Morgunblaðið - 06.02.2018, Síða 36

Morgunblaðið - 06.02.2018, Síða 36
ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 37. DAGUR ÁRSINS 2018 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 608 KR. ÁSKRIFT 6.597 KR. HELGARÁSKRIFT 4.119 KR. PDF Á MBL.IS 5.851 KR. I-PAD ÁSKRIFT 5.851 KR. 1.Óvænt 50 ára afmæli Jóns Ásgeirs 2.Slasaðist alvarlega við að veita ... 3.Vill ekki skulda neinum neitt 4.Íslenskir víkingar í Ofurskálinni »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Gítarleikarinn Andrés Þór og kvart- ett hans hefja vordagskrá Jazz- klúbbsins Múlans á Björtuloftum í Hörpu annað kvöld kl. 21. Ásamt Andrési skipa kvartettinn Agnar Már Magnússon sem leikur á píanó, bassaleikarinn Þorgrímur Jónsson og Scott McLemore sem leikur á tromm- ur. Kvartettinn mun leika nýja efnis- skrá með lögum úr smiðju Andrésar. Hefja vordagskrána  Gunnar Harðarson, prófessor við sagnfræði- og heimspekideild Háskóla Íslands, ræðir um útgáfu sína á riti Helga Sigurðssonar, Ávísun um upp- dráttar- og mál- aralistina, á morgun, miðviku- daginn 7. febrúar kl. 12, á vegum Listfræðafélag Ís- lands í Safnahúsinu við Hverfisgötu. Ritið er hið eina íslenska frá fyrri öld- um sem fjallar um myndlist á fræði- legan máta og var hugsað sem kennslubók í málaralist og teikningu, sem höfundur skrifaði er hann var við nám í Kaupmannahöfn árið 1846. Fjallar um rit Helga  Kvartett saxófónleikarans Jóels Pálssonar kemur fram á djasskvöldi Kes hostels í kvöld kl. 20.30. Hljóm- sveitina skipa, auk Jóels, Eyþór Gunnarsson á píanó, Valdimar K. Sigurjónsson á kontrabassa og Matthías Hemstock á trommur. Kvartettinn mun í kvöld leita í smiðju John Coltrane og Thelonius Monk. Coltrane og Monk á djasskvöldi Kex Á miðvikudag SA 15-20 m/s og snjór um morgun, síðar slydda eða rigning, en hægari og úrkomuminni NA-til. Snýst í hægari SV- átt með éljum undir hádegi, en léttir til á N- og A-landi síðdegis. Hiti 0-5 stig S- og V-lands framan af degi, frost annars 1-6 stig. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Dregur talsvert úr vindi og rofar víða til en snýst í vaxandi suðaustanátt seinni partinn, 13-18 m/s og fer að snjóa við suðvesturströndina seint í kvöld og hlánar þar. VEÐUR Eftir sex sigra í Olísdeild karla í röð voru það Mosfell- ingar sem kipptu Selfyss- ingum aftur niður á jörðina þegar liðin mættust á Sel- fossi í gærkvöldi. Ef til vill óvænt úrslit þar sem Mos- fellingar hafa orðið fyrir skakkaföllum en Afturelding vann sig vel inn í leikinn á lokakaflanum og barðist fyrir sigrinum. Lokatölur urðu 27:28 eftir mikla dramatík. » 2 Endi bundinn á sig- urgöngu Selfoss „Ég er kannski öðruvísi en margir aðrir vegna þess að ég velti mér sem minnst upp úr árangri eða vænt- ingum. Því minni væntingar, þeim mun betri verður árangurinn oft og tíðum. Ég ætla að skíða á mínum hraða. Hverju það skilar verður bara að koma í ljós. Vonandi hittir maður vel á daginn,“ segir Sturla Snær Snorrason sem keppir fyrir Íslands hönd í alpagreinum á Vetr- arólympíuleik- unum í Pyong- chang. »1 Velti mér ekki upp úr árangri eða væntingum Nick Foles var maður leiksins þegar Philadelphia Eagles vann Ofurskál- arleikinn í bandaríska ruðningnum. Hann hafði átt erfitt uppdráttar undanfarin fimm ár og hugsaði um að gerast prestur eftir síðasta keppnis- tímabil. Hann ákvað þó á endanum að hann myndi sjá eftir félagsskap sam- herja sinna og einu tækifæri í viðbót að stjórna liði til sigurs. »4 Hugleiddi að gerast prestur fyrir tímabilið ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Steinþór Guðbjartsson steinthor@mbl.is Íslenskir félagar í reglu Mölturidd- ara eru að undirbúa árlega píla- grímsferð til Lourdes í Frakklandi fyrstu helgina í maí og er gert ráð fyrir að um 15 manns fari héðan, þar af fjórir sjúklingar. Regla Mölturiddara (þekkt á ensku undir nöfnunum The Sover- eign Military Hospitaller Order of Saint John of Jerusalem of Rhodes and of Malta, Sovereign Military Order of Malta (SMOM) eða Order of Malta) er hjálparregla kaþólsku kirkjunnar tileinkuð heilögum Jó- hannesi skírara, sem hinn sæli Ger- ard stofnaði í Jerúsalem 1048 í þeim tilgangi að efla kaþólska trú og hjálpa sjúkum og fátækum. Höfuðstöðvar reglunnar eru í Róm. Hún er fullveldi, gefur út eig- in vegabréf, gjaldmiðil og frímerki, og er með sendiráð í 106 ríkjum. Hún er með áheyrnarfulltrúa hjá Sameinuðu þjóðunum og öðrum al- þjóðlegum stofnunum. Um 13.500 riddarar og dömur eru í reglunni, sem nýtir starfskrafta um 80.000 sjálfboðaliða í yfir 120 ríkjum, þar af um 25.000 fagfólks eins og lækna og hjúkrunarfræðinga. Reglan leggur sig í líma við að aðstoða fátæka og sjúka og er henni ekkert óviðkomandi í því efni. Í byrjun maí á hverju ári fara um 10.000 manns til Lourdes og er þá farið með um 1.500 sjúklinga sem fá þar andlegan stuðning og líkamlega lækningu. Mikilvægt starf Gunnar J. Friðriksson og Hreinn Líndal voru vígðir inn í regluna 1993, fyrstir Íslendinga, en Hreinn starfaði fyrir hana hjá Sameinuðu þjóðunum í 15 ár. Ragnar, sonur Gunnars, var næstur inn og svo Gunnar Örn Ólafsson, sem var vígður 2007. Nú eru félagar sjö að meðtöldum séra Jakobi Rolland, presti kaþólska safnaðarins á Ís- landi. „Reglan vinnur mikið mann- úðarstarf úti um allan heim og í Lourdes fá sjúklingar lækning- armátt úr frægum böðum í helgu vatni sællar Maríu meyjar frá Lourdes,“ segir Gunnar, sem fór fyrst í pílagrímsferð þangað 2008. Hann bætir við að reglan sé með mikla starfsemi í Evrópu og reki m.a. sjúkrabíla á Írlandi og í Þýskalandi. Þegar flóðbylgja olli miklu tjóni á ströndum við Ind- landshaf fyrir nokkrum árum hafi herforingjastjórnin í Mjanmar eng- um hjálparsamtökum hleypt inn í landið nema Mölturiddurum, því hún hafi litið á þá sem óháð samtök. Íslensku riddararnir tilheyra Norðurlandadeild reglunnar og var aðalfundur hennar síðast á Íslandi 2016. Aðalfundurinn var í Finnlandi í fyrra og verður í Svíþjóð í ár, en Gunnar er í stjórn deildarinnar. Fyrir skömmu fengu íslensku fé- lagarnir sendar 100 úlpur frá Ástr- alíu og hafa Hjálpræðisherinn, gistiskýlið á Lindargötu og Teresu- systur dreift þeim. „Við aðstoðum þær eftir megni en auk þess förum við meðal annars í sjúkravitjanir og sækjum fólk, sem þarf aðstoð, í messur,“ segir Gunnar um helstu verkefni Mölturiddara á Íslandi um þessar mundir. Öflugir íslenskir Mölturiddarar  Um 13.500 riddarar og dömur auk 80 þúsund annarra sjálfboðaliða í reglunni Mölturiddarar á Íslandi Frá vinstri: Gunnar Örn Ólafsson, Hreinn H. Líndal, Jóhannes Halldórsson, séra Jakob Rolland, prestur reglunnar á Íslandi, Bjarni Halldórsson, Ragnar Gunnarsson og Jóhanna Long. Mölturiddarar sinna mikilvægu hjálparstarfi víða um heim og fjölmenna árlega til Lourdes. Frakkland Þórunn Kjaran Gunn- arsdóttir fyrir framan hellinn þar sem María mey birtist heilagri Bernadettu 1858.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.