króna í janúarmánuði, fór úr 822 milljörðum í 870 milljarða króna í lok janúar. Úrvalsvísitalan hækkaði um 7,7% í mánuðinum. Heildarviðskipti með hlutabréf námu 53,7 milljörðum króna í fyrsta mánuði ársins. Það svarar til liðlega 2,4 milljarða króna viðskipta á dag að jafnaði. Þetta er 7% aukning á milli ára, en í janúar 2017 námu við- skipti tæplega 2,3 milljörðum króna á dag. Mest voru viðskipti með hlutabréf í Marel, eða sem nam 8,9 milljörðum króna. Viðskipti voru með hlutabréf Icelandair Group fyrir tæplega 7,0 milljarða, Reita fyrir 5,8 milljarða og Haga fyrir 5,2 milljarða króna. Arion banki var með mestu hlut- deildina í hlutabréfum í janúar, 25%, en Landsbankinn var með 18% og Kvika með 15%. Heildarviðskipti með skuldabréf námu 112,2 milljörðum í janúar sem svarar til 5,1 milljarðs króna veltu á dag. Þetta er 31% aukning frá jan- úar 2017 þegar veltan nam 3,9 millj- örðum á dag. Á skuldabréfamarkaði var Landsbankinn með mestu hlut- deildina, eða 19%, en Íslandsbanki og Arion banki voru með 16% hvor. Morgunblaðið/Ómar Kauphöll Um 7% aukning var milli ára í hlutabréfaviðskiptum í janúar. Virði jókst um 48 milljarða  Lífleg viðskipti í Kauphöllinni í janúar

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.