Morgunblaðið - 06.02.2018, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2018
Einn virtasti óperuleikstjóri Breta,
John Copley, hefur verið rekinn sem
leikstjóri enduruppsetningar á óp-
erunni Semiramide eftir Rossini við
Metropolitan-óperuna í New York
sem frumsýna átti 19. febrúar. Sam-
kvæmt frétt The New York Times
mun ástæðan vera óviðeigandi um-
mæli hans á kóræfingu. „Ég sé þig
fyrir mér nakinn uppi í rúminu
mínu,“ á Copley að hafa sagt við
einn kórsöngvara uppfærslunnar,
sem kvartaði undan orðunum með
þeim afleiðingum að Peter Gelb,
stjórnandi óperunnar, rak Copley
umsvifalaust.
Copley, sem á að baki ríflega 50
ára feril í bransanum, hefur fengið
stuðning frá fyrrverandi samstarfs-
fólki sínu sem harmar uppsögnina.
Meðal þeirra er ástralska söng-
konan Helena Westwood Dix sem
syngur í Semiramide, en hún segir
augljóst að ummælin hafi átt að vera
brandari.
Leonard Egert, framkvæmda-
stjóri Bandalags bandarískra tón-
listarmanna, harmar uppsögnina.
„Það er okkar skilningur að skrifleg
afsökunarbeiðni til kórfélagans og
smávægileg breyting á æfingaplan-
inu hefði verið nóg til að leysa
málið,“ segir Egert, en því vísa
stjórnendur óperunnar á bug. Í yfir-
lýsingu frá Metropolitan-óperunni
er áréttað að velferð starfsfólksins
sé sett ofar öllu og strangar reglur
gildi um samskiptin á vinnustaðnum.
Þess má geta að Copley, sem er 84
ára, leikstýrði Évgení Onegin hjá Ís-
lensku óperunni árið 1993.
John Copley rekinn fyrir ummæli sín
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Það kom okkur á óvart hversu oft
við vorum kölluð upp. Við, sem unn-
um að myndinni, höfðum ekki séð
hvert annað í nokkra mánuði og vor-
um bara svo glöð að geta hist aðeins
og fagnað saman. En við bjuggumst
alls ekki við að vinna svona mörg
verðlaun,“ segir Hlynur Pálmason,
leikstjóri Vetrarbræðra sem kom, sá
og sigraði í Kaupmannahöfn á sunnu-
dagskvöld þegar Róbert-verðlaun
Dönsku kvikmyndaakademíunnar
voru afhent í 34. sinn. Myndin Vetr-
arbræður hafði ásamt myndinni Un-
derverden hlotið flestar tilnefningar,
alls 15 hvor mynd, og hlaut samtals
níu verðlaun meðan Underverden
hlaut aðeins tvenn, fyrir bestu klipp-
ingu og tónlist.
Hlynur var valinn leikstjóri ársins
og Vetrarbræður mynd ársins. Auk
þess unnu til verðlauna fyrir hlut
sinn í myndinni Elliott Crosset Hove
sem besti leikari í aðalhlutverki, Vic-
toria Carmen Sonne sem besta leik-
kona í aukahlutverki, Maria von
Hausswolff fyrir kvikmyndatöku,
Gustav Pontoppidan fyrir leikmynd,
Nina Grønlund fyrir búninga, Lars
Halvorsen fyrir hljóðhönnun og
Katrine Tersgov fyrir förðun.
Skynjar ákveðin tímamót
„Ég skynja ákveðin tímamót í
danskri kvikmyndagerð,“ segir
Hlynur og bendir á að meirihluti
þeirra sem tilnefndir voru fyrir leik-
stjórn sína voru, líkt og hann, að leik-
stýra sinni fyrstu mynd í fullri lengd.
„Það virðist vera einhver kynslóða-
breyting í gangi og fólk að gera kvik-
myndir sem er ekki aðeins ætlað að
þóknast einhverjum fyrir fram
ákveðnum markaði. Þetta er kvik-
myndagerðafólk sem hefur persónu-
lega nálgun og eitthvað nýtt að segja
í gegnum kvikmyndaformið.“
Af öðrum verðlaunahöfum kvölds-
ins má nefna að mynd sem byggist á
bók Jakobs Martins Strid, Ótrúleg
saga um risastóra peru, var valin
besta barna- og ungmennamynd árs-
ins. Besta sjónvarpsþáttaröðin var
valin Vegir Drottins sem sýnd var á
RÚV fyrr í vetur. Lars Mikkelsen og
Ann Eleonora Jørgensen voru verð-
launuð fyrir bestan leik í sömu seríu,
en fyrir bestan leik í aukahlutverki
voru verðlaunuð Mikkel Boe Følsga-
ard og Lene Maria Christensen fyrir
leik sinn í þriðju þáttaröð Erfingj-
anna. Besta bandaríska myndin var
valin Manchester by the Sea og besta
myndin utan Bandaríkjanna The
Square í leikstjórn Rubens Östlund.
Hjálpar við fjármögnun
Vetrarbræður var heimsfrumsýnd
á Locarno-kvikmyndahátíðinni í
Sviss í ágúst á síðasta ári og vann þar
til fernra verðlauna, m.a. fyrir leik
Elliott Crosset Hove í aðalhlutverki.
Myndin hefur nú þegar alls unnið til
13 alþjóðlegra verðlauna. Verðlaun-
unum gæti fjölgað því myndin er til-
nefnd til þrennra Bodil-verðlauna,
sem eru elstu kvikmyndaverðlaun
Danmerkur en þau verða afhent í 71.
sinn 17. mars og um valið sjá danskir
kvikmyndagagnrýnendur. Veitt eru
verðlaun í átta flokkum og eru
Vetrarbræður tilnefndir sem besta
myndin auk þess sem Hove er til-
nefndur sem besti leikari í aðal-
hlutverki og Simon Sears sem besti
leikari í aukahlutverki. Ekki er verð-
launað fyrir leikstjórn eða handrit.
„Við erum ótrúlega ánægð með til-
nefningarnar til gagnrýnendaverð-
launanna, hvort sem við vinnum eða
ekki,“ segir Hlynur og tekur fram að
öll verðlaun hjálpi honum í fjár-
mögnun næstu myndar.
Spurður hvernig hann útskýri gott
gengi Vetrarbræðra svarar Hlynur:
„Ég held að Vetrarbræður bjóði upp
á mjög sterka heildarupplifun og hún
vinnur með grunntilfinningar sem
við tengjumst öll á einhvern hátt.
Hjartað í myndinni eða kjarninn er
skortur á ást. Myndin sýnir okkur
hversu mikilvægt það er fyrir okkur
að tengjast, að vera partur af ein-
hverju, viðurkennd eða elskuð. Ég
held að myndin beri einnig virðingu
fyrir áhorfendum og upplifun
þeirra.“
Nýfluttur á Hornafjörð
Vetrarbræður er fyrsta kvikmynd-
in í fullri lengd sem Hlynur gerir í
Danmörku, en hann útskrifaðist sem
leikstjóri frá Danska kvikmynda-
skólanum 2013. Lokaverkefni hans
var stuttmyndin Málarinn með Ingv-
ari E. Sigurðssyni í aðalhlutverki.
Ingvar mun einnig fara með aðal-
hlutverkið í næstu kvikmynd Hlyns,
sem verður fyrsta myndin í fullri
lengd sem hann gerir hérlendis, en
hún nefnist Hvítur, hvítur dagur og
Hlynur skrifar handritið jafnframt
því að leikstýra.
„Í myndinni leikur Ingvar lög-
reglustjóra lítils sjávarþorps, hann
hefur verið frá starfi síðan eiginkona
hans hvarf fyrir tveimur árum. Hann
einbeitir sér að því að byggja hús fyr-
ir dóttur sína og fjölskyldu þar til
hann finnur upplýsingar sem fá hann
til að gruna mann í þorpinu um að
hafa átt í sambandi við konu hans og
því mögulega tengjast hvarfi hennar.
Grunur hans breytist fljótt í þrá-
hyggju sem leiðir hann til róttækra
gjörða sem setja hann og barnabarn
hans í mikla hættu. Þetta er saga um
hefnd, sorg og skilyrðislausa ást,“
segir Hlynur, sem nýfluttur er heim
til Íslands ásamt unnustu sinni og
þremur börnum og vinnur að því að
koma sér fyrir á Hornafirði.
Samkvæmt upplýsingum frá Ant-
oni Mána Svanssyni, sem mun fram-
leiða næstu mynd Hlyns fyrir hönd
Join Motion Pictures, hefjast tökur
hérlendis í ágúst.
Næsta mynd kynnt erlendis
„Í síðustu viku vann myndin, sem
nú er í þróun, ARTE-verðlaunin fyrir
besta verkefnið á CineMart,“ segir
Anton Máni, en viðurkenningunni
fylgdu 6.000 evra peningaverðlaun.
„CineMart er samframleiðslumark-
aður hinnar virtu alþjóðlegu kvik-
myndahátíðar í Rotterdam í Hol-
landi,“ segir Anton Máni og bendir á
að myndin hafi verið kynnt fyrir 40
mögulegum samstarfsaðilum hvað-
anæva úr heiminum, þ. á m. framleið-
endum, sjónvarpsstöðvum og alþjóð-
legum sölu- og dreifingaraðilum.
„Hvítur, hvítur dagur var aðeins eitt
af 16 verkefnum sem voru valin úr
tæplega 400 umsóknum. Verkefnið
var einnig eitt af eingöngu tveimur
sem valin hafa verið í svokallaða
Rotterdam-Berlinale Express, sem
þýðir að verkið verður einnig kynnt á
Berlinale samframleiðslumark-
aðnum í Þýskalandi sem hefst 16.
febrúar,“ segir Anton Máni.
Ljósmynd/Jonas Olufson hjá Ritzau Scanpix
Gleðistund Hlynur Pálmason fyrir miðri mynd ásamt samstarfsfólki sínu úr myndinni Vetrarbræður.
Vetrarbræður sigursælir
Fyrsta kvikmynd Hlyns Pálmasonar í fullri lengd hlaut
samtals níu Róbert-verðlaun í Danmörku um helgina
ICQC 2018-20
BÍÓ
áþriðjudögum í Laugarásbíó
750
á allarmyndir
kr.
FRÍ
ÁFYLL
ING
Á GOS
I
Í HLÉI
SÝND KL. 9SÝND KL. 5.30SÝND KL. 7.50, 10.30
SÝND KL. 5.30SÝND KL. 10.15SÝND KL. 8SÝND KL. 5.30
Tíska &
förðun
Fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 16. febrúar
Í Tísku og förðun verður fjallað um
tískuna í förðun, snyrtingu og fatnaði,
fylgihlutum auk umhirðu húðarinnar,
dekur og fleira
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 16 föstudaginn 9. febrúar
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
SÉRBLAÐ
–– Meira fyrir lesendur