Morgunblaðið - 06.02.2018, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 06.02.2018, Qupperneq 1
Deila Eiginnafnið Alex fæst ekki viðurkennt sem kvenmannsnafn. Mannanafnanefnd samþykkir ekki nafn Alexar Emmu Ómarsdóttur, fjögurra ára stúlku sem enn er skráð Stúlka Ómarsdóttir hjá Þjóð- skrá. Ástæðan er sú að nefndin samþykkir ekki eiginnafnið Alex sem kvenmannsnafn. Foreldrar stúlkunnar ætla að leita réttar síns hjá dómstólum, en þau benda á að í öðrum löndum sé nafnið notað jafnt sem karl- og kvenmannsnafn. Samkvæmt lögum verða börn að hafa fengið nafn innan árs og því er svo komið að ekki verður hægt að endurnýja vegabréf Alexar Emmu, sem rennur út á þessu ári. „Við er- um orðin svolítið stressuð út af þessu,“ segja foreldrar hennar. »4 Má ekki heita Alex Þ R I Ð J U D A G U R 6. F E B R Ú A R 2 0 1 8 Stofnað 1913  31. tölublað  106. árgangur  VETRARBRÆÐUR MEÐ NÍU RÓBERT- VERÐLAUN KULDALEG EN HEILLANDI HLJÓÐFÆRI SKONDNAR OG LITRÍKAR TEIKNI- MYNDAPERSÓNUR ÍSTÓNLISTARHÁTÍÐ 17 FALLEG FUGLASAGA 30SKYNJAR TÍMAMÓT 33 Þyrla Landhelgisgæslunnar neyddist til þess að lenda á grasflöt við Eiðsgranda vegna veðurs í gær. Hafði hún verið kölluð út vegna umferðaróhapps á Suðurlandi en þegar hún ætlaði að lenda aftur í Reykjavík hafði skyggni við flugvöllinn spillst vegna dimmra élja og ekki reyndist unnt að lenda þyrlunni þar. Eftir um klukkustundar bið var TF-GNA komin á Reykjavíkur- flugvöll. Það er mjög sjaldgæft að þyrla Landhelgisgæslunnar neyðist til að lenda annars staðar á höfuðborgarsvæðinu en á flugvellinum. Áhafnirnar eru þó þaulreyndar í að lenda utan flugvalla, til dæmis á þjóðvegum og fjallstindum. Í gær gekk á með allhvassri eða hvassri suðvestanátt og éljagangi á vestan- verðu landinu og gerði um tíma blindhríð. TF-GNA lenti á grasflöt við Eiðsgranda vegna dimmra élja Morgunblaðið/RAX  Heiða Kristín Helgadóttir, fram- kvæmdastjóri viðskiptahraðalsins Efnis, segir að nær útilokað sé fyrir smærri aðila að halda uppi fram- leiðslu á vönduðum vörum og selja úr landi vegna himinhás sendingar- kostnaðar frá Íslandi. Hún segir t.d. að sendingarkostn- aður á vörum sem Efni selur í gegn- um vefverslun sína, ArcticBeauty- .com, á 30-80 bandaríkjadali, sé að lágmarki 5.000 krónur. »16 Sendingarkostn- aður þröskuldur  Raforkuvinnsla hjá Landsvirkjun gekk afar vel á síðasta ári. Vinnslu- met voru sett í Fljótsdalsstöð, Sig- öldustöð, Búðarhálsstöð, Sultar- tangastöð og Steingrímsstöð við Sog, sem tekin var í notkun árið 1959. „Helsta skýringin á þessu er aukið álag (aukin sala) og þar með aukin nýting vinnslukerfisins. Auk þess hefur vatnsbúskapurinn á sama tíma verið hagstæður,“ segir Einar Mathiesen, framkvæmdastjóri orku- sviðs Landsvirkjunar. »18 Met sett í fram- leiðslu á raforku Ingveldur Geirsdóttir ingveldur@mbl.is Álagið á Landspítalanum hefur verið mikið síðustu vikur og búist er við að svo verði áfram. 40 einstaklingar voru í einangrun á spítalanum í gær, sem er með því mesta sem gerist. Þar af lágu 10 á bráðamóttöku. Langflestir eru með einkenni inflúensu. Mikið að gera vegna hálkuslysa Verið er að leita leiða til að útskrifa sjúklinga og koma þeim fyrir á deild- um, að sögn Guðlaugar Rakelar Guð- jónsdóttur, framkvæmdastjóra flæði- sviðs. Staðan á bráðamóttöku er betri en í seinni hluta síðasta mánaðar þegar um 20 sjúklingar biðu á bráðadeild eftir að komast á legudeildir. Þeir eru nú 12. Í gær var mikið um hálkuslys og hefur mikið álag verið á spítalanum vegna beinbrota og meðferðar þeirra. „Ástandið er aðeins skárra núna, en það er þungt og við búumst við að það þyngist aftur þegar líður á febr- úar því við teljum að inflúensufarald- urinn sé enn ekki búinn að ná há- marki,“ segir Jón Magnús. Töluvert er um veikindi starfsfólks spítalans, sem gerir erfiðara að manna deildir og einingar til að taka við sjúklingum. Jón Magnús segir að deildin finni verulega fyrir lokun sjúkrarúma vegna skorts á hjúkrun- arfræðingum. Ekki er hægt að nota 20-25 rúm vegna þess. „Ef þau væru opin myndu flestallir þeir sjúklingar sem eru í bið eftir plássi á bráðadeild- inni komast inn á sínar sérhæfðu legudeildir,“ segir Jón Magnús og segist ekki sjá annað fyrir sér en að ástandið muni versna. Fjörutíu sjúkling- ar í einangrun  Álag á Landspítala vegna inflúensu ekki náð hámarki Landspítali Annir eru á bráðadeild og fleiri deildum sjúkrahússins. MÁframt þungt álag »4

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.