Morgunblaðið - 02.02.2018, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 02.02.2018, Blaðsíða 19
FRÉTTIR 19Erlent MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2018 aðstoðarmanna hans við stjórnvöld í Rússlandi. Hann hefur m.a. sakað alríkislögregluna um blekkingar og sagt að orðspor hennar hafi verið „rifið í tætlur“. Forsetinn vék James Comey frá sem forstjóra FBI í maí á síðasta ári og rannsókn sérstaks saksókn- ara, Roberts Muellers, beinist nú meðal annars að því hvort Trump hafi reynt að hindra framgang rétt- vísinnar með brottvikningunni. Forsetinn á nú í útistöðum við Wray, manninn sem hann valdi sjálfur í forstjórastöðuna. Fleiri brottvikningar? Áður en FBI birti yfirlýsingu sína ræddi Rod Rosenstein aðstoðardómsmálaráðherra við embættismenn í Hvíta húsinu og Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Útlit er fyrir nýja rimmu með bandarísku alríkislögreglunni FBI og Donald Trump Bandaríkjafor- seta eftir að leyniþjónustunefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings samþykkti að birta umdeilt minnis- blað sem formaður hennar, repú- blikaninn Devin Nunes, skrifaði ásamt samstarfsmönnum sínum. Nunes er bandamaður Trumps og segir að alríkislögreglan og dómsmálaráðuneytið hafi misnotað vald sitt í kosningabaráttunni haustið 2016 með því að óska eftir heimild til að hafa eftirlit með Carter Page, sem var þá ráðgjafi Trumps í utanríkismálum. Page hefur þó ekki verið sakaður um lögbrot. Alríkislögreglan fékk heimildina frá sérstökum dómstól á grundvelli laga (FISA) um eftirlit með mönn- um sem grunaðir eru um njósnir fyrir önnur ríki. Í minnisblaðinu er skírskotað til trúnaðargagna sem Nunes og samstarfsmenn hans segja sanna að FBI og dómsmála- ráðuneytið hafi misnotað lagaheim- ildina í pólitískum tilgangi til að rannsaka meint tengsl aðstoðar- manna Trumps við menn sem tengjast stjórnvöldum í Rússlandi. „Gífurlegt gáleysi“ Leyniþjónustunefndin samþykkti á mánudagskvöld að birta minnis- blaðið þótt dómsmálaráðuneytið hefði ráðið henni frá því í bréfi og sagt að það væri „gífurlegt gáleysi“ að gera trúnaðargögnin opinber. Bandarískir fjölmiðlar, þeirra á meðal Fox News, sögðu síðdegis í gær að Trump forseti hefði ákveðið að nýta ekki heimild til að hindra birtingu minnisblaðsins og það yrði líklega gert opinbert fyrir helgina. Eftir samþykkt leyniþjónustu- nefndarinnar fór Cristopher Wray, forstjóri FBI, í Hvíta húsið til að reyna að telja Trump og embættis- menn hans á að heimila ekki birt- ingu minnisblaðsins. „FBI fékk takmarkað tækifæri til að fara yfir minnisblaðið daginn áður en nefnd- in samþykkti í atkvæðagreiðslu að birta það,“ sagði í yfirlýsingu frá alríkislögreglunni. „Við höfum áhyggjur af því að í minnisblaðinu er sleppt mikilvægum staðreyndum sem hafa áhrif á nákvæmni minnis- blaðsins í grundvallaratriðum.“ Í sögu Bandaríkjanna eru ófá dæmi um að komið hafi upp ágrein- ingur milli forseta landsins og FBI en deilur Trumps við alríkislög- regluna eru óvenju tíðar, auk þess sem þær fara oft fram fyrir opnum tjöldum, að sögn The Wall Street Journal. Blaðið skírskotar til þess að forsetinn hefur veist harkalega að FBI á Twitter vegna rann- sóknarinnar á meintum tengslum hvatti þá einnig til að heimila ekki birtingu minnisblaðsins, að sögn Washington Post. Rosenstein skip- aði Mueller sem sérstakan sak- sóknara í Rússamálinu eftir að for- setinn vék Comey frá og hefur umsjón með rannsókninni fyrir hönd dómsmálaráðuneytisins. Að sögn bandarískra fjölmiðla er talið að forsetinn íhugi nú að víkja Rosenstein úr embætti fyrir að sýna honum ekki næga hollustu. Áður höfðu bandarískir fjölmiðlar sagt að hann hefði ákveðið að víkja Mueller frá en hætt við það, en for- setinn neitaði því. Reynt að spilla fyrir rannsókninni? Þingmenn demókrata segja að minnisblað Nunes og samstarfs- manna hans sé villandi og þeir hafi aðeins notað upplýsingar sem henti málstað þeirra en sleppt öðrum sem geri það ekki. Demókratar segja að minnisblaðið sé liður í til- raunum stuðningsmanna Trumps í Repúblikanaflokknum til að koma óorði á alríkislögregluna og grafa undan rannsókn Roberts Muellers á meintum tengslum aðstoðar- manna forsetans við stjórnvöld í Rússlandi. Adam Schiff, demókrati í leyni- þjónustunefndinni, hefur einnig sagt að Nunes og samstarfsmenn hans hafi breytt minnisblaðinu eftir að nefndin samþykkti birtinguna. Hann segir að nefndin þurfi því að greiða aftur atkvæði um málið. Bandarískar leyniþjónustustofn- anir hafa einnig látið í ljós and- stöðu við birtingu minnisblaðsins, að sögn CNN. Fréttaskýrandi sjón- varpsins segir að hátt settir leyni- þjónustumenn hafi áhyggjur af því að með því að gera leynilegu upp- lýsingarnar opinberar verði hul- unni svipt af því hvernig heimilda til eftirlits með meintum njósnur- um er aflað og hvernig því er háttað. Það geti orðið til þess að njósnarar finni leiðir til að komast hjá eftirliti. Deilt um minnisblað repúblikana  Segja FBI og dómsmálaráðuneytið hafa misnotað vald sitt í pólitískum tilgangi gegn Trump í kosn- ingabaráttunni  Ráðuneytið, lögreglan og leyniþjónustumenn lögðust gegn birtingu minnisblaðsins Var kosninga- stjóri Trumps frá júní til ágúst 2016 Aðstoðaði Manafort í kosninga- baráttunni Aðalstjórn- málaráðgjafi Trumps til ágúst 2017 Dómsmála- ráðherra í ríkisstjórn Trumps Paul Manafort Rick Gates Steve Bannon Jeff Sessions Donald Trump George Papadopoulos Meint tengsl við Rússa rannsökuð í Bandaríkjunum Rannsókn Roberts Muellers, sérstaks saksóknara, á tilraunum Rússa til að hafa áhrif á kosningarnar árið 2016 Spurningar Ákærur Ákærður 27. október fyrir sam- særi gegn Banda- ríkjunum, peninga- þvætti og fleiri lögbrot. Neitar sök Ákærður 27. október fyrir aðild að samsæri gegn Banda- ríkjunum. Neitar sök Bandarískir fjölmiðlar sögðu í janúar að Mueller hefði stefnt honum til að svara spurningum Svaraði spurningum rannsóknar- manna, fyrstur ráðherra í stjórn Trumps Var ráðgjafi Trumps í utanríkis- málum 2016 Játaði sig sekan 5. október um að hafa logið að FBI um viðræður við mann sem talinn er tengjast stjórnvöldum í Rússlandi Michael Flynn Fyrrverandi þjóðaröryggis- ráðgjafi Trumps Játaði sig sekan 1. desember um að hafa logið að FBI um viðræður við þáverandi sendiherra Rússlands í Washington, Sergej Kísljak Kjörinn forseti landsins í kosningunum árið 2016 Hefur léð máls á því að svara spurningum rannsóknar- manna, bundinn eiði „Hissa og hneykslaðir“ » Margir þingmenn repúblik- ana segja að minnisblaðið geti orðið að miklu hitamáli. » Einn þeirra, Matt Gaetz, segir að margir hafi orðið „hissa og hneykslaðir“ á upp- lýsingunum. Þær geti orðið til þess að FBI-menn verði reknir og jafnvel sóttir til saka. » Aðrir repúblikanar hafa gert minna úr þýðingu minnis- blaðsins. Einn þeirra, John Cornyn, segir „vænisýki“ vera áberandi í umræðunni um málið. Ráðamenn í Ísrael, Bandaríkjunum, Evrópusambandinu og Úkraínu hafa gagnrýnt umdeilt lagafrumvarp sem þing Póllands hefur samþykkt um helförina, útrýmingarherferð nas- ista gegn gyðingum í síðari heims- styrjöldinni. Samkvæmt lagafrumvarpinu varðar það fjársekt eða allt að þriggja ára fangelsi að skírskota til útrýmingarbúða nasista í Póllandi sem „pólsku útrýmingarbúðanna“ eða að saka Pólland eða pólsku þjóð- ina um hlutdeild í glæpum nasista. Neðri deild pólska þingsins sam- þykkti lagafrumvarpið fyrir viku. Efri deildin samþykkti það síðan með 57 atkvæðum gegn 23 í gær- morgun þrátt fyrir mótmæli stjórn- valda í Ísrael sem reyndu að fá pólska þingmenn til að falla frá frumvarpinu. Stjórn Ísraels sakaði pólska þing- ið um að reyna að endurskrifa sög- una. „Við getum aldrei nokkurn tíma umborið það að sannleikurinn sé af- bakaður og sagan endurskrifuð eða að helförinni sé afneitað,“ sagði Ben- jamin Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels. Bandaríkjastjórn gagnrýndi frumvarpið og kvaðst hafa áhyggjur af því að það græfi undan málfrels- inu. Donald Tusk, forseti leiðtoga- ráðs Evrópusambandsins og fyrr- verandi forsætisráðherra Póllands, tók undir gagnrýnina. Þjóðernissinnaður hægriflokkur, Lög og réttur, er með meirihluta í báðum deildum pólska þingsins. Frumvarpið verður ekki að lögum nema forseti Póllands, Andrzej Duda, undirriti þau innan þriggja vikna. Hann hefur lofað að fara yfir lagafrumvarpið áður en hann tekur ákvörðun um hvort hann staðfestir það, að sögn fréttaveitunnar AFP. Frumvarp um hel- förina gagnrýnt  Bannað að bendla Pólland við útrým- ingarherferð nasista gegn gyðingum AFP Umdeild ákvörðun Efri deild pólska þingsins á fundi í gærmorgun. /////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////////

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.