Morgunblaðið - 06.02.2018, Side 13
Aðstandendur forvarnarverkefnisins
Blátt áfram halda námskeiðið Vernd-
arar barna kl. 12.30-15.30 í dag,
þriðjudaginn 6. febrúar, í húsnæði
sínu Faxafeni 9. Markmiðið er að
veita fullorðnu fólki öfluga fræðslu
og markvissa þjálfun í að fyrirbyggja,
þekkja og bregðast við kynferðislegu
ofbeldi á börnum af hugrekki og
ábyrgð. Námsefnið Verndarar barna
er sérhannað fyrir stofnanir, fyrirtæki
og félagasamtök sem þjóna börnum
og unglingum sem og einstaklingum
sem bera ábyrgð á umönnun og
verndun barna; sinna eigin eða ann-
arra. Skráning: blattafram-
@blattafram.is eða í síma 533 2929.
Forvarnarverkefnið Blátt áfram
Morgunblaðið/Eggert
Vernd Námskeiðið er til að virkja hina
fullorðnu til að vernda börnin gegn
kynferðislegu ofbeldi.
Námskeiðið Verndarar barna
Theatre í London á sér langa sögu
og er þekkt meðal leikhúsunnenda
og var verkið „Rabbit“ meðal ann-
ars sett þar upp en höfundur
verksins, Nina Raine, vann til
verðlauna árið 2006 fyrir verk sín.
Dísa segist hlakka mikið til að
setja upp sitt fyrsta verk í svo
sögufrægu leikhúsi. „Það er af-
skaplega spennandi tækifæri að fá
að setja upp mitt fyrsta verk í
svona flottu leikhúsi. Fullt af
þekktum verkum hefur byrjað
þarna, eins og til dæmis The Play
That Goes Wrong sem verður sett
upp á Íslandi bráðum. Við byrjum
æfingar í næstu viku og ég get ekki
beðið. Þetta er rosalega kostn-
aðarsamt allt saman og ákveðin
áhætta í því sem framleiðandi að
setja allt sitt í þetta en ég er með
annan fjárfesti og svo settum við
upp hópfjáröflunarsíðu þar sem
fólk getur gefið til þess að hjálpa
okkur að gera sýninguna eins vel
og hægt er.
Reynir fyrir sér í London
Dísa segist ekki ætla að flytja
sig um set á næstunni þar sem
henni líkar afar vel í London, en
hverjar skyldu áætlanir hennar
vera í nánustu framtíð?
„Þetta er allt voða óljóst eins
og er, hvert ég stefni eftir að við
ljúkum við að sýna verkið. Ef það
gengur vel væri gaman að taka það
lengra og fara á sýningarferðalag
og jafnvel vera með fyrirlestra um
heilbrigð sambönd meðfram því.
En ég held allavega áfram að búa í
London og reyna fyrir mér þar, ég
er með umboðsmann hérna og
þrælfína íbúð svo ég er ekkert að
plana að flytja mig um set á næst-
unni.“
Ljósmynd/Christelle Chelbi
Dísa Hjördís Nína Egilsdóttir heillaðist ung af heimi leiklistarinnar.
ritið, Is This Thing On?, leit dags-
ins ljós.
Samtöl og ljóð
Dísa segist lengi hafa gengið
með hugmyndina að leikritinu í
maganum. „Is This Thing On? er
verk sem ég er búin að ætla mér að
skrifa í tvö ár, það bara lætur mig
ekki í friði má segja. Þannig að eft-
ir útskrift frá Arts University
Bournemouth settist ég niður og
tók saman allt efnið sem ég er búin
að vera að vinna með síðastliðin tvö
ár og setti saman í þetta verk.“
En um hvað fjallar verkið?
„Verkið fjallar um heimilis-
ofbeldi og áhrif þess á unga konu
sem er að vaxa úr grasi. Það er
blandað saman venjulegum sam-
tölum og ljóðum til þess að skapa
umræðu um heimilisofbeldi og or-
sakir þess. Við munum einnig
koma til með að nota eitthvað af
dansi og leik en danshöfundur
verksins heitir Julie V. Holm“
Leikhúsið The Old Red Lion
„Is This Thing On? er
verk sem ég er búin að
ætla mér að skrifa í tvö
ár, það bara lætur mig
ekki í friði má segja.“
Hópfjármögnun fyrir leikritið,
Is This Thing On?:
www.gofundme.com/isthisthingon
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 6. FEBRÚAR 2018
Betra start fyrir þig og þína
TUDOR
er hannaður til þess að þola
það álag sem kaldar nætur skapa.
Forðastu óvæntar uppákomur.
Við mælum
rafgeyma og
skiptum um
- Hraðþjónusta
Bíldshöfða 12 • 110 Rvk • 577 1515 • skorri.is
Mikið úrval - Traust og fagleg þjónustaVeldu
öruggt
start me
ð
TUDOR
Veitingastaðurinn KOKS í Færeyjum,
sem fékk Michelin-stjörnu fyrir ári,
verður opnaður á nýjum stað í apríl.
Eigendur staðarins misstu leigu-
húsnæði í Kirkjubæ, skammt frá
Þórshöfn, síðasta haust og fóru að
finna nýjan stað. Niðurstaðan varð
gamall bóndabær við Leynavatn, er
nefnist Frammi við Gjónna. Húsið var
reist árið 1740, með hlöðnum stein-
veggjum og torfþaki.
Matreiðslumeistari KOKS, Poul
Andrias Ziska, leggur mikið upp úr
náttúrulegu umhverfi og rækt við
færeyska matarhefð, menningu,
húsagerðarlist og landbúnað.
Frammi við Gjónna er í um 20 mín-
útna akstursleið til norðvesturs frá
Þórshöfn, skammt frá þjóðveginum
og jarðgöngunum sem liggja yfir í
eyjuna Vága, þar sem eini flugvöllur
Færeyinga er.
Eigendur KOKS byrjuðu að taka við
borðapöntunum á nýja veitinga-
staðnum 1. febrúar. Til að byrja með
verður aðeins opið á kvöldin, frá
þriðjudögum til og með laugardegi.
Nánari upplýsingar á koks.fo.
Michelin-veitingastaðurinn KOKS í Færeyjum
Ljósmynd/KOKS
Færeyjar Veitingahúsið flytur í gaml-
an bæ við Leynavatn frá 1740.
Frá Kirkjubæ að Leynavatni