Morgunblaðið - 02.02.2018, Page 31

Morgunblaðið - 02.02.2018, Page 31
MINNINGAR 31 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 2. FEBRÚAR 2018 ✝ Sigurbjörgfæddist í Kjólsvík, Desjar- mýrarsókn, 10. febrúar 1920. Hún lést 20. janúar 2018 á Hrafnistu í Reykjavík. Foreldrar henn- ar voru Jón Magn- ússon, f. 15.2. 1880 á Glettingsnesi í Desjarmýrarsókn, d. 24.8. 1946, og Sólveig Sigur- björnsdóttir, f. 12.7. 1889 á Básum, Miðgarðasókn í Gríms- ey, d. 28.11. 1927. Sigurbjörg var næstyngst fimm systkina en þau eru nú öll látin; Kristberg Jónsson, f. 1916, d. 1996, Magnús Jónsson, f. 1917, d. 1981, Guðmundur Jónsson, f. 1918, d. 2009, og Kristborg Jóns- dóttir, f. 1923, d. 1992. Hún eignaðist tvær dætur, þær Sólveigu Jóhanns- dóttur, f. 25.5. 1937, og Ásdísi Jónsdóttur, f. 23.9. 1949. Árið 1957 giftist Sigurbjörg Ás- grími Karli Geir- mundssyni, f. 1906, d. 1972, frá Hóli í Hjaltastaðaþinghá þar sem þau bjuggu þar til 1971. Sigurbjörg skilur eftir sig tvær dætur, þrjú barnabörn og sex barnabarnabörn. Útförin fer fram frá Lang- holtskirkju í dag, 2. febrúar 2018, klukkan 13. Elsku amma okkar. Alltaf varst þú svo glaðleg þegar þú sóttir okkur á leikskólann og stakkst svo upp á því að við myndum ganga heim til þess að njóta þess að vera úti. Þú varst svo smávaxin en með stærsta hjartað. Þitt hlýja bros og heitu hend- ur. Við lékum okkur að því að renna niður fætur þína þegar við vorum lítil, en hvað þú varðst smá þegar við urðum eldri. Þú sast og prjónaðir sokka á allan hópinn, ömmu- og langömmu- börn því engum mátti verða kalt. Ávallt varstu til í að taka í spil við okkur. Hlýlegri sál var vart að finna. Mikið söknum við þín. Minning þín lifir í hjörtum okkar. Elísabet, Ásgrímur, Ásdís Sólveig, Haukur, Birgitta Rós, Stefanía Ösp og Guðrún Eik. Sigurbjörg Jónsdóttir var blíð kona. Hláturmild, vinnusöm, matmóðir og hálfvegis móðir okkar bræðra í ákveðnum skiln- ingi á mikilvægu tímabili þroska- skeiðs okkar, átta til þrettán ára, um það bil. Sigurbjörg húsfreyja á Hóli fæddist árið 1920 í Kjólsvík, einni af víkum Borgarfjarðar eystra. Þar er hafnlaust og opið Austur- hafið blasir við frá bæjartóftun- um. Þegar vettvangur er kann- aður má ljóst vera að þarna var harðbýlt. Frá Kjólsvík fluttist hún síðar til Breiðuvíkur skammt sunnan Kjólsvíkur. Þar er ögn búsældarlegra en í Kjólsvík, fag- urt um að litast og tiltölulega stutt yfir til Borgarfjarðar eystri, yfir eina Gagnheiði að fara. Sigurbjörg vildi lítið ræða æsku sína og uppvöxt á þessum slóðum þegar gengið var á hana. Þegar við bræður vorum fyrst sendir í Útmannasveit, að Hóli í Hjaltastaðaþinghá, til ömmu- bróður okkar Ásgríms Geir- mundssonar og Sigurbjargar var ekki að finna nútímaleg þægindi, rafmagn, salerni og bað. Neyslu- vatni var dælt með handafli úr brunni undir eldhúsinu, kamar var í útihúsi sambyggðu íbúðar- húsinu og ljósmetið voru olíu- lampar. Síminn hleraður af hverjum sem heyra vildi: Þrjár stuttar, ein löng, eða eitthvað nærri því. En nútíminn var handan við hornið. Næstu sumur var komið nútímalegt bað, rafmagn og önn- ur þægindi. Þetta var alsæla. Við strák- arnir vorum settir í alvöru hey- skap, jafnvel upp á dráttarvél. Við rákum fé á fjall, lærðum að rýja og veiddum í fljótinu. Sel- veiðar stunduðu Ásgrímur og Ragnar bróðir hans á Sandi á vorin. Þetta var spennandi og áhrifarík reynsla fyrir okkur bræður. Fram undir 1970 tíðkaðist að heyja engjar á leirunum úti við Héraðsflóa. Á stórum blautum bölum innan um þýfið óx gras í breiðum sem gat verið góð búbót. Þetta var mikil útgerð. Traktor með sláttuvél, mannskapur rak- aði og batt í bagga upp á gamla móðinn, traktor dró heyvagn heim að kveldi og við hvíldum lú- in bein upp á hlassinu. Mikil vinna en góðar minningar. Ekki síst fyrir atlæti og viðurgjörning Sigurbjargar sem veittur var þegar mest reið á fyrir soltna unga vinnumenn. Mjólk í flösk- um sem klæddar voru í ullar- leista, rúgbrauð og hangikjöt eða ostur og dýrðlegt bakkelsi. Minningarnar ljóslifandi og fal- legar. Ilmurinn af störinni, stór- brotið fuglalíf. Búskapur lagðist af á Hóli í byrjun aldarinnar þegar Guðmar frændi Ragnarsson, brá búi. Við höfum átt þess kost að hreiðra um okkur í íbúðarhúsinu sem hann byggði og halda því við. Við horfum þaðan heim að gamla Hólsbænum á fljótsbakkanum. Þessi afskekkta sveit togar í okk- ur sem og minningarnar um góða tíma hjá Sigurbjörgu og Grímsa. Við færum dætrum Sigur- bjargar og fjölskyldum innilegar samúðarkveðjur. Blessuð sé minning hennar. Jóhann Hauksson, Magnús Hauksson. Hún Sigurbjörg! Grímsi og Sigurbjörg á Hóli eru sennilega fyrsta fólkið sem ég man eftir fyrir utan mömmu, pabba og bræður mína. Ásgrímur Geirmundsson, Grímsi, var ömmubróðir minn og Sigurbjörg konan hans. Við bjuggum á Egilsstöðum en þau á bökkum Lagarfljóts, á Hóli í Hjaltastaðaþinghá. Pabbi ætlaði að verja kandídatsárinu sem hér- aðslæknir í Suður-Múlasýslu. Árin urðu mun fleiri. Ástæðan held ég að hafi ekki síst verið ná- lægðin við þessi góðu hjón. Bræður mínir voru þarna í sveit og við hvert tækifæri og mamma undi sér hvergi betur. Bærinn og búskaparhættir voru gamaldags á nútíma mæli- kvarða. Þetta man ég allt vel og eru þetta ljúfar fyrstu minning- ar. Innangengt var úr húsinu inn í fjós. Í kjallara undir eldhúsinu var brunnur. Upp úr honum þurfti að handdæla neysluvatni. Ég man kolaeldavélina sem ylj- aði allt húsið og Sigurbjörgu við bakstur eða matargerð. Ég man litlu kettlingana. Ég fékk að spreyta mig á að mala kaffi í kaffikvörn og prófa að mjólka beljurnar. Á efri hæðinni á Hóli voru her- bergi og stássstofa sem mér þótti sem lítilli stelpuhnátu vera eins og höll. Englar, Jesúmyndir, lit- rík gerviblóm, Gullfoss, lampi sem snérist og margir aðrir dýr- gripir. Ákvað ég þarna að ég skyldi eiga svona fína stofu eins og Sigurbjörg þegar ég yrði stór. Ég elti víst Grímsa út um allt og hann því kallaður „einlemb- an“ eða ég „gemlingurinn hans Grímsa“. Eftir þessi ferðalög var gott að koma inn og fá bakkelsi hjá Sigurbjörgu. Svo fluttum við til Reykja- víkur og síðan einnig Sigurbjörg og Grímsi sem féll frá snemma á áttunda áratugnum. Tryggari, ljúfari og blíðari konu en Sigurbjörgu var vart að finna. Við mamma áttum sam- liggjandi afmælisdaga í nóvem- ber og ekki brást að þá komu þær mæðgur, Sigurbjörg, Dísa og Sólveig í heimsókn hlaðnar gjöfum. Ég heyri enn óminn af dillandi hlátri Sigurbjargar. Nú þykir mér undurvænt um skrautlegu bollana og aðra dýr- gripi sem eru tákn um ást og væntumþykju. Ég hugsa í hvert skipti til elsku Sigurbjargar þegar þessir gripir eru teknir fram, sem er æði oft. Það er með söknuði, ást og virðingu sem ég kveð þessa vin- konu mína og votta ég dætrum hennar og fjölskyldum mína dýpstu samúð. Minning Sigur- bjargar lifir. Jónína Eir Hauksdóttir. Elsku mamma, þakka þér fyrir stuðninginn bæði í gleði og sorg. Þú varst kletturinn sem alltaf var hægt að leita til. Sást ljósið og það fallega í líf- inu. Við vitum að þú ert komin á góðan stað þar sem þú gengur um grænar grundir. Söknum þín, Ásdís og Sólveig. Amma, af eigingirni finnst mér þú hafa verið sköpuð í þetta hlut- verk; lágvaxin, búttuð og krull- hærð. Lífið var svo ljúft með þér, Sól- veigu og Jónasi í Ljósheimum 18a. Dýrmætar minningar þar sem dagarnir liðu með spilasyrpum og göngutúrum um Grasagarð- inn. Þótt ég geti ekki lengur hald- ið í hönd þína þá fylltir þú hjarta mitt af hamingju fyrir það ferða- lag sem ég á eftir. Ég þakka þér þolinmæðina í Úlfsstaðaskógi hér um árið þegar ég grillaði handa þér grjót á ryðguðu grilli. Þú hefur alltaf verið engill og ég elska þig svo heitt. Það er erfitt að kveðja en hjartanu hlýnar að hugsa til þess að þú sért komin til austfirskra fjalla. Sjáumst seinna. Sigurbjörg Stefánsdóttir. Sigurbjörg Jónsdóttir ✝ Jón Ingi fædd-ist í Hafnar- firði 15. júní, 1937. Hann lést 16. jan- úar 2018. Foreldrar hans voru Aðalheiður E. Jónsdóttir verka- kona, f. 23.8. 1911, d. 8.11. 1994, og Sigursteinn Bjarnason verka- maður, f. 29.2. 1896, d. 15.7. 1988. Blóðsystkini Jóns Inga eru: 1) Hörður, f. 1934, 2) Guðfinna Jóna, f. 1936, d. 2017, 3) Halldóra Brynja, f. 1941, 4) Bjarni, f. 1945, d. 2011, 5) Rúnar, f. 1946, 6) Einar, f. 1950. Samfeðra eru: 1) Aðal- steinn, f. 1924, 2) Guðbergur, f. 1926, d. 1988. Fósturforeldrar, sem tóku Jón Inga að sér sem kornabarn og ættleiddu á full- orðinsárum, voru Halldóra Jónsdóttir verkakona, systir Aðalheiðar, f. 1.11. 1909, d. dóra, skurðhjúkrunarfræð- ingur, f. 29.1. 1971, gift Sigur- birni Rafni Úlfarssyni vélvirkja. Sonur Sigurbjörns er Stefán Rafn, fréttamaður, f. 27.12. 1987. Jón Ingi bjó nær alla tíð á æskuheimili sínu að Öldugötu 4, sem kallað var Gróf eftir æsku- heimili föðurafa hans í Hrepp- um. Um tíma bjuggu fjórir ætt- liðir í Gróf. Jón Ingi lærði til múrara og vann við fagið alla sína starfsævi. Fyrir um 40 ár- um varð hann verkstjóri upp- græðslufyrirtækisins Sáningar en keypti síðar starfsemina og rak fyrirtækið þar til Sigur- steinn systursonur hans tók við fyrir nokkrum árum. Bæði í tengslum við múrverk og Sán- ingu starfaði Jón Ingi um allt land og spor hans má víða finna í gróðri og í byggingum. Jón Ingi tók virkan þátt í baráttu verkafólks fyrir bættum kjörum með Félagi byggingariðnaðar- manna í Hafnarfirði og var virkur í starfi Alþýðubandalags- ins og Samfylkingarinnar. Jón Ingi verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, 2. febrúar 2018, og hefst athöfnin klukkan 13. 25.1. 1999, og Sveinbjörn Þórður Sveinsson klæð- skeri, f. 15.11. 1907, d. 13.8. 1961. Fóstursystkini Jóns Inga eru Ingólfur Hafsteinn, f. 1932, d. 1954, og Erla Sigrún, f. 1944. Jón Ingi giftist Kristínu Jónu Kristjónsdóttur hjúkrunarfræðingi. Þau skildu. Foreldrar hennar voru Helga Elísdóttir og Kristjón Jónsson. Börn Jóns Inga og Kristínar: 1) Aðalheiður, sálfræðingur f. 22.11. 1965, sambýlismaður hennar er Dagfinnur Smári, vélvirki. 2) Kristjón, rafeinda- virki, f. 13.10. 1966, d. 16.6. 2016, eftirlifandi eiginkona hans er Steinvör Þorleifsdóttir, hagfræðingur. Börn þeirra: Kristín Jóna, f. 30.11. 2004, og Þórhildur, f. 12.6. 2007, 3) Hall- Í dag verður Jón Ingi tengda- faðir minn borinn til grafar í Garðakirkjugarði þar sem sonur hans og eiginmaður minn hvílir. Hann lést þann 16. janúar með afastelpurnar sínar hjá sér og þær voru nýbúnar að tala um að hann væri besti afi í heimi. Það er einmitt það sem ég á honum mest að þakka en hann var svo sannarlega góður afi og tengda- pabbi. Jóni Inga kynntist ég þegar leiðir okkar Kristjóns sonar hans lágu saman. Jón Ingi var myndarlegur maður með falleg ljósblá augu eins og sonur hans. Hann tók mér strax mjög vel og ekki skemmdi fyrir að ég hafði búið í mörg ár í Þýskalandi en þar átti hann góða vini og hann kunni góða þýsku. Hann brýndi fyrir mér að kenna dætr- unum þýsku og gaf þeim Passíu- sálmana á þýsku svo að þær gætu borið það saman við ís- lensku þýðinguna og lært gott mál. Tengdapabbi var hláturmildur og ávallt stutt í spaugið. Hann gerði oft að gamni sínu og hafði gaman af því að segja sögur og brandara. Hann var einnig söng- elskur og söng mjög fallega. Ég man hvað ég var hissa þegar ég heyrði hann fyrst syngja en ég hafði þá ekki hugmynd um að hann hefði lengi verið í kór. Í mörg ár var tengdapabbi með fyrirtæki og sáði grasfræi um allt land, meðal annars fyrir Vegagerðina. Hann sáði grasi meðfram veginum hjá Kolfreyju- stað þar sem ég er fædd og alin upp. Hann talaði oft um það að hann hefði tekið eftir hvað það hefði verið snyrtilegt og fallegt á Kolfreyjustað og mér þótti mjög vænt um það. Kristjón talaði oft um úti- legurnar sem hann fór í með fjöl- skyldu sinni þegar hann var lítill. Þá var farið á fjölskyldujeppan- um með kerru aftan í með tjaldi og vistum og kötturinn jafnvel með í för. Þau fóru í margra daga úti- legur vítt og breitt um landið, Sprengisand, Kjöl, Strandirnar og fleiri staði. Á þessum tíma voru vegirnir ekki malbikaðir eins og núna svo að þetta hefur verið mikið ævintýri. Í þessum ferðum renndu þeir feðgar oft fyrir silung eða lax, Kristjón bara smá patti. Ég efast ekki um að þessi ferðalög fjölskyldunnar hafa kveikt áhuga Kristjóns á fjallamennsku sem var alla tíð hans aðaláhugamál. Jón Ingi og Kristjón fóru einnig saman í veiðiferðir eftir að Kristjón varð fullorðinn. Það var fallegt samband á milli Jóns Inga og afastelpnanna Kristínar og Þórhildar. Hann kom alltaf með nammi eða ís handa þeim og þeim þremur þótti sérstaklega gaman ef stelp- unum tókst að borða nammið fyrir kvöldmat sem var að sjálf- sögðu bannað. Hann hafði mik- inn áhuga á náminu þeirra og áhugamálum og mætti ávallt á tónleika og aðra viðburði hjá þeim. Hann var alltaf ánægður ef við fórum til útlanda því að það fannst honum hafa mikið menntunargildi fyrir þær. Í sumar varð tengdapabbi átt- ræður og þá bauð hann afkom- endum sínum til Frakklands. Við áttum þar skemmtilegan tíma saman þar sem afastelpurnar leiddu afa sinn um franskar hall- ir og stræti. Við erum mjög þakklátar fyrir að hafa átt þenn- an tíma með honum. Hvíl í friði, elsku tengdapabbi. Þín tengdadóttir, Steinvör V. Þorleifsdóttir. Jón Ingi Sigursteinsson Elskulegur bróðir okkar, ÞÓRIR MAGNÚSSON, Hjallavegi 2, lést á Landakoti mánudaginn 29. janúar. Hrefna Magnúsdóttir Ragna Magnúsdóttir Soffía Magnúsdóttir Karl Höfðdal Magnússon Faðir minn, afi, bróðir, frændi og vinur, EINAR GARÐAR ÞÓRHALLSSON gullsmíðameistari, er látinn. Aðstandendur Okkar ástkæra HULDA INGIMUNDARDÓTTIR lést á Hrafnistu í Reykjavík þriðjudaginn 30. janúar. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn 7. febrúar klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á Ljósið. Guðmundur Bjarnason Ásta Jóhanna Einarsdóttir Brynja Bjarnadóttir Steindór Rafn Theódórsson Vera Björk Einarsdóttir Hjalti Kristjánsson Íris Huld Einarsdóttir Kári Schram ömmubörn, langömmubörn og langalangömmubörn Elskuleg dóttir mín, móðir og systir, KATRÍN DRÖFN BRIDDE, andaðist miðvikudaginn 24. janúar. Útför fer fram frá Bústaðakirkju í dag, föstudaginn 2. febrúar, kl. 15. Blóm afþökkuð en þeim sem vilja minnast hennar er bent á reikning til styrktar börnunum í Landsb. nr. 111-05-010112, kt. 310851-2999. Friðrik Bridde Gabríel Friðrik Rakel Margrét Stefán Smári Rebekka Thelma Anna Margrét Bridde Elvar Birgisson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.