Morgunblaðið - 02.02.2018, Page 30

Morgunblaðið - 02.02.2018, Page 30
30 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2018 ✝ BjarneyÁgústsdóttir fæddist á Selfossi 12. nóvember 1970. Hún lést 24. janúar 2018 á heimili sínu á Sel- fossi. Hún var dóttir hjónanna Ágústs Ólafssonar frá Sæfelli, Eyrar- bakka, f. 12. nóvember 1949, d. 2. mars 1976, og Þórunnar Engilberts- dóttur frá Selfossi, f. 30. júlí 1950, d. 17. mars 2007. Bjarney var flest sín upp- desember 1995. Fyrir átti Bjarney Ágúst, f. 5. febrúar 1988. Hjalti átti fyrir Evu Dögg, f. 2. janúar 1982. Þau Hjalti bjuggu á Eyrar- bakka og Selfossi fyrstu árin en 1994 fluttu þau til Kefla- víkur og 1997 fluttu þau svo til Vestmannaeyja og bjuggu þar til 2005 er þau slitu sam- vistum. Í Vestmannaeyjum var Bjarney virk í félagslífinu og meðal annars tók hún þátt í starfi Leikfélags Vest- mannaeyja. Seinna, eftir að hún flutti til Reykjavíkur, starfaði hún töluvert fyrir Samhjálp. Bjarney átti við erfið veik- indi að stríða síðustu árin og lést í kjölfar þeirra. Útför hennar fer fram frá Eyrarbakkakirkju í dag, 2. febrúar 2018, og hefst athöfn- in klukkan 13.30. vaxtarár á Eyrar- bakka, hjá ömmu sinni og alnöfnu og leit alla tíð á Eyrarbakka sem sinn heimabæ. Hún vann bæði í fiski og við verslunarstörf ásamt fleiru sem til féll á Eyr- arbakka. Árið 1990 hóf hún sambúð með Hjalta Tómas- syni, f. 7. mars 1963, og sam- an eignuðust þau tvær dætur, Ríkeyju, f. 23. febrúar 1993, og Rakel Steinunni, f. 19. Mig langar að kveðja hana Bjarneyju mína í örfáum orðum. Hún féll frá, langt fyrir aldur fram, og það er mikill söknuður í fjölskyldunni okkar. Einhvers staðar segir að þeir deyi ungir sem guðirnir elska og það er hreint ekki ólíklegt að hennar hafi hreinlega verið þörf við hlið almættisins á þessum síð- ustu og verstu tímum. Það er í það minnsta skortur á góðvild í heiminum en af henni átti Bjarn- ey nóg fyrir alla. Við Bjarney kynntumst og hóf- um saman búskap 1990 og eydd- um næstu sextán árum saman gegnum súrt og sætt. Því miður entist hjónaband og sambúð okk- ar ekki lengur og kemur sjálfsagt margt til eins og gengur en alla tíð höfum við verið góðir vinir og höfum alltaf getað leitað hvort til annars þegar illa áraði í lífi okkar. Okkur þótti mjög vænt hvoru um annað. Bjarney var lífsglöð og dugleg kona. Þegar við kynntumst vann hún þrjár vinnur, auk þess að ala upp strákinn. Það varð vendipunktur í lífi okkar 1994. Þá tókum við sameig- inlega ákvörðun um að snúa við lífi okkar sem fram að þeim tíma hafði nokkuð einkennst af ákveðnu stjórnleysi og stefnu- leysi. Við skiptum algerlega um kúrs, fluttum til Keflavíkur þar sem við hófum nýtt líf og það fór að birta yfir á lífshimni okkar og við tók gott tímabil þar sem okk- ur gekk flest í haginn. Við fluttum til Vestmannaeyja 1997 og áttum þar okkar bestu ár. Við vorum bæði virk í félagslífinu en það eru ekki allir sem vita að Bjarney var góður leikari og tók þátt í þó nokkrum sýningum LV og kom fram í myndböndum og leikþátt- um í sjónvarpi. Hjá leikfélaginu varð hún hálfgerð mamma og átti alltaf til hlýjan faðm fyrir hvern þann sem á þurfti að halda. Mestallan þann tíma sem við bjuggum í Eyjum var heimilið okkar meira eins og samkomu- staður eða félagsheimili frekar en eitthvað annað. Ég gæti best trú- að að þeir hafi verið fáir sem áttu um sárt að binda sem ekki settust í einn eða annan tíma við eldhús- borðið í Litlabæ eða á tröppurnar fyrir neðan eldhúsgluggann. Allt- af átti Bjarney á könnunni og allt- af hafði hún tíma til að hlusta þeg- ar fólk bar upp vandamál sín. Bjarney talaði aldrei illa um nokkurn mann í mín eyru. Þetta get ég sagt með fullri vissu sem staðfestist í mörgum þeim um- mælum sem borist hafa á sam- félagsmiðlum í kjölfar andláts hennar. Bjarney geislaði frá sér góðvild og hlýju til alls og allra. Hún var töluverður sjúklingur hin seinni árin en bar veikindi sín með reisn og kvartaði helst aldrei. Hún átti stundum ekki heiman- gengt en hún var í góðu sambandi við sitt fólk í símanum og að sjálf- sögðu á Facebook. Hún var amma alveg fram í fingurgóma eins og barnabörnin hennar fengu að njóta. Ég kveð Bjarneyju af virðingu og harma mjög missi góðrar vin- konu minnar og móður barnanna minna sem eiga nú um sárt að binda en það hefur verið þeim mikill styrkur að sjá hve margir hafa minnst Bjarneyjar á undan- förnum dögum og sent hlýjar kveðjur og huggunarrík orð. Það er greinilegt að lífsgeisli Bjarneyjar hefur lýst upp tilveru margra. Hvíldu í friði, mín kæra. Ég mun hugsa um ungana okkar. Hjalti Tómasson. Ljósbrá Hvar sem ég vakna og hvert sem ég fer er hún sú eina sem vakir með mér. Ljósið mitt bjarta sem lýsti mér leið, hún vermir mitt hjarta, er engill í neyð. Hvert sem ég fer, hvar sem er vakir hún ein með mér. Í gegnum öll stríð, í stormi og hríð. Stúlkan sem enginn sér. Tíminn var okkar en leið allt of fljótt. Og lítið sem lokkar í niðdimmri nótt. Því nú er hún farin og kemur ei meir. En minningin lifir og aldrei deyr. Hvert sem ég fer, hvar sem er vakir hún ein með mér. Í gegnum öll stríð, í stormi og hríð. Stúlkan sem enginn sér. Ef aðeins ég mætti nú eilitla stund í köldu svartnætti fá einn endurfund. Með mér mun hún vaka. Hún getur mig sótt. Því sárin ei þjaka í eilífri nótt. Takk fyrir allt, elsku vinkona mín, og góða ferð. Þangað til næst … Ragna Björk. Það var hreint eins og tíminn stöðvaðist þegar okkur bárust til eyrna fréttir af ótímabæru and- láti bekkjar- og árgangssystur okkar, hennar Bjarneyjar. Hug- urinn tók að reika til baka, já aft- ur um rúmlega 30 ár. Til áranna sem, hjá flestum okkar, ein- kenndust af áhyggjuleysi, námi, leik og samveru. Bjarney til- heyrði hópnum og setti svip sinn svo sannarlega á hann. Þó svo að Bjarney tilheyrði „sínum“ vina- hóp þá var hún eiginlega vinur allra. Hún fór aldrei í manngreinar- álit, spáði aldrei í stétt eða stöðu. Það var einfaldlega ekki hún. All- ir voru jafnir í hennar augum, hún var réttsýn og hún bar virð- ingu fyrir öðrum. Hún var góður vinur. En Bjarney var líka töffari, virtist oft á tíðum eilítið þroskaðri en við flest, hún var hreinskilin og opin persóna. Þetta voru skemmtileg og fjörug ár, þar sem margt misgáfulegt var brallað. Eins og eðlilegt er í stórum hóp voru samskiptin á milli okkar síðustu árin mismikil. Með hjálp samfélagsmiðlanna verður fjar- lægðin svo afstæð og þeir gera okkur kleift að vera í meiri sam- skiptum okkar í milli, þrátt fyrir fjarlægðir og annir fólks. Að fylgja Bjarneyju, hvort sem var á slíkum miðlum eða augliti til aug- litis, var svo sannarlega mann- bætandi. Fallegu kveðjurnar í morgunsárið með von um góðan og fallegan dag voru ómissandi og hvetjandi. Að fylgjast með hversu mikið hún naut samvista við fólkið sitt, það sem var kærast henni, var yndislegt. Missir þeirra er mikill. Hún gaf greini- lega mikið af sér til þeirra sem það þurftu og var óeigingjörn á tíma sinn og krafta. Hún lét gott af sér leiða og var svo sannarlega með hjarta úr gulli. Um leið og við þökkum Bjarn- eyju fyrir samfylgdina, yljum við okkur við ómetanlegar og dýr- mætar minningar um góðan fé- laga sem kenndi okkur hinum svo mikið. Við erum svo sannarlega rík að hafa kynnst henni og verið samferða. Börnum hennar, barnabörnum og öðrum ættingj- um vottum við okkar dýpstu samúð. Takk fyrir allt, elsku Bjarney okkar. F.h. árgangs 1970 í Gagn- fræðaskóla Selfoss, Anna Margrét Magnúsdóttir. Bjarney Ágústsdóttir ✝ Gísli Sigurðs-son fæddist í Reykjavík 15. nóvember 1956. Hann lést á heim- ili sínu 21. janúar 2018. Foreldrar hans voru Sigurður Júl- íusson, f. 4.12. 1917, d. 14.2. 1984, og Sigríður Gísladóttir, f. 8.10. 1925, d. 19.1. 2014. Systkini hans voru: 1) Júl- íus Sigurðsson, f. 5.8. 1946, d. 25.10. 1999, kvæntur Lilju Jónsdóttur, börn þeirra eru Elísabet, Ingi Rafnar og Jón Páll. 2) Brynhild- ur Sigurðardóttir, f. 12.8. 1950, d. 26.5. 2009, dóttir hennar er Sigríð- ur Oddný. Gísli ólst upp í Reykjavík og bjó þar alla tíð, lengst af í 101 Reykja- vík. Árið 1971 hóf hann störf hjá Blikk og stál, síðar Ísloft, og starfaði hann þar alla tíð, eða í 47 ár. Útför hans fer fram frá Dómkirkjunni í dag, 2. febr- úar 2018, klukkan 15. Reynsla er ekki það sem kemur af sjálfu sér, heldur það sem maður lærir af því sem maður tekur sér fyrir hendur. Orð sem lýsa lífshlaupi vinar okkar og starfsfélaga, Gísla Sigurðssonar, vel. Gísli var lífskúnstner og spekúlant sem hafði skoðanir á flestu sem hon- um fannst merkilegt, annað var ekkert endilega rætt. Þó svo að hann hafi lært af því sem á daga hans hefur drifið, er ekki þar með sagt að hann hafi farið eftir því öllu eða nýtt sér reynsluna með „hefðbundnum hætti“. Hann fór eigin leiðir í öllu sem hann tók sér fyrir hendur og það var sjaldnast einfalda leiðin. Stundum var eins og hann hefði ekki áhuga á að gera hlutina auðvelda, hitt hentaði bara betur og mótlæti styrkir mann. Hann var vel virtur af samferðafólki, bæði í leik og starfi og átti ófáar stundir með starfsfélögum í faginu sem nutu góðs af reynslu og þolinmæði hans. Hann var verklaginn og lunkinn smiður. Gísli var Frammari af lífi og sál og studdi sitt félag í blíðu sem stríðu. Sagði stundum þegar illa gekk í boltanum, að það hefði nú verið heiðskírt á skíðasvæði Fram í gær. Reyndar hafi verið óþarflega oft heiðskírt á skíða- svæðinu undanfarin ár. Þá var hann eldheitur stuðningsmaður Man. Utd og lét andstæðinga sína í enska boltanum vita, af sinni alkunnu hógværð, þegar við litlu kallarnir töpuðum leikj- um gegn Rauðu djöflunum. Þá var bjart yfir Betlehem. Hann var ekkert að trana sér fram ef United tapaði, vildi ekki skemma daginn fyrir okkur, sem höfðum svo sjaldan ástæðu til að gleðjast. Hann lét okkur líka heyra það, ef liðin okkar, sem hann tippaði á, töpuðu og hann fór á mis við hundruð þús- unda sem annars hefðu unnist. Gísli var skemmtilegur karakt- er og verður sárt saknað í okk- ar starfsmannahópi. Við kveðjum Gísla Sigurðs- son með þakklæti og ljúfum minningum um góðan dreng. Vertu sæll, við þökkum þér fyrir samstarfið, vinur. Fyrir hönd starfsfélaga Ísloft blikk & stálsmiðju ehf. Bjarni Hannesson. Gísli Sigurðsson hóf störf hjá Blikk og stál hf. 1971, síðar Ís- loft blikk & stálsmiðju ehf., kornungur eða aðeins 14 ára gamall og hefur starfsferill Gísla því spannað alls rúmlega 46 ár. Við minnumst hans sem sérlega góðs og trausts drengs. Allir sem þekktu til Gísla gegn- um starf hans báru mikla virð- ingu fyrir honum sem glúrnum og úrræðagóðum fagmanni. Það kom ósjaldan fyrir að viðskipta- vinir óskuðu sérstaklega eftir Gísla „til verksins“. Sem unglingur var Gísli sér- lega orkumikill og þurfti að hafa margt fyrir stafni og lík- lega hefur það verið stór þáttur í því að hann hóf svo ungur vel ríflega fullt starf, eins og tíðk- aðist gjarnan á þessum tíma. Gísli hikaði ekki við og stóð ítrekað í framvarðarlínu ef ástæða var til að verja félaga sína gagnvart ytra áreiti af hvaða toga sem var. Gísli hafði skemmtilegan húmor, oft hnyttinn í tilsvörum og hafði ætíð vel ígrundaðar og rökfastar skoðanir á þeim mál- efnum sem hann taldi ástæðu til en lét vera að gaspra um aðra hluti sem hann taldi ekki skipta máli eða voru aukaatriði að hans mati. Óhætt er að segja að mikil virðing var borin fyrir Gísla af samstarfsmönn- um í gegnum árin, hann var vinsæll meðal starfsmanna. Það má segja að Gísli hafi haft sitt eigið starfssvæði hér í fyrir- tækinu og það var enginn vafi í hugum annarra starfsmanna, þetta var hans svæði þar sem að hann réð ríkjum en þó af fullkominni hógværð. Engu að síður þá var þetta ríkið hans Gísla og þar setti hann regl- urnar. Margir, bæði starfs- menn og viðskiptavinir, sóttu í að staldra við hjá Gísla og spjalla aðeins, enda var and- rúmsloftið þrungið reynslu, skemmtilegum sögum og hnyttnum tilsvörum. Hann var öflugur stuðningsmaður reynsluminni starfsmanna í faginu og rétti oft fram hjálp- arhönd, þar sem reynsla hans og viska kom öðrum að góðum notum. Margs er að minnast eftir öll þessi ár og margar skemmtilegar minningar og sögur í leik og starfi sem munu fylgja okkur um ókomna tíð um Gísla og með Gísla. Hans verð- ur sárt saknað hér hjá okkur því ljúfur, skemmtilegur og ekki síst mjög kær drengur hefur nú kvatt okkur. Við kveðjum Gísla Sigurðs- son með þakklæti, virðingu og ljúfum minningum um góðan dreng. Vertu sæll vinur og takk fyrir öll árin. Við munum sakna þín hér hjá okkur. Fyrir hönd Ísloft blikk- og stálsmiðju ehf. Þorsteinn Ögmundsson, Sigurrós Erlendsdóttir. Gísli Sigurðsson ✝ Ármann Ósk-arsson fæddist í Reykjavík 6. desem- ber 1929. Hann lést á Landspítalanum í Fossvogi 19. janúar 2018. Hann var elsti sonur hjónanna Óskars Breiðfjörð Kristjánssonar frá Vaðstakksheiði í Neshreppi og Elín- ar Önnu Björnsdóttur úr Reykjavík. Systkini Ármanns eru: Unnur, f. 1933, Björn Ósk- ar, f. 1938, d. 2013, og Hilmar, f. 1944. Fyrri kona Ármanns var: Kristbjörg María Jónsdóttir. Hún lést 2017. Börn þeirra eru: Jón Agnar, f. 1953, Gunnar Skúli, f. 1958. Eiginkona hans er Helga Þórðardóttir. Börn þeirra eru: Magnús Ingi, Þórður Skúli, Kristbjörg María og Guðlaug Anna. Óskar, f. 1964. Eiginkona hans er Bára Elías- dóttir. Börn þeirra eru: Arna, Ármann og Gunnar Krist- inn. Eftirlifandi eiginkona Ár- manns: Guðlaug Gunnarsdóttir, f. 26. júlí 1938. Ár- mann og Guðlaug giftust 18. júlí 1982. Ármann var flugvirki að mennt og starfaði við það allan starfsferil sinn, annars vegar hjá Flugfélagi Íslands og Flug- leiðum (Icelandair). Ármann vann í hálfa öld við iðn sína fram að starfslokum, 67 ára gamall. Útför hans fer fram frá Vídal- ínskirkju í Garðabæ í dag, 2. febrúar 2018, klukkan 13. Hann verður jarðsettur í Garða- kirkjugarði. Það hafa skipst á skin og skúr- ir í föðurfjölskyldu okkar syst- kina þennan veturinn. Á meðan það fjölgaði um þrjú í yngstu kynslóðinni þá kveðjum við og minnumst þeirra elstu. Ármann afi okkar, eða afi í Garðabæ eins og við kölluðum hann alltaf, kvaddi á friðsælan hátt fyrir rúmri viku. Hann hélt í góða skapið sitt alveg fram undir það síðasta og er það þannig sem við munum muna eftir honum. Margar minningar rifjast upp á tímamótum sem þessum. Sumardagar í bústaðnum þeirra Guðlaugar á Flúðum, veiðiferð á Þingvelli með gömlum félögum úr Flugvirkjafélaginu, flugsýn- ingar þar sem afi þekkti alla flug- mennina með nafni, mjúku pakk- arnir með flottu fötunum frá Bandaríkjunum, en afi ferðaðist mikið þangað með henni Guð- laugu sinni, og fleiri góðar minn- ingar skjóta upp kollinum. Við strákarnir í Langagerðinu vorum svo heppnir að hafa afa hjá okkur í nánast allt sumar á meðan hann jafnaði sig á veikind- um. Það var virkilega dýrmætt og hverfur okkur seint úr minni, en einnig var það tækifæri fyrir langafabörnin hans sem þá voru fædd, Sigurð Vopna og Báru Rán, að fá að kynnast honum. Við eldri, Arna og Ármann, höfum fengið að kynnast fólki við störf okkar fyrir Icelandair, sem vann með afa og þekkti hann. Það er alveg sama hver á í hlut, allir brosa og rifja upp góða tíma með góðum manni þegar kemur upp úr dúrnum hverra manna við séum. Þau eru öll sammála um að hann hafi getið sér gott orð alls staðar þar sem hann kom við á sínum merkilega starfsferli. Hvíldu í friði, elsku afi, við munum sakna þín. Arna, Ármann og Gunnar Kristinn. Ármann Óskarsson Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, ELÍSA GUÐLAUG JÓNSDÓTTIR, lést miðvikudaginn 30. janúar. Útför hennar fer fram frá Fella- og Hólakirkju fimmtudaginn 8. febrúar klukkan 13. Jón Hannesson Ólöf Jóna Sigurgeirsdóttir Ólafur Axelsson Guðrún Iðunn Jónsdóttir barnabörn og barnabarnabörn

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.